Þjóðviljinn - 10.12.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 10.12.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 10.-11. desember 1983 shammtur Af nef-fleíjendum Svo segir í Laxdæla sögu: Á ofanverðum dögum Ketils Flatnefs Bjarnasonar Bunu hófst ríki Haralds konungs ens hárfagra svá at engi þreifst í landinu fyrir ofríki hans og löggæzlu- manna hans nema hann einn réði högum þeirra. Nú er af því at segja at í veizlu í Raumsdal saknaði Ketill skikkju sinnar er hann skyldi ríða heim ok tók at leita hennar. Þetta líkaði löggæzlumönnum konungs stórilla, keyrðu hnúa í nasir honum og flöttu út nefið. Áf þessu hlaut Ketill viðurnefnið „Flatnefur". Stefndi hann þegar þing við frændur sína ok mátti þó varla mæla fyrir nefstíflu ok hóf svá mál sitt: „Kuddig hafa yddr verit skipti vár ok löggæzlu- madda kodungs, ok þarf eigi þau at idda, því at oss berr meiri naudsid til at ráda um þau vadkvædi, er vér eigub fyrir höddum, nefflattir seb vér dnú erum.“ Þetta er í fyrsta skipti, svo vitað sé, að minnst er á lögregluþjóna í sögu íslands og er merkilegt að strax á landnámsöld urðu þeir tvennt í senn „friðflytjendur og neffletjendur". Ketill flúði undan ofríki lögreglunnar til Skotlands en niðjarnir til íslands. Nú er talið að það hafi verið afkom- endur Ketils Flatnefs, sem beittu sér fyrir því að lög- regla var engin á Islandi alla Sturlungaöldina og raun- ar frameftir öldum. Og þess vegna fór nú sem fór, að Sturlungaöldin varð mesta skálmöldin í sögu íslenzku þjóðarinnar. Og mest fyrir það að landsmenn höfðu misskilið orð spekingsins, „meö löggum skal land byggja". I dag er íslenzk stjórnskipan þríþætt: löggjafarvald, dómsvald og framkvæmdavald. Framkvæmdavaldið er að nokkrum hluta í verkahring lögreglunnar, eins og væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum að und- anförnu. Enn hefur það skeð eins og til forna að frið- flytjendur hafa gerst nef-fletjendur og hafa flatt út nefið á manni, sem ekki unir því, fremur en Ketill forðum, að verða „flatnefur" þegjandi og hljóðalaust. Af þeim fjölmörgu, sem kvatt hafa sér hljóðs um limlestingar á manni, sem fann ekki frakkann sinn í Þjóðleikhúskjallaranum, virðist mér lögreglan hafa mest til síns máls, eins og svo oft áður. í átakanlegri grein eftir Einar Bjarnason, formann Lögreglufélags Reykjavíkur, er því lýst hvernig lög- reglan á sífellt hendur sínar að verja fyrir ofríki borgar- anna. í Morgunblaðinu á fimmtudaginn, segir Einar þessi orðrétt: „...mun fleiri lögreglumenn meiðast, í átökum við borgarana, en hið gagnstæða... bæði kjaftshögg og kárínur. Jafnvel höfuðkúpubrot eftir bar- eflishögg... Handarbrot, nefbrot, spörk í kynfæri, rif- brot, brotnar tennur, Ijótur skurður í andliti..." og fleira er talið. Það er sannarlega illt til þess að vita að borgararnir skuli limlesta fleiri lögregluþjóna en lögregluþjónar borgara. Allir vita að þetta á að vera öfugt. Það eru lögregluþjónar sem eiga að limlesta borgara, en ekki borgarar lögregluþjóna. Vonandi verður þessu kippt í liðinn sem fyrst og þá kannske í næstu viku um leið og þeim verður kippt í liðinn sem snúnir hafa verið úr axlarliðnum um helg- ina. Sagt er að ekki tjói að kippa þeim í liðinn, sem snúnir eru úr hálsliðnum, en sem betur fer rakna þeir nú oftast úr rotinu, sem eru léttkyrktir þegar dyraverðir og lögregluþjónar þurfa að verja hendur sínar fyrir borgurunum. Auðvitað geta lögreglumönnum orðið á mistök, þó það sé að vísu fátítt. Einu sinni varð ég vitni að því í Þjóðleikhúskjallaran- um, að dyraverðir kölluðu á lögregluna. Tveir fílefldir komu umsvifalaust og gripu konu sem hendi var næst í mannfjöldanum. Þá hrópaði dyravörðurinn: „Þetta er vitlaus manneskja". „Nújá“, svaraði þá lögregluþjónninn sem var með haustakið á konunni, járnaði hana umsvifalaust á höndum og fótum. Ég man ekki hvort hann nefbraut hana í leiðinni. En á meðan á þessu gekk fann „rétti maðurinn" frakkann sinn