Þjóðviljinn - 09.04.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. aprfl 1983
Tveggja timafjörugur vinnustaðafundur
Arnór Pétursson og Ólafur
Ragnar Grímsson komu í vinnu-
staðaheimsókn hjá Vífllfelli á Ar-
túnshöfða í gær og fluttu þar
ræður, dreifðu kosningabæk-
lingum og svöruðu fyrirspurnum
starfsmanna verksmiðjunnar.
Varð úr hinn fjörugasti fundur
sem stóð í um tvo tíma.
Margir frambjóðenda Alþýðu-
bandalagsins hafa sótt heim vinn-
ustaði stóra og smáa að undan-
förnu til að kynna Alþýðubanda-
lagið fyrir kosn ingarnar.
Alþýðubandalagið
eini kosturinn
Talsmenn Alþýðubandalags-
ins leggja áherslu á það að AI-
þýðubandalagið sé eini kosturinn
gegn ofurvaldi Sjálfstæðisflokks-
ins í þjóðfélaginu og vara við því
að pólitísk samtök atvinnurek-
enda styrkist í þessum kosn-
ingum.
I gær heimsótti Ólafur Ragnar
aðra vinnustaði Ifuk Vífilfells.
Þannig heimsótti hann BM Vallá,
í gærmorgun Grænmetisverslun-
ina og Vita- og hafnarmálaskrif-
stofurnar síðla dags.
-óg
Arnór Pétursson 9. maður á G-listanum í Reykjavík er hér að dreifa
kosningaplöggum áður en hann flutti ræðu og svaraði fyrirspurnum á
vinnustaðafundinum í Vífilfelli í gær.
Ólafur Ragnar að útskýra samstarfsgrundvöll Alþýðubandalagsins með starfsmönnum Vífdfells í gær.
Tilkynning frá
Byggðasjóði.
í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum er gert ráð
fyrir útvegun fjármagns til lánveitinga til fyrir-
tækja, sem þurfa að bæta aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustað.
Samkomulag hefir verið gert milli Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins og félagsmála-
ráðuneytisins um að lán þessi verði veitt úr
Byggðasjóði af sérstöklu fé, sem aflað verð-
ur í þessu skyni.
Umsóknir um lán þessi skulu því sendar
Byggðasjóði, Rauðarárstíg 25, Reykjavík á
umsóknareyðublöðum Byggðasjóðs, þar
sem sérstaklega sé tekið fram, að um sé að
ræða lán vegna bætts aðbúnaðar, hollustu-
hátta og öryggis á vinnustað.
Umsóknarfrestur er til 20. maí n.k. Endur-
nýja þarf umsóknir, er áður hafa verið sendar
en ekki hlotið afgreiðslu.
ÚTBOÐ fp
Tilboö óskast í að leggja „stofnlögn í Ártúnsholt"
fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.
Utboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3 Reykjavík, gegn 1500 kr. skilatryggingu. Tilboöin
veröa opnuö á sama staö þriðjudaginn 3. maí 1983 kl.
11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
1 ÚTBOÐ
Tilboð óskast í gatnagerð, lagningu holræsa, vatns
og hitaveitulagna í Selás 6. áfanga fyrir gatnamála-
stjórann í Reykjavík og Hitaveitu Reykjavíkur.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3 Reykjavík, gegn 3 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin
verða opnuö á sama stað þriðjudaginn 26. apri'l 1983
kl. 14 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
skráargatið
Skráargatið
hefur fengið senda fréttatilkynn-
ingu frá Speglinum og hljóðar hún
svo: „Félag áhugamanna um alvar-
leg málefni hefur sent Jóni Baldvin
Hannibalssyni áskoranda einarð-
lega orðaða áskorun um að hann
mæti á miðilsfundi í Austurbæjar-
bíói á kostnað Spegilsins laugar-
daginn 23. apríl kl. 20.30 þar sem
reynt verður að særa fram anda
frumkvöðla sósíaldemokratismans
og feðra viðreisnarinnar til skrafs
og ráðagerða um myndun nýrrar
viðreisnarstjórnar. “
✓
/
næstu viku byrjar kosningasjón-
varpið á fullu og bíða margir eftir-
væntingarfullir eftir að sjá flokka-
kynninguna sem flokkarnir sjálfir
hafa veg og vanda af. Sjálfstæðis-
flokkurinn er eini flokkurinn sem
notfærir sér ekki aðstoð sjónvarps-
ins við gerð síns þáttar. Hann er
algerlega búinn til úti í bæ á vegum
Saga-film og stjórnar Baldur Her-
mannsson fyrirtækinu. Er mikið
við haft og ’ logið um allt land-til að
kvikmynda. M.a. var farið í sérflug
til Boiungarvíkur til að sýna fyrir-
myndarríki kapítalismans undir
stjórn Einars gamla Guðfinns-
sonar.
