Þjóðviljinn - 19.02.1983, Page 4

Þjóðviljinn - 19.02.1983, Page 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 19.-20. febrúar 1983_ st jórnmál á sunnudegi Lúdvlk Jósepsson skrifar Varhugaverð vinnubrögð Það er mikið rætt um upplausn stjórn- málaflokkanna og ókyrrð á hinu pólitíska sviði. Vissulega er það rétt, að umbrot eru nú meiri og með öðrum hætti en jafnan áður á vettvangi íslenzkra stjórnmála. Sjálfstæðis- flokkurinn hefir verið klofinn í nokkur ár. Hluti flokksins er í ríkisstjórn, en aðrir flokksmenn í hatrammri stjórnarandstöðu. Og þegar betur er að gáð virðast ósættanleg öfl togast á um völd í flokknum og satt bezt að segja virðist flokkurinn ekki líklegur til stórræða. Alþýðuflokkurinn hrökk í sundur þó í stjórnarandstöðu væri og mun nú koma fram í tvennu lagi í komandi kosningum. Þáttur Vilmundar er býsna skrítinn. Fyrst berst hann fyrir varaformennsku í Alþýðu- flokknum og þá virðist eins og hann telji Alþýðuflokkinn góðan flokk. Þegar hann fellur í kosningunum snýst allt við og Al- þýðuflokkurinn breytist á einni nóttu í „kerfisflokk“ og óalandi sérhagsmuna- samtök. Síðan boðar Vilmundur sína patentlausn eins^ og oft áður. Leiðin er hans eigin Bandalagsflokkur, gegn öllum hinum flokkunum, gegn kerfinu og gegn þátttöku þingmanna í framkvæmda-valdinu. Vil- mundur vill kjósa forsætisráðherra beinni kosningu og síðan ráði forsætisráðherra öll- um ráðherrum, skipi bankastjóra og bank- aráð, ráði alla embættismenn og hafi með höndum allt framkvæmdavaldið. Alþingis- menn semji síðan lög og annist yfirheyrslur í þingnefndum. Vilmundur boðaði á sínum tíma „raunvaxtastefnu“ og tókst með henni að hækka vexti í landinu um meir en helm- ing. Hann ætlaði að kveða niður verðbólg- una með „raunvöxtum" en verðbólgan óx aldrei meir en eftir að þessi nýja stefna var tekin upp. Vilmundur boðaði líka „Nýjan Alþýð- uflokk á gömlum grunni". Allt fór það í vindinn og nú boðar hann Bandaiagsflokk- inn sinn. Framsóknarflokkurinn hefir ekki sloppið við ókyrrð stjórnmálaflokkanna. Hann missti Guðmund G. Þórarinsson fyrir borð og var hann þó vonarstjarna flokksins í Reykjavík. Eftir sat flokkurinn með Ólaf Jóhannesson sem hætti enn við að hætta. Og Páll Pétursson formaður þingflokks Framsóknarmanna er nú talinn óalandi þingmaður af stórum hluta flokksmanna sinna í Húnavatnssýslu. Alþýðubandalagið hefir heldur ekki sloppið algjörlega við þessa pólitísku ó- kyrrð. Það hefir látið draga sig inn í fáfengi- Ieg persónu-prófkjör með þeim afleiðing- um að flokkurinn stendur veikari en áður á ýmsum stöðum. Já, því verður ekki neitað að óvenju ókyrrð er í íslenzka flokkskerfinu og vissulega hefði verið freistandi að fjalla nokkuð nánar um það,hvað þar er raunveru- lega að gerast, - um það hvert stefnir í íslenzkum stjórnmálum. Það verður ekki gert í þessum greinar- stúf. Þess í stað ætla ég að víkja nokkuð að þremur stórmálum, sem ofarlega hafa verið á baugi að undanförnu. íhugun á þeim mál- um leiðir menn kannski eitthvað á sporið varðandi þróun okkar stjórnmála