Þjóðviljinn - 08.12.1989, Side 29
SKÁK
Kynngimagnaðar maraþonskákir
Æ síðan Friðrik Ólafsson vann Ulf
Andersson í 104 leikjum og efftir 13
klst. taflnnennsku í Wijk aan Zee
1971,hafalangarskákirveriðísér -
stöku uppáhaldi hjá mér. Tveir sterkir
skákmenn setjast niðurog tefla upp í
100 leiki eða meira og það er viðbúið
að skákin verði viðburðarík. Yfirleitt
er það vegna smávægilegra tilfær-
ingaað hið hárfínajafnvægi stöðu-
nnar rakskast og staðan á borðinu
tekur á sig hinar furðulegustu myndir.
Gott dæmi er t.d. þrettánda einvígis-
skák Spaskís og Fischers í
Laugardalshöll 1972. Þessi lengsta
skák einvígisins varði að vísu „ekki
nema” 74 leiki en vegna hinnarfurðu-
legu stöðu sem upp kom telst hún ein
af gimsteinum skáksögunnar. Lengsta
kappskák sem heimsmetabók Gu-
innes tekur gilda er viðureign lítt
þekktra Israelsmanna. Yedael nokk-
ur Stepak vann Jakob Mashian í 191
leik. Fræðilega sóð getur skák náð
5949 leikjum og þá er tekið mið af 50
leikja reglunni. Islandsmetið er 163
leikir, skák undirritaðs og Margeirs
Péturssonar á alþjóðlega mótinu á
Akurey ri í fyrra. Niðurstaðan varð
jafntefli.
Lengsta skák sem tefld hefur verið í
heimsmeistaraeinvígi er fimmta viður
eign Kortsnojs og Karpovs í Baguio á
Filippseyjum árið 1978. Hún stóð í
124 Ieiki og lauk með jafntefli. Ég
skýrði skákir erkifjendanna í Þjóð-
viljann og er þessi tiltekna skák fór í
bið var staða Karpovs hartnær töpuð
og gat ég þess í fyrirsögn. Þegar úrslit-
in lágu fyrir og Karpov hafði náð jafn-
tefli fór ég með telexskeytin með
leikjum uppá kaffistofu Þjóðviljans.
Þar var mættur einn af þessum gömlu
Stalínistum, sem nú eru orðnir sorg-
lega fáir. Hann hafði ýmislegt til mál-
anna að leggja: „Þú hljópst laglega á
þig. Hélstu virkilega að hann Anatoly
færi að tapa fyrir þessum landráða-
manni og Trotzkyista. Það er illt að
hafa keypt þetta blað í 40 ár og þurfa
að lesa slíkt bull. Svo er verið að hafa
þetta lið á fullum launum.”
Þekktur markvörður - sem vann
þetta sumar á Þjóðviljknum og var
staddur á kaffistofunni tók hiklaust
málstað minn. Markvörðurinn hafði
víst alveg áreiðanlega munninn fyrir
neðan nefið en þó er ég hræddur um
að þar hafi skrattinn hitt ömmu sína.
Upphófst sem sagt hið hrikalegasta
orðaskak sem undirritaður þoldi illa
við og laumaðist burtu. Ég hef ekki
frétt í smáatriðum hvernig við-
skiptum þeirra lauk en þess má geta
að glíman við Stalínistann hafði þær
afleiðingar að markvörðurinn hleypti
ekki bolta í netið hjá sér næstu 11 leiki
í 1. deild.
En þá er komið að skák dagsins.
Þetta er lengsta skák sem heims-
meistarinn Garrí Kasparov hefur
teflt, sú eina sem farið hefur yfir 100
leiki. Það gefur auga leið að plássins
vegna verða skýringar í styttra lagi:
Belgrad 1989, 9. umferð:
Nigel Short - Garrí Kasparov
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 4. Rxd4 Rf6
2. Rf3 d6 5. Rc3 a6
3. d4 cxd4 6. f4
(„Enska leiðin”, 6. Be3 sem Short,
Nunn og Chandler hafa notast við
með frábærum árangri hin síðari ár,
þykir ekki henta gegn Kasparov.)
