Þjóðviljinn - 05.03.1983, Síða 32
DJOÐVIUINN
Helgin 5. - 6. mars 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess
tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum
símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir
81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma
81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt
öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Dýpkunarskipið Grettir sökk í gær
V ar Grettir
ótryggður?
Dýpkunarskipið Grettir sökk um miðjan dag í gær um 25 mílur
frá Garðskaga. Var hann þá á hvolfi og varðskipið Ægir með hann
í togi á leið til lands.
Að sögn Hilmars Harðarsonar
hjá áhaldahúsi Vitamálastjórnar
voru atvik málsins þau að varð-
skipið Ægir fór með Gretti í togi frá
Hafnarfirði um kl. 4 í fyrrinótt, og
var ferðinni heitið til Húsavíkur
þar sem Grettir átti að fara í dýpk-
unarverk.
Var Grettir með dýpkunar-
pramma í eftirdragi.
að pramminn hafði slitnað aftur úr
Gretti en vonskuveður var er þetta
gerðist. Þegar var hafin leit að
prammanumengekkillaí myrkr-
inu. Skyndilega varð þess þá vart
að Grettir var farinn að síga að aft-
an. Var reynt að finna hvað ylli
þessu og stöðva leka, en það tókst
ekki. Lauk þeim tilraunum þegar
Grettir fór á hvolf.
Gránufjelagið leggur upp í gönguferð niður Laugaveg, ógnvænlegt á að líta. - Ljósm. eik.
Um nóttina urðu menn varir við
Staðfestir fyrri upplýsingar iðnaðarráðherra
Villandi samanburður
Af prammanum er það að segja
að önnur franska þyrlan fékk að
sýna listir sínar við leit að honum
og fann hann í birtingu á reki
skammt frá þeim stað þar sem Ægir
og Grettir á hvolfi voru.
Varðskipið lagði af stað til lands
með Gretti í eftirdragi, þrátt fyrir
vonsku veður. En um kl. 3 í dag
sökk Grettir hér úti í flóanum.
segir ífréttatilkynningu Iðnaðarráðuneytisins um
yfirlýsingu Jóhannesar, Steingríms og Ingólfs
Alusuisse hefur í tvö ár skákað í skjóli þess, að þeir komust hjá að
fá endurskoðunarrétt um ákvæði aðalsamningsins þegar samið var
við þá að nýju. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu, þar sem svarað er greinargerð þeirra Jóhannesar
Nordal, Steingríms Hermannssonar og Ingólfs Jónssonar varðandi
endurskoðun samninganna við Alusuisse árið 1975.
í greinargerð iðnaðarráðu-
neytisins er með mjög skýrum
hætti sýnt fram á að afraksturinn af
þriggja vikna starfi á vegum Jó-
hannesar Nordal er harla rýr. Hin
„ítarlega greinargerð“, sem
Steingrímur upplýsti Þjóðviljann
um að veríð væri að vinna að á
vegum Jóhannesar Nordal, virðist
ekki skila erindi sem erfiði.
í fréttatilkynningu iðnaðarráðu-
neytisins segir m.a. „Sérstaka at-
hygli vekur umfjöllun saminga-
mannanna þriggja varðandi verð-
lagningu á raforku til þeirrar 20
MW stækkunar á ísal, sem samið
var um 1975 og komst í gagnið
1980. í greinargerð er sagt, að
samið hafi verið um sérstakt for-
gangsorkuverð upp á 12 mill. Þessa
niðurstöðu fá samningamennirnir
með því að telja 60% af umsaminni
orku sem afgangsorku og verð-
leggja þann hluta á 3 mill/kWh.
Staðreyndin er hinsvegar sú, að hér
var ékki um að ræða raunverulega
afgangsorku og hefur Lands-
virkjun staðfest það í skýrslu um
framkvæmdaþörf frá apríl 1982,
þar sem sagt er að litið verði á
„60% af þegar umsaminni afgangs-
orku sem forgangsorkusölu í
áætlunum um framkvæmdaþörf á
næstu árum“. Aðalatriði þessa
máls er, að það meðalorkuverð
sem samið var um vegna stækkun-
arinnar er nú 6.5 mill/kWh en
kostnaður fyrir Landsvirkjun að
afhenda þessa orku nemur allt að
þrisvar sinnum hærri upphæð.“
eng.
Sjá 3
Er Grettir ótryggður?
Samkvæmt þeim fréttum sem
Þjóðviljinn hefur aflað sér mun
Grettir vera ótryggður, eða
tryggður fyrir mjög lága upphæð.
Þannig að ljóst er að tjón ríkisins er
mjög mikið.
„Eg vil ekki tjá mig um það á
þessu stigi málsins" sagði Aðal-
steinn Júlíusson, vitamálastjóri, er
Þjv. bar þetta undir hann. Kvað
hann þetta mál vera í athugun.
