Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 37
I>"V LAUGARDAGUR 21. OKTÖBER 1995 ibridge Þröstur stendur vel að vígi á haustmóti TR Alþjóðlegu meistaramir Þröstur Þórhailsson og Sævar Bjamason, stigahæstu menn á haustmóti Taflfé- lags Reykjavíkur, tefldu innbyrðis í sjöttu umferð. Ljóst var að uppgjör þeirra yrði nokkurs konar úrslita- skák á mótinu því að enginn ógnaði veldi þeirra á tindinum. Þröstur náði undirtökunum í skákinni en Sævar varðist vel og lengstum var útíit fyr- ir jafntefli. En með harðfylgi tókst Þresti að knýja fram sigur eftir 47 leiki i hróksendatafli og þar með var hann orðinn langefstur. Staðan eftir átta umferðir var sú, að Þröstur hafði 7 vinninga en Sævar kom næstur með 5,5 v. Níunda og tíunda umferð hafa verið tefldar er þetta birtist en ellefta og síðasta umferð fer fram nk. miðvikudags- kvöld og hefst kl. 19.30 í skákheimil- inu í Faxafeni. Keppendur á haustmótinu eru alls 106 að unglingaflokki meðtöldum. Keppni þar er lokiö með sigri Berg- steins Einarssonar sem þar með er unglingameistari Taflfélags Reykja- víkur 1995. Hann vann allar sjö skák- ir sínar en Þórir Júlíusson kom næstur með 6 v. og Siguröur Páll Steindórsson hreppti 3. sæti með 4,5 v. - hærri á stigum en Ingibjörg Edda Birgisdóttir sem fékk jafnmarga vinninga. í A, B, C og D-flokki á aðalmótinu er teflt í 12 manna riðlum en í E- flokki eru 36 keppendur og tefla eftir Monrad-kerfi. I B-flokki voru Páll Agnar Þórarinsson og Ólafur B. Þórsson með 5,5 v. af 8 mögulegum en Bragi Þorfmnsson hafði 4,5 v. að loknum sjö skákum. Jóhann H. Ragnarsson var efstur í C-flokki með 6 v. og í E-flokki voru Sigurður Páll Steindórsson og Þórir Benediktsson efstir með 6,5 v. af 8 mögulegum. Tveir keppendur í A-flokki hafa hætt keppni, annar vegna veikinda en hinn af ókunnum ástæðum. Það er ákaflega bagalegt ef menn hætta keppni í mótum þar sem ætlunin er að allir tefli yið alla en gerir minna til í opnu mótunum. Áhorfendur sem ætluðu að fylgjast með keppni efstu manna sl. sunnudag komu t.a.m. að tómum kofanum því að mótherjar þeirra Sævars og Þrastar létu ekki sjá sig! Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Kristján Eðvarðsson Frönsk vörn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. Re2 dxe4 5. a3 Bxc3+ 6. Rxc3 Rc6 7. Bb5 Re7 8. Rxe4 Dd5 Svartur fer á peðaveiðar en trúlega er 8. - 0-0 betra. 9. Dd3 f5 10. Rg3 0-0 Ef 10. - Dxg2 11. Bf4 og hvítur á betra tafl. 11. Re2!? Dxg2 12. Hgl De4 13. Dg3 Hf7 14. Bd3 Dd5 15. Bf4 Rg6 Til greina kemur 15. - Rxd4!? 16. Rxd4 Dxd4 með hugmyndinni að svara 17. Be5 með 17. - Dg4. En hvít- ur getur haldið frumkvæðinu meö 17. 0-0-0. 16. 0-0-0 Rxd4 17. Rxd4 Dxd4 Ekki gengur 17..- Rxf4 18. Dxf4 e5 19. De3! og nú 19. - exd4 20. De8 + Hf8 21. Hxg7 +! Kxg7 22. Hgl + o.s.frv. eða 19. - Dxd4 20. Dxd4 exd4 21. Bc4 c5 22. c3! með sigurvænlegu tafli. _18. Bxc7 Dc5?! Til greina kemur 18. - Df6!? en hvít- ur á gott spil fyrir peðið. 19. Bd6 Dc6 20. h4 Bd7 21. h5 Rf8 22. Be5 g6 23. Bc3 He8? Afleikur í erfiðri stöðu en 23. - Dd5 má svara með 24. hxg6 Rxg6 25. Hhl He7 26. BfB og ef 26. - Hf7 27. Dxg6+ hxg6 28. Hh8 mát. 24. De5 - Og svartur gaf. Hvítt: Bragi Þorflnnsson Kjartan Á. Maack Pirc-vörn. 