Þjóðviljinn - 20.11.1982, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 20. - 21. nóvember 1982
af bæjarhellunm
Réttur lands og lýðs
- og Eggerti Haukdal um aldur
og ævi. Eftir skoðanakönnunum
DV að dæma myndi slík tillaga
fljúga í gegn í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Það dugar nefnilega ekki ann-
að en að álykta skjótt og skarp-
lega. Það hefur Davíð Oddsson
sýnt á skömmum borgar-
stjóraferli. Ekki var hann t.d.
lengi að skynja af hyggjuviti sínu,
að skúringakona nokkur væri að
tala til útlanda í einkasímann
hans. Hann bæði sá það með
augunum og heyrði það með
eyrunum og ályktaði einsog Ungi
litli: Himininn er að hrynja.
Þá hefur hann sýnt lofsvert
framtak í því að ganga á snið við
sérfræðinga- starfshópa- og
nefndaveldið og afla sér upplýs-
inga beinustu leið. Nýjasta dæmi
þess snertir staðsetningu álvers í
Geldinganesi. í borgarstjórn var
samþykkt fyrir handvömm, að
gætt skyldi mengunarvarna fyrir
íbúa Reykjavíkur. Davíð snöggur
að vanda hringir í Veðurstofuna
og spyr, hvernig vindáttin sé
þarna uppi í .Geldinganesi.
Veðurfræðingurinn lítur á
veðurkort dagsins og segir sem
er, að hún sé norðaustlæg. Sama
kvöld kemur Davíð í sjónvarpið
og segir enga mengunarhættu
stafa af álveri í Geldinganesi, því
að þar ríki norðaustlæg vindátt
(sbr. staðvinda í öðrum hita-
beltum).
Hitt er annað mál, að Davíð
virðist annaðhvort misskilja orð-
ið „norðaustlægur“ eða ekki vita í
hvaða átt Geldinganes er frá
kjarna Reykjavíkur. Pað er
nefnilega í norðaustri, svo að
eimyrju frá orkuveri hlyti að
leggja þaðan yfir borgina úr
þeirri átt, sem í mæltu máli kall-
ast norðaustlæg. En auðvitað
hefur misskilningur Davíðs staf-
að af skynsamlegu viti einsog
annað. Utsynningurinn okkar
(sem þó er ekki staðvindur)
mætti skiljast sem norðaustlæg
átt, þ.e. sú átt, sem liggur til
norðausturs. Og því var þetta
skarpleg ályktun hjá Davíð eins-
og ævinlega. Árni í Botni
Eitt af því, sem um er bitist nú
um stundir, er stjórnarskrár-
málið og þá auðvitað framar öllu
kjördæmaskipanin eða það sem
kallað er jafnrétti kjósenda.
Hver um annan þveran keppast
menn við að fullyrða, að við hér á
suðvesturhorninu eigum að hafa
hlutfallslega jafnmarga þing-
menn og aðrir landshlutar. Jafn- •
vel bóndi austur á Hvalsnesi
tekur undir þenn ámáttlega söng.
Þessu er ég mikið ósammála.
Fólkið er ekki nema helft þeirrar
heildar, sem á hagsmuna að gæta.
Hinn helmingurinn er landið og
allt lífríki þess annað. Heildin er
ísland og Islendingar. Og landið
hefur mál ekki síður en fólkið,
þótt ekki kunni allir að nema
það. Landið hefur líka sinn rétt.
Þótt ekki búi nokkur mennsk sála
í Snæfellsjökli, þá er jafnrík á-
stæða til að hann eigi sinn fulltrúa
á Alþingi og einhverjar þúsundir
ráðvilltra sálna, sem hlaupa eftir
geipinu í ótíndum spraðabössum
og framagosum. Ég nefni engin
nöfn.
Það er 1 tið vit í því, að við sem
höfum hrúgast saman á Faxaflóa- !
svæðið á þessari öld vegna tíma-
bundinnar tækniþróunar eigum
að fá að ráðskast með afganginn
af landinu í krafti svokallaðs
meirihluta atkvæða. Þótt við
flækjumst milli héraða öld framaf
öld vegna duttlunga nytjafiska
eða markaðsþróunar úti í heimi,
þá verður landið og fegurð þess á
sínum stað. Ef við verðum þá
ekki búin að spilla henni með
skammsýni og flaustri í leit að
skjótfengnum peningagróða. Ég
hef enn meiri trú á landinu en
þjóðinni. Of stór hluti hennar
lætur sífellt glepjast af fagurgala
og „nýjungum", sem ekki reynast
annað en löðurbólur. Og einna
verst í því efni og ómarktækust I
erum við hér í þéttbýlinu.
Hitt er annað mál, að núgild- .
andi kjördæmaskipan tryggir
engan veginn rétt landsins fremur
en fólksins. Fæstir svonefndir
dreifbýlisþingmenn eru upprunn-
ir úr sínu kjördæmi, hvað þá bú-
settir þar, nema þá að nafni til.