og gekk rólegur og alsæll útí vornætur- kyrrðina. Og að lokum er ef til vill rétt að rifja upp bæn lögreglumannsins: Herra guð í himnarann hæst það mark ég eygi að koma manni í kjallarann á kverjum einasta degi. skráargatid Danskir hamborgarhryggir? Að vísu ekki, en Kostakaups- hryggir eru framleiddir með danskri aðferð og dönskum efnum. KOSTAKAUP HF. Reykjavíkurvegi 72 - Hafnarfirði Lögfræðingur Life á íslandi, Sigurgeir Sigur- jónsson, hugleiðir nú að setja lögbann á tímaritið Nýtt líf og hefur sent því bréf þar sem hann segir m.a. að forráðamenn Life telji að ekki sé um nægar breytingar á nafni blaðsins. For- dæmi munu vera um það að lög- bann hafi verið sett á svipuð blöð þó að ekki hafi verið um enskt nafn á hinu blaðinu að ræða. Hannibalistar ætluðu t.d. á sínum tíma að gefa út Nýtt Alþýðu- bandalagsblað til höfuðs Alþýðu- bandalagsblaðinu sem þá var gef- ið út. En sett var lögbann á það. Ef svo fer að nafnið Nýtt líf verður bannað eru góð ráð dýr. Hafa ýmsar uppástungur komið um enn eitt nafn t.d. Víf en aðstand- endur blaðsins munu ekki treysta því að íslendingar almennt skilji það orð. Væri þá kannski einfald- ara að kalla það bara Wife upp á enska mátann (sbr. hæstaréttar- dóminn). Einn stakk upp á því að kalla tímaritið Upp á Líf og dauða eða bara Líf að loknu þessu. Ann- ar stakk upp á Líf í tuskunum með tilvísun til þess að mikið er fjallað um fatatísku í blaðinu og einnig kom fram nafnið Móður- líf. Svo er náttúrlega um að ræða Annað líf eða jafnvel Níu líf en það verður sjálfsagt bannað. Tíminn gaf út jólagjafahandbók fyrir helgina en mun hafa gerst helst til fingralangur í jólagjafahandbók DV sem hafði birst nokkrum dögum áður. Munu þeir jafnvel hafa tekið heilu síðurnar upp úr henni með myndum, útlits- teiknun, prentvillum og öllu. DV brást hart við og hefur gert háa peningakröfu á hendur Tíman- um. Síðasta mánudag birtist hins vegar í DV knattspyrnulýsing þar sem talað var fjálglega um að sjálfur Kenny Dalglish hafi lagt grunninn að sigri Liverpool á Birmingham, leikið frábærlega og sýnt ódrep- andi baráttuvilja. Það sem vakti athygli þeirra sem fylgjast vel með enska boltanum var sú stað- reynd að sjálfur Kenny Dalglish lék alls ekki með þennan um- rædda leik, hvorki með liði Li- verpool né öðru liði. Það sem Blaðamaður DV var sannarlega vel með á nótunum. þótti einmitt markverðast við leikinn var að þetta var fyrsti leikurinn í rúm 2 ár sem Dalglish missti af hjá Liverpool. Svona getur skýrum skjöplast. Eftirfarandi vísa varð til um daginn í alþingis- húsinu og var hún ort í orðastað Steingríms Hermannssonar. Sýnir hún í hnotskurn hversu allt er mótsnúið hjá forsætisráðherr- anum um þessar mundir: Steingrímur: Bráðum kemur betri tíð. Út í deilur arg og stríð alltof margur teymist. En bráðum kemur betri tíð og Blaserinn minn gleymist. Það hefur vakið athygli hversu mikla umfjöllun mál Skafta Jónssonar hefur fengið í fjölmiðlum og hafa lögreglumenn m.a. ýjað að því að það væri vegna fjölskyldutengsla. Til þess að hafa allt á hreinu er Skafti sjálfur blaðamaður á Tím- anum, Kristín Þorsteinsdóttir, kona hans, blaðamaður á DV og Helgi H. Jónsson mágur hans fréttamaður útvarpsins. Þá vill einnig svo til að Skafti er sonur Jóns Skaftasonar, yfirborgar- dómara í Reykjavík og bróðir Helgu Jónsdóttur, aðstoðar- manns forsætisráðherra. aty á AnfleldT ^var í hlnu mcsta basll mel fcBirmlngham i leiknum og þeir skor-^ Kuðu ekki sigurmarkid fyrr en aöeins j r fjórum minótum fyrtr leikslok. Þá tók Sammy Lee hornspyrnu og sendi \ fyrir markið beint á kollinn á lan Rnah sem skoraði. Það var gamla^ kempan Kenny Úalglish oðrum fremor sem Im8I granjlmi «8 stgrl PLiverpool i leCknnm, hann lék frá- mertega, var ýmiat i sákn eða vörn og sfrnAi ódrepandi bdráttnvflia. t fyrri hálfleiknum fékk Birmingham mjög gott marktckiteri en þá skaut . Les Phíllips yflr markið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.