Þjóðviljinn - 29.07.1988, Qupperneq 21
Dansa
*
a
kvenna-
þingi
Nýtt dansverk
eftir Auði
Bjarnadóttur á
opnunarhá-
tíðinni í Osló
Á opnunarhátíð kvenna-
þingsins í Osló verður framlag
íslands nýtt frumsamið dan-
sverk eftir Auði Bjarnadóttur.
Hún leitar fanga í norrænu
goðafræðinni, þar sem norn-
irnarþrjár, Urður, Verðandi og
Skuld, sköpuðu mönnum ör-
lög.
- Þegar tillaga kom um að ég
semdi verk í tilefni af kvenna-
þinginu, fannst mér henta vel að
vinna úr gamalli hugmynd minni
um dansverk, sem segði frá skap-
anornunum. Þær eru örlaganorn-
ir og hafa alvarlegt hlutverk, bera
mikla ábyrgð, þar sem þær vökva
■ ■.
Lára, Helena og Asta í hlutverki nomanna þriggja er sköpuðu mönnum örlög í goðafræði Norðurlandabúa. Mynd: Sig.
lífstréð og vefa lífsþráðinn við
Urðarbrunninn, sagði Auður.
Verkið er samið við tónverkið
Þrenning, eftir Misti Þorkelsdótt-
ur. - Þegar ég hlustaði á tónverk-
ið fannst mér það eins og skapað
fyrir þetta. Það hefur þennan
grófleika, sem ég var mjög ánægð
með.
Auður sagði að svo vel hefði
viljað til að íslenskir tónlistar-
menn ætluðu að flytja verkið á
tónleikum í Osló og auðsótt mál,
að fá þá til að flytja það með ball-
ettinum á opnunarhátíðinni.
Hljóðfæraleikaramir em þau
Guðríður Sigurðardóttir, sem
leikur á píanó. Lovísa Fjeldsted
leikur á selló og Jón Aðalsteinn
Þorkelsson á klarinett. Ásamt
fleimm munu þau halda tvenna
tónleika á kvennaþinginu, þar
sem flutt verða tónverk eftir þrjár
íslenskar konur.
í hlutverki skapanornanna em
þær Helena Jóhannsdóttir, Asta
Henriksdóttir og Lára Stefáns-
dóttir. Þær eru allar í dansflokki
Þjóðleikhússins og hafa æft stíft
undir stjóm Auðar síðasta einn
og hálfan mánuð. Auður sagði að
Lára myndi einnig verða með
danstúlkun um sifjaspell á þing-
inu, en frá íslandi verður fyrir-
lestur um það efni.
Á opnunarhátíðinni á Akers-
hus Festning verða 4 svið, sem
standa fyrir jörð, vatn, loft og
eld. Skapanornirnar verða á
jörðinni og sagði Auður að til
stæði að hafa lifandi fum á hvolfi,
með ræturnar hangandi niður,
sem sviðsmynd.
mj
Undarleg ósköp að vera kona
Kaflar úr íslenskum
leikritum á
kvennaþinginu í
Osló. Vitnisburði
sögunnar um
viðhorf
til kvenna skotið
inní
Fyrir Bandalaa kvenna í
Reykjavík hefur Ásdís Skúla-
dóttir tekið saman dagskrá,
sem flutt verður á kvenna-
þinginu í Osló. Með henni í för
eru Sigurður Karlsson og
Hanna María Karlsdóttir, sem
leika hluta úr 5 íslenskum
leikritum, en milli þátta skýtur
Ásdís inn völdum brotum af
spjöldum sögunnar og síðum
bókmenntanna.
- Ég reyni að hafa þetta í létt-
um dúr, þó mér sé voðalega mikil
alvara. Ég vitna í orð frægra
manna um kvenmanninn og einn-
ig í íslenskar bækur. Hvernig
þessir menn hafa í raun og vem
skapað viðhorf okkar til kynj-
anna, þó lítið hafi verið talað um
það, sagði Ásdís.
Kvígan og
kyndillinn
Hún sagðist byrja á biblíunni,
þar sem konan er ómerkilegt rif
úr mannsins síðu. Síðan koma
kirkjuþingin. - Á kirkjuþingi í
Nikea árið 325 var rædd sú viða-
mikla spurning, hvort konur
hefðu sál eða ekki. Þar var disk-
úterað hart og mikið í þrjá daga
og að lokum samþykkt með eins
atkvæðis mun, að konur skyldu
teljast hafa sál.
- Síðan vippa ég mér í íslands-
söguna. Tala um að víst var
jafnrétti í upphafi, því konur
máttu nema land eins og karlar.
En hvað kemur svo í ljós? Jú,
karlmenn máttu nema land með
hjálp skipsfélaga sinna. Allt það
land sem þeir komust yfir með
kyndli frá sólarupprás til sólar-
lags. Konurnar lögðu af stað með
kvígu og ef hún var stöð, gat þetta
gengið erfiðlega. Eins og í dag
var jafnréttið á pappírunum, en
jafnstaða gagnvart möguleikan-
um ekki til staðar.
- Niðurstaðan er spurningin
um, að hve miklu leyti við höfum
gengið veginn til góðs. Erum við
ekki ennþá að drösla fjandans
kvígunni og þeir hlaupa um
frjálsir eins og fuglinn með kynd-
ilinn.
Mætir menn margt
látiö frá sér
Ásdís sagði að hún væri búin að
viða að sér efni lengi og mestur
vandi hefði verið að velja úr öllu
Hanna María og Sigurður Karlsson
eru á leið til Osló. MyndAri.
því, sem mætir menn hefðu mælt
gegnum tíðina. Ýmislegt er sótt
til grísku heimspekinganna, og
meðal síðari tíma spekinga má
nefna Freud og kenningu hans
um tippaöfundina.
Svo dæmi séu tekin úr safni til-
vitnanna, þá er er haft eftir siða-
bótarmanninum Martin Luther:
- Náttúran hefur gefið konum
breiðar lendar og stórt bak og þar
með látið í Ijós þann vilja sinn, að
þær eigi að sitia kyrrar og gæta
bús og barna. Ásdís skaut því aft-
anvið að honum hefði ekki dottið
í hug, að með þessar breiðu
lendar væru konur haganlega
gerðar til að sitja við skriftir eins
og hann.
Bútar úr
5 leikritum
Leikritin 5 sem þau Hanna
María og Sigurður, flytia stutta
búta úr eru: Guðrún Ósvífurs-
dóttir, eftir Þórunni Sigurðar-
dóttur, Blýhólkur, Svövu
Jakobsdóttur, Reykjavíkursögur
Ástu Sigurðardóttur í leikgerð
Helgu Bachmann og tvö verk
Kjartans Ragnarssonar, Sauma-
stofan og Jói.
í lokinn syngja um 20 konur úr
Bandalagi kvenna í Reykjavík,
lagið „Kvenmannslaus í kulda og
trekki kúrir saga vor...“. - Þær
syngja þetta lag í von um að nú
séu þær að komast á spjöld sög-
unnar.
Fyrirhugað er að sýna „Undar-
leg ósköp að vera kona“ tvisvar á
kvennaþinginu og sagðist Ásdís
hafa heyrt að báðar sýningamar
yrðu miðvikudaginn 3. ágúst.
Þær verða í nýstandsettu leikhúsi
við höfnina í Osló og heitir það
Black Box Teater.
nrj
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21