Þjóðviljinn - 07.08.1982, Síða 30
30 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 7. - 8. ágúst 1982
Húnaflóinn svartur af síld
Óð allt í kríngum bátínn
segir Skafti Jónasson á Skagaströnd sem var á handfæraveiðum í fyrrinótt
„Sildartorfurnar voru pao
þéttar aö þær stoppuöu færin á
leiöinni niður. Þetta voru griðar-
miklar torfur og sildin óð allt i
kringum bátinn hjá okkur”, sagði
Skafti Jónasson í Lundi á Skaga-
strönd i samtali við Þjóðviljann i
gær.
Húnaflóinn er allt i einu orðinn
svartur af sild og þeir Skafti og
sonur hans Þorvaldur áttu bágt
með aö athafna sig við færaveiðar
Noröur af Skaga i fyrrinótt fyrir
vaðandi sild.
„Við drógum þó nokkuð af sild
upp með færinu. Hún kræktist i en
beit ekki á, það var það mikið af
henni þarna og sömu sögu heyrð-
um við frá öðrum bátum i
flóanum”, sagði Skafti.
Hann sagðist ekki hafa séð eins
mikið af sild i Húnaflóa siðan i
ævintýrinu i gamla daga. „Við
urðum litilsháttar varir við sild i
fyrrahaust en það var ekkert likt.
þessu. Þessi sild er ekta Húna-
flóasild, stór og feit eins og var
hér áður. Það er bara vonandi að
hún verði notuð öðruvisi en var
þegar allt var sett i gúanó”.
Stórþorskur virðist hafa gengið
inn á Skagagrunnið samsiða sild-
inni en þeir feðgar fengu um 700
kg. af vænsta þorski i fyrrinótt.
Sildveiðar hefjast 15 september
n.k. i reknet, en 54 bátar fá að
veiða 14.500 lestir. Hringnóta-
veiðar hef jast 20 september og fá
76 bátar, eða helmingur þeirra
sem sóttu um leyíi til veiöa, aö
skipta á milli sin 34.500 lestum. 1
lagnet er heimilt að veiða á
komandi vertið 1500 lestir en hátt
á annað hundrað umsóknir hafa
borist sjávarútvegsráðuneytinu
um leyfi til þeirra veiða.
— *g
Jólabækur Almenna bókafélagsins
í ár verða m.a.:
3 verðlaunab ækur
Heilu frystihúsi komið fyrir í Eldborginni sem fer
á kolmunnaveiðar í haust
„Við erum bjartsýnir”
segir Bjarni Gunnarsson skipstjóri
Almenna bokafélagið efndi til
verðlaunasamkeppni fyrir
skemmstu og verða bækurnar
þrjár sem verðlaun hlutu meðal
jólabókanna i ár, sagði Brynjólf-
ur Bjarnason framkvæmdastj.
AB er Þjóðviljinn hafði samband
við hann i gær. Þær eru skáldsag-
an Riddarar hringstigans eftir
Einar Má Guðmundsson , bókin
Vogganga i vindhæring eftir Bolla
Gústafsson sem er ljóðræn blanda
af frásögn og skáldsögu og ljóða-
bókin Þriggja orða nafn eftir Isak
Harðarson.
Þá koma út nýjar skáldsögur
eftir Andrés Indriðason (Maður
dagsins) og ólaf Ormsson. Þriðja
bindi af Don Kikóta i þýðingu
Guðbergs kemur og þá hefst og
nýr flokkur í úrvalsritum heims-
bókmenntanna. Eru það úrvals-
þýðingar Helga Hálfdanarsonar á
Shakespeare, bæði fyrri þýðingar
með breytingum og nýjar þýðing-
Guðrún frá Lundi: Dalalif endur-
útgefiö
Einar Már Guðmundsson: Verö-
launaskáidsagan Kiddarar hring-
stigans.