29 verkefnislausir
Að sögn Hilmars hafa 29 menn
atvinnu sína í kringum starfsemi
Grettis, og eru ekki önnur verkefni
í sjónmáli fyrir þennan hóp.
-eng.
Úr fjölmiðlakönnun SÍA:
ekki vinsælast
Lokaflutningurinn af Grettisgötunni fer fram á mánudagskvöld og í vik-
unni mun því öll starfsemi skrifstofu Alþýðubandalagsins verða flutt í
flokksmiðstöðina við Hverfisgötu. - Ljósm. eik.
Herkvöt til
félagsmanna
Dallas
Vinsælasta sjónvarpsefnið vik-
una 31. okt. til 6. nóv. sl. var hreint
ekki DALLAS, eins og margir
hefðu þó viljað meina. Nei, það var
sko LOÐUR.
Þetta kemur m.a. fram í fjöl-
miðlakönnun, sem Hagvangur
gerði fyrir Samband ísl. auglýs-
ingastofa fyrir og um áramótin síð-
ustu. Könnun þessi var kynnt fyrir
fjölmiðlafólki í gær, en SÍA sclur
hana á krónur 25. þúsund, og því er
vart hægt að segja að hún sé opin
almenningi.
Hvað um það, - sitthvað fróðlegt
kom fram á fundinum. Svo sem
það að 74,1 prósent þeirra, sem í
könnuninni lentu og svöruðu,
horfðu á Löður þessa tilteknu viku.
Næst í röðinni að vinsældum
reyndust vera sunnudagsfréttirnar,
en á þær horfðu 71 prósent. Næst
komu svo Tommi og Jenni með
70,83 prósent og Dailas lenti í 4.
sæti að vinsældum með 69 prósent.
Samkvæmt könnun þessari virð-
ast um 15 prósent heimila í landinu
búa að eigin myndsegulbandstæki.
Um 30 prósent heimila á höfuð-
borgarsvæði og 23,4 % heim-
ila í kaupstöðum hafa aðgang að
slíku tæki, annað hvort eigin eða
gegnum kapalkerfi.
Á virkum dögum reyndist dag-
blaðalestur þessi: Morgunbl.
69,8%, DV 64,2%,Tíminn 29%,
Þjóðv. 16,3% og Alþýðubl. 3,7 %.
Mest var lesin helgarútgáfa Mbl. á
höfuðborgarsvæðinu - 89,6%, en
minnst Alþýðubl. í dreifbýli, eða
0,3%.
Lestur eftir kyni reyndist þessi
(hér er miðaö við alla heildina):
Karlar Konur
Morgunbl...................70,2% 68,9%
DV.........j.......66,6% 61,8%
Tíminn.....................29,0% 28,5%
Þjóðviljinn................15,9% 16,6%
Þetta verður því miður að nægja,
en eins og áður sagði má fá allar
niðurstöður fyrir kr. 25 þúsund hjá
Sambandi ísl. auglýsingastofa. ast
„Við viljum hvetja sem allra
flesta flokksmenn og aðra
stuðningsmenn að koma hér við á
Grettisgötunni á mánudagskvöldið
kemur uppúr 20.30 og hjálpa okk-
ur við að flytja í nýju flokks-
miðstöðina við Hverfisgötu“ sagði
Kristján Valdimarsson starfs-
maður ABR í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Á mánudagskvöld verður skrif-
stofan á Grettisgötu 3 rýmd og all-
ur skrifstofubúnaður flokksins
fluttur í nýju flokksmiðstöðina við
Hverfisgötu.
Að sögn Kristjáns hafa fram-
kvæmdir við innréttingu flokks-
miðstöðvarinnar gengið vonum
framar og reikna menn með.því að
kosningastarfið verði komið í full-
an gang á nýjum vinnustað strax í
næstu viku.
12-20% hækkanir
frá Verðlagsráði
Verðlagsráð hefur á fundi sínum
samþykkt nokkrar verðhækkanir
og tóku þær gildi á fimmtudag. Þær
stafa af almennri verðlagsþróun í
landinu, að sögn verðlagsstjóra,
Georgs Ólafssonar. Taxtar leigu-
bifreiða hafa hækkað um 20%,
taxtar vinnuvéla um 17,6%, taxtar
vöruflutningaaðila út um land 19%
og innanlandsfargjöld flugfélag-
anna hækkuðu um 20%. Þá var
samþykkt 15% hækkun á steypu og
11,4% hækkun á sandi og möl.
Verðlagsstjóri kvaðst búast við
að lögbannskrafa Verðlagsstofn-
unar gagnvart Reykjavíkurborg
vegna ólöglegrar hækkunar SVR á
fargjöldum yrði afhent borgarfóg-
eta fljótlega eftir helgina. Gísli ís-
leifsson, lögfræðingur Verðlags-
stofnunar, vinnur nú að undirbún-
ingi málsins. -v.