Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 30
MYNDLIST SUM á Kjarvalsstöðum, 100 verk e. 15listamenn, opiðdagl. 11-18, lýkur 9.4. Harpa Karlsdóttir sýnirtíu olíumál- verk í andyri Landspítalans (vinstri álmu). Teikningar Rosu Liksom frá Finn- landi í anddyri Norræna hússins, opið 11- 18nemamánud., Iýkur27.3. Snorri Sveinn Friðriksson sýnir vatnslitamyndir í Gallerí Borg opið virka 10-18, helgar 14-18. Nýiistasafnið: Sólveig Aðal- steinsdóttir sýnir skúlptúra úr gifsi, timbri o.fl. og teikningar. Svala Sig- urleifsdóttir sýnir Ijósmyndir í efri sal.Opið virka 16-20, helgar 14-20. Nýhöfn: Gretar Reynisson opnar sýningu á oliumálverkum og teikning- um á laugardag. Opið virka 10-18, helgar14-18. Ragnar Stefánsson opnarsýningu í F.I.M.-salnum í dag kl. 17-20. Á sýn- ingunni eru myndverk úrýmsum efn- um. Opið virka daga 13-18, helgar 14-18. Lýkur 4.4. Elsa Rook frá Svíþjóð sýnir í Gallerí List 24 akrýlverk. Opið dagl. 10.30- 18, sd. 14-18. Listasaf n Einars Jonssonar, opið Id. sd. 13.30-16. Höggmyndagarður- inndagl. 11-17. Listasafn Islands. Salur 1: Jón Stef- ánsson, Jóhannes Kjarval, Gunn- laugur Scheving. Salur2: Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson. Aðrir salir: Nýaðföng. Leiðsögnsd. 15.00. Opið nema mánud. 11-17. Listasaf n Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi, 50 verk Sigurjóns, 14- 17um helgar. Sigurþór Halibjörnsson (Spessi) sýnir á Mokka v/ Skólavörðustíg Ijós- myndir úr ferðum sínum. Gallerí Gangskör, opið þd.-föd. 12- 18, verk gangskörunga til sýnis og sölu. Gallerí Grjót, Sigurður Þórir Sigurðs- son og Kristbergur Pétursson hafa bæst í hóp þeirra sem sýna þar. Opið 12- 18virkadaga. Safn Ásgrims Jónssonar, Berg- staðastræti 74, vatnslitamyndirAs- gríms til maíloka, dagl. 13.30-16 nema mánu- og miðvd. SPRON, Alfabakka 14, Breiðholti, verk eftir Sigurð Þóri Sigurðsson, opið virka 9.15-16 nema föstud. 9.15-18. Lýkur 31.3. Ragnar Lár sýnir 20 „karikatúra" af þekktu fólki í Innrömmun Sigurjóns, Ármúla 22, frá mánud. til föd. Slúnkaríki, Aðalstræti 22 Isafirði: Hreinn Friðfinnsson sýnir nokkur verk unnin á síðustu árum. Opið fimmtud. til sunnud. 16-18. Lýkur2.4. Lars Emil Árnason opnar málverka- sýningu ÍÁsmundarsal, Freyjugötu í dag. Opið virka daga 16-20 um helg- ar14-20. lýkur 27.3. Sigríður Elfa Sigurðardóttir og Cheo Cruz opna málverkasýningu í Bókhlöðunni Akranesi á laugard. Opið 14-20 alla daga. lýkur 27.3. Inga Elín sýnirglerlist í Epal 17.3. til 1.4. Edwin Kaaber sýnir málverk í Bóka- safni Kópavogs. Opið virka daga 10- 21, laugard. 