Reyndar
er einna mest í húfi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn á Vestfjörðum því
að þar er flokkurinn klofinn í tvær
andstæðar fylkingar ogm.a. hangir
þar þingmannsframtíð sonarsonar
Einars gamla, Einars Guðfinns-
sonar yngri, á spýtunni. Sigurlaugu
Bjarnadóttur á T-listanum hefur
borist liðsauki að sunnan sem ekki
mun vera ónýtur. Það er Sigurður
Bjarnason frá Vigur, bróðir henn-
ar, fyrrv. þingmaður og ritstjóri
Morgunblaðsins með meiru. Hann
hefur að undanförnu sést á ferð um
Vestfirði eins og grár köttur að ag-
itera fyrir systur sinni.
Hafnarbíó
verður nú að öllum líkindum rifið
einhvern næstu daga og verða þá
þrjú leikhús á götunni eins og fram
hefur komið. Töluverður skriður
Jón Baldvin: Tekur hann áskorun-
inni?
Sigurður frá Vigur: Til liðs við
systur
er nú kominn á það að fá gamla
Sjálfstæðishúsið (seinna Sigtún)
við Austurvöll til afnota fyrir þessi
leikhús enda liggur það alveg beint
við. Þar er ágæt aðstaða og gamall,
fallegur salur sem gamlar leiklist-
arminningar eru tengdar við. Þar
voru t.d. í gamla daga færðar upp
frægar revíur (Bláa stjarnan o.fl.).
Póstur og sími á húsið og hefur þrá-
ast við að ljá það til þessara afnota
enda þótt vel mætti vera þar mötu-
neyti á daginn áfram. En nú er sem
ságt að rofa til.
Tíminn
segir í gær frá skoðanakönnun um
fylgi stjórnmálaflokkanna á Litla-
Hrauni, bæði meðal fanga og fang-
avarða. Bandalag jafnaðarmanna
og Alþýðubandalagið eiga mest
fylgið meðal fanga en Sjálfstæðis-
flokkurinn meðal fangavarða. Síð-
an bætir Tíminn því við að á Litla-
Hrauni eigi Vilmundur og Svavar
fylgi sem ekki hleypur burt. Þetta
er nú reyndar heldur ósmekkleg at-
hugasemd. í skoðanakönnuninni
fékk D-listi 22 atkvæði (31%), C-
listi 19 atkvæði (27%), G-listi 15
atkvæði (21%), B-listi 6 atkvæði
(8%), A-listi 4 atkvæði (6%), V-
listi 2 atkvæði (3%) og Fylkingin 1
atkvæði (1,5%).
Eins
og fram kom í Þjóðviljanum í gær
var ljósmyndari Þjóðviljans mætt-
ur á „stórfund“ Jóns Baldvins
Hannibalssonar í Sigtúni á fimmtu-
dagskvöld. Þegar hann ætlaði að
fara að taka mynd af fundarsókn
hljóp Bryndís Schram og bannaði
allar myndatökur á þessum al-
menna og opna fundi og rak síðan
ljósmyndarann út með offorsi. Það
hlálega var að blaðamaður Al-
þýðublaðsins hafði skömmu áður
beðið ljósmyndarann að taka
myndir fyrir sig pnda hefur Al-
þýðublaðið ekki á að skipa Ijós-
myndara. Verður blaðið því líklega
af öllum myndum um þennan eftir-
minnilega kosningafund og verður
að láta sér nægja skriflega frásögn.
Stjörnumessa
Dagblaðsins og Vísis var haldin
með glans og glimmer á Broadway
á fimmtudagskvöld og bar það
m.a. til tíðinda að ein af aðalstjörn-
unum, Bubbi Morthens sem flest
atkvæði fékk sem tónlistarmaður
og textahöfundur ársins, mætti alls
ekki. Á poppsíðu Þjóðviljans í dag
greinir Bubþi frá ástæðunum fyrir
því að hann kom ekki til þessarar
uppsköfnu hátíðar. Stuðmenn
fengu mörg verðlaun á hátíðinni og
gerðu ýmsar athugasemdir sem
forráðamönnum keppninnar féll
ekki meira en svo vel. Valgeir
Stuðmaður sagði t.d. er hann
handlék álstyttuna sem var
verðlaunagripur „Hún er billeg
þessi“ en engum stökk bros. Egill
Ólafsson sagði líka að það væri alls
ekki rétt að Ragnar Halldórsson
forstjóri álversins væri sköllóttur.
Hann væri með álskalla.