Þjóðviljinn - 23.12.1988, Blaðsíða 18
uPPhaf7/tafiia'£nadi Charles Th --------------------
^U:nanPbartiihen,
ekki kredit fyrir hans vinnu, þótt
hann hafi verið með frá upphafi
tiJ enda. Enda fór það svo að
Charles Thorson fór að vinna
fyrir kvikmyndarisana Wamer
Bros. þar sem hann skapaði
teiknimyndafígúrur á borð við
litla indíánann Hiathawa og kan-
ínuna frægu Bugs Bunny. Þar var
enginn sem reyndi að draga
fjöður yfir hver væri höfúndur að
þessum frægu fígúrum. Síðar
sneri Charles sér að gerð bama-
bóka, skrifaði og myndskreytti
sjálfur og hlaut jafnvel meiri
frægð á því sviði en fyrir hlut sinn
í teiknimyndagerð.
Grunurinn
staðfestur
Það hefur aldrei verið viður-
kennt á neinn hátt að Charles
Thorson hafi verið höfundur
Mjallhvítar eins og hún birtist í
kvikmynd Walt Disneys. Þaðan
af síður hefur Kristín Sölvadóttir
fyrr verið opinberlega talin fyrir-
mynd Mjallhvítar. Kristín sjálf
sagði eiginmanni sínum af Char-
lesi Thorson og þeirra sambandi.
Þar sem þau vissu af því að Char-
les fór að vinna fyrir Disney og
höfðu samanburð við þá Mjall-
hvíti sem þar birtist, bæði í
Kristínu sjálfri og þeim myndum
sem Charles hafði teiknað af
Kristínu, grunaði fjölskylduna
alltaf hvers kyns væri. Það var
hins vegar ekki fyrr en dóttir
Kristín tók ekki
bónorði Charles
endavar22ja ára
aldursmunurá
þeim.
Kristínar og Garðars sem býr í
Kanada, hafði af tilviljun uppi á
dr. Steven Thorson að staðfe-
sting fékkst þeim megin frá. Dr.
Steven Thorson fyllti síðan upp í
myndina í viðtali við Nýja Helg-
arblaðið. Endanlega staðfestingu
geta lesendur síðan sjálfir fengið
með því að bera saman ljósmynd-
ir af Kristínu á þeim ámm þegar
þau Charles þekktust og þá
teikningu sem varð ofan á í kvik-
myndinni. Andlitslag, andlits-
drættir og hár em sláandi lík. Þótt
Charles hafi ekki fengið Kristínu
fyrir konu, hefur hann greinilega
ekki gleymt henni. Hann gerði
ástina sem hann aldrei fékk
ódauðlega í kvikmynd. Fyrir það
hefur hann aldrei fengið opin-
bera viðurkenningu fyrr en nú.
Páll H. Hannesson
Dr. Steven Thor-
son.sonurChar-
lesheldurþví fram
aðfaðirhanshafi
teiknaðfrum-
myndinaafdverg-
unumsjöásamt
Mjallhvít
'
r / *
ÆCiit&yÉð
18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. desember 1988