Þjóðviljinn - 10.12.1983, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 10.-11. desember 1983
Helgin 10.-11. desember 1983 WÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Myndir í líkingu
við þessa eru ríkjandi
í East Village gallcríum.
Þóttskorturá efnislegum
gæðum hafi löngum mark-
að þetta hverfi þá á það
sérmerkilega sögu,
tengda bókmenntum, list-
um og stjórnmálum.
Þetta er Hverfið til að búa í fyrir unga
myndlistarmenn íþessari borg. Undanfarin
ár hafa þeir flutt inn í hverfið á flótta undan
hárri húsaleigu annars staðar á Manhattan.
Þetta hverfi er neðarlega á eyjunni og
markast af Hudson ánni að austan, 2. götu
að vestan, Houston stræti að sunnan og
fjórtánda stræti að norðan. Sem sagt sex
götur langsum og fimmtán stræti þversum.
Þeim megin sem snýr að Hudson ánni bera
aðalgöturnar nöfn bókstafa... A, B, Cog
D. Ekkert hverfi nema Harlem er jafn fá-
tæklegt og þetta stafrófssvæði. Þar er al -
geng sjón að sjá heilu íbúðarhúsin sem allar
rúður hafa verið brotnar í. Þarna er ofbeldi
daglegt brauð og yfirleitt allt í rusli. Þetta
ástand er ekki nýtilkomið. í gegnum tíðina
hefur þetta svæði og yfirleitt allt það sem
nefnist Lower East Side verið innflytjenda-
hverfi. Nú virðast spænskumælandi ímeiri-
hluta þarna. Þótt skortur á efnislegum gæð-
um hafi löngum markað þetta hverfi, þá á
það sér merkilega sögu tengda bók-
menntum, listum og stjórnmálum. Um göt-
urnaríþessu hverfi hafa konureinsog
Emma Goldman stormað. Þarna hafa ljóð-
skáld jafn ólík og Ginsberg og Auden skrif-
að. Og í stuttu máli þá er listi yfir fyrrver-
andi íbúa eins og úrtak úr „who is who“ í
Bandarískum listaheimi.
C.A.S.H.-galleríið
Og nú er þetta hverfi, í eitt skiptið enn,
griðastaður fyrir félitla listamenn. Þó er svo
í þetta skiptið að í kjölfar listafólksins hafa
komið gallerí, myndlistar-barir og ýmislegt
nýtt. Um þessar mundir eru tuttugu sýning-
arstaðir í East Viilage og bera margir þeirra
nöfn sem sæmt gætu dularfyllstu pönk-
hljómsveitum. Egfór í gær ogskoðaði
nokkrar sýningar sem nú eru uppi í þessum
galleríum. C.A.S.H.-galleríiðerstaðsett
næst siðmenningunni og fjærst Hudson.
Húsnæðið sem það er í gæti vel hafa verið
grænmetisverlsun eða fatahreinsun áður.
Flest þessara nýju galleríaeru lítil. Svo lítil,
að það þarf ekki nema svo sem þrjá áhorf-
endur á staðinn til að hægt sé að fara að nota
orð eins og mannfjöldi og fjölmenni til að
lýsa ástandinu innivið. Þetta er samsýning
og verkin Ijósmynd, teikning og nokkur
málverk. Teikningin er svolíið sjarmer-
andi, - myndefnið einn hægindastóll sem er
teiknaður með krít á vegginn. Þótt mér sé
ekki ljóst hvernig maður selur teikningu á
hvítum gallerívegg þá eru verkin til sölu og
þetta gallerí, eins og flest þessara nýju gall-
ería, rekiðíhagnaðarskyni. Efpunktarnir
eru teknir úr nafni þessa gallerís þýðir orðið
lausafé.
„Alþjóðlegt með minnismerki“
Næsta galleríi heitir „International with
monument“ eða „alþjóðlegt með minnis-
merki“. Stærðin á því er svipuð og var á
SÚM-salnum. Þarna eru nú verk eftir tvo
myndlistarmenn. A. Masulloermeðverk
„Underdog“ nefnist sýningin sem núna er í East 7th Street gallcríinu.
AUSTURÞORP
Gata Markúsar postula er Banka-
stræti þeirra í East Village. Stund-
um, til dæmis á sunnudagseftirmið-
dögum, minnir þessi litla gata mig á
leikhús. Eins og að vera baksviðs
og leikritið er eitthvert leikverk sem
krefst skrautlegra búninga. Kann-
ski ekki Dýrin í Hálsaskógi en
a.m.k. Kardimommubærinn. í
þessum Kardimommubæ er Soffía
frænka sveitarleg kona frá Úkraínu
sem hefur fyrir löngu gefist upp á að
siða ræningjana og lætur sem St.
