Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 21. OKTÖBER 1995 6 0lönd * Wllly Claes sagði af sér sem framkvæmdastjóri NATO: Uffe Ellemann gaf strax kost á sér í draumastarfið - eitt síðasta verk Claes að skila gullkorti í eigu NATO Kapphlaupið um starf fram- kvæmdastjóra NATO hófst aðeins hálfri annarri stundu eftir að Willy Claes hafði sagt starfi sínu lausu eft- ir hádegi í gær. Uffe Ellemann-Jens- en, fyrrum utanríkisráðherra Dana, gaf strax kost á sér í starfið. Hefur hann litiö það hýru auga í nokkur ár og verið haft eftir honum að þetta væri draumastarfið sem hann gæti ekki látiö fram hjá sér fara. Uffe Elle- mann nýtur nokkurs almenns stuðn- ings í starfið og er talinn hafa treyst sig mjög í sessi sem utanríkisráð- herra Danmerkur 1982-1993. Áber- andi fas hans þykir þó vinna gegn honum og gekk einn varnarmálasér- fræðingur svo langt aö kalla hann loddara. Frakkar gætu reynst Uffe Ellemann erfiðir vegna andstöðu á Norðurlöndum við kjarnorkuvopna- tilraunir þeirra í Kyrrahafi en Uffe hefur reyndar lítið tjáð sig um þær. Hans van der Broek, fyrrum utan- ríkisráöherra Hollands og utanríkis- málastjóri ESB, gaf fljótt út yfirlýs- ingu þess efnis að hann gæfi ekki kost á sér og af hálfu Þjóðveija var strax ljóst að nýr framkvæmdastjóri yrði ekki þýskur. Ruud Lubbers, fyrrum forsætis- ráðherra Hollands, gaf ekkert út um fyrirætlanir sínar en hann hefur al- mennt verið talinn líklegasti eftir- maður Claes. Samkvæmt veðmöng- urum í London í gærmorgun var Lubbers líklegastur til að hreppa hnossið. En Lubbers eignaðist marga óvini þau 12 ár sem hann var forsætisráð- herra Hollands. hefur Helmut Kohl ekki gleymt andstöðu hans viö sam- einingu þýsku ríkjanna eftir fall Ber- línarmúrsins. Þá mun John Major, forsætisráðherra Breta, vera því mótfallinn aö Lubbers setjist í fram- kvæmdastjórastólinn. Aðrir kandídatar sem nefndir hafa verið eru Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, og Thor- vald Stoltenberg, sendifulltrúi Sam- einuðu þjóðanna í fyrrum Júgóslav- íu. Hvorugt þeirra er þó talið koma til greina. Er búist við niðurstöðu þegar utanríkisráðherrar NATO hittast á 50 ára afmæhshátíð SÞ í New York um helgina. Hrakinn úr embætti Willy Claes er fyrsti framkvæmda- stjóri NATO sem hrökklast úr emb- ætti. Hann þótti ekki eiga annarra kosta völ eftir að belgíska þingiö hafði svipt hann þinghelgi vegna rannsóknar á mútumáh sem tengist kaupum Belga á herþyrlum frá ít- alska framleiöandanum Augusta. Það var biturleiki í röddinni þegar Claes tilkynnti afsögn sína í gær. Hann sagöist vera saklaus af öhum ásökunmn um spillingu og hafa feng- ið óréttláta meðferð. Sakaði hann enn fremur belgíska stjómmála- menn og blaðamenn um að hafa hrakið sig úr embætti. Eitt fyrsta verk WiUys Claes þegar hann kom á skrifstofu sína í gærmorgun, stuttu áður en hann sagði af sér, var að skUa guUgreiðslukorti frá American Express. Kortið er í eigu NATO og hefur úttektarheimild án takmark- ana. Kortið hefur hann aðaUega not- að til að greiða himinháa hótelreikn- ingaumallanheim. Reuter Stuttar fréttir Virða vopnahlé Ríkisstjóm Bosmu, Bosníus- erbar og Króatar hittust nærri Sanski Most og samþykktu að virða vopnahlé sem hefur aö mestu verið hunsaö á svæöinu. Ráðherra yfffheyrður Hæstiréttur Spánar tilkynnti aö þar vUdu menn yftrheyra Jose Barrionuveo, fyrrum innanríkis- ráðherra, vegna „skítuga stríös- ins“ gegn aðskUnaðarsinnum Baska á níunda áratugnum. Rannsóknin færist því skrefi nær Gonzales forsætisráðherra. Viilkosningarstrax Silvio Ber- lusconi sagði að Lamberto Dini forsætisráð- herra ætti að segja af sér svo halda megi þingkosningar á Italiu sem fyrst. Hafnaframsali Hæstiréttur Svíþjóðar hefur hafnað framsali á Alsírmanni, sem grunaöur er um sprengjutil- ræði í París, til Frakklands, þar sem hann hafi verið í Svíþjóð þegar tilræðin vora framin. Geimferjaáioft Geimferjan Columbia komst loks á loft eftir sex misheppnaðar tUraunir. Reuter Erlendar kauphallir: Metin falla -hráolía lækkar Verð á hráolíu lækkaði talsvert á markaði í London og fór tunnan niö- ur í 15,77 doUara. Bensínverð stóð nánast í stað á Rotterdam-markaði. Verð á sykri og kaffi er farið að stíga á ný í kjölfar hækkunar á kakói. Dow Jones hlutabréfavísitalan í kauphöllinni við WaU Street náði sögulegu hámarki sínu sl. fimmtudag þegar