6. .. e6 12. Be3 b5
7. Df3 Rbd7 13. g5 hxg5
8. g4 h6 14. fxg5 Rh5
9. Be2 Db6 15. g6 Re5
10. Rb3 Dc7 16. gxf7+ Dxf7
11. Dg2 Hb8 17. Hfl Dg6!
(Máttleysisleg byrjunartaflmennska
hefur gefið svörtum afbragðs stöðu.
Ósjaldan fær Kasparov yfirburðatafl
vegna þess að menn treysta sér ekki
út í hin krítísku afbrigði.)
20. Dcg6 Rxg6 25. e5 dxe5
21. Rd4 Re5 26. Bxe5 Rg4
20. a3 Bd7 27. Bf4 Bc5
21. 0-0-0 Hc8 28. Re4 e5
22. Bg5 Rf6 29. Rxc5
23. Bf4 Rc4 30. Hfel
24. Bxc4 Hxc4 31. Rb3
leika án raunverulegrar áhættu..)
31. .. Hxc2+ 36. Hcl Hxcl
32. Kxc2 Bf5+ 37. rxci f3
33. Kc3 exf4 38. Kc5 Rg4
34. Hd2 Hc8+ 39 Re2”
35. Kb4 Re3
(Aðþrengdur og að öllum líkindum í
tímahraki gefur Short mann í þeirri
von að ná jafntefli. Betra var þó 39.
Rd3.)
39. .. fxe2 41. Kb6 b4!
40. Hxe2 Kf7
(Vitaskuld ekki 42. Kxa6 Bd3+ og
vinnur.)
42. axb4 Bd3 46. Kc3 Kf6
43. Hg2 Re5 47. Hg3 Rf4
44. Kc5 Bb5 48. Hg4 Re6
45. Kd4 Rd3 49. Kd2 g5
(Eitt það merkilegasta við þessa
stöðu er að í mörgum tilvikum þvælist
tvípeðið á b-línunni fyrir hvítum. Þó
að al-reiturinn hvíts sé ekki á áhrifa-
svæði biskupsins þá tryggir 50. h4
ekki jafntefli, 5. .. Kf5! 51. Hxg5+
Rxg5 52. hxg5 Kxg5 og við fáum upp
sömu stöðu og í lokin.)
50. Ke3 Kf5 60. Kgl Kg4
51. Hg3 Rf4 61. Hg3+ Kf5
52. Hf3 Ke5 62. H13 g4
53. Hg3 Rd5+ 63. He3 Rd5
54. Kf2 Kf5 64. Hb3 Kf4
55. Hf3+ Kg4 65. Kf2 Rf6
56. Hg3+ Kh4 66. Ha3 Re4+
57. KO Rf6 67. Kg2 Be2
58. Kg2 Rh5 68. Hb3 Bfl+
59. He3 Rf4+ 69. Kgl
(Vitaskuld ekki 69. Kxfl Rd2+ og
vinnur. Smátt og smátt þrengir Kasp-
arov að Short og tekst að hrekja
kónginn frá hinu h-peðinu.)
69. .. Bc4 72 Haj IJ 4
70. Ha3 Rg5 73. Kf2 Be4
71. Hc3 Bd5
(Ekki 72. Hxa6 Rh3+ og 73. ..
Bd3+.)
73. .. Bb7 77. Hd3+ Ke4
74. Hd3 Rh3+ 78. Hg3 Kf4
75. Kel Bc6 79. Ha3
76. Hd4+ Kf3
(Eða 79. Kfl Bf3! 80. Kel Ke3
o.s.frv.)
79. .. Bb5 81. Hc8 Ke3
80. Hc3 Rg5 82. Hh8 Rf3+
83. Kdl Be2+ 84. Kc2 Rxh2!
(Eftir vel útfærða áætlun rekur þessi
skemmtilega mannsfórn endahnútinn
á skákina. Short hefur vitaskuld séð
fyrir lokin en fyrir áhorfendur teflir
hann þar til allt um þrýtur.)
