Þjóðviljinn - 07.08.1982, Síða 4
' 4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 7. - 8. ágúst 1982
st jérnmál á sunnudegi
Baldur
Sósialistar láti að sér kveða i þýð-
ingarmestu félagshreyfingum
þjóðarinnar og þá fyrstog siðast
verkalýðssamtökunum.
Er þá aðeins getið um nokkur
helstu atriði sem menn voru að
velta fyrir sér varðandi starfs-
hætti okkar hreyfingar.
í samhengi við
sögulega þróun
En það var einkar fróðlegt að
finna, að þessar ábendingar frá
Laugarvatnshópnum um bætt
flokksstarf voru settar fram i
þeirri vissu að þróun heimsmála
og stjórnmála hér á landi kallaði
á sterkari hreyfingu islenskra
sósialista en nokkru sinni fyrr,
ætti islensk alþýða að halda sin-
um hlut og þjóðin sjálfstæðinu.
Kreppa og atvinnuleysi auðvalds-
rikjanna, sem hefur vonum fram-
ar tekist aö halda utangarðs hjá
okkur, gæti þegar minnst varir
knúið hér dyra.
Ljótar lýsingar
Það var lærdómsrikt að heyra
sjónarvotta lýsa ástandinu i ein-
Þeir 150 þátttakendur sem áttu
þess kost aö dvelja á Laugarvatni
i orlofsbúöum á vegum Alþýðu-
bandalagsins tvær siðustu vik-
urnar i júli, hafa allir lýst ánægju
sinni með þennan nýja þátt i
starfi flokksins. Staðurinn sjálfur
og þær aðstæður sem Laugarvatn
hefur upp á að bjóöa eiga aö sjálf-
sögðu sinn stóra þátt i árangri
þessarar aðgerðar, enda aðbún-
aður i Héraðsskólanum eins og
best verður á kosið.
Hitt er engu að siður stað-
reynd, að sjálft form og fyrir-
komulag orlofsdvalarinnar hefur
sannað gildi sitt. Þarna var boðið
upp á starfsemi sem ætluð var
fjölskyldunni allri og ánægjulegt
var að sjá hversu vel fór á með
þeim yngstu og elstu, þrátt fyrir
80 ára aldursmun.
Skemmtun og
frœðsla í senn
Sú fræðsla og umræða sem
fram fór á Laugarvatni var eink-
um þriþætt. 1 fyrsta lagi var lögð
áhersla á að kynna sögu staðarins
og byggðanna i kring, skoða nátt-
úruna og umhverfið og atvinnulif
og mannlif i fylgd hinna fróðustu
heimamanna. 1 annan stað var
fjallað itarlega um utanrikismál,
varpað ljósi á andstæður suðurs
og norðurs, vaxandi kreppu i iðn-
Allir þátttakendur i sumardvölinni á Laugarvatni eru á einu máli um að halda beri þessari starfsemi
áfram næsta sumar. Og ein af fjölmörgum hugmyndum sem urðu til á Laugarvatni varðandi nýjungar i
flokksstarfinu er sú að efna til fjölskyldusam veru um helgar i vetur.
Lifandi starf — sterk hreyfing
svar íslenskra sósíalista við harðnandi stéttaátökum
væddum rikjum, ágreining
Bandarikjanna og Evrópurikja,
vakninguna gegn kjarnorkuvopn-
um og þýðingu friöarhreyfingar-
innar og framtið Islands i ljósi
þessara hræringa.
t þriðja lagi var fjallað um is-
lensk stjórnmál, vandann i efna-
hags- og atvinnumálum, þátttöku
Alþýðubandalagsins i rikisstjórn
og starf og stöðu flokksins.
Þessar umræöur fóru ýmist
fram á fundum eða i samtölum
manna á milli, i stórum hópum
eða minni. Þar skiptust menn
óhikað á skoðunum og hinir eldri
miðluðu hinum yngri af dýrmætri
reynslu hinna hörðu stéttaátaka
kreppu- og atvinnuleysis fyrr á
öldinni.
