Þjóðviljinn - 20.11.1982, Blaðsíða 13
Helgin 20. - 21. nóvember 1982
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
t okkar til fóstureyðinga
Starfsaðferðir
Helstu aöferðir hreyfingarinnar
til að ná markmiðum sínum eru:
• Gjarnan er reynt að fá hjúkrun-
arfólk og helst fræga lækna til
þess að gerast málpípur
hreyfingarinnar.
• Fyrirlesarar eru sendir í skóla og
aðrar stofnanir með kvikmynd-
ir og litskyggnusýningar.
• Þingmönnum eru sendir ógrynni
áróðursbæklinga og þeir þing-
menn sem styðja fóstureyðing-
ar fá oftast hótanir um skipu-
legar herferðir gegn þeim (ein-
kennandi fyrir t.d. Moral ma-
jority í Bandaríkjunum).
• Stúlkum sem nýlega hafa fengið
fóstureyðingu eru oft sendir of-
annefndir bæklingar (í huggun-
arskyni eða hvað?)
• Söfnun áskorenda á lista sem
síðan eru sendir þingmönnum.
Kirkjan oft virkur þátttakandi.
• Stofnun kvennahópa undir
nafninu „Kvenréttindakonur
fyrir lífi“
• Sprengjutilræði við fóstureyð-
ingastöðvar og morðhótanir við
félagsráðgjafa og lækna sem
starfa við slíkar stofnanir.
• Mótmælafundir fyrir utan fóst-
ureyðingastöðvar, þar sem m.a.
er oft ráðist á konur sem eiga
leið þangað eða þaðan og er oft
þá einnig stundað bænahald við
bamalíkkistur.
Margt fleira mætti upp telja en
hér verður látið staðar numið.
Markmið
Höfuðáhersla er lögð á það, að
koma andstæðingum fóstur-
eyðinga í sterkar stöður við sjúkra-
húsin og inn á þing, auk þess að afla
þeirra úr röðum þingmanna. Pegar
þessi áfangi hefur náðst er oftast
stutt í það að fóstureyðingalöggjöf
sé skert og markmiðinu þannig
náð.
Árangur
Hreyfingar andstæðinga fóstur-
eyðinga hafa víða náð töluverðum
árangri. Það virðist að meðaltali
taka 5 ár að ná markmiðinu. Pro-
life (fyrir lífi) hóf göngu sína í Ás-
tralíu 1973 og á Nýja-Sjálandi sama
ár. Þar voru sett lög gegn öllum
fóstureyðingum nema í nauðgun-
artilfellum árið 1977. í Ástralíu
voru stöðvaðar sjúkrasamlags-
greiðslur til fóstureyðinga. Konur
urðu sjálfar að borga brúsann.
Smám saman voru fóstureyðing-
astöðvar lagðar niður og 1981 voru
aðeins þrjú fylki í Ástralíu sem
framkvæmdu fóstureyðingar.
Petta þýðir að konur verða að
fljúga langt að til að fá fóstur-
eyðingu.
í Bretlandi og Bandaríkjunum
hafa í nokkur skipti komið fram
lagatillögur um skerðingu fóstur-
eyðinga og fer baráttan fyrir þeim
harðnandi. Par hafa sífellt fleiri
sjúkrahús neitað að framkvæma
fóstureyðingar undir því yfirskyni
að ekki fáist læknar til þess.
í Hollandi var fóstureyðingar-
löggjöfin skert i aprfl 1981, þrátt
fyrir hetjulega baráttu gegn því. í
maí sama ár hrintu ítalskar konur
slíkri tilraun af höndum sér, þrátt
fyrir að allt kaþólska báknið með
páfann í fararbroddi stæði þar að
baki.
Einkenni
Það sem kannski er hættulegast
við þessa hreyfingu er að í byrjun
og að ytri ásýnd virðist hún ósköp
meinlaust samsafn íhaldssamra,
guðhræddra einstaklinga, sem eru
svolítið á eftir tímanum. í raun er
um að ræða þrælskipulagða áróð-
ursherferð með ákveðin markmið
að leiðarljósi.
Markmiðið er ekki aðeins það að
fá manngildi fóstursins viðurkennt.
Markmiðið er einnig að brjóta á
bak aftur þau réttindi sem konur
hafa áunnið sér með harðri bar-
áttu. Mikilvægasta skrefið er að
svipta konur sjálfræðinu yfir eigin
líkama. Þess má geta að einnig er
efast um réttmæti lykkjunnar sem
getnaðarvarnar. Kynþáttafordóm-
ar koma skýrt fram. Rætt er um að
fólk sé of mikið farið að taka að sér
börn úr fjarlægum heimsálfum
(lituð) og að nær væri að konur
fæddu börnin og gæfu þau frá sér.
