Þjóðviljinn - 09.04.1983, Qupperneq 5
Helgin 9.-10. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Ræningja-
drottningin
indverska
gaf sig fram
Indverska ræningjadrottningin
Phoolan Devi („Blómadrottning-
in“) hefur lagt niður vopn og gefið
sig t'ram við yfirvöld ásamt ræn:
ingjaflokki sínum í fylkinu Bhind. I
þrjú ár hafði mikið vopnað lið ver-
ið á hælum Blómadrottningarinn-
ar, sem í augum margra indverskra
fátæklinga var einskonar Hrói
höttur, hrollvekja þeim ríku og
hjálparhella fátækra.
Phoolan Devi hefur átt herfilega
ævi. Hún var gift ellefu ára tví-
tugum manni, sem barði hana, og
strauk hún að heiman. Fjölskyldan
vildi skila henni aftur til mannsins,
og enn flúði hún - en lögreglumenn
náðu henni og notuðu tækifærið til
að nauðga henni. Það var ekki í
Þúsundir manna komu til að sjá Phoolan Devi gefa sig fram við yfirvöldin.
síðasta skipti sem stúlkan sætti
slíkri meðferð. Einhverju sinni
nauðguðu bófar nokkrir Phoolan
Devi á torginu í þorpi einu - löngu
síðar heimsótti hún þorp þetta og
tók tuttugu manns af lífi í hefndar-
skyni.
Afbrotalisti ræningjadrottning-
arinnar er mjög langur orðinn. En
með því að gefa sig fram af fúsum
vilja getur hún átt von á fangelsis-
dómi sem í reynd verður ekki nema
tíu ár.
Kvikmyndaframleiðendur ind-
verskir ætla að nota tækifærið og
gera kvikmynd um líf ræningja-
drottningarinnar. Hún hefurheitið
því, að fari þeir rangt með, þá muni
engar rimlar halda henni inni - hún
rnuni strjúka og hefna sín.
Þadermargt
semmá
^tast!
I útibúi okkar aö Suöurlandsbraut 30 bjóöum við öllum
viðskiptavinum okkar upp á margar geröir eldtraustra
geymsluhólfa gegn vægu gjaldi.
Hvort sem um er aö ræöa verömæta skartgripi, veröbréf,
afsöl, fágæta bók, persónulegt bréf eöa annaö sem er bér mikils
viröi og má ekki glatast, þá er geymsluhólfið örugg
og ódýr lausn.
Þú þarft aöeins aö sækja um hólf viö þitt hæfi, útfylla
tilheyrandi pappíra og þú hefur eignast trausta hirslu
sem enginn hefur aðgang að, - nema þú.
Kynntu þér þessa þjónustu
hún er einmitt fyrir þig
Munið næturhóifín
þau eru nauðsynleg öryggisþjónusta líka
Alþýðubankinn hf.
Laugavegi 3t~sími 28700 — Útibú Suðurlandsbraut 30 - sími 82911
rtt
CTX1200
VHF bátastöð. Vérð til
báta kr. 4.814. 25 wött,
12 rásir.
Polaris 7100
Tölvuleitarinn meö
stefnuvitanum. Verö til
skipa kr. 18.800.
Gengj 7/2 '83.
Wallas 1200
Eldavél m/miðstöö. Verð
til báta kr. 9.420. Eyösla
aðeins 0.15 I per klst.
Sílva
Áttavitar í úrvali fyrir
báta og til fjallgöngu.
Verö frá kr. 747.
„HRESSINGARDVÖL
Ferðaskrífstofa
Kjartans
He/gasonar
Gnoðarvogur 44 Reykjavik
Simi86255.
m
A Grand hótel Varna er hægt að tvinna saman orlof og
„hressingardvöl". . .
Þar eru heitar laugar frá náttúrunnar hendi, en auk þess fyrsta
flokks heilbrigðisþjónusta, með nýtisku tækjum og ágætis
læknum.
Alls konar nudd — nálastungumeðferð — Gerauital meðferð
- o. fl.
Nánari upplýsingar i skrifstofu okkar.
OpiO frá kl. 8—5 alla virka
daga og 8—12 alla laugar-
daga.
Símsvari alla aOra tíma.
BENCO
Boiholti 4.
S. 91-21945 og 84077.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fósturheimili
óskast á stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir 10
ára gamlan dreng, talsvert heyrnarskertan.
Nánari upplýsingar veittar á Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar í síma 74544.