Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 29

Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 29
MEÐ GESTS AUGIJM GESTUR GUÐMUNDSSON Fjölmiðill - ekki flokksmálgagn í ljós hefur komið á síðustu vik- um að rekstrarvandi Þjóðviljans er stærri en um langt skeið og að gera þarf viðamiklar björgunar- ráðstafanir á stuttum tíma ef blaðið á ekki að líða undir lok. Við þessar aðstæður skiptir meginmáli að sem flestir velunn- arar Þjóðviljans fái tækifæri til að sjá sig um vandann og framtíð blaðsins og taka þátt í þeim ákvörðunum sem þarf að taka. Slíkar umræður þurfa að fara fram í Alþýðubandalaginu, enda verður vandi blaðsins ekki leystur nema með þátttöku flokksins. og í útgáfufélagi Þjóð- viljans. Eg vil nota tækifærið til að skora á velunnara blaðsins að ganga í útgáfufélagið, axla þar með hluta af ábyrgðinni á blaðinu og öðlast möguleika til að hafa áhrif á framtíðarstefnu blaðsins. Að mínu viti liggur það á borð- inu hvaða rekstrarlegu ákvarðan- ir þarf að taka. Nú þegar þarf að draga svo úr útgjöldum blaðsins að það sé ekki lengur rekið með halla og á örfáum mánuðum þarf að rétta rekstur blaðsins svo við að það standi undir eðlilegum fjármagnskostnaði. Vegna óheyrilegrar skuldasúpu er nú- verandi fjármagnskostnaður hins vegar miklu meiri en eðlilegt gæti talist, og í samráði við flokk verð- ur að leita leiða til að létta óeðli- legum fjármagnskostnaði af blaðinu. Æ fleiri hallast að því að rekst- ur Þjóðviljans sé í raun vonlaust dæmi og sameina beri blaðið Tímanum og Alþýðublaðinu, eða réttara sagt leggja öll þessi þrjú blöð niður og stofna nýtt óháð með félagshyggjuöflin að bak- hjarli. Ég held reyndar að vinstri hreyfingu á íslandi væri best borgið með einu slíku stóru blaði en því miður virðist ekki pólitísk- ur vilji fyrir því meðal aðstand- enda Tímans og Alþýðublaðsins. Um leið og unnið er að slíku blaði verður því að tryggja sjálfstæða tilveru Þjóðviljans. Hver sem framtíðin verður, ríður á að ná jafnvægi í rekstri Þjóðviljans en síðan verður að koma í ljós hvort stefnt verður að sameiningu eða gert nýtt átak til að stækka Þjóð- viljann og auka útbreiðslu hans. Þegar fram í sækir er ekki hægt að aðskilja rekstarlegar ákvarð- anir frá mótun ritstjórnarstefnu. Stuðningur almennra velunnara Þjóðviljans við blaðið hlýtur að haldast í hendur við þátttöku þeirra í umræðum um ritstjórnar- stefnuna. Á undanförnum árum hefur oft orðið ágreiningur um þessa stefnu meðal aðstandenda blaðsins, en því miður hefur sá ágreiningur aldrei þróast í lýðr- æðislegri umræðu. Nú er slík um- ræða forsenda þess að blaðið hljóti nægilegan bakhjarl til að rétta við. Ágreiningur um ritstjórnar- stefnu Þjóðviljans á liðnum árum hefur einkum snúist um það, hvort blaðinu beri að túlka stefnu flokksforustu og verkalýðsfor- ystu á hverjum tíma. Eftir tölu- verð átök hefur blaðið nú öðlast sjálfstæði gagnvart verkalýðsfor- ystu en ekki hefur verið tekið af skarið urn tengsl þess við flokks- forystuna. Aðstæður hafa breyst frá þeim átökum sem t.d. urðu í ritstjórnartíð Össurar Skarphéð- inssonar, því að þeir sem þá kröfðust hlýðni blaðsins við flokksforystuna eru nú að meira eða minna leyti í minnihluta í flokknum, en sá núverandi rit- stjóra sem þá var helstur talsmað- ur sjálfstæðis hefur verið fremur hallur undir núverandi flokksfor- mann. Bæði útgáfufélagi og flokki ber að viðurkenna að Þjóðviljinn get- ur aldrei aftur orðið þröngt flokksmálgagn. Blaðinu ber að standa vörð um sömu grund- vallarhugsjónir og Alþýðubanda- lagið aðhyllist, en fjölmiðill hlýtur að gera það með öðrum hætti en flokkur. Fjölmiðill getur ekki látið sér nægja þá