Þeir hafa ekki hug á landinu
landsins vegna, heldur atkvæðum
fólksins í sveitarfélögunum sér og
sínum flokki til handa.
Auðvitað væri ekki hlaupið að
að því að útnefna verðuga full-
trúa Landsins til Alþingis. Það
yrði v;st til lítils að setja berg-
stuðla og jökulklumpa, fugla og
fiska í stóla Alþingishússins. En
hvernig á að þekkja þá úr, sem
best hafa numið mál náttúrunnar
érk toðk
t>ó BÁRA
fcoMMAS&K'Wtfj
þWJER'BGr
SEM 'AttVED
tVADAM VIMO-
tORINN BlÆS
\HER l
ýR£VKlAR-y
rík.
og tungur fjallanna? Skásti kost-
urinn sem stendur væri líklega sá,
að náttúruverndarsamtök í
hverju héraði kysu sína fulltrúa
til Alþingis, og það væri helming-
ur þingmanna.
Hinum helmingum mætti svo
skipta milli fólksins í landinu eftir
mannfjölda. Þá væri eðlilegast,
að „aðilar vinnumarkaðarins"
ættu flesta fulltrúa og þá í sam-
ræmi við höfðatölu, en ekki ein-
hverja hlútafjáreign (sem er
hvorteðer oftast fengin að láni frá
bönkum þjóðarinnar). Þannig
ætti Alþýðusamband íslands að
eiga um það bil 50 sinnum fleiri
fulltrúa en Vinnuveitendasam-
bandið, en Stéttarsamband
bænda, BSRB, BHM og Banda-
lag íslenskra listamanna eitthvað
þar á milli.
Stjórnmálaflokkar mættu
auðvitað leika lausum hala innan
allra þessara samtaka eftir sem
áður, en þeir ættu ekki að bjóða
fram beint til Alþingis. Flestir
forystumenn þeirra eru að vísu
sérfræðingar í að villa um fyrir
fólki, en áhrif þeirra myndu tak-
markast mikið, ef þeir þyrftu að
beita sér innan hvers stéttarfélags
og hagsmunahóps í staðinn fyrir
að hreykja sér á landsmæli-
kvarða. Þeir þyrftu með öðrum
orðum meira á sig að leggja, hver
einasti einn. Og þeir hefðu á-
reiðanlega ekki nema gott af því.
Eitthvað í þessa veru mætti dr.
Gunnar Thoroddsen reyna að
leysa kjördæmamálið í stjórnar-
skrárnefndinni sinni. En þar
mætti leggja fleira til og hugsa þá
m.a. til fornra fjandvina okkar
Tyrkja, sem um daginn sam-
þykktu nýja stjórnarskrá við
staka velþóknum NATO og
Morgunblaðsins. f þeirri stjórn-
arskrá er m.a. bundið, að núver-
andi forseti skuli lialda því emb-
ætti næstu 7 árin, enda „hýr og
góðlegur maður“. Ennfremur
voru helstu fjandmönnum lians
bönnuð öll stjórnmálaafskipti
næstu 10 árin.
Þannig mætti auðvitað tengja
það ákvæði við væntanlegt
stjórnarskrárfrumvarp, að dr.
Gunnar Thoroddsen skuli vera
forsætisráðherra til æviloka, en
andstæðingum hans einsog Geir,
Ólafi G. og Matthíösunum for-
boðin öll pólitísk umsvif jafnlengi
ritstiórnargrein
100 þús. tonn af þorski
= 1200 miljónir króna
Að undanförnu hafa menn
leitað ýmsra skýringa á því hvers
vegna þorskveiðar okkar íslend-
inga hafa gengið svo miklu lakar í
ár heldur en vænst var þrátt fyrir
mikla sókn.
í byrjun þessa árs lagði Haf-
rannsóknastofnun til, að veiddar
yrðu allt að 450.000 lestir af þor-
ski, en þá var heildarstofnstærð
þorsksins áætluð 1765 þús. lestir
og stærð hrygningastofnsins um
570 þús. lestir.
Nú er ljóst, að þorskaflinn í ár
verður hins vegar varla nema
380-390 þús. lestir, og í nýjum
tillögum Hafrannsóknastofnun-
ar, sem kynntar voru nú í vikunni
kemur fram, að stofnunin leggur
til, að þorskafli á árinu 1983 verði
aðeins 350 þús. lestir.
Þetta eru mjög alvarleg tíðindi,
sem. auka enn á þann mikla
vanda, sem við er að etja í
þjóðarbúskap okkar fslendinga
um þessar mundir.
Að vísu er auðvelt að benda á
að ákaflega miklar og óvæntar
sveiflur hafa komið fram í mati
Hafrannsóknastofnunar á styrk-
leika þorskstofnsins ár frá ári, og
ljóst að vísindi okkar góðu fiski-
fræðinga bjóða ekki upp á
stærðfræðilega nákvæmni. En
hvað sem því líður þá væri samt
mjög varhugavert að láta aðvar-
anir þeirra nú sem vind um eyru
þjóta svo stórir framtíðarhags-
munir sem hér eru í húfi.
