Þjóðviljinn - 08.12.1989, Side 4
• •
fn^TI TFIA rWDFTT
r UJo J. U FJ/WjroF Ivll/ JL 1 rj
Seltjarnarnes
Skólpræsin í ólestri
Svörtskýrsla Heilbrigðisnefndar Kjósarsvœðis umfrágang skólprœsa á Nesinu. Ibúum stafar
hœtta afsmiti, mengun afkóligerlum, saurkóligerlum og veirum úr skólprœsum bœjarins
vo virðist sem Seltjarnarnes-
búum stafi hætta á smiti,
r Loðna
Obreytt
ástand
Sjávarútvegsráðu-
neytinu þykir ekki
ástœða til að banna
veiðarnar. Óvístum
framhald veiðanna
sökum hafíss
Niðurstaða fundarins var sú að
ekki þykir ástæða til að setja
bann á loðnuveiðarnar af hálfu
stjórnvalda þar sem loðnan er
ekki eins blönduð á miðunum og
áður og var almenn samstaða um
þessa niðurstöðu, sagði Arni Kol-
beinsson ráðuneytisstjóri í sjáv-
arútvegsráðuneytinu.
Ráðherra boðaði
hagsmunaaðila í sjávarútvegi til
fundar við sig í sjávarútvegsráðu-
neytinu snemma í gærmorgun til
að ræða ástandið á loðnumiðun-
um en eins og kunnugt er hefur
verið svo til nánast algjör ör-
deyða á miðunum það sem af er
vertíðinni og á því varð engin
breyting síðasta sólarhring. Á
fundinn mættu fulltrúar frá
Farmanna- og fiskimannasamb-
andi íslands, Sjómannasamband-
inu, útgerðarmönnum, loðnu-
verksmiðjum og frá Hafrann-
sóknastofnun.
Hólmgeir Jónsson fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bandsins sagðist fagna þessari
niðurstöðu fyrir hönd sjómanna
sem ellu hefðu átt von á því að
útgerðarmenn loðnuskipa segðu
þeim upp störfum ef veiðibann
hefði verið ákveðið. Hólmgeir
sagðist vona að sjómennirnir
haldi ráðningu sinni og þar með
kauptryggingunni en þó væri
aldrei að vita nema útgerðirnir
taki ákvörðun um að hætta
veiðum tímabundið á meðan
loðnan gefur sig ekki á miðunum.
Pá er einnig með öllu óvíst hvað
skipin geta lengi haldið úti á mið-
unum fyrir Norðurlandi sökum
hafíss sem þegar er farinn að
valda skipunum vandræðum og
allt eins víst að veiðunum verði
sjálfhætt af þeim sökum. -grh
mengun af kólígerlum, saurkólíg-
erlum og veirum sökum þess að
skólpræsi bæjarins ná ekki út
fyrir stórstraumfjöruborð þó að
kveði á um það í heilbrigðisreglu-
gerð nr. 45/1972 nema heil-
brigðisnefnd geri ríkari kröfur.
Þetta kemur fram í umsögn
Heilbrigðisnefndar Kjósarsvæðis
í kjölfar eftirlitsferðar sem farin
var fyrr á árinu um fjöruna á Sel-
tjarnamesi. Skoðuð voru ellefu
frárennslisstútar, ræsi og sam-
eiginlegt með þeim öllum var að
ekkert þeirra náði út fyrir stór-
straumsfjöruborð en fimm þeirra
náðu að einhverju marki út í
fjöruna en öll hin voru mun
styttri.
í skýrslunni er varað við þessu
fyrirkomulagi eins og það er
sökum smithættu eins og áður var
minnst á en einnig þeim sjóúða
sem borist getur yfir byggðina og
þá sérstaklega í hvössu veðri þeg-
ar brim er. En eins og kunnugt er
stendur byggðin á Nesinu nálægt
fjöru og sjó og í engu skjóli fyrir
veðri og vindum og því fátt sem
getur hamlað þeim heilsuspill-
andi áhrifum sem til staðar geta
verið við núverandi aðstæður. í
skýrslunni segir að „hér sé um
mjög fínan úða að ræða sem getur
borist langar leiðir. Veirur jafnt
sem bakteríur sitja á þessum úða,
eða öllu heldur á örfínum drop-
um sem mynda úðann. Þess hátt-
ar úði getur myndast við ofan-
greindar aðstæður og borist yfir
bæinn og lengt flensufaraldur svo
dæmi séu tekin.“
Þá er jafnframt í skýrslunni
varað við þeim hættum sem mat-
vælafyrirtækjum við Austur-
strönd getur stafað af við núver-
andi ástandi. Þar eru ma. starf-
rækt bakarí, veislueldhús og
pizzastaður. Orðrétt segir í
skýrslunni: „Hættan á að örverur
berist hér óbeint í matvæli með
úðasmiti er vissulega til staðar.
Líkurnar á að upp geti komið
matareitrun sem rekja má til
skólpmengunar er því að sama
skapi til staðar. Hversu líklegt
það hins vegar er að slíkt gerist er
afar erfitt að geta sér til um en
nægjanlegt er að möguleikinn sé
fyrir hendi.“
-grh
Hornbjarg
Betra en
á vori
„Hvönnin er farin að grænka
og eins er rabarbarinn farinn að
taka við sér og með sama áfram-
haldi geri ég ráð fyrir að geta haft
glænýjan rabarabaragraut um
jólin. Þá er Bjargið orðið autt af
snjó og stutt í að fjöllin hérna í
kring verði það sömuleiðis,“
sagði Ólafur Þ. Jónsson vitavörð-
ur á Horni.
