Þjóðviljinn - 13.01.1989, Blaðsíða 26
,-26 v-115 GK
7— í 3 T~ 6S z— T— 2 52 =3 «7 31— 3 /O
TT /'Z ty TT~ M /Ý If 6 l(p W~ W~ T
IT~ W~ %f\ 6" /r ~S~ /7 52 3 /z /b 20 T-
br 10 \(r 52 S /( 7- / /r 5? IÝ 2jD 12 7
/í? Ý Ilt 7 \<y /Ý 52 7 7 V S 7- V
52 2 2 7 ) )Ý s? 18 7 V 23 * 7
27- 21 1? ' V' sy 13 Jg 7 )0 H , w~ ie )f
S2 H Ý /0 V r Zl )0 w 2 J 3 V 10 Z£ TT
l<i 52 18 II \0 )Ý 52 5* )Ý /3 W~ 52 8 3
I? ÍÝ /b lio 1 52 V- 23 52 20 T * y J?
7 52 Z<* 1 ts> lo iý )( & T5 /O VD )1 7”
10 2* Ý 52 S 0 ) , V 22 )Ý 52 T 3/ 52
52 i /T 7 52 ÍT /Ý / 10 52 20 H /f
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verölaunakrossgáta Nr. 26
Setjiö rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kvenmanns-
nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla 6 merkt: „Krossgáta nr. 26“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
27 )8 7 21 22 2 30 /l
■ÍSaíui Itator Stoonaram
iangur
Lausnaroröið fyrir verðlaunakrossgátu nr. 23 var DJÚPIVOGUR.
Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Fríðu B. Andersen,
Sólheimum 25, Reykjavík. Hún fær senda sjálfsævisögu Alec Guinn-
es, Lán í óláni.
Verðlaunin fyrir krossgátu nr.
26 er hin stórskemmtilega
unglingabók Ólafs Hauks
Símonarsonar, Gauragangur.
Útgefandi er Mál og Menning.
MATUR
Sari Ohyama
T empúra
Djúpsteiktur réttur að japönskum sið
Japönsk matargerðarlist er að
mörgu leyti sérstök. Mikil áhersla er
lögð á útlit matarins, sem er fram-
reiddur, og mikill tími fer í elda-
mennskuna. Á undanförnum árum
hafa japanskir veitingastaðir sprottið
upp í öllum helstu stórborgum á Vest-
urlöndum þótt enn sé enginn hér á
landi. Þeir bjóða meðal annars upp á
hráan fisk og jafnvel hrátt hvalkjöt
eða hrossakjöt sem mörgum Jap-
önum finnst herramannsmatur. Vest-
urlandabúum, sem ekki treysta sér í
hrámetið, er hins vegar ráðlegt að
byrja kynni sín af japanskri matar-
gerðarlist með tempúra, sem er búið
til með því að djúpsteikja ýmiss konar
grænmeti og fisk upp á japanska vísu.
Tempúra
Fjögurra manna skammtur
Djúpsteikingardeig:
1 egg
Vi bolli af köldu vatni
1 bolli af hveiti
150-200 g af fiskmeti og grænmeti á
hvern mann: Til dæmis: karfi,
steinbítur, skötuselur, humar, gul-
rætur, grænn pipar, laukur, sætar
kartöflur, eggaldin, strengjabaunir
og flest annað grænmetis- og sjávar-
kyns sem hönd á festir, nema hvað
ýsa er helst til laus í sér til að nota
hana í tempúra. Kjötætur geta líka
prófað að nota skinku.
Tempúrasósa:
Hún fæst núorðið í helstu stórverslun-
um. Sé hún ófáanleg í einhverjum af-
skekktum sveitaverslunum eða
kaupfélagsbúðum, má búa til sósu úr
Va bolla sake (japanskt hrísgrjónavín)
hálfri teskeið af sykri eða tæplega
það, 1 bolla súpukraft og V* bolla af
soyasósu.
Krydd:
6 matskeiðar af rifinni næpu (radísu)
eða mauk, og ein matskeið af rifini
engiferrót, sem þó er ekki nauðsyn-
legt ef það passar ekki við bragð-
laukana.
1.
Skerið fiskinn niður í stóra munnbita
(5-6 cm langa) og takið höfuð og skel
af humarnum en skiljið halann eftir.
Sneiðið grænmeti eins og lauk, egg-
aldin og sætar kartöflur í góðar
sneiðar, en takið tvær, þrjár strengja-
baunir og stingið saman í deigið,
skerið gulrætur í margar mjóar ræmur
sem er stungið mörgum saman í
deigið.
2.
Búið deigið til rétt áður en byrjað er
að elda. Þeytið eggið, bætið síðan
vatninu og hveitinu út í öllu í einu.
Hrærið rækilega með matarprjónum
en þó ekki svo mikið að deigið
þeytist.
3.
Hitið steikingarolíu (t.d. sojaolíu) í
djúpri pönnu eða djúpsteikingarpotti
upp í góðan steikingarhita (um 370
gráður Celcíus). Takið fiskbitana og
grænmetið með löngum matarprjón-
um, veltið þeim upp úr deiginu og
stingið í sjóðandi olíuna. Gætið þess
að djúpsteikja ekki of marga bita í
einu, því að þá lækkar hitastigið. Snú-
ið bitunum svo að þeir steikist jafnt;
takið þá upp þegar ytra borð þeirra er
orðið stökkt og gætið þess að of-
steikja þá ekki. Best er að byrja að
borða á meðan enn er verið að
steikja.
