Þjóðviljinn - 13.01.1989, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 13.01.1989, Qupperneq 7
Casspir hinn klossaði, forveri lipurdrekans Nongkaís í Suður-Afríku. Lögregluþjónn framtíðarinnar, til í tuskið. esty International fullyrða að táragas hafi orðið a.m.k. 40 Pal- estínumönnum að bana á hernámssvæðum ísraelsmanna. Ennfremur hafi fósturlátum fjöl- gað til muna á téðum svæðum og megi rekja það beint til tíðrar notkunar táragass. Einnig mætti rekja sögur af þjáningum fólks sem orðið hefur fyrir táragaseitrun í Chile en for- maður læknasamtakanna þar- lendis, dr. Juan Luis Gonzales, segir afar algengt að félagar sam- taka sinna þurfi að liðsinna því. laragas „...eykur stórlega van- líðan fólks sem þjáist af sjúkdóm- um í öndunarfærum, veldur upp- köstum og niðurgangi og hefur ill áhrif á miðtaugakerfið. Oftast hverfa einkennin von bráðar en ef menn hafa haft of náin kynni af gasinu þá bíða þeir þess stundum aldrei bætur,“ segir Gonzales. South/-ks. Vopnabúr ríkisvaldsins Rafmagnskylfur notaðar á Litla-Hrauni. Böðvar Bragason, lögreglustjóri íReykjavík: Vopnabúr lögreglunnar með hefðbundnum hœtti. Eigum skotvopn og gassprengjur Eg er mjög neikvæður gagnvart vopnaburði og vona að það líði sem lengstur tími þar til lögreglan á íslandi þarf að taka upp vopnaburð. Reynsla annarra þjóða sýnir að þar sem iögreglan hefur vopnast hefur ofbeldis- þröskuldurinn í þjóðfélaginu lyfst, sagði Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, í sam- tali við Nýja Helgarblaðið. Ekki kannaðist Böðvar við að iögregl- an í Reykjavík ætti í fórum sínum rafmagnskylfur og kannaðist reyndar ekki við að slík tól væru tilgreind í reglugerð dómsmála- ráðuneytisins. Nýja Helgarblaðið hefur hins vegar öruggar heimild- ir fyrir því að slíkar kylfur hafí verið keyptar inn á vegum dóms- málaráðuneytisins fyrir u.þ.b. 10-15 árum og hafí verið notaðar, aðallega í fangelsi ríkisins að Litla-Hrauni. Böðvar sagðist hins vegar ekki neita því að lögreglan í Reykjavík hefði undir höndum gassprengjur og að þær birgðir væru endurný- jaðar reglulega. Hann vildi hins vegar ekki gefa neitt upp um hvaða tegundir gass væru í notk- un hér á landi. Böðvar sagði að vopnabúr lögreglunnar hér á landi væri með „hefðbundnum hætti“ og hefði lítið breyst í áranna rás. „Ég hef aldrei gefið upplýsingar um hvað við erum með undir höndum en það er ljóst að við höfum skotvopn og ég get ekki sagt þér neitt nánar um það.“ Aðspurður um hvort lög- reglan gæti haft aðgang að öllum þeim skotvopnum sem hún hefur gert upptæk í gegnum árin, sagði Böðvar að svo væri ekki. „Þau vopn eru í alls kyns ásigkomulagi og við notum þau ekki. Það væri miklu frekar að við þyrftum að losa okkur við þetta safn.“ Lögreglustjóri sagði að auðvit- að fylgdist lögreglan með tækni- nýjungum á þessu sviði. „Við fáum send fagtímarit af ýmsu tagi, þar sem sífellt er verið að bjóða fram ný tól og tæki, en ég held að það sé óhætt að segja að við höfum ekki staðið fyrir neinum nýjungum á því sviði hér á landi.