Þjóðviljinn - 07.08.1982, Qupperneq 3
Helgin 7. - 8. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Harmleikur
í Líbanon
og í ísrael
Síðustu vikur hefur um-
heimurinn fylgst með vo-
veiflegum harmleik í Líb-
anon — harmleiksem ísra-
elsmenn hófu með innrás
sinni í landið, og náð hefur
hámarki með umsáfrinu
um Beirút og endurteknum
sprengju- og loftárásum
um borgina. Afleiðingar
innrásarinnar eru hundruð
þúsunda flóttamanna, tug-
þúsundir látinna og særðra
og óbætanleg eyðilegging
helstu borga í Suður-Lib-
anon. Enn veit enginn
hvernig þessi harmleikur
Ólafur Ingólfsson
endar, — en ef ísraehs-
menn standa við hótanir
sínar um innrás í Beirút og
útrýmingu PLO, eru at-
burðir síðustu vikna aðeins
forspilið að enn meiri
þjáningum alþýðufólks i
þessum heimshluta.
Stefna Begins er
andsnúin gyðingdómi
Innrás Israels i Libanon er af-
leiðing innri þróunar i Israel, sem
stöðugt gengur lengra i átt að of-
beldisstefnu og mannfyrirlitn-
ingu. Þetta eru stór orð en þvi
miður sönn. Stefnu Begins og
Sharons má lika draga saman á
eftirfarandi hátt: Hernaðar-
stefna, útþenslustefna, mannrétt-
indabrot, og útrýmingarstefna.
Israelsriki hefur háð mörg strið
frá stofnun þess 1948. Framan af
var rikjandi viðhorf i tsrael að
styrjaldirnar væru óæskilegar.
„Göfugasta arfleifð gyðingdóms-
ins er náungakærleikur og frið-
semd og stríðin voru óæskileg og
sigrarnir einnig”, segir gyðingur-
inn og félagsfræðingurinn Joa-
chim Israel. En Begin og Sharon
byggja ekki á gyðingdómi heldur
zionisma sem er pólitisk stefna
sem i mörgu er andsnúin gyðing-
dómi. Begin talar ekki um gyð-
inga sem friðelskandi menn,
heldur talar hann ætið um hið
heilaga land gyðinga og notar það
sem afsökun til að vikja frá gyð-
ingdómi en réttlæta hernaðar-
uppbyggingu rikisins. Þetta er
mikilvæg viðhorfsbreyting sem
þvi miöur endurspeglar viðhorf
fjölmargra lsraelsmanna.
1 könnun sem gerð var fyrir
nokkrum árum i ísrael var ungt
fólk spurt að þvi hvort það liti á
sig sem gyðinga eða Israelsmenn,
eða hvort tveggja. Það kom á
óvart hve stór hluti þeirra sem
spurðir voru kváðust lita á sig
sem tsraelsmenn eingöngu.
Mörgum svörum fylgdu athuga-
semdir á þá leið, að gyðingar
hefðu látið Hitler murka úr sér
lifið og þvi væri fráleitt að likja
saman gyðingum og Israels-
mönnum.
I samræmi við andrúmsloftið i
tsrael i dag hefur Begin, sem var
eftirlýstur hryðjuverkamaður á
dögum Breta i Palestinu, leitt til
valda fyrrum vopnabræður sina
úr hryðjuverkasamtökum zion-
ista. Samkvæmt nýbirtum skjöl-
um frá sænska utanrikisráðu-
neytinu var það núverandi utan-
rikisráðherra tsraels, Shamir,
sem stóð að baki morðinu á
Bernadotte greifa sáttasemjara
SÞ i Palestinu á árunum eftir
heimsstyrjöldina siðari. t dag er
ástandið þannig i tsrael að „land-
ið er orðið risastórt gettó,yfirfullt
af fallbyssum og skotfærum. Her-
inn er þungamiðja landsins en
hann skortir sjálfsgagnrýni gyð-
ingdómsins og þar með náunga-
kærleik og friðsemi”, einsog Joa-
chim Israel orðar það.
Utþenslustefna
og ofbeldi
Útþenslustefna tsraels er öllum
kunn og hefur orðið tilefni mikilla
deilna og átaka á alþjóðavett-
vangi. Ég minni bara á innlimum
Gólan hæða og hins jórdanska
hluta Jerúsalem i tsraelsriki.
Eitt af timanna táknum i tsrael
eru aukin mannréttindabrot vax-
andi beiting ofbeldis af hálfu hins
opinbera. Almúginn á herteknu
svæðunum býr við herlög og
minnsti stuðningur viö PLO er
túlkaður sem hryðjuverkastarf-
semi. Viðurlög eru fangelsanir,
nauðungarflutningar og eigna-
upptaka. Fjöldi manns, trúlega á
milli 3000 og 5000 manns, situr i
fangelsum fyrir pólitiska starf-
semi. Alþjóða mannréttinda- og
mannvinasamtök, s.s. Rauði
krössinn og Amnesty Internation-
al hafa lýst áhyggjum sinum
vegna pyntinga i israelskum
fangelsum.