skil- greiningu sem stjórnmálaflokkur gefur á hverjum tíma á markmið- um og leiðum sósíalískrar bar- áttu, heldur hlýtur hann stöðugt að efast og spyrja og leiða um- ræðuna þannig áfram. Á hinn bóginn verður fjölmiðill að veita stjórnmálamönnum stöðugt að- hald, bera gerðir þeirra saman við fyrirheit og hugsjónir og spyrja um innra samræmi í gerð- um þeirra. Þessu hlutverki verð- ur Þjóðviljinn að gegna gagnvart Alþýðubandalagi ekki síður en öðrum flokkum. Um leið og Alþýðubandalagið kemur til stuðnings Þjóðviljanum verður það að staðfesta að það ætlar blaðinu sjálfstæði. Rit- stjórn blaðsins verður að hafa frjálsar hendur um mótun rit- stjórnarstefnunnar, og jafnframt er nauðsynlegt að efla umræðu um þá stefnu. Útgáfufélagið þarf að halda fundi og ráðstefnur um ritstjórnarstefnuna og einstaka þætti hennar auk þess sem ein- staklingar koma með ábending- ar. Það er ekki nóg að ritstjórnar- stefna Þjóðviljans sé sjálfstæð, heldurþarf hún líka að vera opin. Blaðið á ekki að flytja heilagan sannleika heldur birta frásagnir og umræðu sem auðvelda lesend- um að komast að eigin niður- stöðu. Það er engin ástæða til þess að síður blaðsins séu notaðar til að klífa á því sem ritstjórn (hvað þá flokkur) telur vera sannindi, en þeim mun meiri þörf á að skoða viðtekin „sannindi" íslenskrar þjóðmálaumræðu gagnrýnum augum. Mér hefur lengi þótt Þjóðvilj- inn verja óþarflega miklum kröftum í að rekja atburðarás ís- lenskra þjóðmála, hvort sem um er að ræða stjórnmál, samning- amál á vinnumarkaði eða stórtíð- indi úr viðskiptaheiminum. í stað þess að eltast við þessa atburði frá degi til dags á Þjóðviljinn að draga saman og veita yfirsýn yfir atburðarásina og leggja þó meg- ináherslu á að kryfja baksvið at- burðanna og tengsl þeirra við meginstrauma í íslenskri þjóðfél- agsþróun. Blaðið á að gera meira af því að láta einn eða fleiri blaða- menn einbeita sér að ákveðnum sviðum þjóðlífsins í ákveðinn tíma. Þá á Þjóðviljinn að flytja fleiri frásagnir úr daglegu lífi fólks, frá vinnustöðum, úr fbúða- hverfum, úr frístundalífi o.s.frv. Menningarumfjöllun Þjóðvilj- ans hefur skipst óþarflega mikið upp í ókeypis auglýsingar annars vegar og gagnrýni á einstök verk hins vegar. Það vantar samfelld- ara mat á menningarpólitík stjórnvalda og annarra sem þar eiga hlut að máli. Við þurfum meira af beittri gagnrýni á (ó)m- enningarlegt andrúmsloft í samfélaginu og menningarum- fjöllun Þjóðviljans er allt of ein- skorðuð við svokallaða „há- menningu“. Dægurtónlist, myndbönd, tíska og fjölmiðlar eru svo ríkur þáttur í nánasta menningarlega umhverfi íslensks almennings, að fjölmiðill sem kennir sig við alþýðu hlýtur að gera þessari „lágmenningu“ góð skil. Þetta hef ég oft sagt áður og útfært frekar, en mér til mikillar furðu eru enn menn (og sumir yngri en dr. Hallgrímur Helga- son) sem telja sumar greinar lista til hámenningar, sem sé verð um- fjöllunar, en fjöldamenningu alla til lágmenningar og um hana eigi einungis að fara niðrandi orðum. Ég gæti haldið áfram að hugsa upphátt um Þjóðviljann en Iæt hér staðar numið. Meginatriðið er að sem flestir velunnarar blaðsins skipti sér af blaðinu, segi skoðun sína á því hvernig það á að vera og taki þátt í að rétta það við. KVIKMYNDIR ________________ Aóskildir síamstvíburar Dead Ringers (Tvíburarnir) í Regn- boganum. Kanadísk, 1988. Leik- stjórn: David Cronenberg. Handrit: Cronenberg og Norman Snider, byggt á sögunni „Twins“ eftir Bari Wood og Jack Geasland. Aðalhlutverk: Jer- emy Irons og Genevieve Bujold. Það er alltaf gaman að fylgjast með hvernig verk ákveðinna kvikmyndagerðarmanna þróast, sérstaklega ef þróunin er í rétta