Þjóðviljinn - 07.08.1982, Page 32
Helgin 7. — 8. ágúst 1982
Abalslmi ÞjóBviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tlma er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn
hlaBsins I þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
Aðalsími
Kvöldsími
8iz85, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aB ná i af-
greiBslu blaBsins i sfma 81663. BlaBaprent hefur síma 81348 og
eru bla&arr.enn þar á vakt öll kvöld.
81333
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
nafn
vikunnar
Tommi
Nafn vikunnar er að
þessu sinni Tómas Tómasson,
eða Tommi í Tommaham-
borgurum eins og flestir kalla
hann. Tommi bætti enn einni
skrautfjöðrinni í hattinn í vik-
unni með því að opna
vínvcitingalausan skemmtist-
að fyrir unglinga milli tektar
og tvítugs. Ber staðurinn hið
magnaða nafn „Villti tryllti
Villi“.
„Þetta er hvortveggja hug-
sjónastarf og bisness hjá
mér“, sagði Tommi í samtali
við blm. Þjóðviljans, „ogéger
klár á því að það er ekki hægt
að re ka svona stað af h ugsj ón,
nema það sé bisness um leið.
Þessar félagsmiðstöðvar sem
er verið að setja niður út um
allan bæ falla bara ekki í
kramið hjá unglingunum."
Þú ert ekki mcð neinar
vínvcitingar?
„ Nei, ég er sjálfskipaður
talsmaður þeirra sem eru
hættir að drekka brennivín,
hvort sem fólki líkar það betur
eða verr. Ég er klár á því að
það er fullt af fólki sem vill
fara út og skemmta sér innan
um edrú fólk og það er ansi
hart ef ekki er hægt að koma
upp og reka stað öðru vísi en
að þar sé brennivín."
Hvað hefurðu lagt mikið í
þetta?
„Það er mikið lagt í staðinn
vegna þess að krakkarnir vilja
hafa þetta svona. Kostnaður-
inn við innréttingapakkann er
þetta 3 1/2 -4 miljónir með
hljómflutningsgræjunum og
kopardansgólfinu, sem er hið
fyrsta sinnar tegundar hér á
Islandi. Þeim mun vandaðara
sem þetta er, því fleiri höfða
ég til.“
Þú heldur að þetta muni
blessast?
„Ég stend á því fastar en
fótunum að þetta geti bless-
ast. Hugmyndirnar eru sóttar
til útlanda, nær eingöngu til
Ameríku og svo til kynna
minna af veitingarekstri ai-
mennt. Ég teiknaði allar inn-
réttingar og skipulagði stað-
inn sjálfur og er stoltur af
hvernig þetta hefur tekist."
Þú ert með flciri staði í
takinu. Ber þetta sig allt
saman?
„ Þetta ber sig meðan mað-
ur nennir að vinna við það.
Þetta er vinna 7 daga vikunnar
frá því 8 á morgnana og fram
yfir miðnætti og það sést best
á því að við seljum milli 1500-
2000 hamborgara á dag !“
Hver er leyniuppskriftin á
bakvið reksturinn hjá þér ?
„ Hugarfarið, að gera þetta
með jákvæðu hugarfari. Ein-
faldleikinn hefur líka sitt að
segja, að vera með einfaldan
matseðil, einfalt og vandað
hráefni og leggja sálina í pott-
inn!“
-áþj
Landið er allt of ungt
Kolbrún Björgúlfsdóttir leirkerasmiður í Búðardal heimsótt
Eins og kom fram í Þjóðviljan-
um á miðvikudaginn verður
væntanlega hafin framleiðsla á
hleðslusteinum og gólf- og veggflí-
sum úr Búðardalsleir á næsta ári.
„Áhugamannafélagið Dalaleir“
réð Kolbrúnu Björgúlfsdóttur
leirkerasmið til að gera tilraunir
með leirinn og hefur hún nú starf-
að og búið í Búðardal í tæpt ár
ásamt manni sínum Magnúsi
Kjartanssyni og dóttur þeirra
Elsu Björgu.
Blaðamaður Þjóðviljans átti
leið um Búðardal fyrir skömmu
og kom þá við hjá Kolbrúnu.
Fjölskyldan býr á neðri hæð
tveggja hæða húss og vinnuað-
staða Kolbrúnar er við hliðina á
íbúðinni, í bílskúrnum. „Leir-
kerasmiðjan“ er í rúmgóðu húsn-
og þar eru alls konar tæki og
dót sem undirritaður treystir sér
ekki til að segja nein deili á.
Magnús er myndlistarmaður og
hann vinnur mikið með Kol-
brúnu og auk þess myndskreytir
hann ýmsa muni sem Kolbrún
býr til. Kolbrún gerir bæði
tilraunir með leirinn sem bygg-
ingarefni en einnig fæst hún við
að búa til skrautmuni s.s. vasa úr
leirnum.