11-14. Katrín H. Ágústsdóttir sýnir vatns- litamyndir í Jónshúsi í Kaupmanna- höfn. Sýningin opnar 22. mars og lýk- ur14. apríl. TÓNLIST Kór Kennaraháskólans í Hafnar- borg, Hafnarfirði, fd. kl. 20.30. Lög eftir íslenska höf. og íslensk þjóðlög auk Ástarvalsa eftir Brahms. Stjórn- andi Jón Karl Einarsson. Undirleikur nem. ítónlistarvali. Gítartónleikar á mánud. kl. 20.30 i íslensku Óperunni í tilefni sextugs- afmælis Gunnars H. Jónssonar kennara. Flytjendur Arnaldur Arnar- son, Einar Kr. Koh og Símon H. Ivars- son. Burtf arartón leikar T ónlistarskólans í Reykjavík sunnud. kl 17 í sal skólans Skipholti 33. Flytjandi Petrea Óskars- dóttir, flautuleikari. Píanóundirleikur Krystyna Cortes og Hrafnhildur Guð- mundsdóttir. Big-band tónleikar á Akureyri og Húsavík. LéttsveitTónmenntaskóla Reykjavíkur undir stjórn Sæbjörns Jónssonar. Akureyri laugard. kl. 17 með Stórsveit Tónlistarskóla Akur- eyrar í Möðruvallakjallara MA. Stjórn- andi Stórsveitar Robert C. Thomas. Sunnud. Húsavík með Léttsveit Húsavíkur kl. 15. Stjórnandi Léttsv. Hús. Keith R. Mile.þ Requlem Mozarts í Kristskirkju föst- ud. kl. 20.30 og laugard. kl. 17. Stjórnandi Úlrik Ólason. Einsöngvar- ar Signý Sæmundsdóttir, Þuríður Baldursdóttir, Jón Þorsteinsson og Guðjón Óskarsson. Konsertmeistari Szymon Kuran, 25 manna kammer- sveit og 70 manna söngsveit. Hvað á að gera um helgina? Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari Ég er á æfingu á laugardagsmorgni og kenni svo seinnipartinn, en ég ætla samt að gefa mér tíma til þess að fara á ljósmyndasýningu í Nýlistasafninu. Um helgina ætla ég bara svona almennt að borða og drekka eitthvað gott og horfa svo á Matador á sunnudagskvöld, en það er hápunktur helgarinnar. eb Frétta- og heimildarmyndir frá So- vét í Mír sd. kl. 16 í tilefni 30 ára af- mælis Félagsins Sovétríkin-Ísland. M.a. mynd frá 1955 af hópi Sovét- manna sem ferðaðist um ísland. Aðg. ókeypis. Hrafnhildur Schram heldurfyrirlest- ur um Júlíönu Sveinsdóttur listmálara sem hún nefnir i leit að einfaldleika í Listasafni (slands Id. kl. 15. Árshátíð Alliance Francaise í Ris- inu Hverf isgötu 105 Id. T ríó Marc Perrone skemmtir. Félagsvist Húnvetningafélagsins Id. kl 15 í Húnabúð Skeifunni 17. ÍÞRÓTTIR Karfa. Úrslitaleikirí Flugleiðadeild. ÍBK-KR. Id. 17.00 í Keflavík og md. 20.00 í Hagaskóla. 1 .d.kv. Id. 14.00 UMFN-lR, sd. 14.00 KR-ÍBK Haga- skóla. 1 .d.ka. föd. 20.00 UBK-UMFL Digranesi, Id. 14.00 UMFS-Reynir, ÚÍA-Víkverji. Badminton. Unglingameistaramót íslandsáAkranesi. Haustbrúður, höf. og leikstj. Þórunn Sigurðardóttir, í Þjlh. laugd. 20.00 Ferðin á heimsenda í lönó Id. sd. 14.00. Brestir á litla sviði Þjlh. Id. 20.30. Háskaleg kynni, Þjlh. föd., sd. 20.00. Síðusta sýningar. Óvitar í Þjlh. Id., sd. 14.00. Sveitasinfónían í Iðnó ld„ sd. 20.30. Herranótt, Tóm ást eftir Sjón föd. og Id kl. 20.30 ÍTjarnarbíói. Síðustu sýn- ingar. Mjallhvít hjá Leikbrúðulandi Fríkir- kjuvegi 11 sd. kl. 15. Síðastasýning. Egg-leikhúsið. Sál mín er hirðfífl í kvöld. Tveir einþáttunaar eftir Micha- el de Ghelderode og Árna Ibsen. Frumsýning Id. Sýningin fer fram í