Þjóðviljinn - 13.01.1989, Page 8

Þjóðviljinn - 13.01.1989, Page 8
ERLENDAR FRETTIR Vestur-Pýskaland Heimulleikur í heimilistölvum Nýnasistar leita nýrra leiða í áróðri sínum og taka tölvutæknina í þjónustu sína Nasistaáróður berst í stríðum straumum til vesturþýsks æskulýðs um heimilistölvur og yfirvöld fá ekki rönd við reist. Forrit með tölvuleikjum þar sem allt ber að sama brunni nasískrar kynþáttafyrirlitningar og þjóð- rembu breiðast ört út. Leikjaforritunum er dreift um svonefndar rafpóstbrautir eða að þeir eru afritaðir disklinga á milli og ganga síðan frá manni til manns. Þátttakendur eru látnir spreyta sig í spurningakeppnum og fær sá flest stig sem hlynntastur er Adolf Hitler, for- dómum hans og fordæmi, lof- syngur „þýskan anda“ af mestri rausn. Ennfremur er hægt að keppa í gyðinga- og Tyrkjadrápi og svala öðrum miður geðþekk- um fýsnum í arískum anda. Velsæmisvarðmenn sam- bandsstjórnarinnar í Bonn hafa til skamms tíma eytt kröftum sín- um í að uppræta klám og ofbeldi í les- og skjárefni unglinga. Og orðið nokkuð ágengt. Nú hafa þeir hinsvegar gengið á hólm við ísmeygilegri fjanda en ennþá ekki haft erindi sem erfiði. Allt er þetta illt til afspurnar. Sálardraugar vekjast upp æ ofaní æ og herða á samviskukvölum málsmetandi Þjóðverja. Nasism- inn og helförin eru sem kunnugt er enn opin holundarsár á þýsk- um þjóðarkroppi. „Fjörutíu árum eftir að við stóðum yfir höfuðsvörðum nas- ismans verðum við vitni að því að viðurstyggilegum stormsveita- slagorðum er dreift á meðal ung- menna fyrir vélabrögð nýjustu tækni,“ segir Rudolf Stefen, oddviti þeirrar stofnunar sam- bandsstjórnarinnar sem fylgist með framboði á tortímandi og mannskemmandi afþreyingar- efni á vesturþýskum markaði (BPS). Þótt enn sjáist þess engin merki að áróðurinn hrífi og setjist um kyrrt í æskunni er Stefen ugg- andi. Ungt fólk er áhrifagjarnt og lengi býr að fyrstu gerð. „Það er lífsspursmál fyrir nýnasismann að fá hljómgrunn hjá yngstu kyn- slóðinni á ný óg nú hafa fylgis- menn hans dottið niður á þessa leið til þess. Það er í senn ömur- legt, dapurlegt og hættulegt." Það er alkunna að hverskonar nasistaáróður varðar við hegn- ingarlög í Vestur-Þýskalandi svo sem útbreiðsla hugmynda um „yfirburði germanska kyn- stofnsins" og ytri tákna á borð við hakakrossa. Ennfremur telst það opinberlega til glæpa að rógbera kynþætti og þjóðir. En illa gengur að koma lögum yfir forsprakka tölvunasismans. BPS hefur gert upptæka disklinga með 24 „leikjum“, starfsmenn stofnunarinnar hafa öll spjót úti í leit sinni og hafa fengið kennara og leyniþjónustumenn sem gát hafa á þekktum nýnasistum til liðs við sig. An árangurs. Nöfn „leikjanna" sem BPS hefur komist yfir gefa til kynna á hvaða nótum þeir eru. „And- Tyrkjaprófið“, „Hreinsum Þýskaland" og „Nasistinn" svo fáein séu tíunduð. Hakakrossar veídlcehhun NU ER LAG AÐ FA SER FYRSTA FLOKKS SÆNSKA ÞVOTTAVÉL Á LÆGRA VERÐI: VEGNA VÖRUGJALDS- LÆKKUNAR - OG ENN Á GAMLA GENGINU Sænshu Cylinda þvottavélarnar hafa fengið frábœra dóma í neytendaprófum á kröfuhörbustu mörkubum Evrópu. Þú getur valib um framhlabnar eba topphlabnar Cylinda vélar. Þœr topp- hlöbnu spara