Þjóðviljinn - 17.03.1989, Síða 8
ERLENDAR FRETTIR
Gíslar í Líbanon
Vonir dvína
Deilur um bók Rushdies draga úr líkum á að
þeir verði látnir lausir
Talið er að 17 Vesturlanda-
menn, þar af tíu Bandaríkja-
menn, séu í haldi í Líbanon hjá
ýmsum hópum ofstækistrúaðra
sjíta í tengslum við íran. Vonir,
sem vaknað höfðu um að gíslar
þessir yrðu látnir lausir innan
skamms, hafa nú dvínað vegna
versnandi samskipta írans og
Vesturlanda út af deilunum
kringum Salman rithöfund Rush-
die og bók hans, sem margir mús-
límar fordæma sem guðlast.
Eftir að stríði frans og fraks
lauk gætti þíðu nokkurrar í sam-
skiptum fyrrnefnda ríkisins og
Vesturlanda og á bakvið tjöldin
hófust samningaumleitanir, sem
um síðir leiddu til þess að veru-
legar líkur virtust orðnar á því að
gíslarnir yrðu fljótlega látnir
lausir. En eftir að óstandið hófst
kringum bók Rushdies kipptu
talsmenn hópa þeirra, sem hafa
gíslana í haldi, að sér hendinni
með þetta, enda eru téðir hópar
eindregið á bandi írans í málinu.
Sá gíslanna 17 er lengst hefur
verið í haldi umræddra mannræn-
ingja er Terry Anderson, 41 árs
að aidri, frá Ohio í Bandaríkjun-
um. Hann starfaði í Beirút sem
aðalfréttamaður fréttastofunnar
Associated Press og var numinn á
brott af þremur vopnuðum
mönnum í Vestur-Beirút 16.
mars 1985. Hann hefur því verið
fangi mannræningja þessara, sem
opinberlega nefnast íslamskt Ji-
had (heilagt stríð), í fjögur ár.
Skömmu eftir að honum var rænt
fæddist dóttir, sem hann á með
líbanskri konu, en það barn sitt
hefur hann aldrei séð.
Síðustu fréttirnar af Anderson
komu með myndbandi, sem
mannræningjarnir sendu frá sér í
okt. s.l. Á því segist hann eiga
erfitt með að viðhalda von og
hugrekki. Óttast hefur verið að
líbönsku mannræningjarnir hefni
sín út af Rushdie með því að
myrða gíslana, en enn sem komið
er bendir ekkert til þess að af því
hafi orðið.
Reuter/-dþ.
Anderson skömmu áður en honum var rænt og á myndbandi frá
mannræningjum (innfellda myndin) eftir nærri fjögurra ára vist í klóm
þeirra.
Evrópubandalag
Áhugj á
Austur-Evrópu
Jacques Delors, forseti stjórn-
arnefndar Evrópubandalagsins,
sagði í gær á Evrópuþingi í
Strassbúrg, að bandalagið ætti að
gefa umbúðalaust til kynna að
það óskaði eftir nánari sambönd-
um við Austur-Evrópuríki. EB
ætti að láta í Ijós að það hefði
„ekki einungis áhuga á EFTA-
ríkjum, heldur og á Evrópu
allri,“ mælti Delors.
Honum fórust ennfremur við
þetta tækifæri orð á þá leið, að
ekkert ætti að vera því til fyrir-
stöðu að Austur-Evrópuríki þau,
sem virtu grundvallarmannrétt-
indi, kæmust í nánari sambönd
við EB. Haft er eftir stjórnarn-
efndarmönnum að Delors sé það
kappsmál að koma á auknum
tengslum milli EB annarsvegar
og hinsvegar annarra Evrópur-
íkja.
Reuter/-dþ.
Islamsráðstefna
Stjóm mujahideen viðurkennd
Samþykkt gegn bók Rushdies, en drápskipun ekki studd
Utanríkisráðhcrrar íslamsríkja
samþykktu í gær á fundi Is-
lömsku ráðstefnustofnunarinnar
(Islamic Conference Organisati-
on, ICO) í Riyadh, höfuðborg
Saúdi-Arabíu, að samtök þessi,
er 46 íslömsk ríki eiga aðiid að,
skyldu veita bráðabirgðaríkis-
stjórn afganskra mujahideen
viðurkenningu sína og jafnframt
aðild að samtökunum, en Afgan-
istan hefur verið utan þeirra frá
því að Sovétmenn sendu her inn í
landið 1979.
