Þjóðviljinn - 20.11.1982, Qupperneq 31
Helgin 20. - 21. nóvember 1982þjöÐVILJINN — SIÐA 31
Svavar Gestsson um Helguvíkurmálið
Akvarðanir
utanrOds-
fáðhena
markleysa
„Það sem liggur fyrir í svokölluðu Helguvíkurmáli er það, að
engar framkvæmdir hafa verið ákveðnar í Helguvík á þessu ári“,
sagði Svavar Gestsson m.a. í setningarræðu sinni á flokksráðsfundi
Alþýðubandalagsins.
Svavar sagði að gert væri ráð
fyrir því í áætlun, sem utanríkisráð-
herra hefði fallist á fyrir sitt leyti,
að hafinn verði undirbúningur að
framkvæmdum við olíugeyma í lok
ársins 1983. „Það er hinsvegar al-
veg ljóst, að þær framkvæmdir, ef
af verður, verða á ábyrgð þeirrar
ríkisstjórnar sem þá situr í landinu.
í millitíðinni munu eiga sér stað
kosningar, og mynduð verður ný
ríkisstjórn ef að líkum lætur. Það er
þessvegna alveg útilokað annað en
líta á ákvörðun utanríkisráðherra í
þessu efni sem markleysu“.
Svavar gat þess að Alþýðu-
bandalagið og núverandi ríkis-
stjórn hefðu engar samþykktir gert
varðandi framkvæmdir í Helguvík
og í vikunni hafi hann látið bóka þá
afstöðu í ríkisstjórninni.
- ekh.
Tvær þekktar kempur úr Alþýðubandalaginu, Sigurður Blöndal skóg-
ræktarstjóri og Eðvarð Sigurðsson, fyrrverandi formaður Dagsbrúnar.
Ljósm. gel.
Svavar Gestsson
á flokksráðs-
fundinum
Skipulagi
flokksins
verði
breytt
„Það er nauðsynlegt að stækka
og efla Aiþýðubandalagsins meðal
annars með því að félagarnir geti á
beinan og milliliðalausan hátt haft
áhrif á svo að segja allar meirihátt-
ar ákvarðanir sem teknar eru í
flokknum á hverjum tíma“, sagði
Svavar Gestsson formaður flokks-;
ins í ræðu sinni á flokksráðsfundin-
um í gær.
„Við viljum að Alþýðubanda-
lagið verði öflugt baráttutæki fél-
aganna, en um leið þungamiðja
samfylkingar sem leggur áherslu á
víðtæka einingu. Alþýðubandalag-
ið kýs ekki forræði í samfylkingar-
starfi heldur samstarf á lýðræðis-
legum grunni.“
Á fundinum er m.a. lögð fram
tillaga frá Svavari um að skipulags-
nefnd sem gerir tillögur um
breytingar á skipulagi flokksins
fyrir næsta landsfund verði kjörin á
flokksráðsfundinum.
-óg.
Söfnunarátak vegna
flokksmiðstöðvarinnar
Gert ráð fyrir að Sigfúsarsjóður eigi
flokksmiðstöðina að Hverfisgötu 105
Fyrir flokksráðsfundi Alþýðu-
bandalagsins liggur tillaga um að
Sigfúsarsjóður eigi hina nýju flokks
miðstöð að Hverfisgötu 105, en
sjóðurinn var stærsti aðilinn í Sam-
túni h.f. sem átti flokksmiðstöðina
að Grettisgötu 3, og nú hefur verið
seld.
Svavar Gestsson flutti í setning-
arræðu sinni forráðamönnum Sam-
túns h.f. þakkir fyrir gott starf á
liðnum árum og ver mætt framlag í
þágu flokksins. Hann upplýsti að
Sigfúsarsjóður hefði fengið að
undanförnu um 400 þúsund krónur
að gjöf frá nokkrum tugum flokks-
manna vegna hinnar nýju flokks
miðstöðvar, .og kvaðst vonast til
þess að undirtektir yrðu góðar
undir tillögu um söfnunarátak, sem
fyrir flokksráðsfundinum lægi.
„Sigfúsarsjóður var stofnaður í
minningu Sigfúar heitins Sigur-
hjartarsonar, eins besta leiðtoga
okkar stjórnmálahreyfingar fyrr og
síðar. Hann hefði orðið 80 ára á
þessu ári, ef hann hefði lifað, og
mér finnst fara vel á því einmitt nú,
árið 1982, að endurreisa Sigfúsrar-
sjóð til nýrra verkefna“, sagði
Svavar Gestsson í ræðu sinni.
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins kýs Sigfúsarsjóði
stjórn.
- ekh.
Lögbrot hjá Hafskip:
Tollgæslan
leggur hald á
11 vörulyftara
Síðustu tvo daga hefur tollgæsla verið með til rannsóknar ólög-
legan þátt í starfsemi Hafskips h.f.
Samkvæmt tollalögum er ólöglegt, ef skipafélag afhendir vörur,
áður en aðflutningsgjöld hafa verið greidd og tollstjóri heimilað
afhendingu þeirra.
Meðal varnings, sem Hafskip
h.f. hefur flutt til landsins á síðustu
mánuðum eru 11 vörulyftarar, sem
skipafélagið var kaupandi að.
Strax og fljótlega eftir komu vöru-
lyftaranna til landsins, tók skipafé-
lagið þá úr eigin vörugeymslu til
eigin nota, án þess að greiða af
þeim lögboðin rfkissjóðsgjöld, að
fjárhæð kr. 1.715.011,-
Tollgæslan hefur lagt hald á
vörulyftarana 11, og verða þeir í
hennar vörslu þangað til rannsókn
málsins lýkur. ^
Þessar upplýsingar komu fram í
fréttatilkynningu frá tollgæslunni
sem barst í gærkvöldi.
(\ýs&Ttur-
20 % "T?“ReU
•*£*£%*
Model Reykholt er glæsilegt
borðstofusett í íslenskum
sögualdarstíl.
Framleitt af okkur úr valinni
massífri furu.
Fæst í Ijósum viðarlit eða
brúnbæsað.
Úrval fallegra áklæða.
Það er varla hægt að komast
nær handverki en gert er í
þessum húsgögnum.
FCIPUHCISÍÐ HF.
Suðurlandsbraut 30 105 Reykjavik • Simi 86605.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.