Stíf fundahöld
hjá stjórnarskrárnefnd
Aftur út á land
Stjórnarskrárnefnd sem hélt
2ja daga vinnufund á Húsavik
i vikunni kemur aftur saman n.k.
þriöjudag og heldur áfram störf-
um, sem samkvæmt hcimildum
Þjóðviljans miðar nú allvel
áfram. Akveðið er að nefndin efni
til annars tveggja daga vinnu-
fundar utan Reykjavikur um
miðjan þennan mánuð.
A Húsavikurfundinum var farin
yfirferð á öllum helstu málum
sem verið hafa til umræðu i sam-
bandi við hugsanlegar breytingar
á stjórnarskrá og kosningalögum.
Þá var einnig hafin umræða um
kjördæmamálið og eru þar sagð-
ar uppi ýmsar athyglisverðar
hugmyndir sem ræddar verða i
flokkunum á næstunni. Enn er
ekki ljóst um hvaða atriði verður
fullt samkomulag á fundum
stjórnarskrárnefndar, en miðað
við vinnulag hennar þessar vik-
urnar má fastlega gera ráð fyrir
að sameiginlegar tillögur hennar
og sérálit nefndarmanna verði
lagðar fram siðar á árinu. —ekh
„Þetta er hlutur sem menn eru
spenntir fyrir. Við erum það að
minnsta kosti. Þetta er engin
fórnarlund við höldum að það sé
hægt að græða á þessu”, sagði
Bjarni Gunnarsson skipstjóri á
nótaveiðiskipinu Eldborgu þegar
blaðamenn hittu hann að máli i
gærdag um borð i skipinu þar sem
það liggur i heimahöfn i Hafnar-
firði.
Eldborgin hefur reyndar legiö
bundin við bryggju frá þvi i des. á
siðasta ári, en siðustu mánuði
hefur mikið gengið á um borð þvi
verið er að koma heilu frystihúsi
fyrir i skipinu.
Ætlunin er að skipið fari á kol-
munnaveiðar i haust og stærsti
hluti aflans verði flakaður og
frystur um borð og seldur þannig
til Bretlands.
„Við erum ekki farnir að sjá
fyrir endann á þessu ennþá, það
er töluverö vinna eítir og ég þori
ekki aö nefna neinar dagsetning-
ar um hvenær við leggjum i
hann” sagði Bjarni.
Verið er að vinna við frysti-
lagnir og niðursetningu á vélum.
Frystihúsið um borð getur af-
kastað allt að 38 tonnum á sólar-
hring en þeir á Eldborginni áætla
að framleiðslan verði um 12 tonn
til að byrja með. Til þess þarf að
veiða 45 tonn af koimunna á sól-
arhring en það er nokkru minna
en sá meðaltalsafli sem Eldborg-
in fékk þegar hún hefur áður
stundað kolmunnaveiðar.
Athugað hefur verið með sölu á
afurðum til fyrirtækis í Bretlandi
sem framleiðir kolmunnamarn-
ing. Að sögn Bjarna fæst 70% af
þorskvirði fyrir fryst kolmunna-
flök, en verðið á kolmunna hækk-
aði nokkuð á siðasta ári.
Um 300 rúmmetra frysti-
geymsla verður i skipinu sem
dugir fyrir um 250 tonn. Auk þess
er ætlunin að útbua einhvern
marning um borð og slóg verður
selt ibræðslu.
Fjölgað verður i skipshöfn úr 15
i 19 og unnið á 6 tima vöktum um
borð.
„Við erum vongóðir um að
þetta eigi eftir að ganga vel hjá
okkur. Vissulega er þetta dýrt
fyrirtæki en hvað er ekki dýrt? I
það minnsta er vonlaust að láta
skipið standa aðgerðarlaust hér
við bryggju. Það væri þá betra að
selja það. En við erum bjartsýnir
þvi við vitum að Færeyingum og
Norðmönnum hefur gengið vel.
