Þjóðviljinn - 07.08.1982, Page 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 7. - 8. ágúst 1982
sKáh_______________________
Browne varð langneðstur
Umsjón
Helgi
Olafsson
Einn er sá skákmaður sem
var meðal þátttakenda á milli-
svæðamótinu í Las Palmas sem
orðið hefur hissa þegar upp var
staðið í mótsiok. Menn gætu
haldið því fram, að ég ætti við
Smyslov, Larsen, Timman eða
Pshakis. Það er vel hugsanlegt
að einhver þessara hafa ekki átt
von á lokaniðurstöðunni. Þann-
ig er ég handviss um að Smyslov
hafi gengið til leiks cinungis
með því hugarfari að tefla sínar
skákir og sjá til um úrslitin.
Timman og Larsen hafa ár-
eiðanlega reiknað með að kom-
ast áfram í keppninni.
Larsen átti reyndar til skamms
tíma heima á Kanaríeyjum, en hef-
ur nú tekið sig á og flust til Ar-
gentínu. Þær breytingar hafa orðið
á högum hans að hann hefur nú
skilið við konu sína Lisu, en mun
vera kominn í annað forholl í Bu-
enos Aires; keypti sér þar hús og
ekki svo víst að hann sjáist svo mik-
ið af tafli í Evrópu á næstunni.
Einhvern veginn hef ég aldrei
getað tekið bóhemtýpuna Jan
Timman í sátt sem skákmann. Það
má hann þó eiga, að baráttuglaðari
skákmenn eru vandfundnir, og
hygg ég að þar liggi hornsteinn
styrkleika hsn. Timman hefur mik-
ið fengist við útgáfustarfsemi
tengda skákinni, og eftir hann ligg-
ur ein besta skákbók seinni tíma:
Skákrannsóknir. Hann komst
aldrei í gang eftir tap fyrir Petrosj-
an í 2. umferð. Á þessu ári hefur
honum gengið mjög miður, ef frá
er skilið sterkt mót í Mar del Plata.
Um síðustu áramót var hann í 2.
sæti á Elo-listanum á eftir Karpov,
en hrapaði um mitt sumar niður í
15. sæti. Kasparov er nú í 2. sæti.
Mótið í Las Palmas er fyrir þær sak-
ir merkilegt, að þar sannaðist enn
einu sinni hversu skeikull mælik-
varði Elo-listinn er. Það sýnir hin
endanlega lokaniðurstaða: 1. Ribli
9 v. 2. Smyslov 8 1/2 v. 3. Suba 8 v.
4. -5. Petrosjan ogTukmakov7 1/2
v. 6. - 7. Larsen og Timman 6 1/2 v.
8. -10. Pshakis, Pinter og Mestel 6
v. 11.-13. Karlsson, Sunye og Bo-
uaziz 5 1/2 v. 14. Browne 3 v.
Ég hef undirstrikað neðsta
manninn sem hlýtur að hafa orðið
hreint steinhissa á framgangi mála.
Það hefur áreiðanlega hjálpað til
upp á lokaniðurstöðuna, að góð-
kunningi okkar íslendinga, Walter
Browne mætti til ieiks fullur bjart-
sýni. Þegar síðan tók að halla und-
an fæti hrundi allt niður. Við bætt-
ist taugaspenna og tímahrak, og
þetta mót hlýtur að vera eitt þeirra
sem Browne vill gleyma sem fyrst.
Þá er komið að þeim manni sem
gerði sér ekki neinar grillur. Hann
vissi að hverju hann gekk; fékk
reyndar að fara í millisvæðamótið
án þess að tefla í svæðamóti og féll
það í miður góðan jarðveg meðal
yngri skákmanna Soyétmanna.
Frammistaða Smyslovs er í alla
staði hin aðdáunarverðasta.
Hvernig 61 árs gamall maður getur
skriðið framúr snjöllustu ungu
skákmönnum heims er spursmál
sem menn hljóta að velta fyrir sér.