um þess- ar mundir. Kjördœmamálið Umræðan um kjördæmamálið hefir ekki orðið til þess að auka á bjartsýni um sam- starf og samheldni landsmanna. Með ofsakenndum og öfga-fullum áróðri hefir tekist að skipta þjóðinni í tvær fjand- samlegar fylkingar í þessu máli. Annars vegar er hrópað á fullan jöfnuð atkvæða um allt land og enga fjölgun þing- manna. Hins vegar standa aðrir og neita öllum breytingum. Þeir sem mest kvarta um skertan at- kvæðisrétt telja sig berjast fyrir jöfnun mannréttinda og rekja orðið flest sem aflaga hefir farið í þjóðfélaginu til rangs „atkvæðavægis" eins og það er kallað. Krafan um fullan jöfnuð atkvæða milli landshluta og enga fjölgun þingmanna, þýðir á mæltu máli, að Vestfjarðakjör- dæmi, sem nú er fámennasta kjördæmið, fái 2 þingmenn í stað 5-6 nú, en að Reykja- vík fái 25 þingmenn í stað 15 nú. Aróður þessara „réttlætismanna" er m.a. Á Vestfjörðum starfa um 55% allra vinnandi manna að frumvinnslu- greinum, þ.e. landbúnaði og sjávar- útvegi. í Reykjavík starfa hins veg- ar að þessum frumvinnslugreinum um 3.1%. Auðvitað vinna Reykvík- sá, að ekki sé hægt að stjórna efnahagsmál- um þjóðarinnar vegna þessa ranga atkvæða-vægis. Þeir segja að teknar séu rangar fjárfestinga-ákvarðanir vegna þessa misréttis og að gengið sé á hlut þéttbýlis- búa. Hér er með gífuryrðum alið á fjand- skap milli landshluta. Hér er verið að halda því fram að fjárfest hafi verið óeðlilega t.d. á Vestfjörðum á kostnað höfuðstaðarbúa og til ógagns fyrir þjóðarheildina. Til Vest- fjarða hafa þá líklega verið keypt of mörg fiskiskip og byggð of mörg frystihús. Á Vestfjörðum starfa um 55% allra vinn- andi manna að frumvinnslugreinum, þ.e. landbúnaði og sjávarútvegi. í Reykjavík starfa hins vegar að þessum frumvinnslu- greinum um 3.1%. Auðvitað vinna Reykvíkingar eigi að síður að þjóðhagslega nauðsynlegum störfum. En þessar tölur sýna fyrst og fremst hve gagnkvæmt sam- starf og samvinna er nauðsynleg á milli Vestfirðinga og Reykvíkinga. Sjósókn og fiskvinnsla Vestfirðinga er á vissan hátt undirstaða undir störfum Reykvíkinga og störf Reykvíkinga eru auðvitað nauðsynleg Vestfirðingum, þó að þau séu mest á sviði verzlunar, stjórnsýslu og æðri menntunar. Fjárfestingin í Reykja- vík á sviði verzlunar, opinberrar þjónustu og æðri menntunar, hefir ekki verið lítill. Hún hefir örugglega ekki skilað meiri hag- vexti, en fiskveiðar Vestfirðinga. Sú afstaða sem leiðtogar stjórnmála- flokkanna tóku í upphafi varðandi kjör- dæmamálið, var eðlileg og skynsamleg. Þeir sögðu: við teljum ekki rétt að raska núverandi kjördæma-mörkum og ekki rétt að fækka kjördæmakosnum þingmönnum fjarlægustu og smæstu kjördæmanna. Við teljum hins vegar rétt og sjálfsagt, að rétta nokkuð hlut þéttbýlissvæðanna með fleiri þingmönnum þeim til handa. Slík leiðrétting verður að eiga sér stað nú eins og alltaf áður, með einhverri fjölgun þing- manna, og með breyttum reglum varðandi skiptingu uppbótarþingsæta. Framsókn leggur til að fœkka kjördœma- kosnum þingmönnum úti á landi Þegar langt var