gólfpláss og ekki þarf ab bogra vib þvottin. Cylinda nafnib er try gging fy rir fyrsta flokks vöru og sannkallabri maraþonendingu. Cylínda ÞVOTTAVÉIAR - UPPÞVOTTAVÉIAR TAUÞURRKARAR þegar að.eins það besta er nógu gott /rOniX HÁTÚNI 6A SÍMI (91124420 Börn í Auschwitz. leiftra á skjánum og tölvan tónar eftirlætis marsa foringjans sá- luga. I „Nasistanum“ er einskonar krossapróf með 21 staðhæfingu og þrem svarmöguleikum. Tölv- an gerir síðan „fyndnar" athuga- semdir við sérhvert svar. Dæmi: „Félagi þinn kallar þig gyð- ingabelju. Hvernig bregstu við? a) Ég fyrirgef honum. b) Ég skýt helvítis svínið til bana. c) Ég læt sem ég hafi ekki heyrt hvað hann sagði.“ Síðan koma athugasemdir „Nasistans": ,,a) Þjóðníðingur? Nei, það skal aldrei verða! b) Þetta er afar þýsk lausn! c) Huglausa júðarottan þin! Annar „leikur" er fólginn í því að safna stigum. Því fleiri gyðinga til Auschwitz, því fleiri stig. Því fleiri slava til Maidanek, því fleiri stig! Reuter/-ks. Palestína Landnemar rísa upp Israelskir hermenn skutu 11 ára dreng til bana ígœr. Shamír verður fyrir aðkasti landnema vareiðir landnemar af gyð- ingaættum gerðu hróp og harða hríð að Yitzhak Shamír, forsætisráðherra ísraels, í bæn- um Bracha á hernámssvæðinu vestan Jórdanar í gær. Var hann þar viðstaddur minningarathöfn um tvo ísraelsmenn sem féllu fyrir hendi Palestínumanna. Landnemarnir hafa horn í síðu meintrar undanlátssemi Shamírs gagnvart Palestínumönnum og hafa efnt til verkfalla. í gær gerðist það ennfremur að Palestínumaður, fórnarlamb hernámsliðsins, lést af sárum sín- um á sjúkrahúsi í bænum Tulk- arm. Hann hét Marwan Mumt- her al-Madni. Hann særðist í átökum við ísraelsmenn á nýárs- dag. Þegar menn spurðu lát hans þyrptust þeir út á götu og innan skamms skarst í odda með þeim og dátum. Skotum var hleypt af og í götuna féll 11 ára gamall drengur, örendur. Að minnsta kosti 8 menn særðust. En víkjum nú aftur að hinum harmi lostnu en herskáu land- nemum. Það fór aldrei svo að þeir drægju ekki dám af baráttu- glöðum erkifjendum sínum og grönnum, burðarásum íntíföd- unnar! íbúar 32 landnámsbyggða lögðu niður vinnu í gær. Þeir lok- uðu skólum, vinnustöðum og verslunum og reyndu að hindra ökutæki sern leið áttu um vegi í og við byggðirnar. Allt í mótmæla- skyni vegna þess að stjórnvöldum í Jerúsalem og hernámsyfirvöld- um hefur enn ekki tekist að brjóta uppreisn og mótþróa Pal- estínumanna á bak aftur. Shamír setti dreyrrauðan undir ákúrum heimamanna við athöfn- ina í gær. „Þú berð ábyrgð á þessu,“ hrópaði einn. „Hefnd, hefnd, hefnd!“ hrópaði annar. Forsætisráðherrann reyndi að réttlæta gjörðir sínar: „Borgara- styrjöld er allra skaði“. Það dugði skammt og neyddist hann í tví- gang til þess að gera hlé á ræðu sinni vegna glannalegra framí- kalla. Hermt er að hann hafi ver- ið áberandi taugaóstyrkur undir ræðu landnemans, hægri öfga- mannsins og eftirlaunaherfor- ingjans Rehavams Zeevis. Var gerður góður rómur að máli Zee- vis enda lét hann þung orð falla í garð „undansláttarmanna". Reuter/-ks 8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 13. janúar 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.