Smyslov ku hafa látið það uppi fyr-
ir nokkrum árum að eftir því sem
tíminn liði, sparaði hann sér hvers-
kyns óþörf orkuútlát við skákborð-
ið. Þannig væri hann ekkert að leg-
gjast í mikla útreikninga þegar ein-
föld leið stæði til boða. Stíl-
einkenni hans liggja ljós fyrir í hans
bestu skákum. Þar er ekki
hamaganginum fyrir að fara, þvert
á móti er slétt og fellt á yfirborðinu;
hann siglir sléttan sjó. Endatafls-
tækni hans er viðbrugðið, og þó ég
hafi nú ekki séð skákir hans frá
þessu móti, er ég illa svikinn hafi
hann ekki fengið þó nokkra vinn-
inga á betri endataflstækni en
mótstöðumaðurinn. Lygn streymir
Don, skrifaði eitt sinn Friðrik
Ólafsson þegar hann var að gera
athugasemdir við eina af skákum
hans. Jú, vissulega streymir hún áf-
ram án þess að mikið beri við á leið
Timman
hennar, en undir niðri er undirald-
an þung.
Smyslov tefldi hvorki fleiri né
færri en þrjú einvígi um
heimsmeistaratitilinn og í öll skipti
var mótstöðumaðurinn Mikhael
Botvinnik. Þeir skiptust á að sigra
og einu sinni varð jafnt. Heildar-
vinningshlutfallið var Smyslov í
hag. Engu að síður hélt hann ekki
heimsmeistaratitlinum nema í eitt
ár. Einhversstaðar hefur maður
séð skrifað að Smyslov hafi verið
misheppnaður söngvari. Hvenær
getur söngur verið mislukkaður?
Smyslov náði e.t.v. ekki hæstum
hæðum í söng sínum, en hefur alla
tíð þótt í betra lagi selskapshæfur í
veislum, við mótslit eða í öðrum
samkomum. Gestir gátu nefnilega
ávalllt gengið út frá því sem vísu að
á einhverju stigi myndi Smyslov
stíga upp á stól og hefja upp raust
sína.
í daglegu lífi fer Iítið fyrir Smysl-
ov. Hann býr í útjaðri Moskvu-
borgar og tclst þar víst einn af betri
borgurunum. Með þátttöku í skák-
mótum sinnir hann þjálfun, skrif-
um og öðru því sem til fellur. Eins
og allir sterkustu skákmenn So-
vétríkjanna þiggur hann laun frá
ríkinu, eitthvað í kringum 300 rúbl-
ur í mánaðarlaun sem þykir gott
þar í landi.
Nafn hans verður skráð óafntá-
anlegum stöfum á spjöld sögunnar.
Ég hef víst drepið á það áður, að
fréttaþjónusta af móti þessu hefur
verið í lakara lagi og erfitt að nálg-
ast afurðir sigurvegaranna Smysl-
ovs og Ribli. Minna verðurþóá,að
enn eru eftir tvö millisvæðamót, og
vonandi verður betri fréttir að fá
frá þeim mótum. Undirbúningur
sterkustu keppendanna er vel á veg
kominn. Harry Kasparov kom
t.a.m. beinustu leið fra skákmót-
inu í Bugonjo í flokkakeppni So-
vétríkjanna. Þreyttureða hvað það
var; þá stóð hann sig ekkert allt of
vel, tapaði t.d. fyrir Romanishin.
Browne
Inn á milli tefldi hann þó góðar
skákir. Hér koma tvær skáka hans.
Fyrst sigur yfir sigurvegaranum frá
Reykjavíkurskákmótinu 1980 og
síðan tapið fyrir Romanishin:
Hvítt: Viktor Kupreitchik
Svart: Harry Kasparov
Sikileyjavörn
1. e4-c5
2. RB-e6
3. d4-cxd4
4. Rxd4-Rc6
5. Rc3-d6
6. Be3-Rf6
7. Be2-Be7
8. f4-0-0
9. Dd2-e5
10. Rf3-Rg4
11. f5-Rb4!
12. Bd3-d5
13. Rxd5-Rxd5
14. exd5-e4!
15. Bxe4-He8!
16. 0-0-0-Bf6
17. Bg5-Hxe4
18. h3-Re5
19. Bxf6-Dxf6
20. Rxe5-Dxe5
21. g4-Bd7
22. Hhel-He8
23. Hxe4-Dxe4
24. Da5-De3+
25. Kbl-Dxh3
26. Dxa7-Dxg4
27. Hcl-Bxf5
28. Dxb7-h5
29. b3-Dd4
30. a4-Dc3
- Svartur gafst upp.