Mannskapurinn er jákvæður fyrir
þessu og það skiptir ekki minnstu
ef vel á að ganga”, sagöi Bjarni
Gunnarsson skipstjóri á Eldborg-
inni. —lg.
Farmenn segja útgerðarmenn hafa hlaupið burt
Boða 6 daga veikfall
ar.
Ljóðabækur koma út eftir þá
Hjört Pálsson, Indriða G. Þor-
steinsson og Erlend Jónsson.
Meðal þýðinga er skáldsaga
eftir Kurt Vonnegut, Sláturhúsið i
þýðingu Sveinbjörns I. Baldvins-
sonar. Einnig kemur út verð-
launabók Norðurlandaráðs, Sam-
úelsbók eftir Sven Delblanc.
Af öðrum bókum má nefna
barnaleikritið Gosa meö myndum
úr uppfærslu Þjoðleikhússins og
formála eftir Brynju Benedikts-
dóttur.
Siðast en ekki sist má nefna
endurútgáfu á Dalalifi Guðrúnar
‘frá Lundi sem gefið verður út i
þremur bindum.
Brynjólfur Bjarnason vildi að
lokum taka fram að fullan fyrir-
vara yrði að hafa á þessari upp-
talningu vegna hugsanlegra
breytinga.
—GFr
„Þarna kemur kolmunninn inn og fer siðan eftir þessu vinnslukerfi, hausaður og flakaður og að siöustu
frystur”, Bjarni Gunnarsson skipstjóri á Eldborgu sýnir blaðamönnum vinnslusalinn i frystihúsinu sem
veriðeraðsetja upp iskipinu. Mynd —eik
Bruni í Þorlákshöfn
Um miðjan dag i gær kviknaði i
verkstæðishúsi Meitilsins i Þor-
lákshöfn og ónýttist verkstæðið i
eldsvoða þessum. Engin slys urðu
á mönnum.
Verkstæðið var i sömu bygg-
ingu og fiskimjölsverksmiðja
Meitilsins en ekki urðu skemmdir
á verksmiðjunni.
Slökkvilið Þorlákshafnar kom
skjótt á vettvang og gekk vel við
að slökkva eldinn, en liðsauki
slökkviliðsmanna frá Selfossi,
Hveragerði og Reykjavik mætti
einnig á staðinn. Eldsupptök eru
ókunn.
„Til að knýja á um að útgerð-
irnar standi við þau gefnu vilyrði
sem á þeim mátti skiljast að frá-
gengin væru skömmu áöur en
slitnaði upp úr viðræðum þá hefur
samninganefnd farmanna afráðið
að boða til frekari vinnustöðvana
á kaupskipum, ferjum, hafrann-
sóknarskipum og sanddælu-
skipum. Hefur verkfall á þessum
skipum verið boðað dagana 17.18.
og 19. ágúst svo dagana 24.25. og
26. ágúst n.k.” segir i fréttatil-
kynningu sem Farmanna- og
fiskimannasambandið sendi frá
sér i gær.
Farmenn saka viðsemjendur
sina um að hafa gengiö á bak oröa
sinna eftir að samkomulag hafði
náðst um lifeyrissjóösmálin
snemma á fimmtudagsmorgun
s.l. og hlaupiö frá viðræöunum.
„Samninganefnd farmanna
álitur”, segir i fréttatilkynning-
unni,” aðhún teygði sig eins langt
i átt að samkomulagi viö útgerðir
og nokkur var kostur en útgerð-
irnar hafi hundsað einlægan
samningsvilja farmanna nú
siðast undir lokin með þvi að
ganga á bak fyrri vilyrðum um
lausnir á deilunni.”
Nýr samningafundur hefur ekki
verið boðaður og verður ekki fyrr
en annar hvor deiluaðilja sér
ástæðu til, að sögn Guðlaugs
Þorvaldssonar sáttasemjara.
-lg-