Þjóðviljinn - 08.12.1989, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 08.12.1989, Blaðsíða 19
JÓLAMATURINN Lax eða silungur í hlaupi Ferskur lax og silungur eru ekki iengur bundinn við sumar- mánuðina hér á landi, og lax er nú orðinn meira en samkeppnisfær við kjötvörur, bæði um verð og hollustu. Laxinn má matreiða á hinn fjölbreytilegasta hátt, en hér er stungið upp á laxi (eða regn- bogasilungi t.d.) í hlaupi. Slíkan rétt má gera með góðum fyrir- vara og geyma í kæli til jóla- veislunnar. Efni: 500 gr ferskur lax, glas af hvítvíni, lárviðarblað, nokkur piparkom, ein gulrót, eitt zucc- hini (fæst í grænmetisborði stór- markaðanna), blaðlaukur, smá- vöndur af dilli, 3 plötur af matar- lími, smjörklípa. Flakið laxinn og roðflettið flakið. Klippið hryggdálkinn í bita og setjið í pott með smjörinu og látið krauma hægt í nokkrar mínútur. Bætið víninu útí og látið það gufa upp að hluta. Bætið útí 1/2 lítra af vatni, lárviðarblaðinu og piparnum. Látið sjóða í 25 mínútur. Bætið þá laxaflökunum útí og látið sjóða enn í örfáar mín- útur. Takið síðan laxinn uppúr og látið renna af honum. Síið soðið og haldið því heitu. Afhýðið grænmetið og sneiðið niður í smáa teninga og sjóðið í soðinu í fáeinar mínútur. Veiðið það síð- an uppúr með fiskspaða. Látið nú matárlímsplöturnar, sem hafa verið mýktar upp í köldu vatni, út í soðið og hrærið þangað tii þær eru uppleystar að fullu. Til þess að fá soðið fullkomlega tært er blandað saman fínsöxuðum púrrulauk og eggjahvítu og þeim bætt út í soðið og látið sjóða í 20 mínútur. Eggjahvítan og laukur- inn mynda þá þykkni í soðinu, sem hægt er að veiða uppúr með fiskspaða. Laxinn, grænmetið og dillið eru lögð í lögum ofan í hæfilega stórt form úr áli og soðinu síðan hellt yfir. Hlaupið stífnar á þrem stundum í ísskápnum. Ekki þarf að taka það fram að þessi réttur sæmir sér vel á köldu jólaborði. Sælkerajól Að vísu er löngu komið úr tísku að vera feitur og sællegur enda leggja menn mikið á sig til að halda línunum. Það hlýtur þó að vera leyfilegt að syndga upp á náðina svona af og til, pínulítið, að minnsta kosti rétt yfir blájólin. Við grófum upp nokkrar upp- skriftir handa sælkerunum, allar meira eða minna fullar af þessu ullabjakki, sem enginn vill kann- ast við að leggja sér til munns með glöðu geði. Annars virðast þær sumar hverjar nánast heilsusamlegar, svona við nánari athugun, svo kannski þorir einhver að prófa. Og svo má líka lesa þær sér til skemmtunar og hugarhægðar, til dæmis rétt undir svefninn. Sérry-tertan er að sögn alveg „meiriháttaræðisgengin“ og hér kemur uppskriftin: 2 bollar möndlur eða hnetur 1/2 bolli sykur 4 eggjahvítur 1 tsk. lyftiduft Eggjahvítur stífþeyttar. Hnet- ur hakkaðar í kvörn, ger sett sam- anvið og síðan hrært saman við hvíturnar. Bakað í vel smurðu og hveitistráðu móti við meðalhita (ca 175 gráður). Krem: 4 eggjarauður 3 msk. sykur 4 blöð matarlím 1/2 dl sérry 2 dl rjómi Súkkulaðibráð: 100 gr súkkulaði er brætt í vatnsbaði. Þegar það er orðið yl- volgt er 3-4 msk. af þeyttum rjóma smáhrært samanvið. Eggjarauðurnar þeyttar með sykri. Matarlím lagt í bleyti og brætt yfir gufu, látið út í hræruna ásamt sherry, þeyttum rjóma og hrært saman að lokum. Súkku- laðibráðin sett yfir kremið og rjómi utanmeð. Appelsínukaka Fyrir þá mörgu, sem finnst ávextir jafn ómissandi og kökur á jólunum kemur hér uppskrift að appelsínuköku, en í hana þarf: 100 gr smjörllki 3 dl sykur 3 egg 4 dl hveiti 1 1/2 tsk. ger 1 appelsínu Smjörlíki og sykur er hrært saman og síðan bætt við eggjum og safanum úr appelsínunni. Rifnum berkinum af appelsín- unni er blandað saman við hveiti og ger og blöndunni síðan bætt út í hræruna smám saman. Bakað í jólakökuformi við 180 gráður. við steikingu og bakstur LJOMA Innihald: Hertar sjávardýraolíur, fljótandi soya- olía, kokosfeiti, vatn, salt, monoglycerið, lesitín, karotín litarefni, bragðefni, A og D3 vítamín. smjörlíki hf Næringarinnihald í 100 gr. Fita u.þ.b. 80 gr. Prótín (Hvíta) undir 1gr. Kolvetni undir igr- A-vítamín u.þ.b. 3000 AE D3-vítamín Orka u.þ.b. 300 AE 725 h.e. 3.100KJ NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.