Þjóðviljinn - 05.03.1983, Síða 20

Þjóðviljinn - 05.03.1983, Síða 20
Garöar Guðmundsson Guðbergur Auðunsson Stefán Jónsson 20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. mars 1983 Skjaldar- glíma Ármanns 71. Skjaldarglíma Ármanns verður glímd í íþróttahúsi Ár- manns við Sigtún laugardaginn 5. mars 1983, kl. 15.00. Skjaldarglíman er elsta íþrótta- mót, sem háð er í Reykavík enda stofnað til hennar árið 1908 og hef- ur svo verið árlega síðan utan fimm ár kringum heimsstyrjöldina fyrri (1913, 1916 - 1919). Glímt er um skjöld, er Glímu- deild Ármanns lætur gera til heiðurs mesta glímumanni Reykja- víkur. Skjaldhafi verður sá, er vinnur glímuna hverju sinni. Að þessu sinni eru meðal kepp- enda Jón Unndórsson, KR, og Guðmundur Freyr Halldórsson, Ármanni, en þeir urðu vinninga- flestir í Bikarglímu glímusam- bandsins um fyrri helgi. Einnig má nefna Olaf Hauk Olafsson, KR, Árna Þór Bjarnason, KR, og þá Geir Gunnlaugsson og Karl H. Karlsson, báða úr Umf. Víkverja. Gera má ráð fyrir skemmtilegri keppni, eins og að jafnaði, þegar Skjaldarglíma Ármanns er glímd. Staðið fast á íslenskum rétti Framhald af 23. siöu. Staðreyndin er hins vegar sú, að hér var ekki um að ræða raun- verulega afgangsorku og hefur Landsvirkjun staðfest það í skýrslu um framkvæmdaþörf frá apríl 1982, þar sem sagt er að litið verði á „60% af þegar um- saminni afgangsorku sem for- gangsorkusölu í áætlunum um framkvæmdaþörf á næstu árum“. Aðalatriði þessa máls er, að það meðalorkuverð sem samið var um vegna stækkunar- innar er nú 6,5 mill/kWh en kostnaður fyrir Landvirkjun að afhenda þessa orku nemar allt að þrisvar sinnum hærri upphæð. Að lokum vill iðnaðarráðuneyt- ið taka fram, að niðurstöður mikil- vægra samninga, eins og þeirra sem hér um ræðir, eigi að vera almenn- ingi ljósar og að fráleit sé sú skoðun að af hálfu ráðuneytisins sé verið að efna til illdeilna innanlands, þótt staðið sé fast á rétti íslenska ríkisins um réttar skattgreiðslur. Ráðuneytið telur einmitt brýnt, að reyna með jákvæðum huga að læra af reynslunni og mörkuð sé stefna, sem sameinað geti íslend- inga um árangursríka samninga- gerð í ljósi hennar. (Frá iðnaðarráðuneytinu). Barið á erkióvininum: atvinnulausir bflasmiðir ráðast með sleggjum á Toyotabfl japanskan. Fjórði hver atvinnulaus í Detroir: Bílaborgin mikla er deyjandi borg Fræg höfuöborg bartdaríska bílaiðnaðarins, Detroit er nú nefnd „fyrstadauðastórborgin í Bandaríkjunum". Áður var borginni lýst með orðum eins og „kraftmikil“, „rík“ og fleira þessháttar. Nú er Detroit borg hnignunar og atvinnuleysis - fjórði hver vinnufær maður atvinnulaus. Sumir hafa enn von - þeir fá atvinnuleysisbætur og þeim er lofað að bráðum verði aftur hafist handa á vinnustað þeirra. Aðrir, einkum þeir sem eldri eru, gera sér ekki von um að fá vinnu framar. Chrysler, sem er enn verr sett en hinir bflarisarnir, Ford og General Motors, er t.d. að selja heilu vinnu staðina fyrir tíu dollara stykkið. Slík kaup eru gerð til að losna við fasteignaskatta og segja sína sögu af því, hvaða augum bílarisarnir líta eigin framtíð. Oddvitar borgarinnar neita því, að fólk svelti í Detroit. Hitt er svo vitað, að allskonar samtök og trúfélög eru önnum kafin við að sjóða súpur og gefa atvinnuleysing- jum og bjargarlausu fólki og koma upp náttbólum fyrir þá sem eiga hvergi höfði að halla. Hrun Ekki eru nema fá ár síðan Det- roit var