Þjóðviljinn - 05.03.1983, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 05.03.1983, Qupperneq 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. mars 1983 PJODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfyfélag Þjóðviljans. Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir. I Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson. ritstjórnargrcin úr aimanahinu Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigriður H. Sigufbjörnsdóttír. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Efnahagsundrið ömurlega • Friedman, hagspekingur markaðshyggju þeirrar, sem íslenskt verslunarráð treystir, Reagan Bandaríkja- forseti og Pinochet einræðisherra í Chile eiga eitt sam- eiginlegt: þeir telja að markaðurinn hafi ávallt rétt fyrir sér. Efnahag Chile hefur undanfarin ár verið stjórnað af lærisveinum Friedmans, sem fyrir ári komst svo að orði, að Chile væri „efnahagslegt og pólitískt undur“. Það er líka haft fyrir satt, að menn Reagans hefðu litið svo á, að fordæmi Chile sýndi meðal annars, að sú efnahagsstefna sem Reagan lagði upp með 1981 mundi bera árangur. • Pá virtist svo í reynd sem Chile gæti orðið einskonar sýnisgluggi markaðshyggjunnar - að slepptum nokkr- um óþægilegum staðreyndum eins og þeim, að pólitískt frelsi hafði verið afnumið í landinu og mannréttindi fótum troðin. Lærisveinar Friedmans í vinnu hjá Pino- chet skáru niður ríkisútgjöld (nema til hersins), tóku upp strangt aðhald í peningamálum,hættu sem mest efnahagslegum umsvifum ríkisins, skáru niður inn- flutningstolla og ýttu undir erlendar fjárfestingar. Á árunum 1977-80 sýndist allt ganga sæmilega á yfirborð- inu - verðbólgan var að mestu kveðin niður og hagvöxt- ur var verulegur. Lánstraust Chile í bandarískum bönk- um var mikið. Bandarískir auðhringar áhugasamir um fjárfestingar. • En það var stutt gaman að Chile væri einskonar fyrirmynd frjálsra markaðskerfa. Chile hefur safnað erlendum skuldum sem eru, miðað við höfðatölu, meiri en hjá flestum ríkjum öðrum eða sautján miljarðar dollara - þær skuldir eru t.d. allmiklu hærri á manns- barn hvert en hinar frægu skuldir Pólverja. Gjaldþrot eru nú átta sinnum fleiri en 1976. Atvinnuleysið er gífurlegt - þriðji hver maður í landinu fær ekki vinnu. Og í fyrra dróst þjóðarframleiðslan saman um hvorki meira né minna en 14% - og var það mesti samdráttur í allri Rómönsku Ameríku. • Talsmenn markaðshyggjunnar, eins og til dæmis lá- varðurinn breski, sem fyrir skömmu var hér gestur Viðskiptaráðs, láta stundum að því liggja, að lýðræðið sé til trafala og spilli jákvæðum áhrifum „hinnar ósýni- legu handar“ markaðarins. Og verkalýðsfélögin trufli þau með „einokunarvaldi“ sínu svonefndu. Ekkert slíkt hefur truflað lærisveina Miltons Friedmans í Chile: Pólitískir flokkar eru þar bannaðir, verkalýðsfélögin bönnuð líka eða ómyndug gjörð, mannréttindi tekin úr sambandi. Og samt náðu sérfræðingar markaðsspek- innar ekki „glæsilegri“ árangri en þetta - þeir hafa meira að segja orðið að sætta sig við það, að stjórnin bryti gegn sinni eigin markaðstrú með því að ríkið hefur nýlega orðið að grípa til sinna afskipta til að komast hjá því að bankakerfið í landinu hryndi. • Eftir stendur tvennt. Annarsvegar: Verðbólgan minnkaði - og það er víst það eina sem telst jákvætt. Annað hefur gerst, og skiptir mestu fyrir það fólk sem lifir í landinu: Meirihluti almennings býr við allmiklu lakari kjör en áður, og hið mikla atvinnuleysi hefur steypt miklum fjölda manna í örbirgð og beinan skort. Á meðan hafa yfirstéttarklíkur, sem kenndar eru við mannætufiskinn piranha, notað hin gullnu mark- aðstækifæri til að sölsa undir sig gífurlegar eignir - auður og þau völd sem honum fylgja eru nú í höndum færri aðila en nokkru sinni fyrr í sögu Chile. Fróðleg lexía nú þegar líður að tíu ára afmæli valdræningja- stjórnar þeirrar sem steypti vinstristjórn Allendes. -áb. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Saeunn Óladóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. Lýsis- gjofin Þegar ég kom í Barnaskóla Austurbæjar fyrir röskum þrem áratugum síðan voru börnin prúð og horsk. Strákarnir höfðu vatnsgreidda bylgju í hárinu við ennisrótina, gengu gjarnan í brúnyrjóttum ullarpeysummeðtveimurdökk - bláum röndum yfir brjóstið og höfðu á fótunum gúmmískó sem gerðir voru úr slöngugúmmíi og notuðum bíldekkjum. Stelpurnar höfðu gjarnan slaufu í hárinu, gengu í rósóttum stofunni og síðan opnað varlega. Allir stóðu þá upp, teinréttir, og inn gengu tvær konur í hvítum sloppum. Hafði önnur handklæði á handleggnum og hélt á stórri flösku í hinni hendinni. Hin kon- an hélt á hvítri leirkönnu með tveimur fölgrænum röndum efst. Kanna þessi tók um það bil einn lítra að rúmmáli, og allir vissu hvað hún hafði að geyma: þorskalýsi. Þegar við höfðum sýnt lýsis- konunum virðingu okkar með því að standa teinrétt í stundarkori\ máttum við setjast. Síðan skyldu allir teygja úr hálsinum, horfa upp í loftið og opna munninn. Sú með könnuna gekk á röðina og hellti á munnana og þá reið á að hreyfa sig ekki því annars fór lýs- ið út um alla vanga og í fínu brún- yrjóttu ullarpeysuna og náðist þaðan aldrei aftur. Á eftir kom sú með handklæðið og þurrkaði, ef eitthvað hafði farið til spillis. Hér um hætti þvæla ofan í mig lýsinu heima. Ég held ég verði henni ævarandi þakklátur. Það var mér leikur einn að taka lýsið heima, blandað saman við ferska kræki- berjasaft. Og svo fékk ég barma- fullt glas af freyðandi blárri saft- inni á eftir. Það sem mestu máli skipti var þó ekki bragðið heldur hitt, að ég hafði fengið að halda sjálfsvirðingu minni. Jafnvel þótt það kostaði að ég fengi á mig orð fyrir kveifarskap. Ég held að lýsisgjöfin í Barna- skóla Austurbæjar hafi gefið mér æfilanga bólusetningu gegn allri mötun. Þessi hvíta leirkanna með fölgrænu röndunum hefur lifað í vitund minni alla tíð síðan sem tákn óhugnaðar og valdbeitingar gegn sjálfsvirðingu minni og persónulegufrumkvæði. Ofnæm- ið sem þessi kanna gaf mér gerði það að verkum að annað skóla- starf sem rekið var með svip- uðum hætti varð mér kvalræði. Að hlýða hópskipunum leikfim- ikennarans. Að læra utanbókar sígildar perlur bókmenntanna í stað þess að fá að skilja þær og skynja af eigin frumkvæði. Sjald- an hefur jafn fögru kvæði verið jafn illa misþyrmt og þegar við vorum tekin upp, hvert á fætur öðru og látin þylja utanbókar: Skein yfir landi sól á sumarvegi og silfurbláan Eyjafjallatind gull- rauðum loga glæsti seint af degi. Við austur gnæfir sú hin mikia mynd hátt yfir sveit og höfði björtu svalar... Mér fannst þetta kvæði samt fallegt og má það furðulegt heita að skólanum skyldi ekki takast að fá mig til að hata það eins og lýs- iskönnuna. Meðal annarra orða, hvernig skyldu þeir gefa lýsið í Austur- bæjarskólanum núna? kjólum og súkkulaðibrúnum háum sokkum sem bundnir voru upp með sokkaböndum. Á skólaganginum, þar sem jafnan lá í loftinu yndislegur ilm- ur af svita og rökum fötum, röðuðum við okkur upp við fat- asnagana og biðum eftirvænting- arfull eftir kennaranum fyrir hverja kennslustund. Við stóðum alltaf upp þegar gestir komu í kennslutíma og aldrei skutum við teygjuskotum eða skutlum í kennarann. í öðrum frímínútun- um var matmálstími, og þá tóku menn upp úr pússi sínu appelsín- flösku með korktappa í sem hafði að geyma glóðvolga mjólk og hveitibrauðssneið sem hafði fengið að velkjast innanum penn- astokkinn og lestrarbækurnar í skólatöskunni, innvafin í not- aðan vaxpappír. Sumir bjuggu svo vel að hafa líka með sér epli, en það var þó munaðarvara á þeim árum. Sá ísæti ilmur sem kom í skólastofuna af volgri mjólkinni og velktum brauðsneiðum blandaðist svita- lyktinni og þeim sérstæða keim sem enn eimdi eftir að frá lýsis- gjöfinni í tímanum áður. Það gerðist yfirleitt í byrjun annarrar kennslustundar að bankað var á hurðina á kennslu- var verið að ala upp hrausta æsku. Eitt verður þó að játast sem væntanlega verður ekki lagt þess- ari annars ágætu uppeldisstofnun til lasts: ekki tóku allir lýsisgjöf- inni meðjafn miklu jafnaðargeði. Okkur var sagt að það væri kveifarskapur að vilja ekki taka við lýsisskammtinum, auk þess sem það væri skylda. En ég var einn þeirra fáu sem kærði mig kollóttan um kveifaraskap og skyldu og sagði nei: frekar skyldi ég hætta í skólanum en láta hella ofan í mig þessum viðbjóði. Mér þótti sjálfum mér ntisboðið og bar þetta undir móður mína sem sýndi málinu skilning og talaði við skólastjórann. Ég fékk undanþágu frá lýsisgjöfinni gegn skriflegu loforði móður minnar um að hún myndi með einhverj- skrifar Ólafur Gíslason

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.