Annað form ofbeldis er það
þegar Israelsmenn leysa upp lýð-
ræðislega kjörnar bæjarstjórnir á
herteknu svæðunum, loka skólum
Palestinuaraba og banna útgáfu
blaða og timarita þeirra. Það eru
raunar fleiri en Palestinumenn
sem verða fyrir ofbeldisárásum.
Péres formaður verkamanna-
flokksins i Israel hefur kvartað
undan skipulögðum árásum of-
beldisseggja Likudbandalagsins
á fundi og starfsmenn flokksins.
Utrýmingarherferö á
hendur Palestinumönnum
Atburðir siðustu vikna hafa
bætt einni ávirðingu enn á stjórn
Begins: Nú skal PLO upprætt. 1
stað þess að velja leið friðarins og
leita eftir lausn á Palestinu-
vandamálinu með þvi að viður-
kenna rétt Palestinumanna til
sjálfsákvörðunar og landsvæðis,
er leitað eftir „endanlegri lausn”,
lausn vopnavalds og tortimingar.
Sprengjum hefur verið varpaö
yfir borgir og bæi, án tillits til
þess hvort fyrir þeim yrðu PLO -
hermenn eða hjúkrunarfólk,
fullorðnir eða börn, Palestinu-
menn eða Libanir. Miskunnar-
leysið i árásunum hefur sýnt að
hér er ekki verið að friða norður-
landamæri tsraels einsog fyrir-
sláttur var, heldur er hér um að
ræða kaldrifjaða útrýmingarher-
ferð.
tsraelska innrásarliðið neitar
aö viðurkenna PLO-hermenn sem
striðsfanga. Begin hefur lýst þvi
yfir aö þeir skuli dæmdir sem
glæpamenn. Eitt vandamál hefur
hann þó við að glima. öll fangelsi
eru nú þegar full af föngnum
stuðningsmönnum PLO. Það væri
kaldranalegt ef Begin gripi til
þess ráðs að reisa fangabúðir.
Bruno Kreisky, kanslari Aust-
urrikis, þekktur friðarsinni og
gyðingur, hefur fordæmt innrás
tsraels i Libanon og sagt að stjórn
Begins hafi visvitandi eyðilagt þá
möguleika sem voru á friðsam-
legri lausn Palestinuvandamáls-
ins.
Fordæmum
innrásina
reynt að útrýma gyðingum, en án
árangurs sem betur fer. Ég er
viss um að Begin og kumpánum
hans tekst heldur ekki að útrýma
PLO. Lausn Begins er engin
lausn og það að hann skyldi velja
„lausn” útrýmingar er harmleik-
ur jafnt fyrir gyðinga sem Palest-
inumenn.
Innrásina verður að fordæma
kröftuglega og krefjast þess að
réttur Palestinumanna til sjálfs-
ákvörðunar og eigin rikis verði
viðurkenndur. Stefna stjórnvalda
i Tel Aviv er til þess eins fallin að
auka enn á þjáningar manna i
Mið-Austurlöndum og mun, — til
lengri tima litið, kosta gyðinga
engu minni þjáningar en Araba.
Mig langar að siðustu að gera
að minum orðum orð israelska
heimspekiprófessorsins Joseph
Agassis i Tel Aviv. „t tsrael eru
of fáir gyðingar en of margir
harðsnúnir hernaðarsinnar, of
margir þjóðernissinnar og of
margir trúarofstækismenn sem
til samans hafa of mikil áhrif.”
Stefna er ógnun og ögrun við
málstað mannúðar og manrélt-
inda i heiminum, og ekki sist ógn-
un við málstað gyðinga.
Lundi Sviþjóð 21/7 1982.
Ólafur lngólfsson, jarðfræðingur
t rás sögunnar hefur verið
„Hafe svona vandaðir raðskápar
nokkum tíma verið seldir á jafii
hagstæöu verði ?“
Okkur hefur tekist að halda verðinu því sem næst óbreyttu
í heilt ár. 8% staðgreiðsluafsláttur eða 25% útborgun.
M€DINR
Brúnleit eða wengelituð eik,
fléttaður tágavefur í rammahurðum.
L]ós fylgir í neðri ljósakappa. íslensk
hönnun - íslensk framleiðsla.
ILg óska eftir aó fá sent MEDINA litmyndablaöið
KRISTJÁn
/ÆSIGGEIRSSOn HF.
Nafn:
LAUGAVEG113.
SMIÐJUSTIG 6. SiMI 25870
Heimili:_____________________________________________________________
Staöur:______________________________________________________________
| Sendistfil: Kristján Siggeirsson h.f Laugavegi 13.101 Reykjavík