Starfiö of lokaö
Við sem erum i trúnaðarstörf-
um fyrir Alþýðubandalagið, jafnt
hinir féiagslega kjörnu forystu-
menn sem ráðnir starfsmenn,
höfum fundið fyrir þvi siöustu
misserin að starf Alþýöubanda-
lagsins hefur hvorki verið nægi-
lega fjölþætt né náð tii nógu
margra. Flokksbundnir menn i
Alþýðubandaiaginu eru rétt tæp-
lega 3000talsins á landinu öllu. Sú
tala gefur þó ekki rétta hugmynd
um fjölda virkra þátttakenda i
flokksstarfinu, sem hefur um of
veriðbundið stofnunum flokksins,
þátttöku hans i rikisstjórn og
stjórnun sveitarfélaga.
Hægt aö breyta
til batnaðar
Vikurnar á Laugarvatni eru
vitnisburður um að þessu er hægt
að breyta. Við þurfum ekki að
stirðna i sömu stellingunni.
Skipulagsmál flokksins ber að
taka til rækilegrar skoðunar til að
koma i veg fyrir að þau verði
hindrun i framgangi hreyfingar-
innar og Iaga þau að nýjum að-
stæðum. Aðalfundir félaganna og
flokksráðsfundurinn i haust eru
kjörinn vettvangur til að taka
skipulagsmálin til meðferðar.
En hver sem niðurstaða skipu-
lagsmálanna verður þarf að gera
flokksstarfið lifandi og ánægju-
legt fyrir alla aldurshópa, þannig
að menn finni að i okkar hreyf-
ingu hafi þeir eitthvað að sækja
og ábendingar þeirra og ályktanir
séu metnar að verðleikum.
Ný flokksmiðstöð
Eitt af þvi sem staðið hefur
flokksstarfinu fyrir þrifum á und-
anförnum árum er hve miðstöð
flokksins i Reykjavik hefur búið
við óhentugt húsnæði. Þetta hefur
bitnaö bæði á starfi Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik og landssam-
takanna i heild.
Nú hefur það gerst að búið er að
selja eignina að Grettisgötu 3 og
fyrir dyrum stendur aö finna nýj-
an stað. Er við þaö miðað aö hægt
verði að flytja starfsemi flokks-
miðstöðvarinnar i nýtt og hent-
ugra húsnæöi á þessum vetri. Hér
verður ekki um að ræða neina
flokkshöll, heldur lögð áhersla á
aðlaðandi húsnæöi, öllum að-
gengilegt, á hentugum staö og
bjóði það upp á möguleika til fjöl-
þætts starfs.
Ef takast á að gera þennan
langþráða draum að veruleika er
ljóst að enn einu sinni þarf okkar
hreyfing að leita til stuðnings-
manna sinna um styrk og aðstoð.
Ég er ekki i neinum vafa um að
þvi verður vel tekið, þegar um er
að ræða átak af þessu tagi.
Orlofsbúðir að ári
Allir þátttakendur i sumardvöl-
inni að Laugarvatni eru á einu
máli um aö halda beri þessari
starfsemi áfram næsta sumar.
Sumir vildu þegar panta pláss
fyrir sig og sina og fá með þvi
tækifæri til að endurnýja kynnin
frá þvi i sumar og stofna til nýrra.
Ekki er heldur að efa að margir
fleiri vilja komast að, enda likegt
að sumarbúðastarfið verði fastur
liður á verkefnaskrá Alþýðu-
bandalagsins.
Helgardvalir í vetur
Ein af fjölmörgum hugmynd-
um sem urðu til á Laugarvatni
varðandi nýjungar i flokksstarf-
inu er sú að efna til fjölskyldu-
samveru um helgar i vetur, og er
það mái þegar i athugun. Þar
mætti á sama hátt og á Laugar-
vatni blanda saman leik og
fræðslu fyrir alla aldurshópa.
Gagnlegt væri að flokksskrifstof-
an fengi viðbrögð við þessari hug-
mynd frá sem flestum um leið og
menn bættu nýjum við.