Hingað tii hafa aðeins þrjú
ríki, Saúdi-Arabía, Bahrain og
Ævilengd Bandaríkjamanna
Hvrtir lifa lengur
- svarb'r skemur
Dauðsföllum afvöldum hjartasjúkdómafœkkar. Morð og eyðnistytta
meðallífslengd blökkumanna
Súdan, viðurkennt stjórn muja-
hideen, en þeir gera sér vonir um
að viðurkenningu ICO fylgi fljót-
lega formleg viðurkenning ann-
arra aðildarríkja samtakanna.
Utanríkisráðherrar Sýrlands og
Suður-Jemens voru þeir einu á
fundinum, er létu í ljós efasemdir
um viðurkenninguna, og þessi
ríki auk íraks og Frelsissamtaka
Palestínu (PLO) munu hafa setið
hjá við atkvæðagreiðsluna. Mu-
jahideen telja úrslit hennar mik-
inn sigur fyrir sig og eru trúaðir á
að þetta muni stórum auka virð-
ingu stjórnar þeirra í augum al-
mennings í Afganistan.
Þessi ráðstefna ICO samþykkti
einnig í gær áskorun til útgefenda
Salmans Rushdie rithöfundar um
að taka bók hans Kölskavers úr
umferð og hvetur íslömsk ríki til
að setja bann á öll viðskipti við
útgefendurna, taki þeir ekki á-
skorunina til greina. Bókin er
harðlega fordæmd í þessari sam-
þykkt ráðstefnunnar og kveðið
svo að orði um höfund hennar,
sem er íslamskrar ættar, að hann
sé genginn af trúnni. En tilmæl-
um írans um að önnur íslamsríki
tækju undir drápsfyrirskipun
Khomeinis erkiklerks gegn
Rushdie og útgefendum hans var
hafnað.
Reuter/-dþ.
Samkvæmt bandarískum hag-
skýrslum fer meðalævilengdin
þarlendis hækkandi, en meðal-
ævilengd blökkumanna er undir
því sem er hjá hvítum löndum
þeirra og fer lækkandi. Reiknað
hefur verið út að Bandaríkja-
menn þeir, sem fæddust 1986,
verði að meðaitaii 74 ára og átta
mánaða gamlir. Talið er að
landar þeirra, sem fæddust árið
áður, verði að meðaltali fimm
vikum skammlífari.
Blökkumenn þeir, sem fædd-
ust í Bandaríkjunum 1986, verða
hinsvegar að sætta sig við að ná
ekki nema 69 ára og fjögurra
mánaða aldri að meðaltali, ef rétt
hefur verið út reiknað. Verða
þeir að jafnaði fimm vikum
skammlífari en bandarískir
blökkumenn fæddir 1985. Hvítir
Bandaríkjamenn fæddir 1986
verða að jafnaði 75 ára og fjög-
urra mánaða gamlir, samkvæmt
hagskýrslunum.
Meðallxfslengd Bandaríkja-
manna hefur farið hækkandi, en
1985 og 1986 hefur komið aftur-
kippur í þá þróun hvað blökku-
menn varðar. Heilbrigðismála-
ráðuneyti Bandaríkjanna telur,
að hækkandi meðallífslengd stafi
fyrst og fremst af fækkandi
dauðsföllum af völdum hjarta-
sjúkdóma og slags á tímabilinu
1970-86, en lækkandi meðallífs-
lengd blökkumanna stafi einkum
af meiri tíðni morða og dauðs-
falla af völdum eyðni þeirra á
meðal.
Reuter/-dþ.
Cheney fær
blessun
hermálanefndar
Hermálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings lýsti í gær yfir
eindregnum stuðningi við útnefn-
ingu Dicks Cheney, fulltrúa-
deildarþingmanns frá Wyoming, í
embætti varnarmálaráðherra.
Bush forseti útnefndi Cheney til
embættisins eftir að öldunga-
deildin hafði hafnað John Tower.
Útnefningin fer nú fyrir öldunga-
deildina og er ekki búist við öðru
en að hún staðfesti úrskurð
hermálanefndar. Cheney, repú-
blíkani í íhaldssamara lagi, er
ekki talinn vera neinn sérfræð-
ingur um hermál, en kvað hafa
orð á sér fyrir raunsæi og góða
stjórnunarhæfileika.