Hlaðvarpanum og í Listasalnum Ný- höfn. Leikstjóri Sveinn Einarsson. Miðasala í Hlaðvarpanum. Emil í Kattholti hjá Leikfélagi Akur- eyrar kl 15 og 18 sd. Allra síðustu sýningar. Hver er hræddur við Virginíu Wo- olf hjá Leikfél. Akureyrar föd. og Id. kl 20.30. HITT OG ÞETTA Félag eldri borgara, opið hús í Tónabæ fellur niður á Id. Dans- kennslan í Nýja dansskólanum Ár- múla 17 Id. frá 14.30-17.30. Opið hús sd. í Goðheimum, Sigtúni 3, spjall, spil og tafl frá 14, dansað 20- 23.30. Opið hús í Tónabæ mánud. frá 13.30, félagsvist frá 14.00. Laugardagsganga Hana nú, lagt af stað 10.00 frá Digranesvegi 12. Sam- vera, súrefni, hreyfing. Ferðafélagið, sd. 1) 10.30 Gullfoss Geysir, 1.400 kr. 2) Bláfjöll- Kleifarvatn, skíðaferð, 800 kr. 3) kl. 13 Skíðagönguferð umhverfis Helga- fell, 600 kr. Útivist, sd. 10.00 Gönguskíðaferð yfir Leggjabrjót, 100 kr. Kl. 13 Land- námsganga, Kléberg-Músarnes. BrottförBSl. Víkingar í Jórvík og Austurvegi, í Norræna húsinu og Þjóðminjasafni, opin dagl. nema mánud. 11-18. Anders Huldén, sendiherra Finna á islandi segirfrá bók sinni Finnska konungsævintýrið 1918 í Norræna húsinu sd. kl. 16.00. Fyrirlesturinn er ásænsku. Rósa Luxemburg eftir Margarethe von T rotta í Kvikmyndaklúbbnum, Regnboganum Id. 15.00 LEIKLIST FJÖLMIÐLAR ÞRÖSTUR HARALDSSON Kreppa hér og þar Ef marka má fréttir ríkir víðar kreppa í fjölmiðlun og blaðaút- gáfu en hér á íslandi. Tvö dönsk dagblöð sem bæði teljast til vinstri kantsins hafa átt í erfið- leikum - af ólíkum toga - og brugðist við þeim með afar ólík- um hætti. Annað þessara blaða er In- formatíon. Um nokkurt skeið hafði blaðið af og til birt fréttir af versnandi afkomu sinni en um áramótin rak það upp rama- kvein, kvaðst vera að fara á haus- inn og spurði lesendur sína hvort þeir og Danmörk gætu komist af án Informatíon. Blaðið er í eigu starfsmanna og eftir að hafa rekið upp veinið hófu þeir herferð til að safna nýju hlutafé. Lesendur og velunnarar blaðsins voru beðnir að skrá sig fyrir hlutum hið snarasta til að koma í veg fyrir lokun blaðsins. Viðbrögðin voru betri en björt- ustu vonir stóðu til og markinu sem sett var náð mun fyrr en reiknað var með. Kreppu blaðs- ins var afstýrt og Informatíon kemur áfrain út, lesendum sínum og dönsku lýðræði til gagns. Hitt blaðið sem á í erfiðleikum er Land & Folk en það hefur ver- ið málgagn danska kommúnista- flokksins (DKP) um langan aldur. DKP hefur frá stofnun fylgt Sovétríkjunum að málum í gegnum þykkt og þunnt. Flokk- urinn átti duglega forystumenn sem tryggðu honum þingsæti allt fram til 1978. Þá datt DKP út af þingi og síðan hefur leiðin legið niður á við. Fylgið hrundi af flokknum, efnilegir forystumenn leituðu á önnur mið og blaðinu hnignaði, bæði efni og út- breiðslu. Eftir sat í forystu flokks og blaðs hópur staðnaðra pólitík- usa sem danskt tímarit nefndi