Þjóðviljinn - 27.02.1982, Blaðsíða 25

Þjóðviljinn - 27.02.1982, Blaðsíða 25
Helgin 27.-28. febrúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25 tónlist Edda Erlends- dóttir með tón- leika á Kjarvalsstöðum Edda Erlendsdóttir pianó- leikari mun halda tónleika að Kjarvalsstöðum á morgun sunnu- daginn þ. 28. febrúar n.k. og munu tónleikarnir hefjast kl. 5 siðdegis. A tónleikunum verða flutt eftir- farandi verk: Paysage og Improvisation eftir Emmanuel Chabrier. Nocturne nr. 6 og 63 eftir Gabriel Fauré. 3 etýður eftir Claude Debussy. Koss Jesúbarnsins eftir Olivier Messiaen. Jeux d’Eau og Ondine eftir Maurice Ravel. Þetta eru allt verk eftir frönsk tónskáld og eru samin á tima- bilinu 1890—1944. Verkin eru meira eöa minna tengd þeirri stefnu sem nefnd hefur verið impressionismi i tónlist og varð Edda Erlendsdóttir, pianóleikari. til i Frakklandi i lok siðustu aldar. bess skal getið að hluti af þess- ari efnisskrá var fluttur á Háskólatónleikum föstudaginn 19. febrúar s.l. Edda Erlendsdóttir stundaði nám við Tónlistarskólann I Reykjavik og lauk þaðan einleik- araprófi 1973. Hún hlaut siðan franskan styrk og stundaði nám viö Tónlistarskólann i Paris i 5 ár Edda hefur áður haldiö tónleika hér á landi og hefur einnig gert upptökur fyrir Rikisútvarpið. Hún er nú búsett i Parls. Tvennir tónleikar hjá Háskólakórnum Háskólakórinn heldur tvenna annað kvöld kl. 20.30. Tónleik- tónleika um helgina, aöra i dag, arnir eru haldnir i Félagsstofnun laugardag kl. 17.00, og þá seinni stúdenta. Klassískt kvöld á Hlíðarenda Það er ætlunin aö hafa tvö list- form i öndvegi á Veitinga- staðnum Hliðarenda annað kvöld, þ.e. matargeröarlistina og tón- listina. Hliðarendabændur eru að kveöja staðinn, en þar hefur nú verið skipt um eigendur. Af þessu tilefni ætla þeir að efna til „Síöasta klassiska kvöldsins á Hliðarenda” eins og þeir kalla það og hjónin Sigurður Björnsson og Siglinde Kahlman koma i heimsókn. Matreiðslumenn húss- ins verða meö sérstakan mat- seðil, logandi steikur og fleira. Allir á Hliöarenda annaö kvöld. Þursarnir út á land Þursaflokkurinn, sem nú hefur starfað nær samfellt i fjögur ár, leggur upp i sina fimmtu hljómleikaferð um landið. Þursarnir eru Asgeir Óskarsson slagverk, Egill Ölafsson söngur, Tómas Tómasson bassi, Þórður Arna- son gitar. Þursaflokkurinn mun leika á eftirtöldum stöðum: 28. feb. Félagsheimilinu Húsavik. 1. mars Héraðsskólinn Laugum. 2. mars Stórutjarnar- skóli. 3. mars Menntaskólinn Ákureyri. 4. mars Dynheimar Akureyri. 5. mars Félags- heimilinu Bifröst Sauöárkróki. 6. marsHéraösskólinn Reykjum Hrútafiröi. 10. mars Valaskjálf Egilsstöðum. 11. mars Héraðs- skólinn Eiöum. 12. mars Egils- búð Neskaupstað. 13. mars Herðubreið Seyöisfirði. 14. mars Sindrabær Höfn Hornafiröi. 15. mars Héraðsskólinn Skógum. 16—26. mars Reykjavik og nágrenni. Víðfrægur jass-gítar- leikari heimsækir ísland Paul Weeden, viðkunnur jass- gitarleikari, heimsækir Island i fyrsta skipti nú um mánaða- mótin. Hann leikur á tónleikum og skemmtunum, og leiðbeinir á námskeiðum, bæði á Akureyri og i Reykjavik i rúman hálfan mánuð. Paul hefur leikið inn á margar hljómplötur og á tónleikum með ýmsum frægum jass-leikurum og söngvurum, t.d. Sonny Stitt, Gene Ammons, Jimmy Smith, Nancy Wilson, Coleman Hawkins, Lou Bennett og Art Farmer. Hann hefur leikið á tónleikum og jass- hátiöum á fjölmörgum stöðum i fjórum heimsálfum, og komið fram sem einleikari með út- varps-jasshljómsveitum, bæði i Berlin, Stokkhólmi, Osló og viðar. A Akureyri dvelur Paul 1.