Þetta er dæmigert, afturhaldssamt
karlveldisviðhorf til kvenna. Fyrst
og síðast eru þær framleiðendur
nýrra einstaklinga, útungarvélar
fyrir „þjóðfélagið" og skiptir þá
engu máli hvort þær sjálfar vilja
það eða ekki.
Það er áberandi fyrir þessa
hreyfingu að hún er að meirihluta
skipuð körlum. Flestir helstu tals-
menn og áróðursmeistarar hreyf-
ingarinnar eru karlmenn, enda
hvernig má annað vera? Það má
einnig bæta því við að áhyggjuefni
postulanna eru ekki einungis fóst-
urlát, heldur einnig upplausn
hjónabandsins, siðferði kynlífsins
o.s.frv. Þetta eru „vandamál" sem
má rekja til breyttrar stöðu kon-
unnar. Er ekki nokkuð ljóst að
þessi hreyfing er sett til höfuðs
konum fyrst og fremst og réttinda-
baráttu þeirra?
Almenningur spratt upp
Hér fer á eftir viðtal við Lilju
Ólafsdóttur, deildarstjóra, en hún
er ein af þeim fjölmörgu konum
sem voru virkar í baráttunni hér á
landi fyrir rétti kvenna til fóstur-
eyðinga á árunum ’74-’75. Okkur
lék hugur á að fræðast um hvernig
sú barátta hófst og hversu víðtæk
hún varð.
- Hún hófst eiginlega allsstaðar.
Það má segja að baráttan hafi verið
sjálfsprottin. Flestir þeirra sem þá
voru framarlega í jafnréttisbarátt-
unni létu mikið til sín taka og strax
kom upp góð samstaða milli nokk-
urra lækna og fleira starfsfólks í
heilbrigðisþjónustunni.
Fljótlega var myndaður nokkurs
konar samstarfshópur fólks úr
ýmsum áttum sem m.a. tók að sér
að undirbúa opinn fund í Súlnasal
Hótel Sögu. Sá fundur var haldinn í
apríl ’74 og markaði þáttaskil í bar-
áttunni. Salurinn varð troðfullur,
mörg erindi voru flutt og líflegar
almennar umræður urðu.
Blaðaskrif voru geysilega mikil á
þessum tíma. Fjöldi fólks alls stað-
ar af landinu og úr öllum mögu-
legum áttum kom fram á sjónar-
sviðið, hreyfingin varð mjög breið
og einskorðaði sig ekki við neinar
flokkspólitískar línur. Auk blaða-
skrifanna voru útvarpserindi flutt
og sjónvarpið fjallaði einnig um
málið.
í stuttu máli: Almenningur
spratt upp og eitt af því sem var
mjög einkennandi fyrir þessa bar-
áttu var að í fyrsta skipti hér á
landi, að ég held, rigndi bréfum
yfir þingmenn frá konum sem voru
mjög einarðlega fylgjandi þessum
rétti.
- Hvað fannst þér erfiðast í þessari
baráttu?
Viðtal við
Lilju Ólafsdóttur
deildarstjóra
- Erfiðast fannst mér að berjast
við vindmyllurnar. Þar á ég við tví-
skinnunginn og rakaleysið hjá
andstæðingum frjálsra fóstur-
eyðinga, sem í aðra röndina héldu
fram óskoruðum rétti kviknandi
lífs en töldu um leið að undir
vissum kringumstæðum mætti
grípa inn í rás náttúrunnar. Sem
sagt, þeim fannst það óguðlegt að
konan tæki þessa ákvörðun en
eðlilegt að einhverjir utanað-
komandi aðilar gætu gert það.
Ég skil betur rök þeirra sem geta
ekki undir neinum kringumstæð-
um sætt sig við fóstureyðingar.
Annað hvort tekur maðurinn sér
þetta ákvörðunarvald yfir fóstri
eða ekki. En ef einhver á að taka’
sér þetta vald í hönd, þá hlýtur það
að vera sá sem málið snertir mest,
þ.e. konan sjálf. Ég berst fyrir
sjálfsákvörðunarrétti kvenna og
sætti mig við núgildandi löggjöf
eingöngu vegna þess að ég álít
hana hafa verið áfangasigur.
- Hvað finnst þér um frumvörp
Þorvaldar Garðars?
