Þjóðviljinn - 13.01.1989, Side 5
ísraelsdáti mundar táragashólkinn á
Gaza.
Frjáls
markaður
Táragas, kylfurog
gúmmíkúlur ganga
kaupum og sölum án
þess að nokkurt
alþjóðlegt eftirlit eða
flokkunarkerfi sé
fyrir hendi
Þótt öryggisamboð verði fjölda
manna að bana á hverju ári eru
engar alþjóðasamþykktir í gildi
um framleiðslu og sölu þessháttar
tóla. Að vísu leggja Sameinuðu
þjóðirnar bann við sölu á hvers-
kyns vopnum til Suður-Afríku. Á
bannlista samtakanna eru kylfur,
táragas, gúmmíkúlur og önnur
hjálpartæki iögregluþjónsins
undir sömu syndina seld og vígtól
önnur. En að öryggisamboða
skuli getið í þessu samhengi er
undantekning, sú fræga sem
sannar regluna.
Á þriðju ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna um afvopnunar- og
þróunarmál sem haldin var í júní
á árinu sem leið stakk fulltrúi
Ástralíu uppá því að þjóðir heims
tækju í notkun eitt þjált og lipurt
flokkunar- og skráningarkerfi
vopna.
Þetta er allflókið mál og erfitt
viðureignar en helsti þrándur í
götu þess að menn komi sér upp
kerfi af þessu tagi eru vopnafram-
leiðendur. Án samvinnu þeirra er
borin von að koma þessu í kring.
En þeir hafa ekki viljað ljá máls á
þessu og af augljósum ástæðum.
Málið er því í sjálfheldu enn sem
komið er.
í Bandaríkjunum hnýsist hið
opinbera því aðeins í vopnabrask
að hið selda víggagn kosti
100.000 dollara (4.900.000 kr.)
eða meira. Ríkið hefur því engin
afskipti af sölu táragassprengja,
kylfa, gúmmíkúlna og smærri
skotvopna og gildir einu hve
mikið magn lysthafendur kaupa,
hverjir þeir eru, hvaðan þeir
koma og gegn hverjum þeir
hyggjast beita varningnum.
Amnesty International leggur
hart að ríkisstjórnum í Vestur-
Evrópu og Norður-Ameríku að
banna sölu hverskyns vopna til
ráðamanna sem sannanlega og
ítrekað hafa gerst sekir um gróf
mannréttindabrot. Hjálpartæki
öryggissveita falla undir skil-
greiningu samtakanna á vopnum.
Mannréttindasamtökum sem
bækistöðvar hafa á Vestur-
löndum blöskrar sú staðreynd að
þjóðþing lýðræðisríkja vaða í
villu og svíma um gildan þátt
vopnaframleiðslu í löndum sín-
um, hafa hvorki hugmynd um
hvað framleitt er af öryggisamb-
oðum né hverjir fá þau í hendur.
South/-ks.
Það er gróðavegur að framleiða friðflytjandi bryndreka, óbanvænar
gúmmí-ogplastkúlur, táragassprengjur og piparþoku
Oryggismálaráðherra Suður-
Afríku, maður að nafni Adri-
aan Vlok, varð barnslega glaður
þegar sveitir hans voru styrktar
með óeirðadrekanum Nongkaí.
„Hann brýtur blað í sögu lög-
gæslu,“ sagði ráðherrann. Nú er
svo komið málum að Nongkai er
þarfasti þjónn lögregluyfírvaida
þegar dreifa þarf margmenni,
hleypa upp hópfundum og tvístra
fjöldagöngum blökkumanna.
Hann er orðinn einn af burðarás-
um aðskilnaðarstefnunnar, drek-
inn sá, en það er harla drjúg eftir-
tekja skammrar starfsævi. Nong-
kaí var ekki tekinn í notkun fyrr
en síðla árs í hittiðfyrra.
Nongkaí er búinn lyftibúnaði
að framanverðu, aflrömmum
griptöngum sem fara létt með að
vippa logandi bílum úr vegi og
ryðja vígjum úr götu. Klippur
hans skera á alla stálvíra. Hann er
sagður afar lipur og snar í snún-
ingum, skýtur nær fyrirvaralaust
upp kollinum í byggðum þel-
dökkra manna, og forðar sér á
augabragði ef stýrimanni býður
svo við að horfa. Blaðamaður
einn sem fylgdist með frammi-
stöðu Nongkaís í hita leiks lýsti
honum sem „virki á hjólum“.
Öryggisiðnaður
Á Vesturlöndum er fram-
leiðsla öryggis- og löggæsluamb-
oða mikill atvinnuvegur og eflist
jafnt og þétt, framfarir eru miklar
á þessu sviði sem í öðrum gróða-
vænlegum undirgreinum tækni
og verklegra vísinda.
Óðum fjölgar einræðisherrum
og harðstjórum út um alla kringlu
heims sem taka nútímaleg
hjálpartæki í þjónustu sína og
ríkisvaldið hér á vesturhvelinu
hleður stöðugt meir undir
öryggis- og löggæslustofnanir
sínar. Þær eru sagðar fitna einsog
púkinn á fjósbitanum á vargöld
hryðjuverkamanna og kókænsala
þegar ólyginn almannarómur
hefur fyrir satt að allt stefni í átt til
fjandans' á afturfótum tíðarand-
ans.
Útbúnaður slagsmálasveita er
ekki nema ein grein af þessum
meiði. Öryggisiðnaðurinn spann-
ar ótrúlega vítt svið. Reynt er að
koma til móts við óskir hvers og
eins, gildir einu hvort viðskipta-
vinurinn hyggst festa kaup á pott-
þéttum skjólfatnaði fyrir kylfu-
berann sinn ellegar tölvustýrðu
öryggis- og eftirlitskerfi eða
hnýsnibúnaði njósnara.
En þótt við þrengjum skyggnið
og beinum sjónum að fyrirtækj-
um sem sérhæfa sig í því að létta
undir með öryggissveitum sem
teflt er fram gegn herskáum
Föstudagur 13. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5