85. Hxh2 g3 95. Kd2 Ke4
86. Hh3 Kf2 96. Kc3 Ke3
87. Kd2 g2 97. Kc2 Ke2
88. Hh2 Bb5 98. Kcl Bd3
89. Hh6 gl (D) 99. 53 Kel
90. Hf6+ Kg2 100. Kb2 Kd2
91. Hg6+ Kfl joi. Kal Kc2
92. Hxgl+ Kxgl |02. Ka2 Kcl
93. Kel Kg2 103. Kal Bbl
94. Kdl Kf3
- og Short gafst ypp. Hann er í
leikþröng. Helgi Ólafsson
4______________
ogsalaíbúðar
Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Hvað era húsbréf?
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar getur fengið
hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir
fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Húsbréf eru verðtryggð og gefin út með föstum vöxtum til 25 ára.
Gengi þeirra er opinberlega skráð daglega.
Húsbréf eru með ríkisábyrgð og undanþegin skatti.
m
Umsögn ráðgjafastöðvar er
__A skilyrði fyrir tilboði.
Allir kaupendur í húsbréfakerfinu verða að hafa í
höndum skriflega umsögn ráðgj.afastöðvar
Húsnæðisstofnunar um greiðslugetu sína og
kaupverð íbúðar, áður en þeir geta gert seljanda
kauptilboð.
/\ o \ Seljandi fær kauptilboð.
/,!—~\ *** \ Tilvonandi kaupandi sýnir seljanda
umsögn ráðgjafastöðvar og gerir honum kauptilboð
með tilliti til greiðslugetu sinnar skv. umsögninni.
\ Tilboði tekið með fyrirvara um
^ \ skuldabréfaskipti.
Þegar samkomulag hefur náðst um kaupverð,
samþykkir seljandi kauptilboðið með fyrirvara um
skuldabréfaskipti við húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar. Allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar getur
verið fasteignaveðbréf sem kaupandinn gefur út og
seljandinn fær skipt fyrir húsbréf. Fasteignaveðbréfin
geta verið tvö, ef seljandi þarf að aflétta skuldum
sem kaupandi tekur ekki við, frumbréf og viðauka-
bréf.
k \ Undirbúningur að skuldabréfa-
í-----X skiptum. Þegar seljandi hefur
gengið að tilboði, fer tilvonandi kaupandi fram á
skuldabréfaskipti við húsbréfadeildina.
Afgreiðsla húsbréfadeildar.
_—A Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs kaupanda. Samþykki hún kaupin,
sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveð-
bréfið, útgefið á nafni seljanda.
Ae \Kaupsamningur undirritaður -
A fasteignaveðbréf afhent
seljanda. íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera
með sér kaupsamning og kaupandi afhendir
seljanda fasteignaveðbréfið.
A'
Kaupandi lætur þinglýsa
kaupsamningnum.
A
Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl.
og hafa lánsrétt.
Seljandi skiptir á fasteigna-
, veðbréfi fyrir húsbréf.
Óski seljandi eftir því að fá húsbréf, fær hann
þau afhent hjá húsbréfadeildinni í skiptum fyrir
fasteignaveðbréfið.
*n\Húsnæðisstofnun annast inn-
heimtu fasteignaveðbréfsins
af kaupanda, enda orðinn eigandi þess, þegar hér er
komið.
/\\W\ Seljandi i
að vild.
i ráðstafar húsbréfunum
i Vild. Seljandi getur átt bréfin,
notað þau við íbúðarkaup eða leyst þau út.
(Það virðist ekki skipta neinu máli
hvort drottningarnar séu horfnar af
borðinu, ávallt tekst Kasparov að
hleypa taflinu upp. Skiptamunsfórnin
gefur honum góða vinningsmögu-
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 29
HÚSNÆDISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD
SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK SÍMI -696900