Þjóðviljinn - 10.12.1983, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 10.12.1983, Blaðsíða 22
myndlist j rii ho, ] Do Jiko Do Kóreanskur listamaður sýnir í Listasafni alþýðu Um þessar mundir sýnir Jiho, Do, kóreanskurlista- maöur, myndir sínar í Lista- safni ASÍ við Grensásveg. Verkin eru 54 aö tölu og not- ar Jiho, Do striga sem undir- stöðu flestra þeirra. Undan- tekning eru þó sex myndir þarsem hann bregðurfyrir sig klippitækni eðacollage. Halldór B. Runólfsson skrifar Jiho, Do er fæddur áriö 1950 og stundaði nám í málaralist við Keimyang-háskólann í Kóreu, frá 1973-79. Frá 1980 hefur hann svo numið myndlist við Ríkisakademí- una í Stuttgart í Þýskalandi. Meðan á námi hans stóð í Kóreu voru verk hans oftsinnis valin á sýningar í hin- um ýmsu borgum landsins. Það mun vera siður í Kóreu að lista- menn séu valdir af sýningarnefnd til að taka þátt í sýningum, einkum ef um opinberar sýningar er að ræða. Einkasýningar á vestræna vísu eru sjaldgæfar þar í landi. Þó hélt Jiho, Do sýningu á verkum sín- um í menningarmiðstöðinni í Kim- Cheon í Kóreu og á þessu ári tók hann þátt í samsýningu í Haus der Kunst í Miinchen. Eins og áður segir, notar lista- maðurinn striga í verkum sínum. í stað þess að mála á hann, notar Jiho, Do strigann til að skapa lág- myndir með því að rista ysta lag hans frá grunninum. Réttara er að tala um húðina sem ver strigann, en það er hún sem listamaðurinn flettir af sjálfum striganum og formar. Þannig hættir striginn að vera einföld undirstaða sem málað er á, þolandinn sem hulinn er litum, en verður í stað þess gerand- inn og efnið sem allt myndverkið snýst um. I syningarskrá skýrir listamaður- inn afstöðu sína á einfaldan og gagnmerkan hátt, sem leit að beinum tengslum við efnið og mið- ilinn. Striginn er framhald á sjálfi listamannsins, eins og Jiho, Do segir í sýningarskrá og gerir kröfu til fullrar þátttöku í sköpun verks- ins. Köfun í efnið er leit að sjálfum sér, tilraun til að mægjast við miðil- inn. Undirstaðan er leitin að efninu sem hentað gæti listamanninum, svarað til persónulegrar tjáþarfar hans. Því næst kemur glíman við efnið sem leiðir til fæðingar hug- mynda og hugmyndirnar hafa síð- an gagnverkandi áhrif á mótun efn- isins. Eitthvað á þessa leið hugsar Jiho, Do sér þetta díalektíska ferli sem auðveldlega er undirorpið breytingum og sviptingum, er m.ö.o. opið í báða enda. Þó virðast myndirnar mun rólegri og kyrr- 'stæðari en ætla mætti af hugmynd- um listamannsins. Yfir þeim hvílir blær íhugunar og því sverja þær sig í ætt við austurlenska list þótt yfir- bragðið sé alþjóðlegt. Það er eink- um vegna þess að ásýnd þeirra er föl, hvít á móti gráum grunni strig- ans sem gægist undan sárunum er eftir standa, þegar hvítunni hefur verið flett af. Þá er tjáningin fínleg og öguð, hlédrægari en við eigum að venjast yfirleitt. Hún er vissu- lega brothætt eins og efniviðurinn. Þótt myndir Jiho, Do beri keim af austurlenskri heimspeki, er í þeim þráður sem tengir þær til- raunum ýmissa listamanna nútím- ans sem kannað hafa möguleika hins hefðbundna efnis. Þessar til- raunir hafa beinst að því að finna aðrar og óvenjulegar hliðar á al- gengum efniviði með því að beita annars konar miðlum við mótun hans en yfirleitt er gert. Því skipar þessi athyglisverði listamaður sér á bekk með ítalska málaranum Luc- io Fontana og ameríska tónskáld- inu John Cage, er hann hafnar við- tekinni meðferð efnis og miðils. argus Fermingarveislan Biðjið um tilboð og kynnið ykkur hvað við höfum gott að bjóða. Stórafmælið Pá getið þið sjálf notið gestanna, laus við tímafrekan veisluundirbúning. Þorraveislan Rekstrarst jórinn okkar hefur mikla reynslu í tilreiðslu þorramatar. t VEITINGA MAÐURJNN Vagnhöfða 11 Lárus Loftsson rekstrarstjóri Sími 86880 Brúðkaupið Glæsilegt veisluborð er prýði brúð- kaupsvei^lunnar. Og matsveinninn og þjónninn koma líka ef þið óskið. Önnur þ jónusta Veitingamaðurinn býður marg- háttaða aðra þjónustu, s.s.hádeigis- verði í fyrirtæki, nestispakka í fjölskyldu- og fyrirtækisferðina o.m.fl. Veisluborðin eru hagkvæm og ódýr og allir réttir í hæsta gæðaflokki. Við sjáum um veitíngamar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.