Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 10
Síðumúla 6-108 Reykjavík — Sími 681333 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Ritstjórar: Árni Bergmann, Mörður Árnason, Sjlja Aðalsteinsdóttir Umsjónarmaður Nýs Helgarblaðs: Sigurður Á. Friðþjófsson Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson Útlit: Þröstur Haraldsson Auglýsingastjóri: Olga Clausen Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Verð: 110 krónur Sveiflur á fylgi flokka Eítt einkenni upplýsingaþjóðfélags þess, sem svo oft er gumað af, eru tíðar skoðanakannanir. Þær beinast eink- um að neyslu manna og þá ekki síst hinni pólitísku neyslu: hvaða flokk mundir þú kjósa ef kosið yrði á morgun? Menn hafa oft deilt um skoðanakannanir, framkvæmd þeirra, frávik sem þær geta sýnt frá réttri mynd af pólitísku hugarfari og þarfram eftirgötum. Hittefast enginnum, að þær gefa allsterkar vísbendingar um hið pólitíska sálarfar þjóðarinnar. Auk þess sem þær koma fjölmiðlum vel - þá daga sem beðið er eftir stórtíðindum getur verið þægilegt að velta upp spurningum um skoðanakannanir. Nú um daginn var verið að birta fréttir af síðustu skoð- anakönnun Skáís. Þar kemur á daginn að fylgi stjórnar- flokkanna er um 40% nú og hefur minnkað um 2% síðan í nóvember: Framsóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið hafa tapað síðan þá, Alþýðuflokkurinn stendur ögn betur. Breytingarnar á fylgi stjórnarflokkanna eru reyndar ekki það miklar, að hægt sé um vik að draga af þeim ályktanir. Það má heita nokkuð fyrirsjáanlegt að fylgi stjórnarflokka skreppi saman um það leyti sem verðlag hækkar og ekkert það er framundan sem auðvelt er fólki og vinsælt. Það truflar og myndina, að hlutfall þeirra sem neita að gefa upp sína pólitísku samúð eða skila auðu er mjög hátt eða meira en 42 prósent þeirra sem spurðir eru. Gömul og ný reynsla bendir til þess, að það sé ails ekki út í hött fyrir stjórnarflokka að gera ráð fyrir því að úr þessum stóra hópi komi þegar á reynir fylgi sem bætir stöðu þeirra um nokkur prósent. Blátt áfram vegna þess, að hálfvolgir fylgjendur stjórnarflokkanna eru líklegri til þess að skila auðu í könnun en hálfvolgir fylgjendur stjórnarandstöðu- flokka. En það sem fréttnæmt er í könnuninni er fyrst og fremst þetta tvennt: að Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að síga á og er kominn með yfir 41 % fylgi - og að Kvennalist- inn, sem fyrir tæpu ári síðan mældist stærsti flokkur landsins með yfir 30% atkvæða, er nú kominn niðurfyrir 14% fylgi. Þetta er þeim mun merkilegra sem erfitt væri að benda á þau stórtíðindi í starfi þessara stjórnarand- stöðuflokka sem ættu að lyfta undir Sjálfstæðisflokkinn en skaða Kvennalistann verulega. Það hefur að vísu oft verið um það talað, að allmargir hafi orðið fyrir vonbrigð- um með að Kvennalistinn vísaði frá sér stjórnarsamstarfi á síðastliðnu hausti. En það ætti ekki að skera svo mjög utan af möguleikum kvennanna til að fá drjúgan skammt af því lausbeislaða óánægjufylgi, sem er einatt hrifnast af nýjum eða nýlegum flokkum, en virðist nú hafa ratað á Sjálfstæðisflokkinn í óvenju ríkum mæli. Skoðanakannanir á Islandi eru oftar en ekki óná- kvæmar, prósentubreytingar einar segja ekki allt um það, hvaða fylgi er á sundi milli flokka. En hinar miklu sveiflur á fylgi milli Kvennalista og Sjálfstæðisflokks sem skoðana- kannanir benda til eru reyndar dapurlegar. Ekki vegna þess að þær minni á það að flokkshollusta sé nú miklu losaralegri en á árum áður. Heldur vegna þess fyrst og fremst, að það er engu líkara en mjög mikið af óánægðum kjósendum leggi það aldrei á sig að velta fyrir sér pólitísk- um valkostum. Það verður næsta tilviljunarkennt hvar þeir lenda. Við höfum fyrir okkur enn nokkur dæmi um hnignun pólitísks áhuga, pólitísks vilja, og slík hnignun boðar ekkert gott fyrir lýðræði í landinu. Þegar til lengdar lætur er hún fyrst og fremst lýðskrumurum og hægriöflum í hag. Who Will Stop Iraq From Torturing Children? Say No to John Tower íi cra 1 en b un c ?<cralb^iL“gríbunc OPINION A Rebufl m Beijing For China A Le»ser Siundard Tússið óspart notað Öll umræða um Salman Rush- die og bók hans Kölskakviður er afar viðkvæm í hinum múslímska heimi. í Bangladesh eru allar greinar um Rushdie og Köslkakviður ritskoðaðar. Rit- skoðunin gengur svo langt að öll erlend blöð eru skoðuð af rit- skoðunarhersveitinni og vand- lega tússað yfir allt sem snertir Rushdie-málið áður en áskrif- endur fá blaðið eða það er sett í almenna sölu. Hér á myndinni sést hvernig ritskoðunardeildin hefur leikið International Herald Tribune áður en blaðalesendur í Bangladesh fengu blaðið í hend- ur og á myndinni til hliðar sést hinn óguðlegi brandari sem krot- að var yfir með tússi þar sem kvikmyndaframleiðandi í Holly- wood fær þá stórkostlegu hug- mynd að kvikmynda Kölskakvið- ur. SMART-SKOT 10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. mars 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.