Mark’s Place sé lítil þorpsgata í
Úkraínu. Kamelía spilar á hljóðgerf-
il í pönkbandi. Ljónið selur kókaín á
einhverju götuhorninu og ræningj-
arnir ganga um með hljómtæki á
stærð við ferðatöskur og sjá hverf-
inu, nauðugu viljugu, fyrir ókeypis
tónlist.
Grace Mansion galleríið
á eitt sameiginlegt
með hinum opinbera bústað
borgarstjórans I New York
borg: nafnið.
►
Haust-
sýningar
í New
York
I
Svala
Sigurleifs-
dóttir
skrifar
frá New York
sem öll byggj ast á einhvern hátt á bókum.
Dæmi um eitt verk: 25x40 sm flötur með
grófgerðum ramma, gæti verið kassalok,
sem á eru límdar fjórar blaðsíður úr bók. Á
þessum síðum eru ráðleggingar til yfirstétt-
arfólks um seinustu aldamót varðandi það
hvað hentugast sé að taka með sér í Evrópu-
ferð. Þetta er engin svona
„Evrópa-á-tíu-dollara-á-dag“ bók! f verki
eins og þessu virðist textanum ætlað að
leika aðalhlutverkið í verkinu. í öðrum
verkum Masullo virðist textinn aukaatnði
en umbreyting á bókum aðalatriði. R.
Garratt er með málverk í hinum hluta salar-
ins. Sum verkanna stór, önnur lítil en flest
með skærum litum og sprengj um og byss-
um. Inntakiðerádeilaávígbúnað, stríðog
ofbeldi.
„Underdog“
í þarnæsta húsi er „East 7th Street" gall-
eríið, - að stærð eins og meðalstór fata-
skápur. Þarstenduryfirsamsýning
fimmtán myndlistarmanna (5 kvk. og 10
kk.) og veggplássið enda gjörnýtt. Sýningin
nefnist „Underdog“ og gæti útlagst sem „sá
er minna má sín“. Áhrifin frá „graffiti" og
neðanjarðarteiknimyndasögum eru veru-
lega augljós í verkunum. Þarna er verið að
dreifa boðskortum á opnun næstu sýningar
sem mun nefnast „nightmare“ (martröð) og
eru allir boðnir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Það leyfir svona tuttugu manns ef
andað er til skiptis! Það sem er athyglis-
verðast við boðskortið er að eftir opnun í
galleríinu verður framhalds samkvæmi á
The Pyrmid Club. Opnunin er á þriðjudegi.
Tveir og tveir eru fjórir. Þetta er einn af
þeim börum sem fylla staðinn, á annars
„dauðum dögum" eins og þriðj udögum,
með því að hafa myndverk á veggjunum og
hafa „opnanir“ eða auglýsa samkvæmi eftir
opnanir í nálægum galleríum. Helsti barinn
af þessari tegund er Rauðibarinn. Hann er
reyndar allur hvítur nema barborðið sem er
rautt. Þessi bar varð að goðsagnarlegum
stað eftir að The Rolling Stones, já þeir
sjálfir, mættu eitt kvöldið og spiluðu á
staðnum áður en þeir hófu hljómleika-
ferðalagið ’81. Nú eru hálfguðirnir Jagger
og Richard ekki á svæðinu, en myndir eftir
Rick Prol eru á veggj un um. Prol er sá sem
skipuleggur umræddar samsýningar í East
7th St. gallerí.
Eigendur flestra þessara gallería eru ungt
fólk, yfirleitt myndlistarfólk. Þanniger til
dæmis um Joanne Mayhew-Young sem
fannst nafnið sitt ekki nógu tilkomumikið á
galleríeiganda svo hún tók sér nýtt, nefni-
lega Gracie Mansion. Það er heitið á hinum
opinbera bústað borgarstjórans í New
York. í Gracie Mansion galleríinu sýnir nú
kona að nafni Rhonda Zwillinger og kallar
hún sýninguna „Give Me Liberty or Give
Me Romance" (Færið mér frelsi eða ástar-
ævintýri). Sýningin samanstendur af mál-
verkum, skúlptúrum og „installation“.
Málverkin eru máluð á tilgerðarlega
klaufaiegan hátt. Flest eru þannig að fletin-
um er skipt í tvo hluta og er frelsisstyttan í
sólarlagspóstkortastíl á öðrum fletinum en
yfirstéttarlegt par við dans og daður á hin-
um fletinum. Klisjukennd tákn fyrir frelsi
og ástarævintýri. Að auki koma persónur
eins og Shirley Temple og Marilyn Monroe
fyrir í nokkrum málverkanna. Rammarnir
utan um myndirnar eru gullmálaðir með
stórum pallíettum. Skúlptúrarni eru borð
og stólar þaktir pallíettum sem standa á
rauðum flosmottum. Á veggina hefur verið
málað væmið veggfóður. Fuglasöngur
heyrist af bandi og reykelsisangan er í loft-
inu. Já, það var bara reykelsislykt. Gallerí-
ið stendur við Thompsons torgið þar sem
hinir ýmsu vímugjafar ganga grimmt
kaupum og sölum. Veltan á þessu torgi er
sögð nema svimandi upphæðum.