auðug borg, laun voru þar nokkuð yfir bandarískum meðal- launum - og bflarisarnir þrír fram- leiddu um tíu miljónir bifreiða á ári. Fyrsta skellinn fékk borgin í olíukreppuni 1973. Snarlega minnk aði þá eftirspum eftir hinum stóm og eyðslufreku bflum sem Banda- ríkjamenn framleiddu. Stóru bfla framleiðendumir stóðu frammi fyrir því verkefni, að skipta yfir á framleiðslu smærri bfla og spar- neytnari. Ýmsar tilraunir vom gerðar í þá átt, en þær voru hikandi og í stórum dráttum var haldið áfram að veðja á stóra bfla. Þetta hefur orðið bandarískum bfla- iðnaði dýrkeypt: evrópskir og þó einkum japanskir bflaframleiðend- ur lögðu undir sig æ stærri hluta hins bandaríska markaðar. Að fjór um árum liðnum hafði bandarísk bflaframleiðsla dregist saman um helming og í Detroit og nágrenni misstu 300 þúsundir manna vinnuna. Atvinnuleysinu fylgir hefðbund- in atburðarrás: betur stæðir borg- arar flytja á brott, skatttekjur borgarinnar stórlækka, miðborg- inni hnignar og hún verður miðstöð glæpa: nú er Detroit sú borg lands- ins þar sem flest morð eru framin. Ráðamenn borgarinnar mæna til Reagan landsföður í Washington um hjálp, en hann lætur sér fátt um finnast og segir mönnum að bíða eftir því að efnahagslífið rétti við. (Byggt á Stern). Rokk- hátíð á Broadway í kvöld verður haldin ein heljar mikil Rokkhátíð á Broadway, þar sem fram koma flestir af þeim söngvurum, sem gerðu garðinn frægan meðan rokktónlistin var og hét fyrir um það bil 20 árum síðan. Þarna koma fram með Hljóm- sveit Björgvins Halldórssonar: Harald G. Haralds, Guðbergur Auðunsson, Þorsteinn Eggertsson, Astrid Jenssen, Berti Möller, Anna Vilhjálms, Mjöll Hólm, Sig- urdór Sigurdórsson, Garðar Guð- mundsson, Stefán Jónsson, Einar Júlíusson, Sigurður Johnny, Sæmi og Didda rokka og kynnir Þorgeir stvaldsson. Skipuð nefnd til að efla snjóflóðavamir Ríkisstjórnin hefur samþykkt til- lögu Svavars Gestssonar félagsmál- aráðherra um snjóflóðavarnir, en tillaga Svavars gerir ráð fyrir að stofnuð verði nefnd til að hafa for- ystu um að efla varnir gegn snjófl- óðum í landinu. Hlutverk nefndar- innar verði að samræma störf opin- berra aðila í þeim tilgangi að koma, svo sem unnt er, í veg fyrir tjón og slys af völdum snjóflóða og skriðu- falla. Nefndina skipi fulltrúar eftirtal- inna aðila: Almannavarna ríkisins, Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, Skipulags ríkisins, Viðlagatrygg- ingar íslands, Veðurstofu Islands, Raunvísindastofnunar Háskólans, Vegagerðar ríkisins, Rannsóknar- stofnunar byggingariðnaðarins. Nefndinni verði falið að leita samráðs við sveitarfélög og aðra aðila, sem hagsmuna ciga að gæta eða hlutverki gegna í þessu efni. Verði nefndinni ætlað að hafa for- ystu um framkvæmdir á þeim svið- um. Gert er ráð fyrir að í byrjun verði fyrst og fremst um skipulags- og undirbúningsstörf að ræða á vegum ncfndarínnar. Verði nefnd- inni falið að gera heildaráætlun um aðgerðir í þessu efni með til- lögum um tímamörk til fram- kvæmda og fjármögnun. Nefndin skili fyrstu yfirlitstillögum fyrir septemberlok 1983. Kvefið þjakaði Reykvíkinga Kvef, kverkabólga og lungna- kvef herjuðu illilega á borgarbúá fýrsta mánuð þessa árs, en þá kenndu 796 borgarbúar sér þessa lasleika samkvæmt skýrslum 18 lækna í Reykjavík. Iðrakvef og niðurgangur herj- aði á 146 Reykvíkinga og 97 voru með hettusótt.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.