Þjóðviljinn - 07.08.1982, Blaðsíða 11
Helgin 7. — 8. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Fleira
skiliö
eftir en
gull og
gimsteinar
Hollensku skipbrotsmenn-
irnir skildu fleira eftir sig en
gull og gimsteina austur i
Skaftafellssýslu. Þessa
frásögn er aö finna i al-
þingisbókum tslands árið
1669:
,,Var upplesið i lögríttu
skrif og framburður sýslu-
mannsins Einars Þorsteins-
sonar um þá kvensnipt
Ragnhildi Jónsdóttur i hans
sýslu, er nú i vetur barn alið
hafi og það kennt Pétri
Jakobssyni, sem verið hafi á
þvi hollenska Ost-Indiafari,
en maðurinn nú burtsigldur
Hér upp á svöruðu lögmenn
og lögréttumenn, að þeir
kynnu ekki að sjá, að konan
skyldi að sinni eið sverja upp
á sina sögu eða fyrr en til
álita komi, að þar um nauð-
synjandi, þvi ei bæri að
leggja nafns guðs við hé-
góma.”
sem nú gerist um skipsflök á
ströndum Skaftafellssýslna.
Skaftfellingar
hafa lagt hart að sér
Sveinn Pálsson segir 1793, að
„mestur hluti farmsins, sem var
mjög verðmætur, náðist og einnig
yfirbygging skipsins, en hitt allt og
þar með kjölfestan, sem var blý og
kopar, lenti í ánni og sökk á kaf í
sand“.
Sveinn er einn um að fullyrða
nokkuð um verðmæta björgun og
tjón og hafa heimdildamenn hans á
Skaftafelli vafalaust verið sann-
fróðir um endalok og innihald
skipsflaksins.
Samtíðarannálar bera þess vitni,
að menn vissu hér á landi þegar í
upphafi, hvað í skipinu var: gull,
perlur, silfur, kopar, eðalsteinar og
mikill auður af dýru líni. „Þeir hol-
lensku fluttu varninginn að aust-
an“7 segir Fitjaannáll og bætir við:
„Voru sýslumenn fyrir austan
tilskyldaðir að flytja varninginn til
Bessastaða".
„Var svo af varningi flutt mikið
til Bessastaða, bæði um haustið og
veturinn" (Kjósarannáll).
„Otto Bielke fékk heilan hóp af
þessa skips inni hafandi góssi" (Ár-
ni Magnússon).
„Commendanten Otte reiknaði
þetta fyrir vogrek og kóngsfé og
skikkaði strengilega sýslumönnum
að flytja það til Bessastaða, og vissi
hann best, hvað þá varð af því;
komu þó eigi öll kurl til grafar",
segir Jón Halldórsson í Hirðstjóra-
annál.
í samantekt sinni segir Björn
Þorsteinsson:
„Það er eflaust, að menn hat'a
komist út í skipið eftir strandið og
bjargað þaðan hinu verðmætasta í
gulli og gimsteinum, þótt þeir hafi
ekki flutt þann varning í smálestum
yfir ár og sanda. Hins vegar hafa
byssur og kjölfestan orðið eftir, og
þá námu reyndu Skaftfellingar að
nýta næstu öldina á eftir og rúm-
lega það. Engir menn hafa vitað
betur en þeir, hvað í skipinu var, og
gefur þá auga leið, að þeir hafa lagt
hart að sér við björgunarstarfið.
Eftirtektarverðasta staðreyndin
varðandi þetta strand virðist vera
sú, að sandelgur Skaftárþings mun
þá ekki til orðinn, og í fulla öld lá
Het Wapen van Amsterdam á
Sandfjöru ofan sands og sjávar að-
gengilegt oft um stórstraums-
fjöru“.
GFr
Sýning á dönsku postulíni
Danir eiga mjög rótgróna og
gamla hefö í postulínsgerð og
eru tvær verksmiðjur í Dan-
mörku á elstum og rótgrónust-
um merg í þeim efnum, Kon-
unglega postulínsverksmiðjan
og Bing & Gröndal. Síðar-
nefnda verksmiðjan mun nú í
lok mánaðarins, 26.-30. ágúst
n.k. efna til umfangsmikils sýn-
ingahalds víða um land ogverð
ur stærsta sýningin að Kjarv-
alsstöðum í Reykjavík. Einnig
verða sérsýningar hjá umboðs-
mönnum víða um land.