Borgarastyrjöídin
Næsta gallerí nefnist „Civillian Warfare"
eða Borgarastyrjöldin. Á leið þangað rekst
ég á fyrirtaks brauðbúð með ofboðslega
heilnæmum brauðum. Ég fresta borgara-
styrjöldinni í nokkrar mínútur til að fjár-
festa í brauði. Innanbúðar er ungt heilsufrík
við brauðafgreiðslu. Framan við búðar-
borðið stendur kona vel í holdum og rekur
sínar hversdags raunir. Það er búið að
bjóða henni í þrjú Thanks Giving-
matarboð og hún getur ekki gert upp við sig
hvert hún á að þiggja og hver hún á að
afþakka. Ekki bætir úr skák að móðir henn-
ar er búin að taka þá ákvörðun að gerast
grænmetisæta núna rétt fyrir kalkúnahátíð-
ina. Málin eru rædd ogég, bláókunnugkon-
unni, er ekki bara áheyrnarfulltrúi í
brauðbúðinni heldurfætillögurétt. Þettaer
notaleg búð með skemmtilegu fólki þarna
mitt íþessu niðurnídda hverfi. Furðulegt að
á svona stað þar sem allt virðist í steik sé
fólk sem er með næringarfræðina á hreinu.
Verkin í Borgarastyrjöldinni reynast mál-
aðar myndir af þúsund ára gömlu ungbarni.
Myndirnar eru málaðar á gler. Á mörgum
myndanna er barnið eins og gamall sköll-
óttur maður. Nálægt galleri, „FUN“, er eitt
af þeim þekktustu á þessum slóðum.
„Graffiti“-verk eru ríkjandi í þessu galleríi.
Þar er núna samsýning og er Keith Haring
einn þeirra sem sýna. Sá náungi sýnir ann-
ars aðallega í stóru galleríi í SoHo.
P.S.122
Seinasta sýningin sem ég skoða þennan
daginn er í húsnæði sem er eins konar
menningarmiðstöð hverfisins, P.S.122.
Fyrrum grunnskóli númer 122 í þessari
borg. Á jarðhæð er sýningarsalur, en á hin-
um hæðunum er leikstarfsemi og ýmislegt.
Sýningin sem er þarna núna nefnist „ Ann-
exed text“ sem mætti þýða „texti sem við-'
bót“. Verkin eru eftir myndlistarfólk (2
kvk. og 5 kk.) sem notar texta meira og
minna í verkum sínum. Textinn í þessum
verkum er allt frá því að vera eins konar
útskýring á myndum til þess að vera sjálf-
stætt myndverk, letur framsett á myndræn-
an hátt. Þarna er til dæmis Nancy Spero
með verk. Hún er þekktust fyrir að fjalla í
verkum sínum um pyntingar og annan
hrylling í Suður-Ameríku.
Yfirvínstofunni
Þegar komið er út úr P.S. 122 er handan
götunnar vínstofa Markúsar postula. Fyrir
ofan þennan St. Marks bar búa félagi Kjel-
Eric og Therísa, norskir krakkar sem ég
þekki úr Akademíunni í Osló. Þau kvarta
gjarnan undan skorti á svefnfrið því barn-
um er ekki lokað fyrr en klukkan fjögur að
morgni. Ég er svo ósvífin að ég segja alltaf
að þeim sé nær að búa á svona stað. Þetta er
viðkvæmt mál því þau eru mjög upp með
sér að búa í miðj u splunkunýs Iistamanna-
hverfis. Fyrir þá upphefð greiða þau sem
svarar 25 þúsund íslenskum krónum á mán-
uði í húsaleigu fyrir þrjú herbergi, eldhús og
bað að ógleymdu gólfi sem titrar í takt við
bassann í barmússíkinni til fjögur á nótt-
unni. Á nálægum byggingum stendurað
þar séu íbúarnir í „rent strike", þ. e. sam-
þykki ekki að greiða hærri húsaleigu. Húsa-
leiga er að verða mál málanna í þessu
hverfi. Nú þegar þetta er orðið eins konar
tískuhverfi þá er aukin eftirspurn eftir
húsnæði þar, eigendur húsanna hækka
leiguna eins og þeir geta og þá verða þeir
sem fyrir voru oft að pakka saman dótinu
sínu og flytj a í annað fátækrahverfi, sem
enn er ekki komið í tísku.
Brooklyn, 20. nóvember 1983.