Þjóðviljinn - 07.08.1982, Blaðsíða 21
Helgin 7. - 8. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
Mannvirki Sanuiels Jónssonar skoöuð.
Alþýðubandalagsmenn nutu góðr-
ar leiðsagnar Ásgeirs á Látrabjarg
1979 og mynduðust vinatengsl við
ýmsa og Ásgeir talinn aufúsugestur
í Bakkadal. Áður var nefndur síra
Sigurjón á Klaustri, en með honum
í för voru fulltrúar heimsbókmenn-
tanna þeir Einar Bragi og Thor Vil-
hjálmsson og brá þá nokkuð al-
þjóðlegum svip á samkvæmið. Af
Þingeyri var kominn Davíð Kris-
tjánsson og Katrín kona hans og
hurfu heim um kvöldið. Einnig
þóttust menn kenna félaga Svavar
Gestsson á ferð þar um nóttina og
hafði áður vígða heilsugæslustöð
um daginn á Patreksfirði.
En upp var slegið skrallinu, eins
og aldamótafólkið kallaði þetta og
þandi dragspilið Tómas Einarsson
við góðan orðstír, en lítið fór fyrir
ljósasjóunum í ballhúsi þeirra Ket-
ildælinga l.s.g. og rorruðu menn í
skjóli rökkurs í stofu barnaskólans
í Bakkadal.
Næsta dag, sem var dróttinsdag-
ur, var haldið fyrir Arnarfjörð og
ekið út í Mosdal, sem er eins konar
”nómansland“ milli Vestur-Barð
og Vestur-ís. Þar eru tveir bæir í
byggð Ós og Laugaból, en þangað
var ekið yfir tæpar brýr og óbrúuð.
vatnsföll allt til Laugabóls. þar sem
Aðalsteinn æðarbóndi tók á móti
hersingunni upp á búinn. Sagði
hann skilmerkilega frá landkost-
um og því um líku gegnum lúður
ferðarinnar, sem fararstjórinn
Kjartan Ólafsson hafði yfir að
ráða. Þökk sé Aðalsteini.
Ekki var látið þar við sitja eftir
Laugabólsför, en farið um allan
Auðkúluhrepp og allt út í Stapadal
á tveimur minnstu bílunum, sem
reyndar voru all stórir. Ók ég þessa
sömu leið um daginn á fólksbíl og
undraðist dirfsku Þórhalls á
Strandarútunni að leggja út í slíka
krákustigu. Bíll Elíasar Sveins-
sonar á ísafirði var hins vegar
snöggtum minni. Er það efni í
lengri skrif að lýsa nokkuð byggða-
sögu Auðkúluhrepps, en útsveitin
er lítt byggð.
Hálfum mánuði eftir þessa för
áttum við fjölskyldan næturdvöl
fyrir ofan Baulhaus í Auð-
kúluhreppi, þar sem hin stórfeng-
lega náttúrusmíð Ketildalir blasir
við. Það var úrhelli hins vegar
fjarðar, en þó náði sól að hripa nið-
ur í dalina og engu líkara en hamra-
núparnir öðluðust líf.
Ekki að undra þótt eitthvað hafi
verið á sveimi umhverfis Arn-
arfjörð fyrr og síðar.
ísafirði 27. júlí 1982
Finnbogi Hermannsson
Texti og myndir:
Finnbogi
Hermannsson
Mikilúðleg sjón blasir við, þegar ekið er út með Svarthömrum.
OPIÐI
ÖLLUM
DEILDUM
mánud. — miðvikud. til kl. 18
fimmtudaga til kl. 20
föstudaga til kl. 22
RAUTT - BLÁTT
BRÚIMT - BEIGE
HAGSTÆÐIR
GREIÐSLU
SKILMÁLAR
Jón Loftsson hf
HRINGBRAUT 121,
SÍMI 10600
Rafdeild
JL-hússins
auglýsir:
Nýkorhm , v
þýsk útiljós, \
eldhúsljós
og' Ijósakrónur.
1000, 1i 00' og 1200
watta ryksugur fyrir
(iggjandK,
Hagstætt verð.: v
Ath':
Deildin er
á 2. hæð
í J.L.-húsinu.
Rískúlur. Verð
frá kr. 29.00
Opið í öllum delldum:
mánud,-
rr.iðvikud. 9—18,
fimmtud. 9—20,
föstud. 9—22
Ótrúlega bagstmðir
graiðsluskilmélar á
flsstum vöruflokkum.
Allt niður i 20% út
borgun og lánstimi allt
að • mánuðum.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Rafdeild
Slmi 10600
Húsnæði óskast
Ég er 23 ára nemi utan af landi (í tón-
menntakennaradeild Tónlistarskólans) og
mig vantar 2 — 3 herb. íbúð fyrir veturinn.
Skilvísum greiðslum og algjörri reglusemi
heitið.
Upplýsingasími (96) 23473 e. kl. 18 á kvöldin.
Laus staða
Kennarastaða í efnafræði við Menntaskólann að Laugar-
vatni er laus til umsóknar. Laun samkv. launakerfi starfs-
manna ríkisins. - Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum
um námsferil og störf, sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 20. þ.m. Umsóknar-
eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Mcnnta málaráðuney tið,
4. ágúst 1982.
Kynnið
ykkur
verð
og gæöi.
Tll sjós og lands
Hinar landsþekktu Sóló eldavélar
eru framleiddar í ýmsum stærð-
um og gerðum, með og án mið-
stöðvarkerf is.
Eldið á meðan þið hitið upp húsið
eða bátinn og fjölnýtið orkuna.
Eldavélaverkstæði
Jóhanns Fr. Kristjánssonar hf.
Kieppsvegi 62. — Simi 33069
Box 996 Reykjavik
Heimasími 20073