Þjóðviljinn - 08.12.1989, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 08.12.1989, Blaðsíða 21
JÓLAMATURINN Leiöin að hjarta mannsins... Margrét E Jónsdóttir Fitusnautt fæði Mál og menning 1989 Margrét E. Jónsdóttir fréttamað- urinn góðkunni hjá Ríkisútvarp- inu hefur sent frá sér matreiðslu- bók, sem hefur að geyma fjöl- breyttar uppskriftir, er allar hafa þann kost að vera fitusnauðar og eru miðaðar við að halda blóðfit- unni í skefjum. En sem kunnugt er eru hjarta- og æðasjúkdómar orsakaðir af of hárri blóðfitu al- gengasta dánarorsök íslendinga. Að sjálfsögðu gera menn sér dagamun í fæði í tilefni jóla og áramóta, en af matreiðslubók Margrétar má ráða, að ekki sé óhjákvæmilegt að slík tilbreyting þurfi að fela í sér áhættu fyrir blóðfituna: margir girnilegir rétt- ir eru þarna tíundaðir sem geta talist til hátíðarmatar. Margrét segir frá því í formála að hún hafi fyrst uppgötvað sann- leiksgildi orðtaksins „leiðin að hjarta mannsins liggur í gegnum magann", þegar eiginmaður hennar kom úr rannsókn hjá Hjartavernd með þá niðurstöðu að blóðfitan væri orðin of há. Og þegar hún sá listann yfir bannfærðar fæðutegundir tók hún að örvænta: hvað var nú eftir? Hvers konar sultarlíf átti fjölskyldan nú í vændum? En eins og vænta mátti, þá komst Margrét að því að matar- æðið þarf ekki að líða fyrir fitu- skortinn nema síður sé. Jafnvel kökurnar og eftirréttirnir í bók- inni eru hátt í 50, og skal hér stikl- að á nokkrum slíkum með leyfi útgefanda og höfundar: Krapi Vatnsís eða eggjahvítuís (sor- ber) hefur verið kallaður ýmsum nöfnum. Undirstaðan í honum eru eggjahvítur og ávextir, ber eða ávaxtasafi. Yfirleitt eru 2 eggjahvítur hæfilegur skammtur í hálfan lítra af safa. Ávextirnir eru hrærðir í mauk og hálffrystir, safi er sömuleiðis hálffrystur. Eggja- hvíturnar eru stífþeyttar og síðan er ávöxtum eða safa blandað saman við og fryst. Við og við er ísinn tekinn út úr frystinum og þeyttur. Krapi geymist í frysti eins og venjulegur ís. Nauðsynlegt er að taka hann út úr frystinum rétt áður en hann er borinn fram og þeyta hann rækilega. Best er að láta hann standa um stund í stofu- hita eða setja skálina með krap- anum í heitt vatn svo auðveldara verði að þeyta hann. Krapi á ekki að vera eins og snjór heldur mjúkur og samfelldur. Krapi úr hálfum lítra af safa og tveim eggjahvítum dugar handa 6-8. Aðventukrapi Efni: 5 dl krækiberjasaft og 2 eggjahvítur. Hálffrystið saftina. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim saman við saftina. Þeytið ræki- lega og setjið aftur í frystinn. Þeytið krapann tvisvar eða þrisv- ar á meðan hann er að frjósa og síðan stuttu áður en hann er bor- inn fram. Hann á að vera mjúkur og samfelldur. Þessi krapi er kenndur við jólaföstu, því hann hefur fallega fjólubláan lit. AUan ávaxta- og berjasafa má nota í krapa Piparmyntu- skyrterta Efni í botninn: 175 g. hafrakex eða heilhveitikex, 1/2 dl sykur, 4 msk. brætt smjörlíki. Fylling: Stór dós af skyri án ávaxta, 3 msk. kakó, 2/3 dl vatn, 1 dl sykur, 2 eggjahvítur, 3 blöð matarlím, 1/2 dl piparmyntulí- kjör. Myljið kexið t.d. í blandara. Blandið sykrinum saman við og hellið síðan bræddu smjörlíkinu útí. Setjið í kökumót og þjappið mylsnunni vel að botninum og upp með börmunum. Látið matarlímið liggja í bleyti í 5 mínútur. Leysið það upp í heit- um líkjörnum í vatnsbaði. Látið kólna þangað til það er ylvolgt. Hrærið kakóið út í vatninu og sjóðið upp á þvf. Kælið. Hrærið skyrið með sykrinum og bætið kakóblöndunni útí. Bætið síðan ylvolgri matarlímsblöndunni útí. Þeytið eggjahvíturnar. Blandið þeim varlega saman við skyrb- lönduna. Hellið henni í botninn. Kælið tertuna í ísskáp í 1-2 klst. Bökuð epli Efni: 4 gui epli, 1/2 dl rúsínur, 2 msk. smjörlíki, 2 msk. ljós púð- ursykur, 1 tsk. kanill, Ijóst síróp og 1 dl eplasafi. Stingið kjarnhúsið úr eplun- um. Reynið að láta holuna ná ekki alveg í gegn, þá vill fyllingin leka út. Saxið rúsínurnar. Hrærið smjörlíki, púðursykur og kanil saman og bætið rúsínum útí. Setj- ið fyllinguna ofan í holuna eftir kjarnhúsið. Setjið eplin í eldfast mót og setjið nokkrar matskeiðar af eplasafa í mótið. Dreypið 1-2 Piparkökuhús með rétta staðla Húsnæðismálin vefjast fyrir landanum enn þann dag í dag þrátt fyrir húsbréf, kaupleigur, ný og gömul húsnæðislánakerfi, búsetakerfl og hvað þetta heitir nú allt saman. Það er víst sama hvert kerfið er og hvort vextir eru 3,5 eða 