Við skulum hins vegar öll gera
okkur grein fyrir því, að það
hvort sem hér veiðist 100 þúsund
tonnum meira eða minna af þor-
ski hefur stórkostleg áhrif á allt
okkar efnahagslíf.
Á síðasta ári var þorskafli okk-
ar íslendinga liðlega 450.000
tonn. verði þorskaflinn á næsta
ári aðeins 350.000 tonn eins og
Hafrannsóknastofnun leggur til,
þá felur þessi samdráttur þorsk-
veiðanna einn sér í sér 4% lækk-
un á þjóðartekna. Þjóðartekjur
okkar Islendinga eru taldar verða
í ár rösklega 30.000 miljónir
króna. Samdráttur í þorsk-
veiðum upp á 100.000 tonn felur
því í sér yfir 1200 miljón króna
lækkun á okkar þjóðartekjur (á
verðlagi ársins 1982) en til saman-
burðar má geta þess að sam-
kvæmt fjárlögum þessa árs, þá
eru tekjur ríkisstjóðs af öllum
tekjusköttum að sjúkratrygg-
ingagjaldi meðtöldu áætlaðar
1137 miljónir króna.
Hér er því ekki um neinar
smáupphæðir að ræða. í hini nýju
skýrslu Hafrannsóknastofnunar
kemur fram, að þorskstofninn er
nú talinn 10-2ö% minni en stofn-
unin reiknaði með fyrir ári síðan,
einkum vegna þess að árgangarn-
ir frá 1975 og 1976 eru taldir lak-
ari en þá var áætlað.
Það alvarlegasta sem fram
kemur í greinargerð Hafrann-
sóknastofnunar er þó það, að
stofnunin telur alla árgangana frá
1977 vera undir meðallagi, og að
nýliðum hafi í ár verið óvenju lé-
leg. Hin stóri árgangur frá 1973
fer nú að hverfa úr veiðinni. Þá er
ástand þorskstofnanna við Græn-
land talið vera með þeim hætti,
að þaðan sé ekki að vænta um-
talsverðra gangna á íslandsmið-
um.
Um þorskárganginn frá 1976 er
fjallað serstaklega í hinni nýju
greinargerð Hafrannsóknastofn-
unar. Hann var áður talinn
„sterkur og að líkindum mjög
sterkur" eða 350-400 miljónir ný-
liða. Gert hafði verið ráð fyrir, að
af þessum árgangi veiddust í ár
um 40 miljónir fiska. Bráða-
birgðatillögur benda hins vegar
nú til þess, að af þessum árgangi
veiðist í ár fjórðungi minni afli,
eða um 30 miljónir fiska.
Fróðlegt er að sjá skýringar
Hafrannsóknastofnunar á því
hvers vegna þorskárgangurinn
frá 1976 er eða virðist nú verulega
minni en áður var áætlað.
Stofnunin ber fram nokkrar til-
gátur til skýringa á þessu og eru
þær þessar:
KJartan
Ólafsson
skrifar
1 Niðurstöðum nýliðunar-
rannsókna skeikar um allt að
28%, miðað við fyrri spár um 360
miljónir nýliða.
2. Árgangurinn hefur orðið
fyrir óvæntum afföllum.
3. Lágt hitastig sjávar árið
1982 hefur valdið því að fiskur af
þessum árgangi hefur ekki veiðst
í samræmi við ætlaða stærð hans.
4. Slæmt ástand loðnustofnsins
hefur valdið því að þessi árgangur
heldur sig í meira mæli uppi í sjó,
eða utan hefðbundinna miða í æt-
isleit, en á síðustu árum og hefur
því ekki veiðst í þeim mæli sem
eðlilegt getur talist.
Þessar fjórar tilgátur setur Haf-
rannsóknastofnun fram til skýr-
ingar á mun minni veiði í ár úr
árgangnum frá 1976 heldur en
áætlað hafði verið. Stofnunin
leggur áherslu á, að árlegt endur-
mál stofnsins með tilliti til afla-
bragða og fiskifræðilegra for-
sendna sé nú mikilvægara en oft-
ast áður.
Að lokum skal hér á það bent,
að Hafrannsóknastofnun telur,
að verði veidd hér 400 þúsund
tonn af þorski á ári næstu þrjú
árin, þá muni hrygningastofn
þorsksins fara niður í 330 þús.
tonn á árinu 1985, en hann var
metinn á 570 þús. tonn í byrjun
þessa árs.
Af öllu þessu er ljóst, að erfitt
verður að marka fiskveiðistefn-
una fyrir næsta ár, og brýnt að
stjórnvöld og hagsmunaaðilar í
sjávarútvegi hefji umræður um
þau efni nú þegar. - k.
Samdráttur í þorskveiðum upp á 100 þús. tonn felur því í sér 1200
miljón króna lækkun á okkar þjóðartekjur, en samkvæmt fjárlögum
þessa árs eru allar tekjur ríkisins af tekjusköttum áætlaðar 1137 milj-
ónir króna.