Þjóðviljinn - 23.09.1988, Síða 10

Þjóðviljinn - 23.09.1988, Síða 10
FOSTUDAGSFRÉTTIR Loðnubrœðslur Kaupa skip fyrir gróöann Sverrir Leósson: Verksmiðjurnar eiga nær helminginn af loðnuflotanum. Bíða eftirað útgerðarmenn leggi upp laupana tilað geta keyptskipin. Einsýntað margirsigla með loðnu til erlendra verksmiðja. Sjómenn: Höfnum höftum ogkvóta á útflutningferskrar loðnu Siómenn og útgerðarmenn loðnuskipa eru sammála um að ekki komi til greina að setja höft né kvóta á útflutning ferskr- ar loðnu á nýhafinni vertíðinni eins og forráðamenn loðnu- bræðslna hafa farið fram á við stjórnvöld. Markmiðið sé að fá sem mest verð fyrir loðnuna enda sé aflakvóti á hverju skipi og ver- tíðin stutt. Að sögn Sverris Leóssonar út- gerðarmanns Súlunnar EA frá Akureyri væri nær fyrir verk- smiðjurnar að ráðstafa hagnaði síðustu vertíða í að endurbæta verksmiðjurnar og gera þær sam- keppnishæfari um hráefnisverð í stað þess að kaupa loðnuskip í stórum stíl. Sverrir fullyrðir að af rúmlega 50 loðnuskipum eigi verksmiðjurnar um 25 skip og ef þróunin haldi áfram í þá átt líði ekki á löngu þar til sjómönnum verði stillt upp við vegg og þeir verði að gera sér að góðu það verð sem verksmiðjunum þókn- ast að greiða hverju sinni. í dag er loðnuverðið frjálst og bjóða verksmiðjurnar mest 3.300 Endurnýjunarreglur Gott fólk eða augna- karlar Breytingartillögurfyrir ASl-þingi um tímamörk áforseta og miðstjórn. Björn Þórhallsson: Frekar vandamál aðfá gottfólk til starfa -í sjálfu sér kemur mér þessi tillaga ekkcrt á óvart; ýmislegt í þessa átt hefur verið viðrað, og sumsstaðar framkvæmt, á síð- ustu árum, en í fljótu bragði sýn- ist mér þetta heldur vafasamt, sagði Bjönt Þórhallsson, varafor- seti ASÍ, um lagabreytingartil- lögu sem liggur fyrir næsta þingi Alþýðusambandsins um tíma- mörk á forseta og miðstjórn. Þingið er hið 36. í röðinni og verður haldið í íþróttahúsi Dig- ranesskóla seinnipartinn í nóvem- ber. Tillögu þessa efnis hefur Kristbjörn Arnason, zformaður Félags starfsfólks í húsgagnaiðn- aði, lagt fram, en nái hún fram að ganga getur sami maður einungis gegnt embætti forseta ASÍ í tvö kjörtímabil. Þá myndi seta full- trúa í miðstjórn mest geta orðið þrjú kjörtímabil samfleytt, en hvert kjörtímabil er fjögur ár. -Það er oft erfitt að fá gott fólk til að starfa í verkalýðshreyfing- unni, og því finnst mér tillaga af þessu tagi dálítið vafasöm, sagði Björn, en hana er sjálfsagt að skoða og hafa til hliðsjónar. Breytingartillaga Kristbjarnar gerir einnig ráð fyrir að mið- stjórnarmenn ASÍ megi ekki eiga sæti í stjórnum eða ráðum ann- arra fyrirtækja en þeirra sem eru í eigu sambandsins eða aðildarfél- aganna, og að kynjum séu tryggð að lágmarki 40% fulltrúa í mið- stjórn. HS krónur fyrir loðnutonnið sem er aðeins 10% hækkun frá síðustu vertíð. Útgerðarmenn halda því fram að samkvæmt forsendum þeirra um afurðaverð og rekstr- arkostnað verksmiðjanna eigi þær að geta greitt 4.200 krónur fyrir tonnið en afurðaverðið hef- ur hækkað frá áramótum um 86%. Sverrir sagðist ekki