Þjóðviljinn - 08.12.1989, Síða 17
JOLAMATURINN
Jólabrauð-
flétta með
sesamfræi
Fátt er betur við hæfí en að
hafa heimabakað brauð á jóla-
borðinu. Brauðflétta með sesam-
fræi er ítalskt jólabrauð, og er
uppskrftin miðuð við tiltölulega
lítið brauð. Hægt er stækka upp-
skriftina að vild.
Efni: 200 gr af hveiti, 10 gr af
fersku bjórgeri, salt, 1 dl mjólk,
50 gr smjör, 1 egg og ein eggja-
hvíta að auki, 50 gr af niðurrifn-
um osti (t.d. óðalsosti), matskeið
af sesamfræi.
Best er að hafa hveitið við rúm-
lega stofuhita áður en deigið er
hrært. Leysið gerið upp í mjólk-
inni ylvolgri. Hellið henni síðan í
hveitihrúguna miðja. Bætið smá-
vegis salti útí, mjúku smjöri, egg-
inu með eggjarauðunni og hnoð-
ið síðan í deig.
Hnoðið deigið í um það bil 10
mín. Blandið þá ostinum niður-
rifnum útí og hnoðið enn í 5 mín-
útur. Látið deigið síðan lyfta sér á
hlýjum stað í um það bil klukku-
stund, eða þangað til rúmmál
þess hefur um það bil tvöfaldast.
Skiptið deiginu þá í 3 hluta og
rúllið því upp í þrjá jafnlanga
strengi og fléttið saman.
Setjið fléttuna síðan á smurða
ofnplötu og látið fléttuna loka sér
í hjartaformi. Látið hana nú lyfta
sér enn í klukkustund á hlýjum
stað, eða þar til hún hefur enn
tvöfaldað rúmmál sitt. Penslið þá
með eggjahvítunni og stráið síð-
an sesamfræjunum yfir. Bakist í
200° heitum ofni í um það bil
klukkustund.
Merkía t..
& k ry9gir a.
goít . 'nsUto , ~~ -
kattJL, U Sú-Ji'iis Cr fenn úrv„i
f ðatnanne m j Jtíerandi'
K Va“Uií}z ?}°r>
" - .... ' °?nSd:
arUtti
•/i
••-'- 'Æ
Síríus
Kbnsum
suóusúldculaói
Gamla góða Síríus Konsum
súkkulaðið er í senn úrvals
suðusúkkulaði og gott til átu. Það
er framleitt úr bestu hráefnum, er
sérlega nærandi og drjúgt til suðu
og í bakstur, enda jafnuinsælt í
nestispökkum ferðamanna og
spariuppskriftum húsmæðra.
Síríus Konsum er vinsælast hjá
þeim sem velja bara það besta.
Ma