Þjóðviljinn - 27.02.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 27.02.1982, Blaðsíða 11
Helgin 27.-28. febrúar 1982 WÓÐVILJINN — SIÐA 11 25. Stefán Thors, arkitekt Oldugata 30a 26. Steinunn Jóhannesdóttir, leikari, Höröaland 4 , 27. Karl Guðmundsson, stýrimaður, Suðurhólar 26 29. Jóhann Geirharðsson, verkamaður, Bakkasel 36 x G 28. Bjargey Eliasdóttir, fóstra, Melbær 22 Það verður kosið um G-listann eða gamla íhalds- tímann í Reykja- vík 30. Ragna Olafsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavikur, Tómasarhagi 12 31. Rúnar Geir Sigurðsson, læknanemi Háagerði 20 32. Hallgrimur Guömundsson stjórnmálafræöingur, Birkimelur lOa 33. Elisabet t>orgeirsdóttir, blaðamaður, Kaplaskjólsvegur 31 38. Grétar Þorsteinsson form. Trésmiöafélags Reykjavikur Hraunbær 53 34. Sigurður Rúnar Jónsson, hljómlistamaður, Steikshólar 12 39. Þórunn Klemensdóttir, hagfræðingur, Bræðraborgarstig 21b 35. Silja Aðalsleinsdóttir, bókmenntal'ræðingur, Kirkjuteigur 33 40. Alfreð Gislason, læknir, Barmahlið 2 41. Tryggvi Emilsson, rithöfundur, Fellsmúla 22 42. Guömundur Vigfússon, fv. borgarfulltrúi, Heiðargerði 6 36. Kristján Guðbjartsson, varaformaöur Málaraielags Reykjavikur Sogavegur 140 37. Bergþóra Gisiadóttir, sérkennslufulltrúi, Einarsnes 42 Sigurjón Pétursson efsti maður á lista Alþýðu- bandalagsins í Reykjavik Samfelld SÓKN ,,I þeim kosningum sem fram und- an eru verða það ekki aðeins stefnu- mál okkar sem við berum fram held- ur einnig störf okkar og þau þurfum við ekki að verja heldur sækja fram i samfelldri sókn á öllum sviðum”, sagði Sigurjón Pétursson m.a. i ræðu á félagsfundi Alþýðubandalagsins i Reykjavik i fyrrakvöld, eftir að framboðslistinn, sem birtur er hér til hliðar hafði verið ákveðinn. Miklar breytingar ,,Ef litið er á hvaða breytingar hafa orðið i Reykjavik á þessum fjórum árum er af mörgu að taka. Fyrirtæki hafa hætt flótta sinum frá borginni ogerufarinaðkoma tilbaka. Fyrirtæki borgarbúa, Bæjarútgerð Reykjavikur, hefur verið stórlega eflt og stuðlað hefur verið að uppbyggingu nýiðnaðar i borginni með öflugu starfi atvinnumálanefndar. A sviði umhverfismála hefur orðið bylting. Ekki bylting eins og sú sem fyrrverandi borgarstjóri Birgir Isleifur Gunnarsson beitti sér fyrir og fólst i þvi að mála græna bletti á kort, heldur bylting á sviði framkvæmda i umhverfismálum. Drjúgt starf hefur verið unnið að þvi að endur- reisa gömul hús i miðbænum og vekja gömlu borg- ina til lifs jafnframt þvi sem sótt hefur verið fram i nyjum hverfum. 1 félagsmálum hafa orðið miklar framfarir, hjá ungum jafnt sem öldruðum og þessir hópar búa nú við langtum meira öryggi en fyrir fjórum árum. í skipulagsmálum hefur orðið hugarfarsbylting og mikið starf verið unnið. Ekki aðeins að ný hverfi hafi verið reist og sótt hafi verið fram til nýrra byggða heldur einnig i gamla bænum, þar sem skipulögð hafa verið svæði sem hafa verið i ára- langri óvissu og hættu. Með þessu endurreisnar- starfi er liklegt að borgin fari loks að taka á sig mynd. 1 iþrótta- og æskulýðsmálum höfum við lagt áherslu á að bæta aðstöðu fyrir almenningsiþróttir sem allur þorri manna getur stundað sér til hress- ingar og heilsubótar. Nægir þar að minna á skiða- miðstöðina i Bláfjöllum og á endurbætur og ný- byggingar sundlauga. Það sést að fólk kann að meta þessi störf. A sið- asta kjörtimabili fluttu um 1000 manns úr Reykja- vik umfram þá sem fluttu til borgarinnar, en á ár- unum 1978 til 1982 hefur þessi þróun snúist við og Reykvikingum hefur aftur fjölgað um þúsund. At- vinnufyrirtækin eru einnig farin að sækja til borgarinnar á ný”. Siðar i ræðu sinni sagði Sigurjón Pétursson: Um hvað verður kosið „Það verður kosiðum það i Reykjavik i vor, hvort haldið verður áfram að byggja upp félagslega þjón- ustu fyrir börn, unglinga og aldraða i þessari borg, eða hvort dregið verði úr framlögum til þeirra hluta. Þaö verður kosiöum það hvort áfram skuli haldið við að byggja upp Bæjarútgerð Reykjavikur eða hvort endurreisn hennar skuii stöðvuð eins og Davið Oddsson hefur nú lagt til. Það verður kosiðum það hvort áfram skuli unnið að skipulagningu borgarinnar með þarfir fólksins i huga eða hvort hagsmunir byggingarbraskaranna skuli ráða. Það verður kosið um það hvort áfram skuli út- hlutað lóðum án tillits til pólitiskra skoðana um- sækjenda eða hvort hrossakaupin haldi innreið sina á ný. Það vcrður kosiðum það hvort áfram skuli byggt félagslegt húsnæði i þessari borg og leiguhúsnæði. Það verður kosið á milli félagsiegrar framfara- stefnu undir forystu Alþýðubandalagsins og niður- skurðarstefnu Sjálfstæðisflokksins i anda Thatch- ers og Reagans. Ef Alþýðubandalagið tapar fylgi, þá tapa þessi sjónarmið fylgi. Haldi Alþýðubandalagið velli, halda þessi sjónarmið velli i stjórn borgarinnar. En það er engin spurning um það að ofangreind atriði verða lögð til hliðar vinni ihaidið borgina i vor. Þá heldur gamli timinn innreið sina i Reykjavik á ný.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.