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. f3 Bg7 5. Be3 0-0? Umsjón Jón L. Árnason Býsna algeng mistök. Hvítur hefur stillt hði sínu upp með kóngssókn í huga en svartur kærir sig kollóttan ogiinnur kóng sínum „skjól“ á miðju átakasvæðinu. 6. Dd2 c6 7. 0-0-0 Dc7 8. g4 e5 9. h4 b5 10. h5 a5 11. Dh2 Hér og í leikjunum á undan var sterkt að losa sig við mikilvægasta vamarmanninn með Be3-h6. 11. - He8 12. Kbl a4 13. Rce2 Rbd7 14. Rg3 Rf8 15. Rle2 b4 16. Rcl R6d7 17. hxg6 hxg6 18. Bh Re6 19. Bxg7 Kxg7 20. Rf5+! Kf8 Ekki gengur 20. - gxf5 vegna 21. Dh6 + og mát blasir við í næsta leik. 21. Dh4 + Rg5 22. dxe5 dxe5 23. Hd6+ -Og nú gafst svartur upp, því að hann vildi ekki leyfa 23. - He6 24. Dh8 mát! . * Heimsmeistaramótið í Peking 1995: Kanada og Bandaríkin berjast um Bermúdaská I ina Kanada og Bandaríkin sigruðu bæði í undanúrslitum heimsmeist- aramótsins í Peking með nokkrum yfirburðum og þegar þetta birtist mun .ljóst vera hvort landið hýsir Bermúdaskálina næstu tvö árin. í kvennaflokki bítast hins vegar sveitir Þýskalands og Bandaríkjanna um heimsmeistaratitilinn. Leiðin í undanúrslitin var hins vegar erfiö fyrir Bandaríkjamennina en þeim tókst að komast upp fyrir andstæðinga sina, Indónesíumenn, í síðustu lotunni. Frakkar, sem voru andstæðingar Bandaríkjamanna í undanúrslitunum, unnu hins vegar Kínverja í síðasta spih leiksins og skildu aöeins 3 impar löndin að. Kanada gersigraði hins vegar Suö- ur-Afríku meðan Svíar unnu góðan sigur á heimsmeisturum Hohend- inga. Kanadamenn voru hins vegar í engum vandræðum með Svíana sem hafa lengi reynt að komast í baráttu um Bermúdaskálina. Það voru því Kanada og Bandarík- in sem hófu einvígi um Bermúdaská- hna sl. miðvikudag. Flestir munu hallast að sigri þeirra síðamefndu því þeir tefla fram 4 fyrrverandi heimsmeisturum og þar á meðal stigahæsta bridgemeistara heimsins, Bob Hamman. Aðrir í bandarísku sveitinni em Bobby Wolff, Eric Rodweh, JeffMeckstroth, Dick Free- mann og Nick Nikkel sem er útgerö- armaður sveitarinnar. í höi Kanada- manna eru Mittelman og Gittelman, Baran og Molson, sem ahir hafa spil- að á Bridgehátíð í Reykjavík, ásamt Kokish og Silver sem em minna þekktir af okkur. Umsjón Stefán Guðjohnsen Við skulum skoða eitt skemmtilegt spil frá undanúrshtunum mihi Kanada og Svía. Ef th vUl sýnir þaö lánleysi Svía í hnotskurn. N/A-V ♦ 92 V ÁD76 ♦ KG + ÁD754 * - V 842 ♦ D10953 + KG986 ♦ Á1076 f 1053 ♦ Á862 4« 32 ¥ KG9 ♦ 74 Norður Austur Suöur Vestur lgrand pass pass 2spaðar 31auf dobl pass 4 spaðar pass pass dobl Allir pass í opna salnum sátu Molson og Baran n-s, en Svíamir Morath og Bjerreg- ard a-v. Bjerregard strögglaði á tveimur spöðum og Molson ákvað að segja þijú lauf. Þegar Morath doblaði voru Kanadamennirnir komnir í vandræði. En Bjerregard stökk Ulu heUU í íjóra spaða sem Baran var ánægður að dobla. Molson hitti á besta útspihð þegar hann valdi tígulkóng og meiri tígul. Baran skipti síöan í hjartatíu og Molson tók á drottningu og síðan háða ásana. Nú spUaði hann þriðja hjartanu og Bjerregard var inni á kónginn. Hann spilaði spaöagosa, Baran drap með ás og spUaði tígh. Bjerregard trompaði með áttunni og Molson fékk á níuna. Spaðatían var síðan áttundi slagur vamarinnar og n-s höfðu krækt sér í 1400. Á hinu borðinu spUaði Kokish 2 spaða doblaða og fékk sex slagi. Það vom því