—8. mars, og kennir á námskeiði á vegum Tónlistarskólans, Menntaskólans og Tónlistar- félagsins. Einnig leikur hann opinberlega á KEA. I Reykjavik kennir Paul á námskeiði á vegum Tónskóla FIH og leikur á skemmtistööum og klúbbum, en nánar verður greint frá þvi siðar. um helgina myndlist Gerla sýnir í Rauða húsinu Gerla opnar sýningu i dag á Installation-verki i Rauða húsinu á Akureyri. Installation eða innsetning, eins og það hefur verið kallað á isíensku, er listform þar sem listamaðurinn stillir upp ýmis- konar hlutum, aðfengnum eða búnum til af honum sjálfum, i ákveðiö rými. Einnig eru oft notuö hljóö. Er samspil hlutanna látið byggja upp ástand eða andrúmsloft meö uppstillingu þeirra og afstöðu. Gerla (Guðrún Erla Geirs- dóttir) stundaði nám i Myndlista- og handiðaskóla íslands. Hún lauk þaðan teiknikennaraprófi 1975 eftir fjögurra ára nám. Veturinn 1975—76 stundaöi hún þar nám i frjálsum textil. Haustið eftir hélt Gerla til Hollands i framhaldsnám við Gerrit Rietveld Academie i Amsterdam og lauk þaöan prófi i monumental textiel 1980. Auk þess lagði hún stund á leikbúninga- og leik- myndagerð. 1977—78 hlaut hún námsstyrk frá hollenska rikinu. Sýning Gerlui Rauða húsinu er fjórða einkasýning hennar. Auk þess hefur hún tekið þátt i sam- sýningum bæði hér heima og erlendis. Sýningunni lýkur sunnu- daginn 7. mars. Steinunn Þórarins dóttir sýnir á Kjar- valsstöðum Ný sýning hefur verið opnuð á Kjarvalsstöðum og þaö er Stein- unn Þórarinsdóttir sem sýnir þar verk sin. I sýningunni eru skúlp- túrar, flestir unnir i leir en einnig i gler, gifs, járn o.fl. Sameiginlegt viöfangsefni allra verkanna er hugleiðing um manninn sem ein- stakling og hópveru. Þetta er önnur einkasýning Steinunnar, en hún sýndi I Galleri Suöurgötu 7 fyrir 3 árum. Þá hefur hún tekiö þátt i sam- sýningum heima og erlendis. Sýning Steinunnar Þórarins- dóttur er i Vestursal Kjarvals- staða og er opin daglega frá kl. | 14—22. Henni lýkur 14. mars n.k. Paul Weeden, gitarleikari ALÞVÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalag Kjósarsýslu, Mosfellssveit. Félagsfundur verður haldinn i Hlégarði laugardaginn 27. þ.m. og hefst kl. 10.00 f.h. Dagskrá: Framboðsmál. — Stjórnin. Alþýðubandalagið Hveragerði Félagsfundur verður haldinn laugardaginn 27. febr. kl. 13.30 að Blá- skógum. Dagskrá: 1) Framboðsmál. Stjórnin. 2) önnur mál. Alþýðubandalagið Akureyri Auglýsir almennan félagsfund fimmtudaginn 4. mars kl. 20.30 F'undarefni: 1. Gengið frá framboðslista. 2. Fréttir frá nýliðnum fundi miðstjórnar og ráðstefnu um sveitarstjórnarmál. 