Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 30
38
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 DV
Arngrímur, Þóra og dóttirin Thelma fengu kærkomið frí á Bahamaeyjum þó símsamband til Islands hafi verið stöðugt. Flugfélagið þeirra, Atlanta, er stöðugt
að auka umsvifin.
Enn aukast umsvifin hjá Atlanta:
- segir Arngrímur Jóhannsson sem ætlar að flytja tæplega fimmtán hundmð Islendinga til Bahamaeyja
Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri
og eigandi Atlanta, ákvaö að þegar
hann ætti breiðþotu sína, Boeing
747, skuldlausa myndi hann bjóða
eiginkonu sinni og meðeiganda,
Þóru Guðmundsdóttur, til Bahama-
eyja. Síðan var ákveðið að taka tæp-
iega fimm hundruð fslendinga með í
ferðina líka.
Þegar þessi saga var borin undir
Arngrím þar sem hann lét Bahamasól-
ina baka sig glotti hann: „Þetta er góð
saga en hún er þvi miður ekki sönn.“
Óvænt ferð
Hann segir að það hafi komið til
tals milli sín og Helga Jóhannssonar
hjá Samvinnuferðum-Landsýn á
föstudegi hvort möguleiki væri á að
nýta breiðþotuna þar sem engin
verkefni væru fyrir hana fyrr en í
desember. Þeir ákváðu að prófa að
auglýsa Bahamaferð um helgina og
klukkan tíu á mánudagsmorgni var
hún uppseld. Arngrímur segist ekki
hafa átt von á slíkum áhuga og hann
hefði komið mjög á óvart. Næsta
ferð, sem farin verður 2. nóvember,
seldist einnig upp þannig að ákveð-
ið var að bæta þeirri þriðju við enda
voru komnir 280 manns á biðlista í
þá ferð þegar viðtalið var tekið um
síðustu helgi.
„Það er enginn grundvöllur að
fara svona ferð nema með alveg
fulla vél,“ segir Arngrímur og bætir
við að raunverð ferðarinnar sé um
120 þúsund krónur en Bahamafar-
þegar voru að greiða 39.900 krónur.
Kærkomið frí
Arngrímur og kona hans, Þóra,
hafa aldrei fyrr verið á Bahamaeyj-
um og litu á ferðina sem kærkomið
frí enda beið breiðþotan á flugvellin-
um þá sex daga sem ferðin stóö yfir.
Reyndar millilenti Arngrímur
Cargoluxvél á flugvellinum í
Nassau, höfuðborg Bahamaeyja, fyr-
ir tuttugu árum en sagðist aldrei
fyrr hafa dvalið þar en hann hefur
ferðast um allan heim á löngum
starfsferli. „Hér er yndislegt að
vera, fallegur staður með góðum
ströndum, sannkölluð paradís,“
sagði hann.
Arngrímur segir að ekki sé ólíkt
að fljúga breiðþotu og venjulegri vél,
nema ef vera skyldi þægilegra.
„Þessar vélar hafa mikið flugþol, eru
léttar og góðar. Ég hef verið með sex
svona vélar í gangi á undanförnum
árum og er ánægður með þær,“ seg-
ir hann en þess má geta aö Atlanta
var með tólf þotur í notkun í sumar
víða um heim. í sumar störfuðu 480
manns hjá Atlanta þannig að umsvif
fyrirtækisins eru stöðugt að aukast.
„Þetta er vinna dag og nótt en við
tökum einungis eitt skref í einu.
Umsvifm hafa vissulega aukist hratt
en við höfum átt því láni að fagna að
vera með frábært starfsfólk í vinnu
hjá okkur. Önnur ástæða fyrir þess-
ari velgengni er kannski sú að við
höfum lítið þurft að vera upp á
banka komin.“
Arngrímur er ekki á því að hann
ögri ■ Flugleiðum með þessari vel-
gengni. „Ég er á allt öðrum mark-
aössvæðum en þær,“ segir hann, lit-
ur til sólarinnar og bætir við:
„nema kannski á þessu svæði“.
Umsvif víða um heim
Atlanta hefur starfað mikið í
Asíu, t.d. Indó-Kína, Indónesíu, Ví-
Thelma Arngrímsdóttir fékk fléttur
með perlum að Bahamasið á strönd-
inni, líkt og allmargar aðrar konur í
ferðinni. v
etnam, Laos, Kambódíu og Kúveit.
