Þjóðviljinn - 08.12.1989, Síða 16
GOMSÆTT
OGGOTT
PajÓMSÆTT OG GOTT er afar áhuga-
■Ji verð og holl lesning öllum þeim sem
iinna góðum mat og góðri heilsu.
í bókinni er að finna gómsæta forrétti,
aðalrétti og ábætisrétti og fylgir litmynd
hverjum þeirra. Bókin er sett upp á þann
hátt að raða má myndunum saman og sjá
þannig fyrir sér girnilegan þrírétta
matseðil... í ótal útgáfum.
SETBERG
Tónlistarkennarar
Staða skólastjóra við Tónskóla Hólmavíkur- og
Kirkjubólshreppa er laus til umsóknar frá
næstkomandi áramótum.
Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri Hólma-
víkurhrepps í símum 95-13193 og13112, og for-
maður skólanefndar ? símum 95-13111 og
13180.
Skólanefnd
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og vinarhug við fráfall
og útför
Jóns Einarssonar
frá Berjanesi í Vestmannaeyjum
Elísa G. Jónsdóttir Jón Hannesson
Ragnheiður Jónsdóttir Ernst Backman
Gunnar Sv. Jónsson Erla Blöndal
Ólöf J. Sigurgeirsdóttir Jón Sigurðsson
barnabörn, langafabörn og langaiangafabörn.
Woody Allen og Mia Farrow skála á Manhattan fyrir týndri móður þess fyrrnefnda.
KVIKMYNDIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Svo bregðast krosstré
New York sögur (New York Stori-
es), sýnd í Bíóborginni. Banda-
rísk, árgerð 1989. Leikstjórn:
Woody Allen, Francis Coppola,
Martin Scorsese. Handrit: Woo-
dy Allen, Francis og Sofia Copp-
ola, Richard Price. Fram-
leiðandi: Robert Greenhut. Kvik-
myndataka: Sven Nykvist, Vitt-
orio Storaro, Nestor Almendros.
Aðalhlutverk: Woody Ailen, Mia
Farrow, Yae Questei, Heather
McComb, Talia Shire, Giancarlo
Giannini, Nick Nolte, Rosanna
Arquette.
New York Stories er ein af
þeim myndum sem beðið hefur
verið eftir með hvað mestri eftir-
væntingu þetta árið. Þrír viður-
kenndustu leikstjórar Bandaríkj-
anna í nær tvo áratugi slá þar
saman í púkk og útkoman er
þr j ár myndir í einni sem eiga ekk-
ert annað sameiginlegt en að ger-
ast allar í New York. Eftirvænti-
ngin eftir myndinni kann að hafa
áhrif á niðurstöðu áhorfenda, en
hún er nefnilega ekkert annað en
vonbrigði.
Martin Scorsese ríður á vaðið
með sögu úr listamannaheimi
borgarinnar og fer vel á því að
útlit Life Lessons er ákaflega list-
rænt og smart. Kvikmyndataka
Almendros minnir mjög á fyrrum
samstarfsmann Scorsese, Micha-
el Ballhaus, þarsem tökuvélinni
er snúið í kringum persónurnar
með hröðum klippingum Thelmu
Schoonmakers. Enda þótt þessi
notkun hans á myndmáli undir
háværri tónlist Procul Harum ofl.
gefi myndinni skemmtilegan blæ
er því miður fátt athyglisvert í
sögunni. Richard Price, sem
skrifaði líka Color of Money, fær
þarna fjárhættuspilara Dostojev-
skís að láni en klisjukennt ástar-
samband höfuðpersónanna er
engan veginn nógu athyglisvert
til að vel fari. Að vísu leikur Nick
Nolte málarann Dobie á mjög
skemmtilegan hátt en myndin
hefur því miður ekkert fram að
færa að öðru leyti.
Þá er röðin komin að Francis
Coppola með Life Without Zoe,
sem hann byggir, ásamt dóttur
sinni, á lífi eigin fjölskyldu. Þeir
sem eru ekki ánægðir með fyrstu
myndina geta allt eins fengið sér
blund yfir þessari því hún er
miklu verri. Myndin á greinilega
að vera það persónulegasta sem
frá Coppola hefur komið en er
ekkert nema þreytt saga af stelpu
sem lifir nær sjálfstæðu lífi án for-
eldra í flottu hóteli. Ekki er við
Heather McComb að sakast en
aðrar persónur eru ákaflega
þokukenndar og bullið með ara-
badrenginn var út í hött. Það er
greinilegt að þessi meistari átt-
unda áratugarins ræður ekki við
svona litlar, saklausar sögur úr
hversdagsleikanum og gildir þá
einu þótt sagan sé nánast sönn úr
hans eigin lífi. Vonandi tekur
eitthvað betra við hjá Coppola á
komandi áratug. Ég get að vísu
ekki sagt að ég hafi mikla trú á
þriðja kapítula Guðföðurins, en
maður veit aldrei.
Það var snjallt hjá Robert
Greenhut að láta Woody Allen
ljúka þessum þríleik, því annars
hefðu áhorfendur hrökklast út í
þunglyndiskasti. Oedipus
Wrecks er að vísu ekkert sérstak-
lega merkileg mynd en Allen
tekst þó að segja sniðuga sögu frá
upphafi til enda. Allen hefur ekki
leikið sjálfur síðan í Hönnu árið
1986 en í millitíðinni hefur hann
gert þrjár kvikmyndir og nýjasta
mynd hans er á klippiborðinu.
Hér hefur hann skrifað hlutverk
beinlínis utan um sjálfan sig, lög-
fræðing á Manhattan af gyðinga-
ættum sem þarf sífellt að skam-
mast sín fyrir móður sína. Hún er
aftur frábærlega leikin af Yae
Questel og slær jafnvel út Ann
Ramsey í Throw Momma from
the Train.
Niðurstaðan er því sú að New
York Stories uppfyllir alls ekki
þær kröfur sem gerðar eru til
mynda þessara þriggja meistara.
Hún er þó ekki beinlínis vond
mynd og líklega munu flestir
kunna að me.ta einhvem hlut-
anna þriggja. Fæstir munu heil-
last af Life without Zoe en aðrir
geta vafalaust unað sér við stíl
Scorsese eða meinfyndni Allens.
... á við bestu galdraþulu!
Ef þér finnst eitthvað vanta upp á bragðið af
súpunni, pottréttinurn, heitu sósunni, salatsósunni
eða ídýfunni skaltu einfaldlega bæta við
MS sýrðum rjóma, 18%. Það er allur galdurinn.
Regnboginn
Áfram
listrænn
Nú þegar Regnboginn hefur
fengið nýjan eiganda, Jón Ólafs-
son hljómplötuútgefanda með
meiru, velta menn því fyrir sér
hvort einhverjar breytingar verði
á stefnu hússins.
„Nei, það verða engar stór-
breytingar. Ég ætla að leggja
áherslu á íslenskar myndir og list-
rænar myndir og líst bara vel á að
reka kvikmyndahús,“ sagði Jón í
gær. Þeir sem farið hafa þangað
nýlega velta fyrir sér hvers vegna
sýnd eru tvö gömul lög með
HLH-flokknum í upphafi sýning-
ar! „Það er nú meira í gamni gert.
HLH er 10 ára og mér fannst til-
valið að þurrka rykið af þessu af
þeim sökum,“ sagði Jón. Ja, sér-
hvert er nú gamanið.
Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa
18% (Mayonnaise)
1 tsk (5 g) 9.7 37
1 msk (15 g) 29 112
100 g 193 753
16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