- Ef Þorvaldur Garðar raunvem
lega telur að hægt sé að ganga svo
frá að engin kona þurfi fóstur-
eyðingu af félagslegum ástæðum,
þá er einfaldast að afnema allar
þessar orsakir hverja á fætur ann-
arri. Nú vitna ég í tvær „félagslegar
ástæður" sem tilgreindar eru í nú-
gildandi löggjöf þe. þegar kona hef-
ur alið mörg börn með stuttu milli-
bili og skammt er liðið frá seinasta
barnsburði og þegar kona getur
ekki vegna æsku og þroskaleysis
annast barn á fullnægjandi hátt.
Þegar Þorvaldur Garðar er búinn
að „afnema" þessar og sambæri-
legar ástæður fyrir fóstureyðing-
um, þá leggjast þær bara sjálfkrafa
niður. Eða er einhver til sem virki-
lega heldur að kona leiti eftir fóst-
ureyðingu bara upp á grín? Sá sem
ætlar öðrum slíkt kemur eingöngu
upp um eigin mannfyrirlitningu!
Við skulum ekki gleyma því að
fóstureyðingar voru framkvæmdar
hér í töluverðum mæli áður en nú-
gildandi löggjöf var samþykkt bæði
löglega og ólöglega. Auk þess fóru
þær konur sem höfðu peninga og
svo dætur efnafólks til útlanda.
Mér segist svo hugur að sá þjóðfé-
lagshópur sem í krafti peninganna
þyrfti ekki að hlíta neinum lögum,
sé einmitt sá sem fyrstur fordæmir
þær stúlkur sem hafa „misstigið“
sig að þeirra mati. - H.J.
Hildur Jónsdóttir
og Svava
Guömundsdóttir
skrifa
Postular í ham
Sagt frá fundi í Norræna
húsinu um fóstureyðingu
Kristilegir stúdentar hafa greini-
lega skorið upp herör gegn rétti
kvenna til fóstureyðinga. Þeir hafa
beitt sér í málgagni sinu „SALT“
(sept. síðastl.), í Velvakandaskrif-
um og einnig stóðu þeir að fundi um
fóstureyðingar 15. okt. í Norræna
húsinu. Þar sýndu þeir 50 mínútna
bandarfska kvikmynd gegn fóstur-
eyðingum, en í henni kom fram
sambærilegur málflutningur og hjá
Right to Life (sjá annars staðar á
sfðunni). Athygli.skal vakin á því,
að þessi sama mynd (sem er í bii-
legum hryllingsmyndastfl) var áður
sýnd nemum í Hjúkrunarskóla ís-
lands og einhverjum trúarfélögum
einnig.
Ýmsir einstakiingar innan kirkj-
unnar hafa slegist í herförina og
hafa hátt um þá „glæpi“ sem
framdir eru f landinu þar sem fóst-
ureyðingar eru annars vegar.
Dæmi um þetta er morgunbæn f
útvarpinu 10. okt. og Velvakanda-
bréf. Eins og fram kemur annars
staðar á síðunni eiga þessi öfl full-
trúa innan Alþýðuflokksins þó
þingmenn hans teljist ekki þar f
hópi.
Á fundinum í Norræna húsinu
voru flutt fjögur framsöguerindi og
fóru fram pallborðsumræður fram-
sögumanna á eftir. Framsögumenn
voru Auðólfur Gunnarsson læknir
á kvennadeild Landsspítalans,
Hildur Jónsdóttir, Sigurður Páls-
son námsstjóri í kristinfræði og
Þórvaldur Garðar.
Auðólfur og Hildur vörðu rétt
kvenna til fóstureyðinga. Hildur
fordæmdi myndasýninguna hart:
„Þið sem kennið ykkur við kristi-
legt umburðarlyndi, - hverjir
menn eruð þið að ráðast á konur og
sakfella þær af þvílíkri grimmd og
fáfræði sem þessi mynd er dæmi
um?“ Hún kvað konur einar færar
um að meta hvort og hvenær þær
sjá enga aðra lausn á.r>eyð sinni en
fóstureyðingu. Hún benti einnig á
að samfélagið tekur ekki áþyrgð á
velferð allra þeirra barna sem
fæðast, heldur er sú ábyrgð lögð á
herðar mæðra þeirra. Hildur sagði:
„Á meðan óæskileg þungun getur
átt sér stað, hvort sem það er vegna
brigðulla getnarðarvarna, fáfræði
eða vegna ofbeldis, er konum
nauðsynlegt að eiga rétt til fóstur-
eyðinga".