Þá hefur fyrirtækið umsvifamikinn
rekstur í Sádi-Arabíu og þar hefur
risið heilt íslenskt þorp í kringum
Atlanta. „í Sádi-Arabíu eru fimm
fastir starfsmenn sem sjá um að
reka fyrirtækið, auk þeirra sem eru
í fluginu. Við erum með lítil hús þar
og skrifstofu og þar hefur sannar-
lega risið lítið þorp í kringum okk-
ur,“ segir Arngrímur. 'Pílagríma-
flugið hefst eftir áramótin og þar
hefur Atlanta náð góðum markaði
og notað breiðþotur í flutningana.
Islenskar flugfreyjur hafa starfað
við pílagrímaflugið og var hannaður
fyrir þær sérstakur búningur að ar-
abískum sið til að misbjóða ekki sið-
ferðiskennd innfæddra.
Það var reyndar árið 1991 sem
Atlanta fékk fyrstu breiðþotuna,
TriStar, en hún var meðal annars
notuð í farþegaflutningum í Súdan.
Þá hefur Atlanta einnig verið í
öflugum vöruflutningum frá Þýska-
landi en Amgrímur er með Boeing
737 á kaupleigusamningi þar. Næsta
sumar mun Atlanta flytja unglinga
með breiðþotu frá Þýskalandi á
ólympíuleikana í Atlanta í Banda-
ríkjunum. Þá eru ótalin öll verkefn-
in fyrir Samvinnuferðir-Landsýn.
Bráðum tíu ára
í viðtali við helgarblaðið fyrir
tveimur árum sagði Arngrímur að
Atlanta hefði orðið til í upphafi við
eldhúsborðið hjá þeim hjónum árið
1986. Það verður því tíu ára á næsta
ári.
Árið 1992 flutti Atlanta í gamla
Álafosshúsið í Mosfellsbæ, heimabæ
eigandanna, þar sem það er enn til
húsa. Arngrímur hefur verið viðloð-
andi flugmál frá því hann var ungur
maður á Akureyri. Hann hóf störf
sem flugmaður hjá Flugfélagi ís-
lands árið 1966. Siðar fór hann yfir
til Loftleiða. Arngrímur starfaði
lengi hjá Cargolux í Lúxemborg og
var um tíma einn af eigendum Arn-
arflugs. Þá var hann ferjuflugmað-
ur, flutti flugvélar milli heimshluta
og landa, i nokkur ár. Arngrímur
rak eigin flugskóla um nokkurt
skeið, Flugtak, eða þar til hann
stofnaði Atlanta.
Þóra Guðmundsdóttir er gamal-
reynd flugfreyja. Hún starfaði um
árabil hjá Loftleiðum og síðan Flug-
leiðum. Áhugamál þeirra beggja er
því flugið og rekstur fyrirtækisins
sem þau eru samhent um.
Arngrímur vill ekki spá neinu um
áframhaldandi umsvif fyrirtækis-
ins. Hann segist taka eitt skref í
einu: „Ætli þetta haldist ekki eitt-
hvað svipað,“ segir hann hugsi.
Undrandi á
r
Islendingum
Þess má geta að markaðsstjóri
hótelsins Marriott, þar sem íslend-
ingcirnir gistu á Bahamaeyjum, var
ákaflega undrandi á hversu fljótir
íslendingar væru að ákveða ferða-
lög. „Hingað til höfum við aðeins
kynnst því að pantað sé með minnst
sex mánaða fyrirvara - þið þurfið
bara hálfan mánuð. Hvernig eru ís-
lendingar eiginlega?" spurði hann,
„og hvernig er þetta flugfélag?" Hon-
um fannst það tilkomumikið þegar
sagt var að flugstjórinn og eigand-
inn hefðu ákveðið að láta landa sína
njóta þess að hann hefði verið að
eignast breiðþotu skuldlausa.
Það hefði nú kannski ekki verið
hægt að bjarga hótelherbergjum fyr-
ir tæplega fimm hundruð íslendinga
á svo stuttum tíma nema vegna þess
að á þessum árstíma er rigninga-
tímabU á Bahamaeyjum og því frek-
ar lítið um ferðamenn, utan þeirra
sem koma með skemmtiferðaskip-
um. Því eru hinir kolsvörtu Ba-
hamabúar yfir sig hrifnir að fá
þessa óvæntu innrás fimmtán
hundruð íslendinga.