Þjóðviljinn - 20.11.1982, Side 32
k
i
F
i
í
í
1
r
f
i
t
r
t
I
i
í
I
MOÐVIUINN
Helgin 20. - 21. nóvember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess
tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum
símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir
81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma
81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 ogeru blaðamenn þar á vakt
öll kvöld.
Það var þétt setinn bekkurinn við setningu flokksráðsfundar Alþýðubandalagsins, sem hófst siðdegis í gær
Ljósm. gel.
Svavar Gestsson á flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins
Viðskíptahallmn
kveðinn niður 84
„Viðskiptahallinn verði
kveðinn niður að fullu á árinu
1984, innflutningur verði tak-
markaður með sköttum og inn-
borgunargjöldum og minni lán-
afyrirgreiðslu, erlendar skuldir
aukist ekki frá því sem nú er,
verðbólgu verði náð niður með
jöfnum og ákveðnum skrefum
og stofnaður kjarajöfnunar-
sjóður sem hafi 500 milljónir
króna til ráðstöfunar 1984.
Þetta eru nokkur atriði sem
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins sagði í setn-
ingarræðu á flokksráðsfundi í
gær að þyrftu að vera í einskon-
ar neyðaráætlun til næstu fjög-
urra ára.
„Tillaga mín er sú að gerð
verði fjögurra ára áætlun um að
Erlendar skuldir
verði ekki
auknar
Kjarajöfnunar
sjóður fái 500
milljónir króna
draga úr erlendum skuldum, að
auka framleiðslu og um að
treysta lífskjaragrundvöll þjóð-
arinnar. Við eigum að gefa
kjósendum kost á því að kjósa
um þá áætlun í kosningunum
sem verða vonandi ekki seinna
en í aprílmánuði næstkomandi.
Markmið áætlunarinnar eru full
atvinna, aukin framleiðsla og
framleiðni og jöfnun lífskjara",
sagði formaður Alþýðubanda-
lagsins.
í tillögum Svavars um atriði í
þessa áætlun er auk þess sem
greint var frá í byrjun fréttar
fjallað um sparnaðarátak í öll-
um atvinnugreinum, aukna
framleiðslu og framleiðni, rót-
tæka endursk oðun peningakerf-
isins, samstarf við verkalýðs-
hreyfinguna og breytta verð-
lagsstjórn.
í þættinum stjórnmála á
sunnudegi í blaðinu í dag er
birtur sá kafli úr setningarræðu
Svavars Gestssonar sem fjallar
um þessa áætlun. _ e^h
Alþýðubandalagið með tillögu í rikisstjórninni
Kjördagur 23. apríl
Alþýðubandalagið gerði til-
lögu um það í upphafi þings að
efnahagslögin yrðu strax lögð
fyrir þingið og um þingrof og
kosningar ef lögin yrðu felld,
sagði Svavar Gestsson í ræðu
sinni í gær. „Aðrir stjórnaraðil-
ar og stjórnarandstaðan
neituðu að fallast á tillögu Al-
þýðubandalagsins í haust“.
Sagði Svavar, að stjórnarand-
staðan hefði reynst ábyrgðar-
laus: „Hún flytur ekki tillögur
til lausnar efnahagsvandanum,
hún vill ekki taka þátt í því að
tryggja hér skammlaust stjórn-
arfar fram yfir kosningar. Af
þessum ástæðum höfum við nú
lagt til í ríkisstjórninni að kosið
verði 23. apríl næstkomandi og
að þing verði rofið um miðjan
febrúar.“ Benti Svavar á hættu
á upphleðslu erlendra skulda,
viðskiptahalla, versnandi gjald-
eyrisstöðu og hættu á atvinnu-
leysi. Þess vegna er nú lífsnauð-
syn að unnt verði að skjóta mál-
um til þóðarinnar og það strax.
Ég tel að það beri að leita allra
leiða til að losa um sjálfhclduna
á þjóðþinginu.“
-óg
Við setningu flokksráðsfundarins í gær var flutt samfelld dagskrá um verkafólk í bókmenntum í tali,
söng og tónum. Ljósm. gel.
IDAG!
i