Þjóðviljinn - 08.12.1989, Blaðsíða 3
Tvær ólíkar bókabúðir
Bókabúðir Máls og menningar eru tvær. Önnur niður í
miðbæ, hin í austurbænum, önnur er rótgróin, hin allt
að því framúrstefnuleg, önnur hentar þeim sem gera
jólainnkaupin á röltinu, hin þeim sem vilja eigatryggan
aðgang að bílastæðum við búðardyr.
Tvær líkar bókabúðir
Það sem þessar búðir eiga hinsvegar sameiginlegt eru
allar nýjustu bækurnarog mikið úrval eldri bóka, ritföng
og pappírsvörur og að þær leggja báðar óvenju mikla
áherslu á barnabækur og þroskandi barnaleikföng.
VöLUSKRÍN OG SÉRSTAKAR
BARNADEILDIR
Um árabil hafa bókabúðir Máls og menningar starfrækt
sérstakar barnadeildir. Til að fylgja betur eftir áhersl-
unni á dægradvöl með menntunargildi keyptum við
VÖLUSKRÍN sem hafði getið sér gott orð fyrir vönduð og
þroskandi leikföng og nú fást þær vörur í bókabúðum
okkar.
SKEMMTUN-MENNTUN'DÆGRADVÖL
—M—1
Bókabúð
LMALS & MENNINGAR J
LAUGAVEGI 18 - SÍMI 24240
SÍÐUMÚLA 7-9 - SÍMI 688577