Þjóðviljinn - 28.10.1988, Page 23

Þjóðviljinn - 28.10.1988, Page 23
Kossinn Alþýðuleikhúsið sýnir í kjallara Hlaðvarpans: Koss Kóngulóarkonunnar eftir Manuel Puig. Þýðandi: Ingibjörg Haraldsdóttir Leikstjóri: Sigrún Valdbergsdóttir Tónlist: Lárus Halldór Grímsson Lýsing: Arni Baldvinsson Leikmynd og búningar: Gerla Leikendur: Arni Pétur Guðjónsson, Guðmundur Ólafsson, Viðar Eggertsson, Rúnar Lund Leikurinn um Koss Kóngu- lóarkonunnar hefur á fáum árum farið sigurför um heiminn og er ekki að undra. Þetta er marg- slungið og heillandi leikrit og gef- ur tveim leikurum einstakt tæki- færi til að sýna okkur leikni og getu í samþjöppuðu og að- þrengdu rými fangaklefans. Þar lýstur saman tveim gerólíkum heimum við hrikalegar aðstæður kúgunar og pyntinga, svo hrika- legar að hverjum áhorfanda of- býður. Valentin er pólitískur akt- ífísti, borgaraskæruliði, sem situr og herðir hugann við lestur fræð- anna, harðskeyttur og hertur til að standast hverja þá þolraun, sem fyrir hann verður lögð. Hann veit fyrir víst að hans bíða pynt- ingar og dauði. Herbergisfélagi hans er sýnu eldri og situr inni fyrir kynferðisafbrot, líklega við- skipti við vændisdrengi. Molina er veiklunda draumhugi, um- hyggjusamur gagnvart hinum af- skiptalitla félaga sínum. Stéttar- leg staða þeirra er gerólík: Mo- lina er smáborgari og dreymir dagdrauma um sældarlíf góðbor- garans, Valentín er verkalýðs- sinni. Og í klefanum deila þeir kjörum, reynslu og draumum. Leikurinn fjallar öllu fremur um skírslu, hvernig þeir komast hvor um sig til manns, betri, sannari og sáttari við hlutskipti sitt. Þetta er feikierfitt leikrit í sviðsetningu og leik. Sýning Al- þýðuleikhússins á Kossinum er viðunandi íalla staði. Sigrún hef- ur unnið vel sitt verkefni af kostgæfni í flestu, leikmynd Gerlu er eins og efni standa til og aðstæður bjóða uppá, tónlist Lár- usar ágæt til síns brúks, en hefði mátt draga meiri dám af anda undangengins og eftirfarandi at- riðis. Viðar Eggertsson lék fang- elsisstjóra á hljómbandi af mikilli innlifun og fantaskap sem kom skemmtilega á óvart. Þær upp- tökur voru fínar og ætti að koma Sigrúnu Valbergsdóttur að hjá Hljóðvarpi sem leikstjóra. Guðmundur Ólafsson leikur PÁLL BALDVIN BALDVINSSON Valentín og vinnur hér áfanga- sigur á hinni þyrnum stráðu braut leikarans. Hann skilur hlutverkið hárréttum skilningi og hefur yfir að búa þeirri tækni sem þarf til að holdgera túlkun sína. Hann brestur einungis á fáum stöðum þegar hann hækkar róminn og hrópar. Rödd hans er há og hættir til að skrækja ef hann gáir ekki að sér. Þá verður hann of hraður og áhorfandinn tapar merkingu og hann sjálfur fullum tökum. Þetta er tæknileg að- finnsla og hefur hún einnig átt við í ýmsum fyrri hlutum Guðmund- ar. En hann er vaxandi leikari og vinnur þetta hlutverk prýðisvel. Árni Pétur Guðjónsson er ekki eins gamall í hettunni, ekki jafn reyndur í að kljást við persónu- túlkun og Guðmundur. Honum er ætluð sú þolraun að takast á við Molina, hinn blíða sagna- mann, sýna okkur hvernig hann vinnur hægt á andúð og fyrirlitn- ingu Valentíns, hvernig hann bregður á leik í allri auðmýkt og skömm svikarans. Og sannast sagna verður reynsluleysið hon- um að falli. Mér sýnist skilningur hans í öllum atriðum réttur, en bæði í fasi og hljóm er hann vand- ræðalegur, ekki hikandi, heldur slakar hann ekki á í túlkun sinni. Hér liggur meginbrestur sýning- arinnar og verður að vísa ábyrgð- inni á leikstjórann. Því verður þó ekki á móti mælt að Kossinn er mögnuð sýning, skemmtileg sýning, grimm og falleg í öllum sínum ljótleik. Og ákaflega er okkur hollt að sitja eina kvöldstund og kynnast heimi dýflissunnar og sjá þau öfl að verki sem leiða menn til frels- unar. FRABÆR II TSALA í Kjötmiðstöðinni Garðabæ ( skóm oq fatnaoi Opnunartími: Laugard. 