Þjóðviljinn - 20.11.1982, Side 22
22 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 20. - 21. nóvember 1982
Afþreying á
franska vísu
hYikmyndlr
Harkaleg heimkoma (Retour en force)
Stjórn og handrit: Jean Marie Poiré
Kvikmyndun: Yves Lafaye
Leikendur: Victor Lanoux,
Bernadette Lafont.
Sumir halda að í Frakklandi séu
aðeins gerðar listrænar og menn-
ingarlegar kvikmyndir, vegna þess
að þá sjaldan hingað berast myndir
þaðan eru þær yfirleitt af því tag-
inu. Þar er þó framleitt heilmikið af
allskyns afþreyingarmyndum, mis-
jafnlega góðum einsog gengur, og
Harkaleg heimkoma er líklega í
einhverskonar miðlungsflokki þar,
hvorki betri né verri en gengur og
gerist.
Höfundur myndarinnar er Jean-
Marie Poiré, og er þetta þriðja
mynd hans. Að því er leikskráin
segir okkur er hann þegar búinn að
ávinna sér nafn sem leikstjóri gam-
anmynda. Harkaleg heimkoma
hefur ýmislegt til að bera sem gam-
anmynd, húmorinn er bara nota-
legur, þótt áhorfandinn taki svo-
sem engin bakföll af hlátri.
Aðalpersónan, Adrien
Blaussac, hefur setið í fangelsi í 8 ár
fyrir vopnaða árás sem hann tók
þátt í ásamt öðrum, enn skugga-
legri náungum en þeir sluppu með
peningana. Myndin hefst þegar
Adrien losnar úr fangelsinu og
hyggst endurheimta sinn hlut af
ránsfengnum, en það reynist ekki
auðvelt. Hann ætlar líka að endur-
heimta fjölskyldu sína, sem hann
| heldur að lifa í vellystingum prakt-
1 uglega, en það reynist á misskiln-
ingi byggt. Konan hans hefur
semsé búið með strætóbflstjóra
nokkrum í 6 ár, sonur hans er vél-
hjólaþjófur og dóttirin stundar vafa-
| samt diskólífemi. Adrien gerir
heiðarlega tilraun til að koma lífinu
í samt Iag, en á endanum neyðist
hann til að fallast á tillögu sonar
Victor Lanoux leikur Adrien í
myndinni Harkaleg heimkoma.
síns um að fremja ævintýralegt inn-
brot, og þar fer margt á annan veg
en ætlað var.
Það er svosem ekki margt hægt
að segja um þessa mynd, hún er
þokkaleg dægradvöl og gefur sig
ekki út fýrir að vera neitt annað.
Ingibjörg
Haraldsdóttir
skrifar
Jean-Baptiste Poquelin, sem
kallaður var Moliére, fæddist árið
1622 í París og andaðist þar 51 ári
seinna. Faðir hans var húsgagna-
bólstrari og sonurinn átti að feta í
fótspor hans sem iðnaðarmaður,
en hugur hans stefndi í aðra átt,
hann gerðist leikari og leikskáld,
stofnaði leikflokk og ferðaðist um
Frakkland vítt og breitt um margra
ára skeið, en settist að lokum að í
París og lagði grundvöllinn að því
1 leikhúsi sem síðar varð Comedie
Francaise. Leikrit hans eru sígild,
Moliére er Shakespeare þeirra
Frakka. Hann dró samtímamenn
sína sundur og saman í háði og
| réðst af engri miskunn á veikleika
| þeirra, fáfræði og hræsni.
I Ariane Mnouchkine segir okkur
;ögu þessa snillings frá því hann var
tíu ára og allt til dánardags. Hún
einskorðar sig ekki við einstakling-
inn Jean-Baptiste, heldur bregður
upp breiðri mynd af samfélaginu
sem hann lifði í, Frakklandi á 17.
öld, samfélagi eymdar og örbirgðar
annarsvegar og fáránlegs ríkidæm-
is hinsvegar. Viðfangsefnið er lista-
maðurinn og umhverfið, gagn-
verkandi áhrif þeirra hvors á ann-
að. Að þessu leyti svipar myndinni
um Moliére til sovéska snilldar-
verksins um Andrei Rúbljof, eftir
Tarkofskí. Myndirnar eru þó gjör-
ólíkar að öðru leyti, enda fjallað
um gjörólíka listamenn og ólík
samfélög.
Aldarfarslýsingin sem Mnouc-
hkine gefur okkur er gerð af svo
Allur hinn sögulegi búningur
myndarinnar kemst mjög vel til
skila og verkar afar sannfærandi -
þetta er ekki ein af þessum sögu-
legu stórmyndum, sem líta út eins-
og þær séu teknar á þjóðminjasafn-
inu, heldur er sautjánda öldin leidd
fram sprelllifandi, skítug, lúsug og
hungruð, en líka skrautleg og
spennandi. Stundum finnst manni
einsog gömul málverk hafi lifnað
og breyst í veruleika, sem verður
manni undarlega nákominn, eins-
og alltaf gerist þegar mikil list er
annarsvegar. Persónurnar eru
manneskjur sem koma okkur við,
örlög þeirra skipta okkur máli.
Það er sannarlega ekki á hverj-
um degi sem slík listaverk rekur á
fjörur okkar.
Snillingurinn og
samtíðhans
miklu listrænu innsæi, svo breið og
fræðandi, að sögukennarar ættu
eiginlega að skikka nemendur sína
til að sjá myndina.
