Þjóðviljinn - 04.09.1982, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 04.09.1982, Qupperneq 15
Helgin 4.-5. septembcr 1982 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 15 um helgina Ketill sýnir á Fríkirkjuvegi 11 Dagana 5.-15. september 1982 heldur Ketill Larsen málverka- sýningu að Frikirkjuvegi 11. Sýn- inguna nefnir hann „Bjarmi frá öðrum heimi”. Þetta er 12. einka- sýning hans. Á sýningunni eru 40 myndir. Flestar myndanna eru nýjar af nálinni. Þær eru ýmist málaðar i oliu eða acryl-litum, eða unnar með blandaðri tækni. Á sýningunni verður leikin tónlist eftir Ketil af segulbandi. Sýningin verður opin alla dagana frá kl. 14.00 til 22.00. KetiII Larsen með nokkra „bjarma frá öðrum heimi”. Kantötutónleikar í Hallgrímskirkju Á sunnudagskvöld kl. 20.30 heldur Hallgrimskirkja I Reykjavik fjár- öflunartónleika til ágóða fyrir orgelsjóð kirkjunnar. Á tónleikunum verða fluttar tvær kantötur eftir Johann Sebastian Bach, báðar fyrir baritónsöngvara og kammerhljómsveit. Flytjendur eru þýskur söngvari, Andreas Schmidt, Kristján Stephensen óbó- leikari, kammersveit skipuð islenskum hljóðfæraleikurum og litill kór meðlima Mótettukórs Hallgrimskirkju. Stjórnandi er Hörður Askelsson og konsertmeistari Rut Ingólfsdóttir. Láta allir flytjendur vinnulaun sin renna i orgelsjóðinn sem standa á undir kaupum á stóru pipuorgeli i kirkjuna þegar hún verður tilbúin. Verð aðgöngumiða er 100 krónur en 50 kr. fyrir námsfólk og lifeyris- þega. Djassað annað kvöld í Kjallaranum A sunnudagskvöld kl. 21 upphefst jazzleikur I Stúdentakjallaranum við Hringbraut og stendur hann fram eftir kvöldi. Þar leika Tómas Einarsson á bassa, Friðrik Karlsson á gitar, Sigurður Flosason á saxa- fón, og Gunnlaugur Briem á trommur. Staðarhólskirkja í notkun á ný A sunnudaginn kemur, 5. september kl. 14. verður Staðarhólskirkja i Saurbæ tekin i notkun á ný meö hátiðarguðsþjónustu, en aðfaranótt 17. febrúar i fyrra fauk kirkjan af grunni sinum i fárviðri og skemmdist mikið. Þaðverður biskup Islands, Pétur Sigurgeirsson sem predikar en sóknarpresturinn , sr. Ingiberg J. Hannesson, prófastur á Hvoli flytur ávarp og þjónar fyrir altari. A eftir verða veitingar I Tjarnarlundi i boði sóknarnefndar. Galleri Lækjartorg: Haukur og Hörður sýna í dag kl. 14 opna tvibura- bræðurnir Haukur og Hörður Harðarsynir sýningu i Galleri Lækjartorgi og stendur hún fram til 19. september. A sýningunni eru mikrorelief þrykk, sem er eigin útfærsla þeirra á grafiskri tækni, skúlptúr unnin i HH23 og i við og enn fremur mikrorelief þrykk i skúlptúr. Þeir bræður eru fæddir 1952 eru sjálfmenntaðir i listgrein sinni en hafa lagt stund á guðfræðinám við Hí. Þeir hafa áður sýnt 1977 á Loftinu við Skólavörðustig, 1978 i The Collectors Gallery of Fine Art i Brooklyn, New York og á FIM sýningunni á Kjarvals- stöðum 1981. Max Schmid við nokkrar mynda sinna Annað sjónarhorn í Listmunahúsinu I dag verður opnuð i Listmuna- húsinu, Lækjargötu 2, sérstök ljósmyndasýning. Það er sviss- neskur ljósmyndari, Max Schmid, sem sýnir þar og er myndefni hans sótt i náttúruna. A sýningunni eru 74 ljósmyndir, flestar frá Islandi, en Max hefur komið hér á hverju ári frá 1968 og tekið ljósmyndir i óbyggðum landsins. Myndir Max Schmid hafa birst i ýmsum þekktum timaritum og fremsta ljósmyndatfmaritið i heimalandi hans gaf á þessu ári út risastórt almanak með mynd- um eingöngu eftir hann. Sýningin i Listmunahúsinu verður opin fram til 26. septem- ber á virkum dögum frá kl. 10 til 18 og laugardag og sunnudaga frá kl. 14—18JLokaöer á mánudögum. Furuhúsgögn Tegund Bella - 3 + 1 + 1 - Litir blátt, brúnt og rústrautt. Sófaborö og hornborð. Ný málverka- sýning á Mokka : 1 septembermánuði verða á ' Mokka sýndar 22 vatnslita- og oliumyndir eftir Olgu von Leuchtenberg. Verkin eru flest frá tslandi og Rússlandi en þetta er þriðja sýning Olgu hér á landi. Hún er fædd i Frakklandi lauk námi frá Museum School of Fine Arts i Boston og félagi I Cambridge Arts Assosiation. Það er margt fagurt djásnið á sýningu finnsku AG.AU. hópsins '82 I Gallerii Langbrók. Finnsk silfursmíð í Galleríi Langbrók 1 dag verður opnuð sýning i Gallerii Langbrók, Amtmanns- stig 1 i Reykjavik, á finnskum gull- og silfurmunum. Aðstand- endur sýningarinnar eru 10 Finnar sem hingað eru komnir á styrk frá tslensk-finnska menn- ingarsjóðnum. Er margt fagurra muna á sýningunni og með henni vilja Finnarnir benda á mögu- leika handverksins I samkeppn- inni við vaxandi iðnaðarfram- leiðslu. Sýningin er opin daglega frá kl. 12—18 og um helgar frá 14—18. Henni lýkur 20. september. —v Tegund PIA - 3 + 2 + 1 - Litir blátt, brúnt og rústrautt. Furuborð og hornborð. © Vörumarkaðurinn hf. I Ármúla 1a Húsgagna- og heimilisd. s:86-112 | Matvörudeild s:86-111, Vefnaðarv.d. s:86-113.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.