9-18 Sunnud. 11-18 Virka daga 9-19 MJÖG MIKILL AFSLÁTTUR KYNIMING á OEWEAR vetrarfatnaði ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR Léttleikinn óbærilegi Stokkhólmur 1970. Mótmæla- fundur í miðbænum. Allir ís- lensku stúdentarnir mættir, sumir með rauða fána. Víetnam? Já, ég held það. Norpað í haustkulinu undir húsvegg. Slegið í bjór og farið upp á Jerum til Einars Karls og Steinunnar og drukkið fram á nótt. Skriðið heim í eitt herbergi með eldhús- kytru í morgunsárið. Lífið er ein- falt, til þess að gera. Stokkhólmur 1988. Kosningar í aðsigi. Hverjum skyldi detta það í hug? Rifist um hvort fæð- ingarorlofið skuli vera 3 mánuð- um lengra eða styttra og svo eru það „miljöfragorna". Enginn virðist hrófla við neinu í alvöru. Blöðin upp full af skandalmálum af stjórnmálamönnunum, ein- hver sveik undan skatti o.s.frv. Ég næ ekki upp í sænsku vel- ferðina lengur. Þeir sem verða undir í þessu velferðarríki eru kannski ekki svo margir, en niðurlæging þeirra er algjör. Þeir hanga í „tunnel- bananum" og gefa skít í allt. f bókstaflegri merkingu. Eitt aðal vandamálið í umhverfismálum Stokkhólmsborgar er að þetta fólk gerir þarfir sínar út um allt. Ég tek eftir því að vel klæddir borgarar láta eins og það sé ekki til. „Það eru engir venjulegir aumingjar sem verða aumingjar í okkar kerfi." Mér líður eins og mér hafi verið troðið ofan í bómullarpoka með hausinn á undan. Hér fékk mað- ur þó sína andlegu verkmenntun fyrir 18 árum. Og víst tók sænska velferðin manni vel, blönkum og bættum. Borgaði manni stórfé fyrir að eignast hér fslending, sem er löngu vaxinn manni upp fyrir höfuð. Ég hef líka fyrirgefið sænska kerfinu að kalla hann Baldur Sigurðardóttur og hálf- drepa mig með því að gefa mér sænskt blóð beint í æð. Ég á enn- þá læknaskýrsluna þar sem stend- ur að ég hafi fengið alvarlega of- næmisreaksjón við blóðgjöf af „þjóðernisástæðum“. Veit ekki enn hvort það var gert í gamni eða alvöru. Og hér er ég aftur með Einari Karli og Steinunni. Enginn er lengur blankur að ráði, - þótt við skuldum einhverjar húseignir uppá íslandi höfum við það hel- víti gott. En lífið er flókið, til þess að gera. Steinunn er búin að eignast þriðju dótturina og víst hugsar sænska velferðarríkið vel um þær mæðgur. Við Einar förunt í leikhús meðan Steinunn er heima með brjóstmylkinginn sinn. Við sjáum fimm tíma þjáningarfulla sálarkrufningu Noréns og á heimleiðinni hittum við gamlan félaga frá Stokkhólmsárunum fyrri, sem hefur ílengst í Svíþjóð. Hann horfir svolítið forviða á okkur, minnir greinilega að við eigum að vera gift einhverjum öðrum en hvort öðru og er víst ósköp glaður þegar hann heyrir að svo sé líka. Við kveðjum hann. Kannski hittumst við aftur í tunnelbananum eftir önnur 18 ár. Það er kosið í Svíþjóð og ég fer bara í bíó með eiginmanninum sem ég hef sótt í fang Sölku Völku upp til Örebro. Við