Ástæður þessa alls er sú að
nyrðra hefur verið rakin suðvest-
an átt með hlýindum og í gær var
átta stiga hiti á Horni þó svo að
hafísinn sé kominn í sjónmál frá
vitanum í Látravík. Ólafur sagð-
ist í gær sjá stóra ísspöng sem væri
á leið inn á siglingaleiðir og því
fyllsta ástæða fyrir sjófarendur að
gæta varúðar þegar siglt er fyrir
Horn.
„Eins og er hefur veðurblíðan
hér verið meiri en maður á að
venjast á vorin og skiptir þá engu
þó hafísinn sé á næsta leiti.
Skyggni er gott og enginn kuldi af
ísnum enn sem komið er,“ sagði
Ólafur Þ. Jónsson.
-grh
íþróttamaöur ársins
Sigrún Huld Hrafnsdóttir var í gær út-
nefnd íþróttamaður ársins úr röðum
fatlaðra. Hún er 19 ára gömul og
keppir í flokki þroskaheftra fyrir Iþrótt-
afélagið Ösp. Sigrún Huld er einstak-
lega vel að titlinum komin því á árinu
vann hún ma. fimm gullverðlaun á
Norðurlandamótinu í Vestmannaeyj-
um og setti þar þrjú mótsmet og á
heimsmeistaramóti þroskaheftra í
Svíþjóð sigraði hún í öllum fimm
keppnisgreinum sínum. Hún á 12 fs-
landsmet í sundi í flokki fullorðinna og
hefur einnig náð góðum árangri í
frjálsum íþróttum. Mynd: -þóm.
Fasteignamat
Matsverð hækkarum18%
Sé litið á heildarmat allra fast-
eigna í landinu sem er metið á
615,2 miljarða króna er eign
hvers íslendings í fasteignum 2,4
miljónir króna. Til samanburðar
nam heildarmatið á síðasta ári
528,5 miljörðum króna.
Þessar upplýsingar koma fram
nýrri fasteignaskrá sem Fast-
eignamat ríkisins gefur út 1. des-
ember ár hvert. Þar kemur einnig
fram að Yfirfasteignamatsnefnd
hefur ákveðið að hækka mats-
verð allra fasteigna á landinu um
18%. Til hliðsjónar við þessa
ákvörðun hefur nefndin þær
breytingar sem orðið hafa á verð-
lagi fasteigna við kaup og sölu frá
því í nóvember á síðasta ári sem
Fasteignamat ríkisins safnar og
vinnur úr. í nokkrum tilvikum
þar sem um vanmat hefur verið
að ræða frá fyrri tíð hækkar mat-
sverðið mun meira ss. í Kjalarn-
eshreppi um 35% og í Mosfellsbæ
og Húsavík um 25%.
Á næsta ári verður fasteigna-
skattur til sveitarfélaga lagður á
eftir nýjum lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga sem sam-
þykkt voru á Alþingi í vor þar
sem litið er á skattinn sem gjald
fyrir veitta þjónustu en ekki sem
eignaskatt. í lögunum var
ákvæðum um álagningarprós-
entu einnig breytt og er hún nú
allt að 0,5% í lægri flokki og allt
að 1% í þeim hærri. Sveitarst-
jórnum er heimilt að hækka þessa
álagningarprósentu um 25% og
getur hún því verið 0 - 0,625% í
lægri flokknum og 0 - 1,25% í
þeim hærri.
Til þess að njóta óskertra fram-
laga úr Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga má álagningarprósentan
ekki vera lægri en 0,4% af lægri
flokki og 1,0% af hærri flokki
sem félagsmálaráðherra hefur
þegar ákveðið. Sé litið á þær
breytingar sem lögin hafa í för
með sér þá hækkar álagningar-
stofn fasteignaskatts í heild úr
615,2 miljörðum króna í 721,6
miljarð eða um 17,3%. Breyting-
in er engin í Reykjavík, Kópa-
vogi, Garðabæ, Hafnarfirði og
Seltjarnarnesi en annars staðar er
hækkunin tæp 48% úr 221,9 milj-
örðum króna í 328,2 miljarða.
Hækkunin er mest í sveitahrepp-
um og víða um það bil helmings
hækkun. í kaupstöðum og
kauptúnum er hækkunin á bilinu
20% - 80% og á stöku stað meiri.
-grh
Sumaráætlun Norrænu er komin út!
Skipuleggiðsumarfríiðtímanlegaog verðiðykkur úti um eintak
í vetur bjóðum við meðal annars upp á:
Búdapest - 6 dagar frá kr. 33.500
Kaupm.höfn - 6 dagar frá kr. 29.835
Færeyjar - 4 dagar frá kr. 24.950
Öll almenn farseðlasala og skipulagning ferða innanlands sem utan
NORRÆNA FERÐASKRIF STOFAN HF.
Laugavegi 3, R.vík
Sími 91-626362
Fjarðargötu 8, Seyðisfirði
Sími 97-21111