nákvæmlega 8 ár vora Uðin frá hraninu mikla 19. október 1987. „Við þökkum Guði fyrir að markaðurinn er ekki jafn hroðalegur og hann var fyrir átta árum,“ sagði einn veröbréf- amiðlara Oppenheimer. Hlutabréfavísitölur í London og Tokyo náðu sömuleiðis sögulegu há- marki í vikunni þannig að aukið fjör er að færast í hlutabréfamarkaðinn. -Reuter Boris Jeltsin, t.h., læst skjóta endur við Rambouillet-kastala rétt utan við París í gær. Jacques Chirac Frakklands forseti fylgist brosandi meö tilburðunum, Simamynd Reuter Jeltsín dregur í land Boris Jeltsín Rússlandsforseti virt- ist í gær hafa sofið á yfirlýsingum sínum frá deginum áður þar sem hann skammaði Andrej Kozyrev ut- anríkisráðherra eins og hund frammi fyrir alþjóð og sagðist vera að leita að manni í hans staö. Þá vakti það gríðarathygli að hann ráf- aöi um salinn og kleip tvo ritara sína milli herðablaðanna. Kozyrev stóð hljóður eins og mús við hlið Jeltsín á ilugvellinum í Moskvu í gærmorgun og fékk þá þau skilaboð frá yfirboðara sínum að hann fengi aö halda embætti sínu, um stund að minnsta kosti. „Kozyrev þarf góðan aðstoðarmann 1 ráðu- neytiö til að sjá um pappírsvinnu og innra starf í ráðuneytinu. Svo þarf hann að heröa sig líka,“ sagði Jelts- ín. Síðan stigu þeir upp í flugvél sem flutti þá áleiðis í opinbera heimsókn til Frakklands og Bandaríkjanna. Jeltsín mun vera viðstaddur hátíða- höld vegna 50 ára afmælis SÞ í New York og hitta Clinton forseta að máli. Jeltsín virtist einnig hafa mildast í afstöðu sinni til stækkunar NATO en hann sagði í fyrrakvöld, um leiö og hann skammaði Kozyrev, aö hann ætlaði ekki að taka þátt í neinum friðaraögerðum í fyrrum Júgóslavíu UndÍrstjÓmNATO. TT/Reuter Getnaðarvamarpillur: Þúsundir kvenna leituðu ráða Skiptiborð á læknastofum og heilsugæslustöövum í Bretlandi voru rauðglóandi í allan gærdag í kjölfar írétta um að sjö algengar tegundir getnaöarvamarpilla tvöfólduöu líkurnar á blóðtappa. Niðurstööur þriggja rannsókna benda til að þessar sjö pilluteg- undir séu varasamar í þessum efnura; Minulet, TriMinulet, Marvelon, Mercilon, Femodene, Femodene ED og Triadene. Hjúkrunarfólk var ævareitt þar sem upplýsingarnar höfðu ekki verið látnar þvi í té áður en þær voru opinberaðar þannig að þaö gæti undirbúið sig. En heilbrigð- isyfirvöld töldu aö ekki mætti bíða með birtingu niðurstaön- anna. Búist er við að 1,5 miiljónir breskra kvenna munu skipta um pillutegund. Japan: Herstöðvum mótmælteftir nauðgun Um 50 þúsund Japanar, þar á meðal íjöldi þingmanna, söfnuð- ust saman fyrir utan herstöð Bandaríkjamanna í hafnarborg- inni Ginowan á Okinawa-eyju i gær til að mótmæla meintri nauðgun bandariskra hermanna á japanskri stúlku á dögunum. Kraföist mannfiöldinn þess að ríkisstjórnir Japans og Banda- ríkjanna bæðust afsökunar á at- vikinu og úthlutuðu fórnarlamb- inu miskabótum. Þá var þess krafist að löghelgi bandarískra hermanna yrði afnumin og her- stöðvum þeirra yrði fækkað. Þá var einnig krafist meiri aga í her- stöðvunum. Forseti Kenía ræðstáSvía Forseti Kenía réöst harkalega á sænsk stjórnvöld í gær þar sem þau hefðu ekki stöövaö það sem hann kallaði innrás í sendiráð Kenia í Stokkhólmi. Hópur bar- áttumanna iyrir mannréttindum heimsótti sendiráö Kenía í Stokk- hólmi á þriðjudag og ætluðu að afhenda undirskriftalista með 10 þúsund nöfnum þar sem þess var krafist að fangelsaður Keníamaö- ur yrði látinn laus. Samkvæmt norrænum fréttaskeytum kom til handalögmála i sendiráðinu þar sem sendiráðsstarfsmenn höfðu sig mjög í frammi. Var norskur ljósmyndari barinn í andlitiö og hópnum hent út. Forseti Kenía hótaði fiöldamótmælum við sænska sendiráöið í Nairobi. Clintonvillekki mismunasam- kynhneigðum Bill Clinton Bandaríkjafor- setihéfuríbréfi ; til Edwards Kennedys öld- ungardeildar- þingmanns,. gefiö nýju laga- frumvarpi sem vemda á hagsmuni samkyn- hneigðra í vinnuleit stuðning sinn. Harrn sagði í bréfinu að ekki ætti að neita einstaklingum um vinnu á grundvelli atriða sero tengdust á engan hátt hæfileika þeirra til að stunda vinnuna. Clinton olli miklum kurr meðal íhaldsamra Bandaríkjamanna skömmu eftir að hann tók viö embætti fyrir þá steíhu sína aö ieyfa samkynhneigðum að ganga i herinn. Getur hann búist við andbyr í suðurríkjunum í kom- andi kosningabaráttu. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.