átt. Kvikmyndasmiðir úr Vestur- heimi hafa mátt sæta þeirri gagnrýni að myndir þeirra fjalli ekki um neitt en eru engu að síður tæknilega fullkomnar. Þe. þeir hafi ekkert að segja heimin- um sem listamenn. Enda þótt Kanadamaðurinn David Cronenberg hafi farið eigin leiðir við gerð sinna kvik- mynda, svo ekki sé meira sagt, hefur hann mátt þola þessa gagnrýni að nokkru leyti. Hingað til hefur hryllingurinn verið hon- um hugleikinn og standa fáir hon- um á sporði í hryllingsmynda- gerð. Persónulega hefur mér raunar aldrei þótt mikið til mynda Cron- enbergs koma. Kvikmyndir eins og „The Fly“, „Videodrome", og „Scanners" þóttu allar frambæri- legar hryllingsmyndir, en ein- hvern veginn hreifst ég aldrei með óskapnaðinum og þótt „The Dead Zone“ hafi verið eitthvað skárri var það ekki nóg. Tækni- brellur ýmiskonar hafa fylgt Cronenberg frá upphafi og hefur hann nýtt sér tæknina til hins ýtr- asta. Af þeim sökum hefur Cron- enberg verið of upptekinn af möguleikum tækninnar sem spennuvalds og fyrir vikið var hann hættur að koma manni á óvart. Það gerir þó nýjasta mynd kappans, „Dead Ringers“, og leikur enginn vafi á að hér er lang besta verk hans til þessa. Það er í raun ótrúlegt hvað Cronenberg skiptir hér um stfl. Hann er hætt- ur að eltast við tæknilegar hryll- ingsmyndir (sem fjalla ekki um neitt) og snýr sér með góðum ár- angri að hinu flókna fyrirbrigði sem mannssálin er. Myndin er gerð eftir sögunni Tvíburunum, eftir Bari Wood og Jack Geasland. Þar sem ég hef ekki lesið bókina er samanburður við söguna eðlilega látinn liggja milli hluta. „Dead Ringers" er oc ■j|s*l O 1 % % w £ i ÞORFINNUR ÓMARSSON hins vegar magnað kvikmynda- verk frá upphafi til enda þar sem hin innri spenna sálarinnar magn- ast stig af stigi. Sumir vilja kalla þetta sálfræðilegan trylli og er það hreint ekki svo galið. Sagan segir í stuttu máli frá tví- burum nokkrum, Elliot og Be- verly Mantle, sem frægir eru fyrir afskipti sín af læknavísindum. Þeir hafa búið saman allt sitt líf og hefur hvorugur þeirra gert nokk- uð á eigin spýtur, heldur deila þeir öllu hvor með öðrum. Þeir minna því mjög á Sjang og Eng, síamstvíburana frægu. Segja má að Mantle-tvíburarnir hafi aðeins eina sál í tveimur líkömum en Sjang og Ehg tvær sálir í einum líkama. Þegar tvíburarnir síðan kynnast leikkonu (of vel?) breytist óhjákvæmilega lífshlaup þeirra. Hún velur annan fram yfir hinn en þegar á reynir er ómögu- legt fyrir þá að slíta sig hvor frá öðrum. Vandamál þeirra er af svipuðum toga og þeirra Sjangs og Engs, þe. fari annar, fer hinn líka. Með hlutverk tvíburanna fer hinn stórgóði breski leikari Jer- emy Irons. Hann hefur oft sýnt mikil tilþrif í kvikmyndaleik en aldrei neitt í líkingu við sálar- kreppu Mantle-tvíburanna. Væri orðið leiksigur ekki ofnotað ætti það við um túlkun hans á tvíbur- unum. Myndin stendur og fellur með leik Irons en vegna frammi- stöðu hans er engin hætta á falli. Genevieve Bujold leikur leikkonuna á sannfærandi hátt en hlutverk hennar hefði þó getað verið betur skrifað. Sérstaklega er samskiptaleysi hennar við Be- verly undarlegt þegar hún hverf- ur frá í nokkrar vikur og hin eiginlega sálartortíming bræðr- anna hefst. „Dead Ringers" er kannski ekki gallalaus kvikmynd en greinilegt er að David Cronen- berg kann að hafa áhrif á áhorf- andann. Hún er ekki þessi dæm- igerða afþreying en þeim mun áhrifameiri. Lokaatriði myndar- innar er snilldarlega úr garði gert og þegar sýningu hennar er ’okið situr áhorfandinn stjarfur c0 get- ur sig hvergi hreyft. Föstudagur 17. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 29

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.