Moliére, eða líf
heiðarlegs manns
(Moliére ou la vie
d’un honnete homme)
Handrit og stjórn:
Arianc Mnouchkine
Kvikmyndun: Bernard Zitzermann
Tónlist: René Clemencic
Leikendur: Pilippe Caubére,
Josette Derenne,
leikarar Sólarleikhússins
í París
Ariane Mnouchkine mun vera í
hópi merkari leikhúsmanna í
Frakklandi um þessar mundir
stofnandi Sólarleikhússins fræga,
Theatre du Soleil, og hefur sett þar
á svið ýmsar merkar sýningar.
Frægust er hún fyrir sögulegar sýn-
ingar og mun hafa fengist allmikið
við Shakespeare karlinn. Árið
1974 hóf hún kvikmyndaferil sinn
með því að kvikmynda sýningu
Sólarleikhússins á verki sem hét
„1789“, og 1978 kom svo önnur
mynd hennar, Moliére, sem við
fáum nú að sjá á frönsku kvik-
myndavikunni.
Molicre er viðamikið verk, sýn-
ingartíminn samtals 4 tímar og 20
mínútur, og er myndin sýnd í
tveimur hlutum. Er skemmst frá
því að segja, að Moliére er sú mynd
á þessari kvikmyndaviku sem allir
ættu að sjá, og þeir sem aðeins geta
séð eina mynd ættu að láta þá mynd
vera Moliére.
Hinn ungi Moliére og móðir hans
Surtur (Anthracite)
Handrit ogstjórn:
Edouard Niermans
Kvikmyndun: Bernard Lutic
Tónlist: Alain Jomy
Leikendur: Jcan-Pol Dubois,
Bruno Cremer, Jean Bouise,
Jerome Zucca.
Edouard Niermans er tæplega
fertugur Frakki sem kominn er til
íslands og sýnir fyrstu mynd sína,
Surt,-á frönsku kvikmyndavikunni
í Regnboganum. Þetta er ekki
fyrsta heimsókn Niermans til ís-
lands, hann hefur oft komið hingað
áður og hyggst gera næstu kvik-
mynd sína hér á landi. Surt gerði
hann 1980 og var hún frumsýnd á
Cannes-hátíðinni það ár.
Að sögn kvikmyndastjórans er
Surtur sjálfsævisöguleg kvikmynd.
Hún gerist á Jesúítaskóla árið
1952, en á slíkan skóla var Nierm-
ans sendur ungur að árum og hefur
sennilega ekki liðið neitt alltof vel
þar, ef marka má myndina.
Skólinn sem við kynnumst er lokuð
stofnun þar sem harðneskjulegum
aðferðum er beitt til að breyta ung-
um drengjum í valdafíicna og
þröngsýna frammámenn í þjóðfé-
laginu.
Surtur er alls ekki fyrsta kvik-
myndin sem gerð er um þetta, eða
svipað efni. ffranskri kvikmynda-
sögu er þónokkuð um slíkar mynd-
ir, og ber þar hæst myndina Zero de
conduite, eða Núll í hegðun, sem
snillingurinn Jean Vigo gerði árið
1933. Satt best að segja finnst mér
Surtur ekki bæta neinu nýju við
þær hugmyndir sem maður hafði
gert sér um gamlar, kaþólskar upp-
eldisaðferðir.
„Surtur“ er uppnefni aðalpers-
ónunnar, föður Godard, sem á að
vera drengjunum andlegur leiðtogi
og vaka yfir trúarlegri velferð
þeirra. í upphafi myndar er hann
að biðja Guð að gefa sér styrk til að
elska þá heitar, og það litla sem
hann segir í myndinni snýst allt um
ástina sem á að ríkja í samskiptum
manna. Hinsvegar virðist áhorf-
andanum sem hann sé aðallega ást-
fanginn af einum drengnum, Pi-
erre, sem er utangarðsmaður í
samfélagi strákanna, lélegur í fót-
bolta og kann ekki að svara fyrir
sig. Pierre vesalingurinn er að sjálf-
sögðu látinn gjalda þessarar ástar
Surts, félagarnir stríða honum af
engri miskunn og kalla hann
stelpu.
Faðir Godard gengur með ein-
hverskonar dýrlingskomplex og
trúir á meinlætalifnað sem á að göf-
ga andann. Þetta vill hann innræta
strákunum, en hefur ekki erindi
sem erfiði, enda er hann gjörsam-
lega mislukkaður uppalandi. Tveir
aðrir Jesúítar koma við sögu,
skólastjórinn og umsjónarmaður
skólans, og eru báðir meinhorn hin
verstu. Einn strákanna, Fouquet
að nafni, lofar góðu í myndarbyrj-
un og virðist vera efni í upp-
reisnarmann. . Hann klifrar uppá
þak og les skólabræðrum sínum
pistilinn þaðan, er hýddur fyrir til-
tækið og gufar svo upp á slysa-
varðstofunni og er úr sögunni, illu
heilli.
Mig grunar að Pierre sé sá pilt-
anna sem stendur Niermans næst -
litla fórnarlambið, sem fær útrás
fyrir niðurbælda heift með því að
sparka í dýrlinginn í myndarlok.
Því miður er drengurinn svo ræki-
lega bældur að við fáum nánast
ekkert að vita um hann, annað en
það sem liggur í augum uppi.
Myndin er fallega tekin í löngum
skotum með afar fáum myndavél-
arhreyfingum. Stíllinn er hreinn og
tær, en bjargar ekki tómahljóðinu
sem mér virðist stafa af afstöðu-
leysi höfundarins til þess sem hann
er að segja. Þetta er faglega unnin
mynd sem skilur harla lítið eftir.