Þjóðviljinn - 23.09.1988, Side 20

Þjóðviljinn - 23.09.1988, Side 20
BARNAFRÉTTIR Óskabækur Á sínum tíma lét Náms- gagnastofnun fara fram sam- keppni um léttlesnar barna- bækur. Nú eru komnar út fjór- ar af þessum bókum og sú fimmta væntanleg á næst- unni. Kallast bókaflokkurinn Óskabækur. Fyrst komu út bækurnar Sköpunin, eftir Ragnheiöi Gestsdótturog Iðunn og eplin eftir Iðunni Steinsdóttur. Nýlega komu út bækurnar Egill, eftir Torfa Hjartarson og Afi minn í sveitinni eftir Friðrik Erlingsson. Egill byggir á Egilssögu og segir frá Agli Skallagrímssyni þegar hann var drengur. Afi minn í sveitinni segir frá litlum strák sem heimsækir afa sinn og kynnist lífinu í sveitinni. Á næstunni er svo væntan- leg fimmta Óskabókin en það er Eldgos, eftir Tryggva Jak- obsson. Sú bók er mjög fræðandi og segir frá eldgos- um og útskýrir hvernig og hversvegna þau verða. Það er nú það í gamalli sögu er sagt frá því þegar hundarnir voru skapað- ir: „Sum eru þau dýr sem voru sköpuð seinna en Guð skap- aði heiminn. Þar á meðal voru hundarnir. Þegar Jesús lifði hér á jörðinni kom hann einu sinni þar sem menn voru að reka fjárhóp. Kindurnar voru latar og gekk reksturinn bæði seint og illa. Þá tók Jesú upp grasvöndul og sneri milli handa sér og gerði úr honum hund hjarðmönnum til hjálpar. Þegar hundar leggjast eða sofa liggja þeir oft hringaðir og er það af því að frelsarinn sneri vpndinn í hring þegar hann skapaði hundinn.“ BARNAKOMPAN Umsjón: KRISTÍN VALSDÓTTIR ANDRÉS GUÐMUNDSSON Maðurinn og dúfan Maur einn kom að uppsprettulind til að svala þorsta sínum en datt ofan í og var nærri drukknaður. En svo vildi til að dúfa sat uppi í tré rétt hjá og fylgdist með þegar maurinn datt ofan í lindina. Dúfan kropp- aði laufblað af trénu og lét það falla niður í vatnið fyrir framan maurinn. Hann skreið upp á laufblaðið og fleytti sér að landi. Rétt í þessu bar að veiðimann sem ætlaði að fanga dúfuna í net sem hann henti yfir tré og veiddi þannig fugla. Maðurinn sá hvað veiði- maðurinn ætlaði sér og beit hann í hælinn. Maðurinn hrökk við þegar hann kenndi bitsins svo netið datt úr höndum hans. Þruskið sem myndaðist varð til þess að vekja eftirtekt dúfunnar þannig að hún sá hætt- una og var ekki sein á sér að fljúga burt. Þannig launaði maurinn greiðann og bjargaði lífi dúfunnar rétt eins og hún hafði bjargað lífi hans. Barnakopmunni barst eftirfarandi Ijóð frá Eddu Matthías- dóttur, sem er 12 ára Ljóð Þó ég hafi mig lagt er við mig sagt: Gerðu þetta gerðu hitt! Ég vildi að einhver hefði sagt: Gerðu þetta gerðu hitt, elsku litla Ijósið mitt. Edda Matthíasdóttir 12 ára Getur þú hjálpað fuglinum að finna réttu leiðina út úr búrinu Stafarugl Raðaðu stöfunum rétt þannig að heiti hlutanna á myndunum séu rétt. ÍLFI___________SFORKRU________ IRFÐIDLI_______JMÓÍRAS______ ARTUTA_____LAFGU_______ KREKAI_____SRÓ 20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.