Þannig líta munirnir út áður en glerungurinn hefur verið settur á.
„Það gengur nú ekki allt of vel
því að Búðardalsleirinn springur
ef búnir eru til stærri munir. En
égblanda við hann vikriogöðru
efni og þá er liann nýtanlegur í
framleiðslu á smærri skrautmuiv
um. Það hefur komið í ljós að
leirinn hérna þarf að hreinsa gíf-
urlega vel áður en hægt er að nota
hann. Það er nánast ekkert hægt
að gera með hann óhreinsaðan.
Ég hef hér mjög góð sigti til að
hreinsa jafnvel smæsta sand úr
honum.“
- Hvað eru tilraunir með leir-
inn sem byggingarefni komnar
langt á veg? ,
„Við erum búin að búa til
nokkrar tegundir af flísum og
hleðslusteinum og þær eru nú í
þolprófun hjá Iðntæknistofnun.
Það mun taka um þrjá mánuði.
Það hafa geysimargir sýnt þessu
starfi mikinn áhuga og það eru
jafnvel farnar að berast pantanir
á flísum!"
Það bendir allt til þess að fram-
leiðsla verði hafin á flísum á
næsta ári. Þetta er því algert
brautryðjendastarf?
„Já, það er hvergi í landinu eins
mikið af leir og ég held hvergi
nýtanlegur eins og hann er hér.“
- Þú sagðir áðan að það væri
ekki hægt að nota leirinn
óblandaðan til skrautmunafram-
leiðslu. Hvers vegna?
„Það er vegna þess að við erum
fædd allt of snemma, eða réttara
sagt: landið er allt of ungt. Það
gildir sama með leirinn og olíuna,
hann þarf að hafa ákveðinn aldur
til að hann sé nýtanlegur. En það
má nota leirinn í minni hluti og þá
blandaðan með öðrum efnum. í
þeim vösum sem ég hef búið til
eru önnur efni um 10%“
- Það þarf ekki að spyrja að því
að starf þitt hefur vakið athygli?
„Já, það er víst óhætt að segja
það. Hingað kemur mikill fjöldi
túrista, bæði innlendra og er-
lendra. Þetta er líka visst nýja-
brum og fólk vill kaupa muni úr
leirnum hér af því að þetta er
eitthvað nýtt. Éghef framleitt áð-
ur alls konar muni sem túristar
Einn þeirra muna sem Kolbrún hefur búið til. Nýtískusparibaukur?
hafa keypt, og þá var maður van-
ur því að þeir spurðu fyrst hvað
munirnir kostuðu en nú eru
hlutirnir gripnir og sagt „ég ætla
að fá þetta“ og svo er spurt um
verð“.
- Það er því óhætt að segja að
framtíðin sé björt í þessum efn-
um?
„Já, það er alveg óhætt. Það
eru allir ánægðir með niðurstöð-
ur tilrauna sem hafa orðið mjög
jákvæðar. Það var ekki ríkjandi
allt of mikil bjartsýni þegar ég
kom hingað og fólk latti mig frek-
ar fararinnar en hitt. En þetta
hefur semsagt gefið góða raun og
með það eru allir ánægðir. Það
má líka geta þess að þessi fram-
leiðsla kemur til með að sjá um
fimmtán manns fyrir vinnu og
það þarf ekki að taka það fram að
hún verður bæði lyftistöng fyrir
atvinnulífið hér í Búðardal og
mun spara þjóðarbúinu mikinn
gjaldeyri."
- Og að lokum, hvernig líkar
ykkur að búa hér í Búðardal?
„Alveg prýðisvel. Við erum
mjög ánægð hér. Hér er ekki
stofnununum fyrir að fara og hér
er mikill friður. Okkur hafði
dreymt um það lengi að komast
eitthvert þangað sem við gátum
haft almennilegan vinnufrið og
þurftum ekki að þeytast borgar-
hlutanna á milli t.d. með krakk-
ann í pössun. Hérna höfum við
líka okkar vinnuaðstöðu við hlið-
ina á okkur og það segir sig sjálft
að það sparar mikinn tíma að
þurfa ekki að hendast út í bæ til
að taka kannski eitt stykki út úr
brennsluofninum, en það getur
þurft að gerast um miðja nótt. Ef
það er einhver ókostur við stað-
inn, þá er það, þó undarlegt megi
virðast, leirinn. Hér þrífst ekki
strá í garði, án þess að skipt sé um
jarðveg. Þá er fyrst hægt að
planta trjám og hafa almennilega
garða í kringum sig. Og ef dóttir
okkar fer út að leika sér í rign-
ingu, þá kemur hún inn á
leirstultum og þú getur rétt
ímyndað þér hvort það mælist vel
fyrir hér á heimilinu".
-kjv
Kolbrún ásamt nokkrum muna sinna.