4.
Best er að nota tilbúna tempúrasósu
(en annars er sakeið soðið og sykrin-
um, súpukraftinu og sojasósunni
blandað síðan saman við).
Hellið tempúrasósunni í skálar hjá
hverjum matargesti og blandið næpu-
rifinu við hana ásamt engiferrótinni
fyrir þá sem það vilja.
5.
Setjið djúpsteiktu bitana á disk með
servíettu eða öðrum pappír, sem
sígur vel í sig olíuna, Matargestirnir
taka svo bitana með matarprjónum
og dýfa í tempúrasósuna með næpu-
raspinu áður en þeir stinga þeim upp í
sig.
Að sjálfsögðu fer best á því að
drekka heitt sake með þessu úr litlum
staupum (það má samt ekki vera
sjóðandi heitt þar sem þá gufar áfeng-
ið upp úr því. Hitinn er hæfilegur ef
sakeflaska er hituð með því að láta
hana standa undir rennandi hitaveitu-
vatni).
Og svo má ekki gleyma að borða
stóran skammt af hrísgrjónum.
Sari Ohyama er japönsk kona, búsett
hér á íslandi. Hún stundaði nám í
Peking á áttunda áratugnum og
kynntist þar íslcnskum eiginmanni
sínum, Ragnari Baldurssyni.
DRAUMSTAFIR
Þeir dreymendur sem vilja fá drauma sína ráðna sendi
, þá ásamt fullu nafni, heimilisfangi og dulnafni til
KRISTJAN blaðsins merkt: Draumstafir, Nýtt helgarblað, Þjóð-
FRÍMANN viljinn, Síðumúla 6, 108 Reykjavík.
Draumminni
Einn af töfrum draumalands-
ins er sá að þig dreymir draum,
þú manst drauminn, þú spáir í
drauminn um stund en lætur
hann svo fljóta í óminnishafið.
Þegar svo táknmyndir draumsins
verða að veruleika, tekur þú
venjulega ekki eftir neinu en
þó...? Þú staldrar við og þér
finnst eitt augnablik eins og þú
hafir verið hér áður, að þú hafir
gert svipað áður, lent í svipuðu og
kannist við andlit. Draumurinn
rætist án þinnar vitundar, er án
þinnar vitundar og var allan tím-
ann í næsta herbergi, eins og...
Draumur Snjólfs
Ég er að fara ásamt vini mínum
A að hitta mann. Við komum inn
í stóran gamaldags sal eða gang,
breiðan með mörgum hurðum. A
gekk að einni hurðinni.opnaði
hana og gekk inn og upp tréstiga
sem brakaði í og kom ég í humátt
á eftir. Uppi situr „Spámaður“
sem ég þekkti, því ég hafði hitt
hann árið áður. Ég varð hræddur
um að hann þekkti mig og lét því
fara lítið fyrir mér. A fór til „Spá-
mannsins" og einhvers vinar hans
sem hjá honum var. Upphófust
nú miklar hvíslingar sem þróuð-
ust í rifrildi uns A öskraði, „Nei,
þú lýgur, segðu að það sé ekki
satt!“, sfðan ræðst hún á „Spá-
manninn". Ég hugsa með mér að
þetta hljóti að vera í sambandi
við brotnu línuna en líflína A er
raunverulega brotin. í því kemur
A fram með þjósti og við förum.
Næst erum við úti og það er
dimmt og eyðilegt, að okkur
koma menn sem litu út eins og
rússneskir bændur í byrjun aldar-
innar, mjög framandlegir, dökkir
yfirlitum og skeggjaðir. Þeir voru
í herbíl með palli, er þeir komu
nær, réðust þeir skyndilega að
okkur og börðu okkur í klessu.
Einn þeirra tróð putta upp í
augað á mér og reif það út með
snöggu átaki, ég fann ekki til en
fannst augnmissirinn slæmur.
Síðan lokuðu þeir okkur inni í
malbikuðum neðanjarðargöng-
um. í göngunum voru skólafé-
iagar mínir, þar á meðal einn sem
fór í taugarnar á mér (og fer) en
hann var mjög góður við mig og
vildi sofa hjá mér.
Ráðning
Þessi draumur er einn af þess-
um draumum sem reyna að villa á
sér heimildir til að ekki vitnist um
raunverulegan tilgang, undirvit-
undin reynir að blekkja yfirvit-
undina með léttvægu hjali, því
hver vill kannast við óhreinu
börnin? Ekki Eva. Snjólfur
minn, þessi draumur þinn er for-
tíð þín í hrjúfum dráttum, eða
fyrra tilverustig sálar þinnar, þar
virðist þú hafa átt erfitt uppdrátt-
ar, þurft að þreyja þorrann og
góuna meðal þröngsýnna og illa
upplýstra manna. Allar tilraunir
þínar til að breyta stöðnuðum
lífsháttum voru brotnar á bak aft-
ur og lífsandi þinn og framfarasýn
kirfilega læstur í forpokuðum tíð-
aranda. Þessi minni virðast koma
til þín þegar eitthvað bjátar á og
eru ekki til að bæta geðið, en til
þess að öðlast þá visku og þann
vísdóm sem við þreifum eftir, er
nauðsyn að kafa í brunn fortíðar
þó þar leynist bítandi hættur.
Sálfræðinám er góður kostur en
ekki jiauðsynlegur.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 13. janúar 1989