Þjóðviljinn - 07.08.1982, Blaðsíða 13
Ungviðið lyfti sér upp i sól og sumaryl í AUavikinni um verslunar-
mannahelgina.
Herlegheitin hófust að kvöldi
föstudags með tónleikum Þursa-
flokksins og voru þeir samir við
sig og hlutu óspart lof áheyrenda.
Að loknum leik Þursanna var
stiginn dans á tveim pöllum úti i
Guðs grænni náttúrunni. Þeytti
Þorvaldur Jónsson dragspil sitt
af mikilli innlifun við undirleik
sinna manna á pallinum i rjóðr-
inu, en á hátlðarpallinum voru
Grýlurnar og Stuðmenn i aöal-
hlutverkum. Fóru þau á kostum
og undraðj það engan, enda voru
þau ,,Með allt á hreinu” i far-
angrinum og ósjaldan íarið „Ot á
stoppustöð” það kvöldið og jafn-
vel ekki örgrannt um að einhverj-
um með bindi hafi brugðið lyrir á
svæðinu!
Laugardagurinn var jafnvel
bjartari og fegurri en föstudagur-
inn, og er sólin stóð i hádegisstað
og tveim timum betur var blásið i
lúðra og boðið til hljómsveita-
keppni. Voru mættir til leiks 13
friðir og föngulegir flokkar er
berjast skyldu um sæmdartitilinn
„Hljómsveitin ’82”. Var það hörð
rimma og snörp en þó fór svo að
lokum að uppistandandi voru
þrjár hljómsveitir, allar úr Aust-
firðingafjórðungi. Vakti það að
vonum mikla hrifningu hátiðar-
gesta og fóru úrsiit svo að lokum
að hlutskörpust varð hljómsveitin
„Lóla” frá Seyðisfirði en
„Aþena” lrá Egilsstöðum og
„Kvöldverður á Nesi” frá Nes-
kaupstað deildu bróðurlega öðru
og þriðja sætinu. Um kvöldið var
og stiginn dans.
Sunnudagurinn bauð upp á há-
tiðardagskrá með Guðlaugi Ara-
syni i ræðustól, hæfilegu hallaog-
laddarii og iþróttaleikjum, svona
rétt til að gamli ungmennafélags-
andinn færi ekki alveg i jólakött-
inn.Ogennvar stiginn meiri dans
á sunnudagskvöldinu og ekkert
lát á grýlum og stuðmönnum,
jafnt uppi á sviði sem á danspöll-
um.
1 siðustu geislum kvöldsólar-
innar gekk ég upp á ásinn innan
við Vikina og hlustaöi á óminn frá
söng Stuðmanna, um manninn
sem var blindíullur og ætlaöi að
hætta að drekka á morgun, með-
an sólin hvarf I mynni Héraðsfló-
ans. Ósjálfrátl komu mér i hug
orð skáldsins, sem fæddust á
þessum slóðum fyrir mörgum ár-
um siðan: „Ég býð þér dús min
elskulega þjóð....”.
A mánudagsmorgni pakkaði
ævintýrið Atlavik ’82 saman og
við héldum á vit veruleikans.
Austfirsk æska undi hag sinum vel og skemmti sér og öðrum meö gitarspili og söng.
Vatn er til flestra hluta nytsamt en sumir komust af með annað.