búast við öðru en að útgerðarmenn loðnu- skipa myndu einsetja sér að sigla með loðnuna til erlendra verk- smiðja, fáist hærra verð þar en hér, en nýlega voru hér á landi fulltrúar norskra verksmiðja sem buðu 5.400 krónur fyrir tonnið. Sverrir sakaði forráðamenn verksmiðjanna ennfremur um að bíða í hrönnum eftir að sjálfstæð- ir útgerðarmenn iegðu upp laupana til þess eins að geta kom- ist yfir skip þeirra. „Forráðamenn loðnuverk- smiðja eru klókir áróðursmenn og eru sérfræðingar í að koma sínum málstað á framfæri. En hver heilvita maður veit að það þýðir ekki að bjóða nánast sama verð og á síðustu vertíð þegar tvær gengisfellingar hafa orðið, auk þeirra kostnaðarhækkana sem hafa orðið hér innanlands," sagði Sverrir Leósson. Framkvæmdastjóri Sjómanna- sambandsins, Hólmgeir Jónsson, sagði að það kæmi ekki til greina að setja útflutningshöft né kvóta Utgerðarmönnum loðnuskipa fer sífcílt fækkandi en skipastóll verk- smiðjanna stækkar sem því ntniur. á útflutning ferskrar loðnu á vert- íðinni. Sjómenn myndu aldrei taka það í mál. Hólmgeir sagði að verksmiðjurnar hér yrðu einfald- lega að standast þá verð- samkeppni sem er um hráefnið ef þær ætluðu sér að fá eitthvað af loðnu til bræðslu. Svo einfalt væri það. -grh Grindavík Útlendingum sparimð Samdráttaraðgerðir bitna fyrst á erlenda vinnuaflinu Hraðfrystihús Grindavíkur hefur sagt upp öllu lausráðnu starfsfólki sínu en obbinn af því eru erlent fiskvinnslufólk eða um 15 manns. Hluti af þeim hefur ráðið sig í vinnu annars staðar en aðrir eru á heimleið. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans skiptir þar engu hvort við- komandi starfsmenn séu samn- ingsbundir eða ekki. Fyrirtækið er að draga saman seglin og þá skipta samningar við erlent vinnuafl engu þó það sé velkomið þegar á því þarf að halda. Framkvæmdastjóri Hraðfrysti- hússins sagði hins vegar að allur gangur væri á þessum atvinnu- samningum fyrirtækisins við út- lendingana og neitar því að hann sé að losa sig við þá og brjóta gerða samninga sem fyrirtækið hefur gert við sína fyrrverandi starfsmenn. Hann sagði að af 45 manna starfsliði fyrirtækisins til lands og sjós yrðu 25-30 í vinnu hjá Hraðfrystihúsinu eftir þessar samdráttaraðgerðir sem væru gerðar til þess eins að lengja líf- daga fyrirtæksins. -grh ASÍ-þing Kosningar í gangi Ríflega 500fulltrúar eiga seturétt á 36. þingiAl- þýðusambandsins seinnipartinn í nóvember 36. þing Alþýðusambands ís- lands verður haldið eftir tvo mán- uði, og stendur kosning þingfull- trúa nú yfir. Rúmlega 500 fulltrúar eiga seturétt á þinginu að sögn Kri- stínar Mantyla, skrifstofustjóra ASÍ. Kosning hófst í aðildarfélögunum hinn 17. sept- ember og skal vera lokið réttum mánuði síðar, hinn 17. október. Þing Alþýðusambandsins eru haldin áfjögurra ára fresti. Fund- arstaðurinn að þessu sinni er íþróttahús Digranesskóla í Kópa- vogi, og stendur þingið vikuna 21. til 25. nóvember, eða frá mánudegi til föstudags. Tillögur um lagabreytingar eiga að berast tveimur mánuðum fyrir upphaf þinghaldsins, en að