“ Böðvar vildi ekki tjá sig neitt um þá lögreglumenn sem ganga um vopnaðir á vegum utanríkis- ráðuneytisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þeir tilheyrðu hon- um ekki. Víkingasveitin lyti hins vegar hans yfirstjórn og væri sér- þjálfuð í vopnaburði. „Það til- heyrir þeirra þjálfun. Það er erfitt að alhæfa um hvort við leggjum allt okkar traust á Víkinga- sveitina. Almennir lögreglumenn fá einnig þjálfun í vopnaburði, en við værum varla að hafa þessa sveit ef við ætluðum henni ekki oddaaðstöðu ef til einhverra at- burða kynni að draga.“ í annarri grein reglna um með- ferð og notkun lögreglumanna á skotvopnum segir að lögreglu- stjórar geti í samráði við dóms- málaráðuneytið „gefið fyrirmæli um að allir skuli vopnast, sem lögregluvald hafa.“ Sagðist Böðvar hafa skilið þessa klausu þannig að hér væri átt við að lög- reglustjórar þyrftu að ráðfæra sig við dómsmálaráðherra sjálfan. „Það hefur nú aldrei á þetta ákvæði reynt, svo ég tel ekki rétt að velta því fyrir sér hvenær ætti að grípa til þessarar heimildar. En ætli við verðum ekki að ætla að það væri við mjög alvarleg til- felli, þegar öryggi ríkisins væri ógnað eða einhverjir mjög vá- legir atburðir ættu sér stað. Það þyrfti í öllu falli æði mikið til,“ sagði Böðvar Bragason lögreglu- stjóri. -phh „Natóslagurinn" 30. mars 1949. (Mynd og myndatexti úr afmælisriti Lögreglublaðsins) Úr reglugerö „um meöferð og notkun lög- reglumanna á skotvopnum, o.f l.“ undirrit aöri af Jóni Helgasyni, sem dómsmálaráðherra 22. maí 1987. myndatexti úr afmælisriti Lögreglu- blaðsins) „Tegundir skotvopna. 1 .gr.: „Dómsmálaráðuneytið ákveður notkun neðangreindra vopna hjá lögreglu samkvæmt þessum reglum. Skotvopn: Skammbyssa (bæði revolver og pístóla), haglabyssa, vélbyssa, riffill. Sprengivopn: sprengiefni. Gasvopn: Gasbyssa, gas- og reyksprengjur. Barefli: Langar kylfur og rafmagnskylfur.“ Hér að ofan eiga að vera tilgreind öll vopn sem lögreglan má nota, en að auki notar lögreglan hina hefðbundnu stuttu kylfu. „Notkun vopna. 6.gr. Skotvopni má því aðeins beita gegn manni, að önnur úrr- æði séu ekki tiltæk í því skyni að: a) koma í veg fyrir alvarlegt of- beldi gegn fólki, eða að verulegu tjóni sé valdið á þjóðfélagslega mikilvægum stofnunum, rekstri eða starfsemi. b): verjast lífs- hættulegri árás við löglega fram- kvæmd skyldustarfa. c): yfirbuga afbrotamenn sem teljast hættu- legir lífi fólks.“ ,,9.gr. Sprengiefni má aðeins nota þegar skilyrði í 6. gr. eru til staðar og þar að auki telst nauðsynlegt að brjóta sér leið inn í aflokað, eða læst herbergi, til að fjarlægja verulega hindrun, sem stendur í vegi fyrir því að lög- reglumaður geti leyst verkefni sitt.“ „10.gr. Gasvopn má aðeins nota þegar skilyrði skv. 6. gr. eru til staðar eða í öðrum tilvikum, þegar leyfi lögreglustjórans er fyrir hendi.“ „11. gr. Langa kylfu má nota með þeim skilyrðum sem nefnd eru í 6. gr. eða í hópverkefni eða til að dreifa mannfjölda. Sama gildir um rafmagnskylfu.“ -phh Föstudagur 13. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.