Hvítt: Oleg Romanishin
Svart:Harry Kasparov
Grúnfelds vörn
1. RO-g6
2. d4-Bg7
3. g3-d5
4. Bg2-Rf6
5. 0-0-0-0
6. Bf4-c6
7. Rbd2-Rh5
8. Be5-f6
9. Bxb8-Hxb8
10. c4-f5
11. cxd5-cxd5
12. Db3-Rf6
13. Re5-Be6
14. Hacl-Db6
15. Rbl-g5
16. Rc3-a6
17. Ra4-Re4
18. Bxe4-fxe4
19. Rc5-Bxe5
20. dxe5-Dxe5
21. Hfdl-Hbd8
22. Rxe6-Dxe6
23. Dxb7-Df5
24. Hfl-Hf7
25. Dxa6-d4
26. Db6-Hd5
27. b4-Kg7
28. a4-Hd6
29. Dc5-Hd5
30. Dc8-De5
31. Hc5-e6
32. a5-e3
33. f4-gxf4
34. Hxf4-Hxf4
35. gxf4-Df5
36. Hxd5-Dxd5
37. Dc7+-Kg6
38. Dc2+-Kf6
39. a6-Da8
40. Dc4-De4
41. Dc5-Dbl +
42. Kg2-Ddl
43. Dg5+-Kf7
44. Dh5+-Kg7
45. a7
- Svartur gafst upp.
Elo-stigatala skákmanna er nú
reiknuð út tvisvar á ári. Eftir fyrri
part árs 1982 voru efstu menn á
listanum þessir:
1. Anatoly Karpov 2700
2. Harry Kasparov 2675
3. Viktor Kortsnoj 2635
4. Robert Húbner 2630
5. Lajos Portisch 2625
6. Alexandcr Beljavskí 2620
7.-9. Lubomir Ljubojevic 2615
7.-9. Henrique Mecking 2615
7.-9. Lec Pshakis 2615
10.-13. Mikhael Tal 2615
10.-13. Ulf Anderson 2615
10.-13. Lev Polugajevskí 2615
10.-13. Boris Spasskí 2615
Af íslenskum skákmönnum er
Friðrik Ólafsson efstur með 2495
stig, Guðmundur Sigurjónsson er
með 2470, Jón L. Arnason með
2455, Ingi R. Jóhannsson og
undirritaður með 2430. Aðrir
minna.
Til gamans ntá geta þess, að tefli
menn ekki í eitt ár tapa þeir 5 Elo-
stigum. Eftir 3 ár án taflmennsku
detta þeir svo út af listanum, en
halda samt sínum stigum með 5
stiga afföllunum. Kæmi t.d. Fisc-
her inn í myndina í dag væri hann
búinn að tapa 50 stigum, en væri
engu að st'ður langefstur á listan-
um, 35 stigum fyrir ofan Karpov!
Hlutafjárútboð
Hluthafafundur í Stálfélaginu hf., haldinn í
Reykjavík 29. júní sl., samþykkti að hækka
hlutafé félagsins í kr. 40.000.000,-. Hlutabréf
hljóða á nafn og upphæð þeirra verður 250,-,
500,-, 1000,- og 5.000,- krónur. Hlutafjárlof-
orð eru bundin lánskjaravísitölu júnímán-
aðar 1982, 359 stigum. Áskriftarfrestur er til
31-01-83 og lokafrestur til að greiða hluti er
til 31-01-84.
Stálbræðsla á íslandi sparar 50 — 60 millj. kr.
í erlendum gjaldeyri miðað við árlega notkun
íslendinga á steypustyrktarstáli.
Stálbræðsla nýtir innlenda orku og hráefni í
formi brotajárns.
Uppbygging verksmiðju veitir 100 - 200
manns vinnu á annað ár og framtíðaratvinnu
fyrir 80 - 100 manns.
Endurskoðuð áætlun um rekstur gefur fyrir-
heit um góða arðsemi hlutafjár og fram-
tíðarmöguleika í nýjum íslenskum iðnaði.
Um leið og við kaupum hlut í Stálfélaginu hf.
styrkjum við eigin hag og framtíðar öryggi
þjóðarinnar með öflun grundvallar bygging-
arefnis.
STÁLFÉLAGIÐ HF. AUSTURSTRÆTI 17.
SÍMAR 16565 OG 29363.