í máli Auðólfs kom fram, að frá
því að fóstureyðingarlöggjöfin var
rýmkuð 1975, hafi löglegum fóstur-
eyðingum fjölgað, en þó mun
minna en á hinum Norðurlöndun-
um. Einnig að svo virtist sem ólög-
mætar fóstureyðingar hafi ekki
verið framkvæmdar hérlendis eftir
setningu laganna.
Hann gerði að umfjöllunarefni
spurninguna um upphaf mannlegs
h'fs. Leiddi hann rök að því að mann-
legt líf væri til staðar hvað frumurn-
ar varðar, fyrir, á meðan og eftir
frjóvgun. Ennfremur sagði
Auðólfur að ekki fyrr en u.þ.b.
tveim vikum eftir getnað sé full-
ráðið, hvort eitt fóstur, með nýjum
einstökum erfðaeiginleikum
myndast eður ei.
Auðólfur benti á að með nútíma-
tækni í læknisfræði er hægt að
halda líkamsstarfsemi gangandi,
þ.e. öndun og blóðrás, eftir að
miðtaugakerfið er hætt að starfa.
Þess vegna hefur læknum reynst
nauðsynlegt að taka upp nýja skil-
greiningu á endalokum lífsins, eða
hugtakið heiladauða (neurological
death). Við heiladauða er
miðtaugakerfi einstaklings hætt að
starfa og hann getur ekki framar
haldið uppi neinum tjáskiptum við
umhverfi sitt.
Auðólfur taldi að þessi skil-
greining hefði áhrif á hvenær við
teljum líf einstaklings hefjast.
Fóstur sem ekki hefur ennþá starf-"
hæft miðtaugakerfi er þ.a.l. ekki
ennþá lifandi vera. Hann sagði það
sína skoðun að konur ættu sjálfar
að fá að taka ákvörðun um fóstur-
eyðingu, innan vissra tímatak-
marka þó, nánar tiltekið 12 vikna,
því eftir þann tíma væri meiri hætta
á eftirköstum og kvillum af völdum
aðgerðarinnar. Hann taldi að
dreifa þyrfti upplýsingum um þetta
atriði meðal kvenna.
Auðólfúr sagði ennfremur að af
reynslu sinni í starfi á kvenna-
deildinni hafi hann komist á þá
skoðun að honum væri ekki fært
fremur en öðrum að dæma um
hvort hver einstök kona hefði
ástæður fyrir fóstureyðingu, um
það gæti konan sjálf best dæmt.
Sigurður og Þorvaldur Garðar
voru báðir andvígir fóstureyðing-
um. Sigurður taldi fóstureyðingar
bera vott um siðferðislega hrörnun
þjóðfélagsins og fela í sér rangan
mannskilning. Einnig að fóstur-
eyðing væri virðingarleysi fyrir því
lífi sem frá guði væri komið. Hann
benti fundármönnum á að til væri
nokkuð sem kallaðist „óábyrgt
kynlíf? og mátti á þessari ábend-
ingu skilja að rétt væri að refsa
fólki sem ástundaði slíkt með ó-
tímabærri barneign.
Þorvaldur Garðar taldi rangt að
leyfa fóstureyðingar af félagslegum
ástæðum. Það er eftirtektarvert að
samtímis því sem hann taldi fóstur
mannveru og líf þess heilagt, þótti
honum rétt að fóstureyðing ætti sér
staðísumum tilvikum, t,d. ef konu
er nauðgað og ef hætta er á að fóst- .
ur sé vanheilt.
Það kom mjög greinilega fram í
umræðunum að í augum Hildar og
Auðólfs voru fóstureyðingar raun-
verulegt og knýjandi vandamál
kvenna. I augum Þorvaldar
Garðars og þó sérstaklega Sig-
urðar, stóð vandamálið um
eitthvað lapgt fyrir utan hið
jarðneska og raunverulega, þar
sem hugtakið mannskilningur lék
mikið hlutverk. Enda er ekki óeðli-.
legt að sjálfskipaðir siðferðispost-
ular af karlkyni eigi erfitt með að
skilja líf og viðhorf kvenn og þær
aðstæður sem leitt geta til þess að
þær leita fóstureyðingar.
Það er full ástæða til þess að
hvetja konur til að vera vel á verði.
Raddir þær gegn fóstureyðingum,
sem nú berast úr herbúðum kirkj-
unnar og annars staðar frá, geta
orðið að öflugum kór fyrr en varir.
- S.G.