4,5% eða markaðsvextir, það sleppa sennilega fáir frá þeim hildarleik að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Eitt húsnæðiskerfi kallar þó á fá gluggaumslög. Það er pipar- kökukerfið, sem virðist ætla að lifa öll þessi margbreytilegu kerfi sem áður var minnst á. Jól án byggingaframkvæmda við pip- arkökuhús eru engin jól í hugum margra. Þessu gera þeir sér grein fyrir á Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins og í nýjasta fréttabréfi þeirra er uppskrift að hinu fullkomna piparkökuhúsi með rétta staðla. Fer sú uppskrift hér á eftir: Hráefni: 1 dl vatn 1 dl síróp 250 gr smjör eða smjörlíki 200 gr. sykur (helst púðursyk- ur) 2 tsk. kanill 3 tsk engifer 2 tsk negull 1,5 tsk. matarsóti 450 gr hveiti Til skreytinga: Hálf eggjahvíta 2 dl flórsykur matarlitur Vatn, síróp, sykur og krydd er hitað og suðan látin koma upp. Smjöri er hrært útí. Hrært í þang- að til blandan er köld. Matarsóta er blandað saman við hveitið, sem síðan er sett hægt og hægt saman við blönduna (nokkuð af hveitinu er geymt þangað til flatt er út). Geyma skal deigið á köld- um stað, helst til næsta dags. Deigið er flatt út í plötur sam- kvæmt teikningu og þær bakaðar við 200 gráður í 10 mínútur. Einnig má útbúa þykka undir- stöðuplötu fyrir húsið og festa á hana runna og steina úr af- göngum, áður en hún er bökuð. Húshlutarnir eru límdir saman með sykri sem hefur verið brædd- ur á pönnu (varlega). Einnig má festa möndlur og sælgæti með bræddum sykri á húsið. Húsið er svo skreytt með flórsykursblönd- unni, með rjómasprautu eða kramarhúsi úr bökunarpappír. Eftir að skrautið er orðið þurrt er flórsykri (snjó) sáldrað yfir hús- ið. Húsið hefur marga kosti og má þar nefna eftirfarandi: Lóðin kostar ekkert, fasteignagjöld eru engin og svo er hitunarkostnaður í lágmarki. Ekki er ljóst hvort það stenst jarðskjálfta yfir 5 á Richter kvarða, en fullvíst þykir að því stafi veruleg hætta af börn- um, einkum litlum börnum, og á til að rýrna hratt, þegar enginn sér til. Ef menn óska getur Rann- sóknastofnn byggingariðnaðar- ins rannsakað húsið með tilliti til loftþéttleika, einangrunar, efnis- gæða, samsetningar og fleiri at- riða. Engin trygging er þó fyrir því að nokkuð verði eftir af húsinu að rannsókn lokinni! tsk. af sírópi á hvert epli. Bakið í 200 gr. heitum ofni í hálfa klst. eða þangað til eplin eru orðin meyr. Áth. Eplin má einnig fylla með marsípani. Þá er marsípanið hrært með dálítilli eggjahvítu og smjörlíki. Jólasmákökur frú Scheer Efni: 250 gr. smjörlíki, 5 msk. flórsykur, 5 dl. hveiti, 1 tsk. van- illa, 3 dl pecanhnetur, saxaðar mjög smátt, flórsykur. Látið smjörlíkið standa um stund í stofuhita áður en byrjað er. Hrærið síðan smjörlíki og flórsykur saman og bætið hinum efnunum útí. Hrærið þangað til deigið er samfellt. Mótið deigið í aflangar kökur, svegið endana dálítið svo að kökurnar líkist hálfmána. Hver kaka á að vera 3-4 sm á lengd, um einn á þykkt og 1,5 á breidd. Kökurnar eru bakaðar á smurðri plötu í 200° heitum ofni í um það bil 10 mín. Þær eiga að vera ljósar. Látið mesta hitann rjúka úr þeim og veltið síðan upp úr flórsykri. Látið þær bíða um stund og veltið síðan aftur upp úr flórsykri. Ábending: Þessi uppskrift er frá suðurríkjum Bandaríkjanna. Ég fékk hana hjá móður vinkonu minnar fyrir meira en aldarfjórð- ungi. í upprunalegu uppskriftinni er smjör, en kökumar eru líka góðar úr smjörlíki. í bókinni Fitusnautt fæði eftir Margréti E. Jónsdóttur er inn- gangur eftir Gunnar Sigurðsson yfirlækni. Þá eru fjölmargar girnilegar uppskriftir að fiskrétt- um, grænmetisréttum, súpum og léttum réttum og kjúklingarétt- um. Bókin er myndskreytt af Önnu V. Gunnarsdóttur. -ólg Reykvíkingar þekktu Hermann undir nafninu Hemmi, oft meö viðurnefni dregið af því að hann togaðist stundum á við stráka um túkall eða krónu. Vilhjálmur Hjálmarsson segir sögur föðurbróður síns á gamansaman og hugþekkan hátt. Þess vegna er unum að því að lesa um hana þó að hún fjalli um óvenjulegt lífshlaup manns er aldrei fékk notið hæfileika sinna. FRÆNDI KONRÁÐS - FÖÐURBRÓÐIR MINN er bók fyrir þá sem vilja ÖÐRUVÍSI ævisögu sagða af hreinni snilld. HERMANNS VILHJÁLMS- SONAR FRÁ MJÓAFIRÐl Skráö af Vilhjálmi Hjálmarssyni fyrrverandi ráðherra. Vilhjálmur Hjálmarsson ÆVISAGA ' Konráðs föðurbróðir minn Ævimmnmgar Hermanns Vilhjálmssonar Föstudagur 8. desember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.