komið vinnu formanna stjórnmálaflokkanna um lausn kjördæm- amálsins, gerist svo sá ótrúlegi atburður, að ingar eigi að síður að þjóðhagslega nauðsynlegum störfum. En þessar tölur sýna fyrst og fremst hve gagn- kvæmt samstarf og samvinna er nauðsynleg á milli Vestfirðinga og Reykvíkinga. formaður Framsóknarflokksins, Steingrím- ur Hermannsson, leggur til, að kjördæma- kosnum þingmönnum landsbyggðarkjör- dæmanna verði fækkað um einn í hverju kjördæmi og breytt í uppbótarþingsæti, til þess m.a. að Framsóknarflokkurinn geti fengið fleiri kjördæmakosna menn í Reykjavík og Reykjanesi. Allir kannast við þá staðreynd, að Framsóknarflokkurinn hefir til þessa haft hlutfallslega meira fylgi úti á landi en hér í þéttbýlinu suð- vestanlands. Hann hefir því ekki notið upp- bótarsæta en oftast fengið fleiri þingmenn en heildaratkvæðamagn hans sagði til um. Nú virðist Framsókn tilbúin að fórna cinum kjördæmakosnum þingmanni minni kjör- dæmanna til þess að auka möguleika sína hér syðra. Enn er ekki séð hver verða endalok kjör- dæmamálsins að þessu sinni, en eitt ættu allir, sem hugsa alvarlega um þróun íslenz- kra þjóðmála að hafa lært af umræðunni um málið að þessu sinni, að það er háskalegt að skipta þjóðinni upp í tvær fylkingar varð- andi rétt til fulltrúa á Alþingi. Þéttbýlið á sinn rétt. En það hefir ekki farið halloka í rekstri þjóðarbúsins og ekki orðið undir varðandi stjórnsýslu hins opinbera. Vísitölumálið Enn einu sinni er vísitölumálið orðið eitt af ofurkappsmálum í stjórnmála- átökunum. Nú reyna ýmsir menn að kenna vísitöl- unni um verðbólguna og um alla erfiðleika í efnahagsmálum. Hrópað er á nýjan vísitölugrundvöll og þó fyrst og fremst á nýja og skerta kaupgjaldsvísitölu. Nýr vísitölugrundvöllur mun litlu breyta þegar til lengri tíma er litið. í nýja grund- vellinum munar meir en áður urn verðlag á bílum og benzíni og um kostnað á skemmti- siglingum. Hins vegar munu verðbreyting- ar á matvörum og brýnustu nauðsynjum mæla minna en áður. Sem sagt, ef verð á Mercedes Benz og Volvo hækkar þá hækk- ar vísitalan verulega, en ef mjólk og kjöt hækkar þá munar lítið um það. Þessi grundvallarbreyting er ómerkileg og hana má hafa á ýmsan veg. Hitt sem nú er deilt um og öllu máli skiptir er það, hvort breyta á kaupgjaldsvísitölunni þannig, að ef ríkis- stjórn hækkar verð á nauðsynjavörum með hækkun á söluskatti og vörugjaldi eða toll- um, þá skuli ekki telja slíka verðlagshækk- un með í kaupgjaldsvísitölu. Eða ef Lands- virkjun hækkar rafmagn tvöfalt meir en sem nemur verðbólgu-aukningu, þá skuli ekki telja þá verðhækkun með við út- reikning kaupgjaldsvísitölu. Eins og stundum áður er Framsóknar- flokkurinn alveg óður í að koma fram þess- ari kauplækkunar-aðferð. Nú hefur hann fengið Gunnar Thoroddsen í lið með sér og vill nú leggja út í stríð við samtök launa- fólks. Út í þetta stíð á að leggja eftir að nýlega hefir verið látið kyrrt liggja þó að hclmingur vísitölubóta á laun hafi verið felldur niður. Hér er um háskaleg stjórnarafglöp að ræða. Engin ríkisstjórn