3. Kosningastarfið. — Stjórnin. Alþýðubandalagsfélagar á Selfossi F'élagsfundur verður haldinn laugardaginn 6. mars n.k. kl. 14.00 að Kirkjuvegi 7 Selfossi. Dagskrá: 1) F'ramboðsmál 2) önnur mál. — Uppstillingarnefnd. Opið hús fyrir þátttakendur á sveitarstjórnarráð- stefnu AB og gesti þeirra Opið hús verður fyrir þátttakendur á sveitastjórnarráöstefnu Al- þýðubandalagsins og gesti þeirra i Þinghól i Kópavogi á laugar- dagskvöld. Húsið opnað kl. 21. — Kaffi, kökur og aðrar veitingar. — Kvöldrabb og óvæntar uppákomur. — Komum öll. Nefndin. Orðsendingtil Kópavogsbúa veana prófkjörs 6. mars n.k. 1) Kosningarétt hafa þeir sem veröa 18 ára einhvern tima á þessu ári, eöa eru eldri og eru búsettir i Kópavogi skv. skráningu bæjar- stjóra/Hagstofu 28. febrúar 1982. 2) Nöfnum á lista Alþýöubandalagsins veröur raöað eftir hendingu — ckki stafrófsröð. 3) A Iista Alþýöubandalagsins skal setja sex krossa, 3 viö kvennanöfn og 3 við karlanöfn. Stuöningsfólk! Veljum sjálf á G-listann, lista Alþýðu- bandalagsins. Tökum fullan þátt í prófkjörinu 6. mars. Stjórn og uppstillingarnefnd Arshátið Alþýðubanda- lagsins i Suðurlands- kjördæmi Arshátið Alþýðubandalagsins i Suðurlandskjördæmi verður haldin i Aratungu, föstudaginn 5. mars n.k. og hefst kl. 21.00. Dagskrá: 1. Margrét Frimannsdóttir, ávarp. 2. Visnavinir syngja. 3. Garðar Sigurðsson alþm., ávarp. 4. Helgi Seljan alþm., skemmti- atriöi. 5. Sigurgeir Hilmar, grin og gleði. Garðar Helgi Hljómsveit Stefáns P. leikur fyrir dansi til kl. 2 um nóttina. Og þaö er aldrei aö vita nema Jónas Arnason komi i heimsókn... AB í uppsveitum Arnes- sýslu og Kjördæmisráð. Landverndarsamtökin á N-Vesturlandi: „Eina leiðin til sæmilegs friðar” Eins og frá hefur verið skýrt hér i blaðinu hafa nýlega verið stofnuð Landverndarsamtök vatnasvæðis Blöndu og Héraðs- vatna. Telja þau nú fast að 400 manns. Hinn 17. febr. sl. boðuðu sam- tökin til fundar i félagsheimilinu Argarði i Lýtingsstaðahreppi. Fundinn sóttu hátt á annaö hundrað manns. Framsöguræður fluttu þeir ólafur R. Dýrmunds- son, landnýtingarráöunautur Búnaðarfélags íslands, Stefán H. Sigfússon, landgræðslufulltrúi og Bjarni Guöleifsson, formaöur Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi. A fundinum mættu og, samkvæmt tilmælum fundar- boöenda Kristján Jónsson og Guðjón Guðmundsson frá Raf- magnsveitum rikisins og Sigurð- ur Eymundsson, rafveitustjóri á Blönduósi, en urðu að hverfa af fundi áöur en honum lauk. Miklar umræður urðu á fundin- um og að þeim loknum var sam- þykkt svohljóðandi ályktun: „Almennur félagsfundur i Landverndarsamtökum Blöndu og Héraðsvatna, haldinn i Ar- garði 17. febrúar 1982 mótmælir harölega þeirri eyðingu gróður- lendis, sem virkjunarleið I við Blöndu hefur I för með sér. ' Jafnframt mótmælir fundurinn þeim vinnubrögðum, sem höfð hafa verið i frammi við samn- ingagerðina þ.e. aö knýja á um einhliða lausn, sem samrýmist ekki landverndarsjónarmiðum. Fundurinn krefst þess, aö reyndir verði samningar um að virkja Blöndu samkvæmt öðrum val- kostum, sem taka fullt tillit til landverndarsjónarmiöa og bend- ir jafnframt á, aö það sé eina leiö- in til aö sæmilegur friður verði um virkjunina”. Heimildir blaðsins herma, að Kristján Jónsson forstjóri Raf- mangsveitna rikisins, hafi lýst sig fúsan til frekari viðræðna um þessi mál viö stjórn samtakanna, væri þess óskað. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.