Stalínsklúbbinn. En svo kom glasnost í Sovét og fyrir tveimur árum bar flokkur- inn gæfu til þess að kjósa ungan mann úr verkalýðshreyfingunni til formennsku. Hann boðaði nýja tíma og á árlegri útihátíð Land & Folk í Kaupmannahöfn í fyrrasumar voru boðaðar miklar breytingar á útgáfunni. Því var lýst yfir að hér eftir myndi blaðið leitast við að höfða til alls danska vinstrivængsins. Þetta gekk eftir. Útliti blaðsins var gerbreytt, það lifnaði verulega við og var ófeim-, ið við að skýra frá átökum í DKP og Sovétríkjunum sem og annars staðar. Ráðist var í söfnun nýrra áskrifenda og bar hún þann ár- angur að þeim fjölgaði úr 5.800 í 7.200 eða um fjórðung á hálfu ári. En þá fór að slá í bakseglin. Stjórn blaðsins var skipuð fimm mönnum og töldust tveir til Stal- ínsklúbbsins en þrír til „endur- nýjunarsinna“. I þessari stjórn hafði verið deilt um margt, td. hvort eingöngu ætti að ráða flokksfélaga til starfa á ritstjórn og hversu langt ætti að ganga í frásögnum af umræðum í stjórn- arstofnunum DKP. Þann 1. fe- brúar gafst einn nýju mannanna upp og þá voru jafnmargir úr hvorum armi eftir í stjórninni. í næstliðinni viku sögðu hinir endurnýjunarsinnarnir sig úr stjórninni svo þar sitja nú bara tveir menn, báðir fulltrúar gömlu flokkshefðarinnar. Tvímenningarnir sem sögðu sig úr stjórninni á dögunum hafa borið annan þeirra sem eftir sitja Infoi Torsdag 9. marts 1989 UAFHÆNGIG AF PARTIPOLITIK UA 45. árgangnr. 58. Pris6,75kr. ooo Befri Land & Folk DE SKÆNDES I Dronningens Tværgade i Ko- benhavn, hvor Danmarks Kommunistiske Par- ti har sit hovedkvarter. Og de gor det med en bramfri ábenhed, der indtil for ganske fá ár siden ville have været utænkelig blandt kommunister - nár bortses þungum sökum um gerræðislega stjórnun, ritskoðun og fleira vont. Hann hefur af vaxandi þunga beitt sér gegn fréttum af innra starfi DKP og notið til þess þeirrar stöðu sinnar að vera bæði í stjórn flokksins og ritstjóri blaðsins. Enn er ekki bitið úr nálinni með það hvernig flokkurinn bregst við því ástandi sem upp er komið á blaðinu, það ræðst vænt- anlega um næstu mánaðamót. Þá munu þeir takast á í miðstjórn- inni sem vilja annars vegar gefa út safnaðarblað með litla út- breiðslu og enn minni áhrif og á hinn bóginn þeir sem vilja gefa út opið og fordómalaust blað sem þorir að gagnrýna það sem rit- stjórnin telur gagnrýnisvert. í leiðara um atburðina á Land & Folk segir Informatíon að blað þar sem „græningjar úr grasrót- inni og kreddulausir sósíalistar nenna að segja skoðun sína og kynna sér skoðanir annarra muni auðga danska dagblaðaútgáfu og lýðræðið í landinu. Frelsisbarátt- an á Land & Folk er of mikilvæg til þess að láta miðstjórn DKP eina um að útkljá hana.“ 30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. mars 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.