Þjóðviljinn - 08.12.1989, Side 14
EVA LUNA EFTIR ISABEL ALLENDE er saga af ógleymanlegu
fólkí, kostulegum uppátækjum þess, ástum og sorgum. Eva Luna missir ung
móður sína, er þá komið fyrir hjá ókunnugum og lendir brátt í æsilegum atburðum í
tengslum við stjórnmálabaráttu í heimalandinu. í þessari bók sitja frásagnargleðin,
fyndnin og persónusköpunin í fyrirrúmi.
BÖRN ARBATS EFTIR ANATOLI RYBAKOV er áhrifamikil
skáldsaga um líf ungs fólks á myrku tímabili í sovéskri sögu, hugsjónir þess, ástir
og fjötra. Eftir 20 ár var banni við útgáfu hennar aflétt í Sovétríkjunum og hefur
hún síðan farið sigurför um heiminn. Höfundur er verðugur fulltrúi hinnar miklu
rússnesku skáldsögu, sver sig í ætt við meistara hennar Dostojevskí og Tolstoj.
og menning
Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.
ICELAND TOURIST BUREAU
i m
S AÉl
Ferðaskrifstofa íslands var
stofnuð fyrir 53 árum, þá
undir nafninu Ferðaskrifstofa
ríkisins. Þar starfa nú um 20
starfsmenn, í innanlands-
deild, ráðstefnudeild, utan-
landsdeild og við rekstur
Edduhótelanna.
Áratuga reynsla Ferðaskrifstofunnar í skipulagningu ferða-
laga, utanlands jafntsem innan, hefurskipað henni sérstakan
sess í íslenskum ferðamálum.
Ólfkt öðrum ferðaskrifstof-
um, hefur Ferðaskrifstofa
íslands sérhœft sig í þjón-
ustu viðfarþega í áœtlunar-
flugi. Fjölmörg fyrirtœki og
stofnanir hafa um árabil nýtt
sér fljóta og örugga þjón-
ustu utanlandsdeildarinnar við skipulagningu viðskiptaferða
um heiminn. Þaulvanir starfsmenn utanlandsdeildarinnar sjá
um að viðskiptavinir njóti hagstœðustu fargjalda sem völ er á
hverju sinni auk þess sem þeir úfvega gistingu, bílaleigubíla
og aðra þá þjónustu sem þarf í öllum helstu borgum austan
hafs og vestan.
Innanlandsdeild
Síðastliðið sumar fóru á
þriðja hundrað hópa
erlendra ferðamanna í
skoðunarferðir um ísland á
vegum Ferðaskrifstofunnar.
Auk þúsunda erlendra
ferðamanna, sem nýtt hafa
sér þjónustu innanlands-
deildar Ferðaskrifstofunnar,
hafa fyrirtœki og félaga-
samtök innanlands notfœrt
sér hana í sívaxandi mceli. Ráðstefnudeildin annast einnig
árlega fjölda innlendra og alþjóðlegra funda og ráðstefna,
þarsem þátttakendafjöldi erfrá 151ÍI 750 manns.
Edduhótelin eru löngu
landsþekkt fyrir góða þjón-
ustu og hóflegtverðlag, en
Ferðaskrifstofan hefur séð
um uppbyggingu og rekstur
þeirra frá upphafi. Sfðast-
liðið sumar voru 15 hótel
starfrœkt undir nafninu
Hótel Edda og eru þau
staðsetf í öllum landsfjórð-
ungum. Þar býðst notaleg gisting og góður matur og víða <
aðstaða til íþróttaiðkana, funda- og ráðstefnuhalds.
ier
Skógarhlíð 18 • 101 Reykjavík • Sími: 91-25855 • Telex- 2049 • Telefáx: 91-625895