aðeins 500 upp í tjónið og Kanada græddi 14 impa á spilinu. Vanefndauppboð Vegna vanefnda fyrri uppboðskaupanda fer fram vanefndauppboð á hluta í Bræðraborgarstíg 5, 01 -01, þingl. eign Þóreyjar Brynju Jónsdóttur, á eign- inni sjálfri miðvikudaginn 25. október 1995 kl. 11.00 eftir kröfu Lífeyris- sjóðs verslunarmanna og Ólafs Pálssonar, Heiðarlundi 20, Garðabæ. SÝSLUMAÐURINN i REYKJAVÍK Borgarskipulag Reykjavíkur Borgartúni 3 • 105 Reykjavík ■ Sími 563 2340 • Myndsendir 562 3219 Deiliskipulag a og b hluta Borgahverfis Skipulag og skilmálar fyrir íbúðabyggð a og b hiuta Borga- hverfis í Grafarholti verða til kynningar á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 1. hæð, frá kl. 8.30 til 16.15 alla virka daga frá 23. október til 20. nóvember 1995. UPPB0Ð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Hrauntunga 28, Hafiiarfirði, þingl. eig. Aðalsteinn B. ísaksson, gerðar- beiðendur Bæjarsjóður Hafnaríjarðar, Húsnæðisstofhun ríkisins, Lsj. Hlífar og Framt. og Sparisjóður Hafnarfjarð- ar, 27. október 1995 kl. 11.30. Hvammabraut 10, 0401, Hafharfirði, þingl. eig. Húsnæðisnefiid Hafnar- fjarðar, gerðarbeiðandi Húsnæðis- stofnun ríkisins, 27. október 1995 kl. 14.30. Hjallahraun 4, 0103, Hafharfirði, þingl. eig. Óríent hf., Reykjavík, gerð- arbeiðendur Lsj. lækna, tollstjórinn í Reykiavík, íslandsbanki hf. 526 og þrb. Óss hf., 27. október 1995 kl. 11.00. Suðurbraut 24, 0201, Hafharfirði, þingl. eig. Ema Svavai-sdóttir, gerðar- beiðendur Bæjarsjóður Hafnarfjarðar, og Húsnæðisstofhun ríkisins, 27. okt- óber 1995 kl. 15.00. Hlíðarbyggð 28,0101, Garðabæ, þingl. eig. Húsnæðisstofiiun ríkisins, gerðar- beiðandi Gjaldheimtan í Garðabæ, 27. október 1995 kl. 13.30. SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI UPPB0Ð Framhaid uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Klukkurimi 85, hluti, þingl. eig. Jóna Matthildur Jónsdóttir, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður verkamanna, Gjaldheimtan í Reykjavík, Lands- banki íslands og tollstjórinn í Reykja- vík, fimmtudaginn 26. október 1995 kl. 15.00. Fellsás 4, Mosfellsbæ, þingl. eig. Öm Lárusson og Helga Fanney Ásgeirs- dóttir, gerðarbeiðendur Byggingar- sjóður ríkisins, húsbréfadeild, Jón Snorrason, Steypustöðin hf. og toll- stjórinn í Reykjavík, miðvikudaginn 25. október 1995 kl. 10.30. NönnufeU 1, hluti í íbúð á 2. hæð t.h., merkt 0203, þingl. eig. Róbert Jóns- son, gerðarbeiðandi Tryggingamið- stöðin hf., miðvikudaginn 25. október 1995 kl. 16.30. Reykás 49, íbúð 0102, þingl. eig. Aðal- heiður B. Björgvinsdóttir og Valþór Valentínusson, gerðarbeiðandi Leifur Gíslason, fimmtudaginn 26. október 1995 kl. 16.30. Garðhús 55, 1. og 2. hæð og nyrðri bílskúr, þingl. eig. Helgi Snorrason og Þóra Sigurþórsdóttir, gerðarbeið- andi Hraðfrystihús Eskifjarðar hf., fimmtudaginn 26. október 1995 kl. 14.30. Stangarholt 10, eignarhl. 50%, þingl. eig. Sigurlaug Larusdóttir, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður nkisins, miðvikudaginn 25. október 1995 kl. 15.00. Gerðhamrar 17, hluti, þingl. eig. Jón Pálmi Pálmason, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfa- deild, og Þórdís Guðmundsdóttir, fimmtudaginn 26. október 1995 kl. 15.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.