Postulmsverksmiðj a Bings & Gröndals að Vesterbrogade 149 í
Kaupmannahöfn. Fremst á myndinni er safnið. Fyrir aftan það er að-
alverksmiðjuhúsið frá 1853.
leiddur hjá Bing &Gröndal árið
1895; ásamt merkum munum frá
núverandi framleiðslu meðal ann-
ars heildarsamstæða af hinu þekkta
„Mávastelli" frá aldamótum, um
það bil 100 hlutir.
f tengslum við sýninguna að
Kjarvalsstöðum verður starfandi
lítil deild frá postulínsverksmiðj-
unni í Kaupmannahöfn þar sem
einn af postulínsmálurunum frá
Bing &Gröndal mun sýna hvernig
handskreytingin er unnin að gam-
alli hefð, en það er annars aðeins
hægt að sjá í verksmiðjunni sjálfri í
Kaupmannahöfn.
Á sýningunni að Kjarvalsstöð-
um verða sjaldgæfir munir frá
fyrstu árum postulínsverksmiðj-
unnar; sérunnin listaverk eftir nú-
tíma listamenn; heildarsafn af jóla
plöttum ; þar á meðal fyrsti jóla-
píatti heimsins sem var fram-
Mikið um að
vera hjá
KR-ingum á
sunnudaginn
KR-dagurinn 1982 verður sunn-
udaginn 8.ágúst. Dagskrá verður
með hefðbundnum hætti, keppni í
hinum ýmsu íþróttagreinum og að
sjálfsögðu munu KR-konur sjá um
kaffi- og veitingasölu allan daginn.
Keppni á félagssvæðinu hefst
kl.13.30 og lýkur um kl. 17. Aðal-
hluti dagskrárinnar verður Pepsi-
mótið í knattspyrnu 1982. Þar er
um að ræða tvö fjögurra liða mót í
ó.flokki a og b. KR, Stjarnan, Vík-
ingur og Próttur keppa um hin
veglegustu verðlaun sem Sanitas
hf. veitir.
Pepsi-mótið stendur yfir allan
tímann á grasvöllum 1 og 2 en á
grasvelli 3 verða leikir í 4. og
5.flokki, auk leiks meistaraflokks
kvenna gegn stjórn knattspyrnu-
deildar en hann er á dagskrá
kl.15.10
í stærri íþróttasal hefst hand-
knattleikur kl. 13.30 og leikið í
2.flokki kvenna, meistaraflokki og
4.flokki karla. Á sama tíma verður
körfuknattleikur í minni fþrótta-
salnum, kl. 14 verður þar badmint-
on, kl. 15 fimleikar og kl. 15.30
borðtennis.
Allir áhugamenn um félags- og
íþróttamál eru boðnir velkomnir,
en sérstaklega forráðamenn ungra
KR-inga auk annarra félaga.
Pétur
Stefánsson
með sýningu
í gær opnaði Pétur Stefánsson
myndlistarmaður sýningu í Gallerí
Austurstræti 8. Þar sýnir Pétur
malerísk, ljóðræn prentverk. Pétur
er nýútskrifaður úr Myndlista- og
handíðaskóla íslands.
Sýningin stendur óákveðinn
tíma og hún er opin -allan
sólarhringinn.
Dúkur frá
Yfir fjörutiu ára sérhæfing i sölu veggfóðurs og gólfdúka tryggir
viðskiptavinum vorum holl ráð og fullkomna þjónustu.
Úrval af munstrum, litum og tegundum auk allra nauðsynlegra
verkfæra og áhalda til dúklagninga.
CGFOSRRRIKH*
Hverfisgötu 34 - Reykjavík
Sími 14484 - 13150
Úrval af
málningu
og
málningar*
vörum
C
4
ENDURBÆTT HUSNÆÐI
BETRI ÞJÓNUSTA
LÍTIÐ VIÐ
Heimilið verður fallegra með
veggfóðrinu viðurkennda