Ábendingar um
starfshætti
hreyfingarinnar
Þótt dvalargestir á Laugar-
vatni hafi ekki að þessu sinni
dregið saman neinar niðurstöður
eða ályktað um stjórnmál og
starfshætti sósialiskrar hreyfing-
ar i okkar landi, finnst mér rétt að
koma hér á framfæri nokkrum
ábendingum og aðfinnslum um
okkar starf sem ég heyrði hjá
ýmsum. Þessar aðfinnslur voru
settar fram i þeim eina tilgangi
að okkar hreyfing gæti af þeim
lært og yrði þvi i framtiðinni bet-
ur i stakk búin að berjast fyrir
málstaö verkalýðshreyfingarinn-
ar. Og i þeim sama tilgangi eru
þær itrekaðar hér til umhugsun-
ar.
Starf flokksins verði opnara,
lifandi og fjölþætt. Reynt verði að
virkja fjöldann i pólitiskri stefnu-
mörkun. Stefnumótun flokksins
verði skýr og án tillits til þeirrar
málamiðlunar sem gera þarf i
samstarfi við aðra flokka i rikis-
stjórn eða sveitarstjórnum. Fá
þarf fólk til að starfa saman á
grundvelli ákveðinna áhugamála
eða aðgerða, án tillits til flokks-
aðildar.
Forystumenn flokksins, þing-
menn og aðrir kjörnir trúnaðar-
menn heimsæki fólk á vinnustaði
og við önnur tækifæri, ekki sist tii
að hlusta og læra. Bylta þarf allri
útgáfu- og útbreiðslustarfsemi
hreyfingarinnar og hafa áhrif á
þróun fjölmiðlunar i landinu.
stökum ríkjum, svo sem i Banda-
rikjunum, þar sem 10 miljónir
manna ganga atvinnulausar.
Aðrar 20 miljónir manna eru þar
á hungurmörkunum og lifa á
súpugjöfum kirkjudeilda og góð-
gerðarstofnana. A Norðurlöndum
einum er búist við að tala at-
vinnulausra verði ein miljón þeg-
ar á næsta ári. Ungt fólk i Evrópu
horfir margt til þeirrar framtiðar
að eiga ef til vill aldrei kost á at-
vinnu.
Kreppueinkennin
á íslandi
En áhrifa kreppunnar er þegar
tekið að gæta i islensku efnahags-
lifi. Þau áhrif koma ma. fram i
lokun markaða, verðlækkun sjáv-
arafurða, sölutregðu og bullandi
reksturshalla stóriðjufyrirtækj-
anna og svo mætti áfram telja.
Þegar við bætist hrun þýðingar-
mikilla fiskistofna eru kreppuein-
kennin ljóslifandi komin. At-
vinnuleysi er þeim mun alvar-
legra hér á landi en i ýmsum iðn-
aðarrikjum, þar sem eru trygg-
ingarsjóðir takmarkaðir og verk-
afóik hefur meiri fjármuni
bundna i byggingum og annarri
fjárfestingu en þekkist á byggðu
bóli. Hætt er við að samdráttur i
atvinnu, að ekki sé talað um lang-
varandi atvinnuleysi muni fljótt
leiða til þess að fólk missi eigur
sinar.
Erlendi
stóriðjukórinn
Erfiðleikar i islensku atvinnu-
lifi verða án efa einnig til þess að
postular erlendrar stóriðju á Is-
landi munu i vaxandi mæli láta
frá sér heyra á næstunni. Vanda
atvinnulifsins á að leysa með er-
lendu auðm.agni að þeirra mati.
Öflugra
Alþýðubandalag
Efnahagserfiðleikar, harðn-
andi stéttaátök, erlend stóriðju-
stefna, krafa Bandarikjanna um
aukin kjarnorkuvopn i hafinu um-
hverfis Island, allt þetta kallar á
öflugra og þróttmeira alþýðu-
bandalag sem býður upp á fjöl-
þætt og lifandi flokksstarf. Sam-
staða og starf á að vera okkar
svar við vanda samtimans. Lát-
um Laugarvatnsævintýrið verða
okkur hvatning til dáða.