Reuter/-dþ.
Koskotas bankastjóri - hneykslið
kringum hann ógnar stöðu Pap-
andreou.
Gríska
stjómin
segir af sér
Gríska ríkisstjórnin sagði af sér
í gær að tilmælum Andreasar
Papandreou, forsætisráðherra.
Hyggst hann mynda í staðinn
stjórn að miklu leyti skipaða nýj-
um ráðherrum, í von um að geta
þannig aflað sér og flokki sínum,
Panhellensku sósíalistahreyfing-
unni, trausts á ný. Papandreou og
stjórn hans hafa undanfarið orðið
fyrir miklum álitshnekki vegna
kvennamála forsætisráðherrans
og þó einkum sambanda háttsett-
ra manna í flokki hans við Kosk-
otas nokkurn bankastjóra, sem
sakaður er um stórfelld fjársvik.
Reuter/-dþ.
8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. mars 1989
Þingmenn 24 ríkja
fordæma drápsskipun
Þingmenn 24 vestrænna ríkja, sem þessa dagana sitja ráðstefnu
Alþjóðlega þingmannasambandsins (Interparliamentary Union, IPU) í
Búdapest, fordæmdu í gær hvatningar til að ráða af dögum Salman
rithöfund Rushdie. Er komist svo að orði í yfirlýsingu þingmannanna,
að slíkar hvatningar til morðs séu brot á grundvallarreglum um
skoðana- og tjáningarfrelsi.
Hinsvegar segir í yfirlýsingunni, að viðurkennast verði að bók Rush-
dies hafi snortið marga í íslamska heiminum mjög illa. Yfir 100 ríki eru í
IPU og er íran eitt þeirra. Sambandið hefur fyrir meginmarkmið að
vinna að eflingu friðar og þingræðis. Yfirstandandi ráðstefna er öðrum
þræði haldin í tilefni aldarafmælis þess.
Fangelsaðir fyrir
stuðning við Kúrda
Tyrkneskur dómstóll dæmdi nýverið sex blaðamenn til sex ára og
þriggja mánaða fangelsisvistar hvern eftir að þeir höfðu verið bornir
sökum um að dreifa kúrdneskum áróðri. Þeir eru sagðir hafa starfað
við vinstrisinnuð vikurit og hlynntir Kúrdneska verkamannaflokknum,
sem þekktur er undir skammstöfuninni PKK og hefur marxíska stefnu-
skrá. PKK berst fyrir sjálfstjórn fyrir tyrkneska Kúrdistan, þar sem um
helmingur kúrdnesku þjóðarinnar býr, og síðan 1984 hafa yfir 1300
manns fallið í skærum milli skæruliða á vegum flokksins og hers og
lögreglu Tyrkja.
Mæður fasta
Þrjár franskar konur og ein bresk, sem undanfarna daga hafa fastað
á Orlyflugvelli við París, hafa hætt föstunni þar, en sú breska, Margar-
et Ward að nafni, segist ætla að hefja föstu í staðinn á Heathrowflug-
velli við Lundúnaborg. Konurnar fjórar eiga það sameiginlegt að vera
fyrryerandi eiginkonur Alsíringa, sem eftir skilnaðinn tóku börn þau, er
í hjónaböndunum höfðu fæðst, með sér til Alsír að mæðrunum forn-
spurðum og hafa þær ekkert samband fengið að hafa við þau síðan.
Konurnar reyna með föstunni að knýja stjórnvöld landa sinna til að-
gerða í málunum. Mál af þessu tagi hafa oft komið upp undanfarið í
vesturevrópskum löndum, með fjölgandi hjónaböndum og skilnuðum
innfæddra kvenna og íslamskra karlmanna.
5000 látnir úr
hungri í Mósambik
Næstum 5000 manns hafa dáið úr hungri síðan í janúar í Nampula-
héraði í norðurhluta Mósambiks, að sögn opinberrarfréttastofu lands-
ins. Hungrið stafar bæði af þurrkum og athöfnum skæruliða and-
stæðra stjórnvöldum, sem rekið hafa fjölda sveitafólks af jörðum
sínum. Sagt er að á annað hundrað þúsund manns á þeim slóðum séu
í bráðri hættu af völdum fæðuskorts.
■ Reuter/-dþ.a