sögn Kristínar Mantylá verður það Iátið átölulaust þótt hinar síðustu verði að skila sér til mán- aðamóta. Hún sagði að þó nokkr- ar breytingatillögur lægju fyrir, bæði frá miðstjórninni og ein- stökum félögum. HS Kennararasamtökin Þingað um skólaþróun Hið íslenska kennarafélag og Kennarasamband íslands standa sameiginlega að tveimur uppeld- ismálaþingum um skólaþróun. Fyrra þingið verður haldið á Ak- ureyri á laugardag og það síðara í Reykavík þann 15. október. Fluttir verða þrír fyrirlestrar á þingunum; Hanna Kristín Stef- ánsdóttir kennari fjallar um hlut kennaraískólaþróun. Fyrirlestur Ingvars Sigurgeirssonar kenns- lufræðings nefnist: Námsefni - þarfur þjónn eða harður hús- bóndi og Húgó Þórisson sálfræð- ingur fjallar um uppeldisþáttinn í skólastarfinu. Handbolti jr Efstir í riðlinum Auðveldasta hindrunin yfirstigin og alvaran að byrja Islendingar sigruðu Alsír með 22 mörkum gegn 16 í öðrum leik sínum á Ólympíuleikunum í Seoul. Hafa þeir þá unnið tvo fyrstu leiki sína og eru efstir í A- riðli handknattleikskeppninnar. Að vísu hafa mótherjarnir verið af léttara taginu og má segja að alvaran sé nú rétt að hefjast. íslendingar áttu í hinu mesta basli með Alsírbúa í upphafi leiksins. Ekkert gekk í sókninni gegn hinni villtu vörn þeirra og lentu okkar menn fljótlega 1-5 undir. Þá fór þetta að lagast og smám saman náðu íslendingar yfirhöndinni. Góður kafli fyrir leikhlé breytti stöðunni síðan í 11-8 en Atli Hilmarsson skoraði síðasta mark hálfleiksins nokkr- um sekúndum áður en flautan gall. Síðari hálfleikur var furðu lík- ur þeim fyrri. Alsír skoraði fimm gegn einu og jöfnuðu leikinn, 12- 12. Þá var okkar mönnum nóg boðið og hlutirnir fóru að ganga upp í sókninni. Vörn Alsírbúa átti að lokum ekkert svar við leik landans og úrslitin urðu sex marka sigur, 22-16. Kristján Arason var nú aftur markahæstur með 8 mörk og er hann markahæstur í keppninni með 16 mörk ásamt hinum kóre- anska Kang. Sigurður Gunnars- son lék vel og skoraði 5 mörk og þeir Atli Hilmarsson, Bjarki Sig- urðsson og Þorgils Óttar Mathie- sen skoruðu 3 mörk hver. Einar Þorvarðarson varði 7 skot en Guðmundur Hrafnkelsson 2. Önnur úrslit: A-riðill Bandaríkin-Júgóslavía ......23-31 Sovétríkin-Svíþjóð..........22-18 Alsir...........2 0 0 Bandaríkin......2 0 0 2 34-43 2 38-53 ísland...... Sovétríkin.. Júgóslavía. Svíþjóð..... Staðan ..2 2 0 0 44-31 ..2 2 0 0 46-36 ...2 1 0 1 49-47 ...2 1 0 1 39-40 B-riðill S-Kórea-A-Þýskaland.......23-22 Tékkóslóvakía-Ungverjaland 19-16 Japan-Spánn................19-25 Staðan Tékkóslóvakía 2 2 0 0 39-33 4 S-Kórea .......2 2 0 0 45-42 4 A-Þýskaland...2 1 0 1 47-41 2 Spánn..........2 1 0 1 42-39 2 Ungveijaland ... 2 0 0 2 33-39 o Japan..........2 0 0 2 37-50 0 Aðfaranótt laugardags leika íslendingar við Svía og verður sá leikur að vinnast til að liðið sé hólpið. Þá leika Júgóslavía-Alsír og Sovétríkin-Bandaríkin og í B- riðli leika Ungverjaland-Japan, A-Þýskaland-Spánn og S-Kórea- Tékicóslóvakía. -þóm 10 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.