hornið á bíóinu er rósahaugur, en hér á leið úr þessu sama bíói var Palme skotinn. Við sjáuni yndislega kvikmynd Kundera „Óbærilegan léttleika tilverunnar". Stebbi er að sjá hana í annað sinn, hann upplýsir að hann hafi orðið svo ástfanginn af hinni frönsku Binoche og ég skil það vel. Sjálf verð ég ekkert skotin í Day-Lewis, sem allir ís- lenskir kvikmyndagagnrýnendur dásama (þeir eru auðvitað allir karlkyns). Mér finnst hann ákaf- lega þokkaheftur (sbr. þroska- heftur eða þorstaheftur eins og Flosi myndi segja) eða að minnsta kosti mjög þokkasnauð- ur (sbr. fitusnauður). Þangað til í lokin er hinn óbæri- legi léttleiki verður óbærilega þungur og hann verður loks ástfanginn. Þá verður hann allt í einu eitthvað í alvöru. Fallegur og sterkur og getur allt. Til þess er ástin. Ég vona að þetta hafi einmitt verið ætlun leikstjórans. Þegar ég kem heim í íslenskt stjórnleysi og himneskt veður er það fyrsta sem ég geri að taka dásemdarbók Kundera fram úr bókaskáp og lesa hana. Hún er ennþá betri en myndin. Sjónvarpið er ein allsherjar stjórnarmyndunarþvæla með leiðinlegum bíómyndum og um- ræðuþáttum á milli. Ég skil ekki hvað mér leiðist sjónvarp. Ég geri árangurslausar tilraunir til að festa hugann við eitthvað. Á Stöð 2 er einhver skelfileg mynd úr stríði norður- og suðurríkja- rnanna og hún er svo illa leikin að það jaðrar við lög. Kennslustund í grettuleik og Ijótum skeggjum. Loks er svo komin stjórn yfir landsmenn og allir varpa öndinni léttar í bili. í einhverjum viðræðuþætti heyri ég Ingva Hrafn segja að rík- ið eigi hvorki að reka heiídsölu né útvarpsstöð. En Útvarpið okkar er fyrir löngu orðið Út-sala eins og allir vita og í nafni frjálsrar fjölmiðlunar (hvað sem það nú er) er eitthvert fólk stöðugt að hlæja og röfla um ekki neitt á milli popptónlistar og auglýsinga á öllum rásum ljósvakans. Mér flýgur í hug að stofna samtök um að slökkva á öllurn þessum háv- aða. Og þá myndu íslendingar með heimsmet í félagasamtökum loksins eignast almennilegt „Slökkvilið"! Gangið í „Slökkvi- liðið“, er það ekki fín auglýsing? Ofaní alla þessa geðvonsku skýst svo algerlega óvæntur ljós- geisli. Svona getur lífið verið frá- bært: Stöð 2 ætlar að sýna „Carm- en“ eftir Saura! Ég tek símann úr sambalidi og dreg djúpt andann. Endurfundirnir við verkið eru tregablandnir. Ég sá sýningu spænska þjóðarballettsins á „Carmen“ í sumar í Generalife görðunum í Granada (og skrifaði reyndar um það í þetta blað), en myndin byggir á þeirri sýningu. Hér fáum við söguna í návígi. Ga- des er næstum því eins magnaður leikari og hann er dansari. Ég er fullkomlega ósammála túlkun hans og Saura á sögunni; eins og þeir segja hana fjallar hún um þjáningu og afbrýðisemi karl- manns sem verður ástfanginn af léttlyndri og heldur ómerkilegri stúllicu, sem svíkur hann. Ég var sannarlega sáttari við túlkun Þór- hildar og Sigríðar Ellu í Óperunni á sínum tíma á þeirri Carmen sem elskar frelsi sitt meira en allt ann- að, - já meira en karlmenn. En karlmenn verða víst líka að fá að segja sína sögu og kvikmynd Saura er jafn frábær þótt ég sé henni ekki sammála. Ég bíð spennt eftir að sjá konurnar hans Krumma (og karlmennina) í „í skugga hrafnsins". Og enn sem fyrr er léttleiki tilverunnar óbæri- legur. Föstudagur 28. október 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.