mun leysa verðbólgu- vandann með stríðsaðgerðum gagnvart launafólki. Samstarfsleiðin ein getur dugað í þeim efnum. Þeir sem staðið hafa fyrir því að heimila gífurlegar verðhækkanir á nær öllum vörum og þjónustu í 3 mánuði, með 15% hækkun hér, 25% hækkun þar og jafnvel 35% ann- ars staðar, þeir verða að greiða fyrir þær verðhækkanir m.a. mcð hækkun kaupgj alds vísitölu. Álmálið Að síðustu langar mig svo til að víkja örfáum orðum að álmálinu. Fyrir nokkrum árum átu nokkrir aðal- fjármála-sérfræðingar landsins þá full- yrðingu upp hver eftir öðrum, að eina leið Islendinga til þess að auka hagvöxt í landinu og til þess að skjóta traustari stoð- um undir íslenzkt efnahagslíf, væri að virkja og virkja og selja orkuna stóriðju. „Stóriðja" var töfra-orðið. Nú tapar öll stóriðja ár eftir ár og meir en helmingur af öllum skuldum þjóðarbúsins við útlönd, er vegna stóriðju og orku-framkvæmda. Og nú efast enginn lengur um að álverið í Straumsvík, sem gleypir helminginn af allri raforku landsmanna, fær orkuna á smán- arverði og í rauninni með því að landsmenn greiði orkuverðið fyrir stóriðjuna. Við þessar aðstæður kemur álmálið upp. Sannað er af heimsþekktu og viður- kenndu endurskoðunarfirma, að Álverið í Straumsvík hefir svikið tekjur undan skatt- lagningu og haft af íslendingum mikið fé. Þegar þetta liggur fyrir, ókyrrist forystulið Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðið upp- hefur áróðursherferð gegn þeim ráðherra sem afhjúpuð hefir hið erlenda stórfyrir- tæki. Og þegar tilkynnt er að íslenzk yfir- völd hafi endurreiknað skatt fyrirtækisins í samræmi við álit hæstaréttarlögmanns og virðulegs fyrrverandi hæstaréttardómara, þá reka þingmenn Sjálfstæðisflokksins á Alþingi upp neyðaróp. Og þegar erlendi auðhringurinn neitar öllum samningum um sanngjarna leiðréttingu á orkuverði, þá bregst ekki aðeins Sjálfstæðisflokkurinn, heldur Framsóknarflokkurinn líka. Sá seki erlendi aðili segist geta lagt fram tillögu til umræðu í sínu erlenda auðfélagi um hugsanlegar minniháttar breytingar á orkuverði, en því aðeins, að Islendingar samþykki fyrst að hann megi stækka álverið og þar með skuli hann fá meira rafmagn á undirverði. Þetta vildu Framsóknarmenn strax samþykkja - heimila stækkun og meiri orkusölu, án þess að nokkuð fast lægi fyrir um raforkuverð. Hér er um ótrúlegt mál að ræða. íslend- ingar standa annars vegar í deilu við er- Iendan auðhring. Þeir hafa öll tromp á hendinni og erlend fordæmi til að fara eftir, - en samt siglir allt í strand. Upp kemur gamla undanhaldsstefnan - uppgjöfin fyrir hinum ríka útlendingi; þó að harkan sé næg gagnvart nauðstöddum láglaunamanni. Hér eru á ferðinni varhugaverð vinnu- brögð. Það er varhugavert að ætla að skipta þjóðinni í tvær andstæðar fylkingar í kjör- dæmamálinu. Það er varhugavert, að efna til stétta- stríðs út af nýrri árás á almenn launakjör. Og það er varhugavert að efna til inn- byrðis deilna þegar staðið er í hörðum átökum við erlendan auðhring.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.