Þjóðviljinn - 07.08.1982, Síða 15
Dalamyndirnar urðu til í Dölum norðanverðum. Þar lifðu menn aðaliega á Yfirlitsmynd af sýningunni.
búskap og skógarnytjum og voru jafn einangraðir frá ytri áhrifum og flestir eru
í slíkum bændasamfélögum.
Júlíana Gottskálksdóttir:
Dalamyndir í Árbæjarsafni
Sumarsýning Árbæjar-
safns kemur að þessu sinni
frá Dalasafninu í Falun í
Svíþjóð. Þetta er farand-
sýning á svonefndum
Dalamyndum og hefur
hún farið víða um lönd og
er ísland síðasti áfanga-
staður hennar. Á sýning-
unni eru 15 myndir og í
einum sýningarbásnum er
auk þess kynning á þessari
alþýðulist sem rann sitt
blómaskeið frá 1780 til
1870 eða um það leyti sem
þjóðfélagið tók að
breytast úr bændasamfé-
lagi í iðnaðarþjóðfélag.
Skreyting í
híbýlum manna
Eins og nafnið bendir til eru mynd-
irnar úr Dölum í Svíþjóð. Höfundar
þeirra voru menn, óskólagengnir í
málaralistinni og voru almennt
kallaðir Dalamálarar. Nöfn flestra
þeirra eru kunn og hafa sumir þeirra
hlotið nokkra frægð. í fyrstu ferð-
uðust þeir á milli sveita og máluðu
myndir á staðnum en síðar unnu þeir
myndirnar á vinnustofum. Voru
bæimir Ráttvik og Leksand að-
almiðstöðvar Dalamyndanna. Upp-
haflega voru myndirnar, aðallega
blómamyndir, málaðar á húsgögn,
en þegar efnahagurinn batnaði hjá
mönnum var farið að skreyta veggi
líka. Framan af vóru myndirnar sem
málaðar voru á striga eða pappír,
festar á veggina til hátíðabrigða, en
er fram í sótti voru þær hafðar uppi
allan ársins hring. í lok síðustu aldar
þóttu Dalamyndir gamaldags og var
því oft límt yfir þær með veggfóðri.
Hafa margar þeirra nú komið í ljós,
þegar veggfóður hefur verið fj arlægt.
„Kúrbits ” blómiö
— aöalatriöiö
Sýningin í Árbæjarsafni hefur
fengið nafnið „Dalarósirnar úr Svía-
ríki“ en rósir eða „kúrbits“blóm eru
eitt aðaleinkenni Dalamynda. Blómi
þessu er þar alls staðar gefið rúm og á
það til að breiða úr sér yfir myndflöt-
inn. Beinist athyglin þá að blóminu
frekar en öllu öðru í myndinni. Ýmist
vex það í blómakeri eða sprettur upp
úr jörðinni. Þá á það líka til að svífa í
lausu lofti og stundum skreytir það
rammann utan um aðalsvið myndar-
innar. í myndinni af ríðandi nianni
(nr. 9) dregur blómið að sér mesta
athygli. Ræktarlegt sprettur það upp,
skýtur út öngum sínum og beygir sig
yfir Dalamanninn spariklædda sem
stoltur situr gæðing sinn. Gangur
hestsins er léttur, línurnar mjúkar,
meira að segja taglið hefur sveigt sig
á þokkafullan hátt líkt og blóma-
skraut. eins og í mörgum öðrum
myndum á sýningunni er blómið hér
hrein skreyting og á lítið skylt við ytri
raunveru. Slíkrar skreytingar verður
ot't vart í myndum alþýðumálara. Oft
er það lífseigt blóm, sem hvað eftir
annað skýtur upp kollinum í ýntsum
myndum, oft mjög stílfærðum. Kúr-
bitsblómið virðist eiga nokkuð skylt
við blómin í myndum Sölva Helga-
sonar, sem nú má sjá á sýningunni á
Kjarvalsstöðum, enda var Sölvi uppi
á svipuðum tíma og margir Dalamál-
arar. í stílsögunni er blómið afbrigði
af rókókóskrauti frá 18. öld, en rætur
þess má rekja til blómaskrauts frá
endurreisnartímanum á 16. öld.
Myndefni
úr biblíunni
Sjálft myndefnið sóttu Dalamálar-
ar oft í biblíuna. Aðalfyrirmynd
þeirra voru svonefndar biblíumynd-
ir. Það voru ódýrar myndskreyttar
útgáfur af biblíunni, ætlaðar al-
menningi sem að miklum hluta var
ólæs. Á sýningunni eru nokkur sýnis-
horn af því hvernig Dalamálarinn
hefur notað fyrirmynd sína. Hann er
henni trúr, en einfaldar myndina og
tekur aðeins það sem máli skiptir fyr-
ir frásögnina. Myndbyggingin er ein-
faldari, líklega vegna þess að málar-
inn kann ekki annað. Þar gæti nær
engrar þvívíddar, allt gerist á sama
fletinum og öllu er komið þannig fyr-
ir að það sjáist sem best. Ekki frekar
en í gömlu altaristöflunum íslensku
hefur fólk hér suðrænt yfirbragð. Hér
er allt fullt af Dalamönnum sem
klæddir eru á bænda vísu eða sam-
kvæmt nýjustu tísku. Svo virðist sem
Dalamálarar hafi hrifist af mynd-
unum í tískublöðum þess tíma, enda
fáu öðru myndefni til að dreifa.
Viöburöir
heima og heiman
Þótt bibiían hafi verið að-
aluppspretta Daiamyndanna máiuðu
Dalamálararnir einnig myndir tengd-
ar daglegu lífi. Eitt var það mynd-
efni, sem alla varðaði og naut mikilla
vinsælda, en það var aldursstigi karla
og kvenna. Munu flestir Dalamálarar
hafa málað þetta mótíf, sem þeir
sóttu í prentaðar myndir sem oft voru
límdar innan á kistulok og kallaðar
„kistubréf". í þessum myndum var
kúrbitsblómið sem táknaði líf og
dauða, oft notað á táknrænan hátt.
Dalamálarar voru oft fengnir til
þess að gera myndir við hátíðleg tæk-
ifæri eins og brúðkaup og voru þessar
myndir eins konar heillaóskaskeyti.
Stundum brugðu þeir sér líka í hlut-
verk sögumálara og máluðu myndir
af heimsviðburðum og frægu fólki,
einkum kóngafólki og aldrei
gleymdu þeir kúrbitsblóminu. Er
myndin af Rússakeisara merkilegt
dæmi um slíkt sögumálverk.
Sýningin í Árbæjarsafni er ekki
stór, en þar er að finna dæmigerðar
myndir fyrir Dalalistina, enda
sýningin unnin með erlenda gesti í
huga. Myndirnar gefa okkur innsýn í
hugarheim alþýðu manna á síðustu
öld um leið og þær gleðja augað.
Júlíana Gottskálksdóttir.
Fögur veisla hjá Belsasar konungi, þá er hönd reit á vegginn. Eftir Snarf
Anders Andersson WW.
Ég kem úr BMnm. 1*20. RfSandi ma»ur uadir kúrbitsblóiai risíarunnii eftir
Snarf Anders Andersson.